Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Qupperneq 8
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000
Utlönd
DV
Gerhard Schröder
Bætur til fórnarlamba nasista.
Bætur greiddar
Efri deild þýska þingsins
samþykkti einróma að greiða sem
nemur 10 milljónum marka til
ánauðugra verkamanna úr
fangabúðum nasista í síðari
heimsstyrjöld. Greiöslan er
jafnframt síðasta bótagreiöslan
sem þýska ríkið og iðnrekendur
greiða fyrir syndir forfeðranna.
Mbeki harðlega gagnrýndur fyrir að segja HIV ekki orsök alnæmis:
Mandela ver ummæli
Mbekis um alnæmi
Fyrrverandi forseti Suður-Afríku,
Nelson Mandela, blandaði sér í heit-
ar umræður á lokadegi 13. alþjóð-
legu alnæmisráðstefnunnar í
Durban í Suður-Afríku um orsök og
afleiðingar þessa faraldurs sem
verður fleiri að fjörtjóni en nokkur
annar sjúkdómur.
Mandela steig í pontu eftir að arf-
taki hans í embætti, Thabo Mbeki,
hafði æ ofan í æ verið gagnrýndur
af ráðstefnugestum fyrir ummæli
sín við upphaf ráðstefnunnar um að
hugsanlega væru engin tengsl á
milli HIV-veirunnar og alnæmis.
Sagði Mandela af þessu tilefni að
menn skyldu ekki láta misklið
koma niður á baráttunni gegn al-
næmi.
„í ljósi hinnar miklu ógnar sem
okkur stafar af HlV/alnæmi verð-
um við að komast yflr alla misklíð
og sameina krafta okkar til að
bjarga fólki,“ sagði Mandela meðal
annars í ræðu sem var endapunkt-
urinn á 13. alnæmisráðstefnunni
sem jafnframt hefur verið lýst sem
þeirri mikilvægustu frá upphafi.
Mandela hélt áfram og sagði að
Nelson Mandela
Mandela lauk ráöstefnunni á stuöningsyflrlýsingu viö Mbeki, forseta Suöur-
Afríku. Sagöi hann m.a. rétt aö efast um uppruna alnæmis.
alnæmi væri harmleikur án nokk-
urra takmarka sem væri að breiða
úr sér yfir alla Afríku. Mandela
varði ummæli Mbekis í upphafs-
ræðu sinni, rétt hans til að efast um
uppruna og smitleiðir sjúkdómsins
en að forgangsatriðin væru eftir
sem áður að lækna alnæmi og að
hlúa að fórnarlömbum þess og að
Mbeki hefði helgað sig baráttunni.
„Hann mun, ásamt mér, vera
fyrstur til að viðurkenna að það
þarf að koma miklu meiru í verk,“
sagði Mandela m.a. um Mbeki og
sagðist jafnframt að hann efaðist
ekki um að Mbeki myndi reynast
traustsins verður eins og dæmin
sýndu. Meirihluti þeirra 34,3 millj-
óna manna sem eru sýktir af HIV
eru búsettir i Afríku. Mbeki hefur
verið gagnrýndur fyrir aðgerðaleysi
á meðan fólk deyr úr sjúkdómi sem
lamar heilu efahagssvæðin. Mbeki
hefur útnefnt sk. „alnæmisútlaga" í
ráðgjafarnefnd um forvarnir gegn
alnæmi og til að hefta útbreiðslu
sjúkdómsins en sumir félagsmanna
neita beinlínis að trúa því að HIV sé
orsök alnæmis.
Bastilludagurinn haldinn hátíölegur
Fyrsti Bastilludagur nýs árþúsunds fór fram með stæl um allt Frakkland í gær. Taliö er aö um 4 milljónir Frakka hafi
sest aö snæöingi undir berum himni viö iangborö sem náöi frá Ermarsundi aö spænsku iandamærunum.
Veitti í sjóði CDU
André Taralio,
fyrrum fulltrúi
franska olíufyrir-
tækisins Elf
Aquitaine í Gabon í
Frakklandi, hefur
viðurkennt að fyrir-
tækið hafl greitt há-
ar fjárhæðir í flokk-
sjóði CDU árið ‘94. Greiðslan fór
fram að undirlagi franska ríkisins.
Einn gislanna laus
Múslímskir uppreisnarmenn sem
haldið hafa 21 manni í gíslingu á
Suður-Filippseyjum í rúma þrjá
mánuði, slepptu einum gíslanna úr
haldi í gær. Maðurinn er Malasíu-
búi og sögðu uppreisnarmenn að ef
til vill yrði öðrum Malasíubúa
sleppt von bráðar.
