Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Blaðsíða 50
y
58
Tilvera
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
DV
Myndbandagagnrýni
Luck of the Draw
★★
Sýdurá
lukku-
pottin-
um
Krimmar sem þessi eru fjölda-
framleiddir í HoUywood og lítið sem
greinir þá hvem frá öðmm. Þessi til-
tekni krimmi fylgir klisjunum dyggi-
lega og greinir sig frá öðmm slíkum
aðeins með nokkram stjörnum í leik-
hópnum.
Hér segir frá Jack Sweeney, at-
vinnulausum fyrrverandi tugthúslim
sem fær hvergi vinnu sökum fortíðar
sinnar. Hann dettur í lukkupottinn
þegar hann lendir fyrir tilviljun í
miðjum skotbardaga miiii tveggja
glæpaflokka og lögreglunnar. Fyrir
fætur hans fellur taska sem inniheld-
ur prentplötur fyrir hundrað dollara
seðla og hann stingur af með þær.
Meiningin er auðvitað að koma þeim
í verð, en það er engin óskastaða að
hafa tvær voldugar glæpaklíkur og
löggumar að auki á hælunum á sér.
Skotbardagar, svik og prettir,
■■ ósvifnir glæpamenn, metnaðargjam-
ar löggur og misvel klæddar konur
fylia þessa mynd, sem gengst upp í
klisjunum eins og hún sé stolt af
þeim. Þetta er síður en svo merkileg
mynd, en hún nær að halda dampi
nokkuð vel og það er gaman að fylgj-
ast með sumum leikaranna. Þama
era gæjar eins og Dennis Hopper,
Michael Madsen, Eric Roberts, Ice-T
og auðvitað William Forsythe, sem
er einhver skemmtilegasti töffara-
leikarinn í bransanum. -PJ
* Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Luca Bercovici.
Aöalhlutverk: James Marshall og Wendy Ben-
son. Bandarísk, 1999. Lengd: 98 min. Bönn-
uð innan 16 ára.
-v
W
Entropy
iricL.
Heill-
andi
—
IN DOfiff WWTHOOHNfCf
NQN0
WWÍWII*
entröþý
órelða
óreiða
astar-
innar og villtar
poppstjörnur
Yfirleitt sjáum við myndir um ást-
sjúkar stúlkur sem þrá ekkert heitar
en fmna riddarann á hvíta hestinum,
hvar sem hann nú er. Menn virðast
ekki verða eins ástsjúkir fyrr en eftir
að þeir hafi hitt sína heittelskuðu.
Hvemig svo sem það er og undantekn-
ingar era þá er Phil Joanu hér með
sögu um ástina.
Jake Walsh, ungur leikstjóri, sér
sætt módel, Stellu, og fellur. Áður en
þau ná að kynnast er hann haldinn
þráhyggju út af henni. Þau ná að kynn-
ast og spuming er um ást við fyrstu
sýn. Eitt leiðir af öörum sem leiðir af
sér annað. Þannig verður óreiðan til
og viðheldur sér. Við fylgjumst með
óreiðunni skapast og hvort lausnir séu
til sem eru ásættanlegar. Jafnframt
kemur hljómsveitin U2 til sögunnar
sem nokkurs konar bakgrunnur
myndarinnar.
Ástin er víst jafnfyndin og hún er
sorgleg. Gamanmynd er full sterkt orð
yfir þessa mynd en hún er alls ekki
leiðinleg. í fyrstu veltir maður því fyr-
ir sér hvort maður sé byrjaður að
horfa á heimildarmynd með neðan-
málstexta eða einfaldlega algjört ný-
breytniragl í tónlistamyndbandastíl.
Fljótlega venst maður þó sjónarhom-
inu og sögumanninum og fer að njóta
myndarinnar. Mynd sem kemur á
óvart. -GG
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Phil Joanou.
Aöalhlutverk: Stephen Dorff, Judith Godreche,
Kelly MacDonald, Lauren Holly, Bono, John
Tenney, Paul Guilfoyle, Frank Vincent og Hector
-* Elizondo. Bandarisk, 1999. Lengd: 118 mín.
Leyfö öllum aldurshópunv
Ewan McGregor:
Trainspotting segir í
raun allt sem segja
þarf. Fyrir þá mynd
hlaut McGregor
heimsfrægð svo um
munaði. Þó vaknaði at-
hygli á honum fyrr þeg-
ar hann lék í ekki
eins vinsælli mynd,
Shallow grave.
Bakgrunnurinn
Ewan McGregor
fæddist 31. mars 1971 í
Crieff í Perthskíri í
Skotlandi og er af
verkamannafólki kom-
inn. Strax á unga aldri
vildi Ewan verða leik-
ari og réð þar miklu að
frændi hans, Denis
Lawson, var leikari.
Þegar Ewan varð 16 ára
fluttist hann að heiman
og gekk í Perth Reper-
tory Theater en fljót-
lega þröuðust málin svo
að hann fór í Guildhall
School of Music and
Drama í London.
