Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Side 47
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 55 r>v Ferðir Ferðafélagið Útivist heldur til fjalla um páskana: Ný skíðaferð á Tindf jöll og f j ölskylduhátíð í Þórsmörk Ferðafélagið Útivist efnir til nokk- urra ferða um páskana. Um lengri og styttri ferðir er að ræða og hægt að velja á miili gönguferða, skíðagöngu- ferða og fiölskylduferðar. Félagið hefur undanfarin ár efnt til fjölskylduferðar í Bása á Goðalandi við Þórsmörk um páskana og verður engin undantekning á því nú. Að sögn Kristjáns Baldurssonar hjá Úti- vist er fjölskylduferðin hugsuð sem skemmtiferð við allra hæfi þar sem í boði verða styttri og lengri gönguferð- ir og kvöldvökur. Brottfór er laugar- daginn 22. apríl og komið heim á öðr- um degi páska. „Á sama tíma verðum við með nýja skíðaferð. Ekið verður austur að Fljótsdal og gengið upp í efsta skál- ann í Tindtjöllum og gist í tvær næt- ur. Á sunnudeginum gefst ferðalöng- um kostur á að ganga á skíðum inn á Tindfjallajökul og ef færi er gott þá setjum við stefnum á hæstu hnúkana, Ými og Ýmu,“ segir Kristján. Skíðagönguferðir njóta sívaxandi vinsælda hérlendis og því efnir félag- ið til tveggja lengri ferða fyrir vana skíðamenn. Annars vegar verður gengið yfir Kjöl og hins vegar verður gengið syðst á Vatnajökul, af Skála- fellsjökli á Öræfajökul. Lagt verður upp í báðar ferðir 19. apríl og komið heim 24. apríl. I Kjalarferðina verður ekið norður í land, inn á Auðkúlu- heiði og gengið síðasta spölinn inn á Hveravelli þar sem gist verður tyrstu nóttina. Þaðan er haldið á næstu dög- um milli skála og endað á Bláfells- hálsi þangað sem hópurinn verður sóttur. í ferðinni á Vatnajökul verður ekið á jeppum inn á Skálafellsjökul. Gengið verður um Esjuíjöll, Her- mannaskarð að Hvannadalshnúk og haldið niður Öræfajökul á næstsíð- asta degi. Gist er í svefhpokaplássi fyrstu og síðustu nóttina, en í tjöldum á jökli. Þá er ótalin páskaferð Jeppadeild- arinnar. Haldið verður í fögurra daga ferð í Jökulheima 20. apríl. Gist verður í skálum Jöklarannsóknafé- lagsins og síðan er áætlað að aka að Kerlingu, að Grímsfjalli í Vatnajökli Básar á Goðalandl Eins og fyrri ár efnir Útivist tii fjölskylduferðar í Þórsmörk um páskana. og í Veiðivötn. Að sögn Kristjáns er þessi ferð einvörðungu fyrir bíla sem eru vel búnir til vetraraksturs. Á skírdag verður haldið í aðra jeppaferð og ekið upp í skála ferða- klúbbsins 4x4 Setrið og gist þar tvær nætur, en síðan haldið á þriðja degi í Laugafell og gist og svo áfram til Hveravalla á páskadag. Áætlað er að aka heimleiðis yfir Langjökul. Auk lengri ferðanna eru dagsferðir um bænadaga og páska sem kynntar verða í fjölmiðlum og á heimasíðu Útivistar: utivist.is. Þeim sem vilja komast úr bænum strax um helgina er bent á afmælisgöngu á Keili á morgun, sunnudaginn 9. apríl. Þetta er ganga i tilefni 25 ára afmælis Úti- vistar og býður Útivist félögum sín- um frítt í gönguna, en verð er 1000 kr fyrir aðra. 25 þúsund gestir heimsóttu Viðey í fyrra: Fjórtán brúðkaup og jarðarför Rétt tæplega 25 þúsund manns höfðu viðkomu í Viðey í fyrra og er það mesta aðsókn að eynni á einu ári hingað til. Áhugi manna á Viðeyjarferðum sveiflast ár frá ári og er hann helst tengdur veðurlagi. Hin síðari ár voru gestakomur í eyna fæstar árið 1992 en þá stigu þar þó hátt í 18 þúsund manns á land. Talsverð starfsemi er í Viðeyjar- kirkju og í fyrra voru haldnar þar níu almennar messur og 43 aðrar helgistundir. Að auki voru í kirkj- unni fjórtán hjónavígslur, fjórar skimir og ein útfor. Best sóttu at- hafnimar voru hins vegar helgi- stundir fyrir gesti jólahlaðborða í Viðeyjarstofu en viðstaddar þær voru alls 1400 manns. 1200 gestir komu bæði í göngu- ferðir og staðarskoðun og 3500 manns hlýddu á á frásagnir af sögu eyjarinnar áður en þeir gerðu sér veitingar í Viðeyjarstofu að góðu. -GAR Skakkl turninn Einn frægasti turn heims verður væntanlegur opinn ferðamönnum í júní á næsta ári. Viðgerð lýkur eftir ár Ferðamenn sem heimsækja itölsku borgina Pisa á þessu ári verða víst að sætta sig við að skoða hinn heims- fræga Skakka turn úr fjarlægð. Fregnir herma nefnilega að enn sé heilt ár í að framkvæmdum ljúki við turninn. Tuminn, sem var reistur á 13. öld, hefur raunar verið lokaður ferðamönnum síðan 1990 en þá þótti mönnum ekki hættandi lengur aö hleypa ferðamönnum inn vegna ástands hans. Skipt hefur verið um mestallan jarðveg í kringum tuminn og við framkvæmdimar hefur tekist að rétta hann lítillega við. Tuminn mun standa fyrir sínu að loknum framkvæmdum því hann verður alltaf skakkur. Býrðu í Koupmannahöfn? Ertu ú leiðinni ??? www.islendingafelagld.dk Sádi-Arabía: L Þótt Helga borgin vestrænum ferðamönnum verði hleypt til Sádi-Arabíu verður þeim tæp- ast leyft að heimsækja helgu borgirnar tvær, Mekka og Medína. Ferðamennska handan við hornið Fregnir herma að ferðamenn geti brátt lagt leið sína til Sádi-Arabíu en stjórnvöld þar í landi þykja hafa þokast mjög í frelsisátt í þeim efn- um. Nýjar reglur um landvistarleyfi hafa verið samþykktar en nokkuð ljóst er að enginn fær að valsa óá- reittur um landið. Ferðamönnum verður gert að ferðast í hópum und- ir stjóm innlendra ferðaskrifstofa. Á hverju ári heimsækja um 1,5 milljónir pílagríma Sádi-Arabíu. Flestir koma frá nágrannalöndun- um við Persaflóa og þurfa því ekki sérstaka vegabréfsáritun Þeim var í fyrsta skipti leyft að ferðast um landið í fyrra en áður höfðu ferðir pílagrima verið ein- skorðaðar við helgu borginar tvær, Mekka og Medína. Breskar ferða- skrifstofur kváðu vera spenntar fyr- ir þessum nýja möguleika og telja víst að ferðir til Sádi-Arabíu geti orðið vinsælar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.