Boltinn byrjar að
rúlla...
Árið 1993 byrjar lukk-
an að leika við Ewan.
Hann fékk hlutverk í
enskri sjónvarpsmynd,
Lipstick on Your Collar,
auk þess að fá einnar
línu hlutverk í mynd-
inni Being Human.
E.t.v. var það heppni að
hann fékk ekki nema eina línu i
þeirri mynd því hún kolféll.
Ewan var ekkert að arka til
Hollywood heldur hélt hann sig
heima við á Bretlandi meðan hann
var að reyna sig og frægðin átti eftir
að koma. 1994 lenti hann í slagtogi
með rithöfundinum John Hodge, leik-
stjóranum Danny Boyle og framleið-
Star Wars: Episode I - The Phantom Menace.
Ewan McGregor í hlutverki Obi-Wan Kenobi.
andanum Andrew Mc’Donald og
leiddi það samstarf af sér Shallow
Grave. Sú mynd náði miklum vin-
sældum og Ewan var virkilega kom-
inn á flug. Hlutverk hans í Shallow
Grave leiddi svo af sér að hann fékk
hlutverk í Trainspotting. Eftir það
hefur ekkert stöðvað hann og hefur
hann leikið í fjölmörgum myndum og
sjónvarpsþáttum.
í þessum fjölmörgu
og þáttum
hann ekki lent í
sem leik-
arar lenda alltof oft í,
að festast í hlutverki
ákveðinnar týpu. Fjöl-
breytnin hefur umvaf-
ið hlutverk hans og
hefur hann sýnt sig og
sannað svo um munar
hvað leikræna hæfi-
leika varðar. Það sem
þó helst hefur ein-
kennt val hans er að
hann hefur frekar val-
ið myndir, gerðar í
heimalandi sínu og af
samlöndum sinum, en
að fara í Hollywood-
kvikmyndafram-
leiðslukeðjuna.
Helstu myndirnar
sem hann hefur leikið
í era: Shallow Grave,
The Pillow Book,
Trainspotting,
Emma, A Life Less
Ordinary, Brassed
off, Velvet Goldmine,
Rogue Trader, Little
Voice, Nightwatch og
Star Wars: Episode I
The Phantom
Menace.
Einkalífi Ewans hef-
ur verið lítið flaggað
opinberlega en einna
helst er þaðan að frétta
að árið 1996 giftist
hann hinni frönsku
Eve Mouvrakis. Ári síðar eignuðust
þau dótturina Clöru. Ewan McGregor
getur víst einna helst þakkað það lít-
illi umfjöllun um persónulíf sitt
hversu lengi hann hefur haldið sig
frá glaumi og gleði Hollywood.
Guðrún Guðmundsdóttir
Hallærislega flottur
Rogue Trader
★★★
Ósvíf-
inn
banka-
ræningi eöa
heimskur strákur
„Ég er saklaus“ virðist vera sér-
lega vinsælt efni sjálfævisögu-
mynda. Nicholas Leeson og Ed-
ward Whitley sulluðu saman einni
slíkri sögu og leikstjórinn James
Dearden sauð hana. Ekki nema
von þar sem fáir geta státað af að
setja virðulegan banka á hausinn
og það gerir efnið sérlega áhuga-
vert.
Eins og margir vita þá setti
Nick Leeson hinn virðulega enska
Barings-banka á hausinn. Virðu-
legan banka sem drottningin í
Bretlandi átti sjálf viðskipti við.
Sagan segir af byrjun starfsferils
Nicks hjá þessum banka og kynn-
um hans af eiginkonunni. Leiðir
það siðan að þeim atburðum sem
orsökuðu fall bankans. Sumir telja
að Nick hafi komið undan milljón-
um ef ekki milljörðum en aðrir
telja hann hafa veðjað meira en lít-
ið vitlaust.
Myndin er vel leikin og skilar vel
sínu. Ewan McGregor nær að túlka
prýðilega vaxandi taugaálag Nicks
og meðleikendur hans skila vel frá
sér sínu. Löst við myndina má telja
hve mikil áhersla er lögð á að ég er
nú eiginlega alveg saklaus týpu-
myndim hvað varðar Nick. Sagan
verður því heldur hlutdræg en eyði-
leggur alls ekki myndina. -GG
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: James Drear-
den. Aöalhlutverk: Ewan McGregor og Anna Fri-
el. Bresk, 1998. Lengd: 101 mín. Leyfð öllum
aldurshópum.
Myndbandagagnrýni
Fyrsti kaflinn
Gamla Star Wars-trílógían er ein-
hver frægasta og vinsælasta trílógía
allra tíma og þess hefúr lengi verið
beðið að George Lucas færi af stað
með fleiri myndir úr þessum bálki
sem á víst fúllkláraður að verða einar
níu myndir í þremur trílógíum. Af ein-
hverjum ástæðum var byijað í miðj-
unni og þessi fjórða Star Wars mynd
er sem sagt eiginlega fyrsti kafli sög-
unnar. Þar segir frá því þegar Jedi-
riddarinn Qui-Gon Jinn og lærisveinn
hans, Obi-Wan Kenobi, uppgötva eitt-
hvert mesta Jedi-riddaraefhi sem
nokkum tíma hefur komið fram, hinn
unga Anakin Skywalker.
Krakkar hljóta að hafa gaman af
þessu íburðannikla ævintýri og auð-
vitað er þetta skylduáhorf fyrir áhuga-
menn um Star Wars. Fyrir kvik-
myndaáhugamann sem hafði gaman af
Star Wars-myndunum á unglingsaldri,
án þess að á hann rynni Star Wars-
æði, er þessi mynd lítið meira en af-
Star Wars!
Ttie
Phantom
Menace
★★
þreying - vönduð
en innihaldsrýr
og varla meira en
meðalmynd. Það
var helst að hún næði gamla sjarman-
um í geislasverðabardaga seint i
myndinni, en gallinn var að þessi Jedi-
riddarar voru svo leiðinlegir og
óspennandi að maður stóð sig að því
að halda með vonda kaliinum. Það er
kannski stærsti galli myndarinnar -
skortur á áhugaverðum persónum.-PJ
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: George
Lucas. Aöalhlutverk: Liam Neeson, Ewan
McGregor, Natalie Portman, Jake Lloyd
og lan McDiarmid. Bandarisk, 1999.
Lengd: 128 mtn. Öllum leyfö.
Klassiskt myndband
Geimvera á mannaveiðum
Ég held ég hafi verið nálægt því
að fá taugaáfall af skelfingu þegar
ég fékk smjörþefmn af hryúings-
myndum á unga aldri - svindlaði
mér inn á American Werewolf in
London og hélt út í hálftíma áður en
ég lagði á flótta. Eftir að ég harðnaði
og fór að geta notið hryllingsmynda
hefur aðeins ein slík virkilega kom-
ið mér fram á stólbríkina af spenn-
ingi, en það var geimhrollurinn
Alien.
Alien var gerð árið 1979, tveimur
árum eftir að Star Wars skók heims-
byggðina með riddaralegum geim-
köppum slegnum hetjuljóma. Framtíð-
arsýnin í Alien var öllu dekkri og
raunsærri. Það var eins konar verka-
mannabragur á söguhetjunum, áhöfn
flutningaskipsins Nostromo sem sigldi
um geiminn með milljónir tonna af
jámgrýti í eftirdragi. Áhöfhin er vakin
úr dvala af skipstölvunni til að bregð-
ast við neyðarkalli frá nálægri
plánetu. Þau senda út könnunarleið-
angur sem kemur aftur með einhverja
lífvera klessta við andlit eins liðs-
mannsins. Eftir að geimveran dettur
dauð af andliti hans heldur áhöfhin
heim á leið, en í frægri senu brýst eitt-
hvert kvikindi úr maganum á John
Hurt við matarborðið. Skrímslið litla
stækkar ört og situr um áhafnarmenn,
sem era vopnlausir og vamarlausir
gagnvart þessari drápsvél og eiga enga
undankomuleið, fastir i geimskipi sínu
úti í hinum myrka geimi.
Geimskrímslið sjálft er með flottari
hönnunarverkum kvikmyndasögunn-
ar, en það var byggt á teikningum
listamannsins H.R. Giger. Leikstjórinn
Ridley Scott passar sig á því að fela
skrímslið í skuggum og skúmaskotum
skipsins, viðheldur þannig dulúðinni
og virkjar hræðslu áhorfandans við
hið ókunna. Hann gefur meira í skyn
en hann sýnir og áhorfandinn fær í
raun aldrei að sjá skrimslið í allri
sinni dýrð (fyrr en í framhaldsmynd-
unum). Gegn þessum ofurmannlega
óhugnaði teflir hann leikkonunni Sigo-
umey Weaver í hlutverki kvenhetj-
Alien
★★★★
unnar Ripley, en
hún átti eftir að
leika þann geim-
verabana í öll-
um framhaldsmyndunum og skapa
þannig eitthvert lífseigasta hörku-
kvendi kvikmyndasögunnar. Ridley
Scott er einmitt þekktur fyrir kven-
hetjur sínar úr fleiri myndum. Henni
til halds og trausts eru gæðaleikarar
eins og John Hurt og Harry Dean
Stanton sem með bláflibbatúlkun sinni
hjálpa til við að gera myndina eins
jarðbundna og kostur er með tilliti til
umfjöliunarefnisins. Þá er ónefndur
Ian Holm, sem er sérstaklega óhugnan-
legur í mikilvægu hlutverki. Að minu
mati er Alien ein af bestu hrollvekjum
sem gerðar hafa verið og hefur ekki
tapað neinu af sínum hryllingi þessi 20
ár sem liðin eru síðan hún var gerð.
Leikstjóri: Ridley Scott. Aöalhlutverk: Sigoumey
Weaver. Bandarisk, 1979. Lengd: 117 mln.
Pétur Jónasson