21 ferst í rútuslysi
Að minnsta kosti 21 ungmenni
lét lifið í hörðum árekstri fjögurra
rútubifreiða skammt frá Seoul í
Kóreu í gær. Vagnamir voru þétt-
setnir af menntaskólanemendum
þegar atvikið átti sér stað á hrað-
hraut suður af borginni. Við árekst-
urinn kviknaði i þremur rútnanna
en sú fjórða fór út af veginum.
ÍW
Madelelne Albright
Bandaríkjamenn vilja halda öðrum
hópum utan viö friöarviöræöurnar.
Madeleine Al-
bright ræðir við
PLO-samtökin
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Madeleine Albright, mun
halda áleiðis frá Camp David, þar
sem hún hefur tekið þátt í friðarvið-
ræðum ísraela og Palestinumanna,
til að hitta ráðamenn frá Palestínu
sem komnir eru til Bandaríkjanna
til að taka þátt í friðarviðræðunum
að ósk Arafats. „Albright mun hitta
meðlimi úr PLO,“ sagði ónefndur
heimildarmaður. Yfirvöld hafa neit-
að að staðfesta að af fundi PLO og
Albright verði.
Ný dauðsföll af völdum
kúariðu í Bretlandi
Svangur?
Fjórir til viöbótar hafa látist eftir aö hafa boröaö kjöt
sýkt af kúariöu.
Bresk yfirvöld gáfu frá sér
yflrlýsingu í gær þar sem
þau sögðust hafa sett í gang
rannsókn á uppruna og út-
breiðslu kúariðu í þorpinu
Queniborough á Englandi.
Svo virðist sem mikill ótti
hafl gripið um sig í Evrópu
vegna málsins.
Upphaflð má rekja til þess
er fjórir einstaklingar létust
af völdum nýrrar tegimdar
af Kreutzfeld Jakob-sjúk-
dóminum 1 síðasta mánuði en
sjúkdómurinn er bein afleið-
ing af kúariðusmiti 1 mannslíkam-
anum og ræðst á heilastarfsemina.
Þrjú fórnarlambanna sem létust
með viku millibil áttu öll heima í
nálægð hvert við annað.
„Það er mjög ólíklegt að þetta sé
tilviljun," sagði talsmaður heil-
brigðisráðuneytisins þar í landi,
Allison Langley. Langley sagði að
rannsóknin myndi að öllum líkind-
um taka einhverja mánuði í fram-
kvæmd en myndi auka skilning
manna á kúariðu sem lamaði nauta-
kjötsútflutning Breta fyrir nokkrum
misserum og vakti harðvít-
ugar pólitískar deilur um
alla Evrópu um hvaða kjöts
væri óhætt að neyta.
Fréttir af þessari nýju
rannsókn koma einu ári eft-
ir að EB aflétti útflutnings-
banni á nautakjöti frá Evr-
ópu vegna tilfella af Kreutz-
feld Jakob-sjúkdóminum
sem rekja mátti til kúariðu í
nautgripum.
Kúariða var fyrst greind
árið 1986 og segja yfirvöld
líklegt að tilfellin sem nú
eru I rannsókn hafi öll verið frá
fólki sem sýktist á níunda áratugn-
um.
Dr. Philip Monk sem leiðir rann-
sóknina hefur beðið fólk um að
halda að sér höndum enda er rann-
sóknin enn á frumstigi.
Gift hundi
Fjögurra ára indversk stúlka
gekk nýlega í það heilaga með
hundi að Hindu-sið. Það var
stjömufræðingur sem sagði fóður
hennar að hjónabandið með hundin-
um myndi lækna öll hennar mein
og forða frá ólukku.
Ætla að kafa að Estoniu
Sænsk yfirvöld hafa beðið Banda-
ríkjastjóm um að setja lögbann á
áætlanir bandarísks kafarafyrirtæk-
is sem ætlar að kafa niður að flaki
ferjunnar Estoniu og kanna þar að-
stæður.
Kjarnorkuflotanum breytt
Vladímír Pútín,
forseti Rússlands,
reyndi í gær að
stúla til friðar milli
helstu ráðamanna
rússneska hersins
en fram undan er
uppstokkun og end-
urskipulagning á
þessum stærsta her Evrópu. í fyrstu
var talið að vamarmálaráðherra
Rússlands, ígor Sergejev, hefði hót-
að að segja af sér vegna málsins.
Gaf soninn á Netinu
29 ára gömul kona í Kalifomíu í
Bandaríkjunum hefur viðurkennt
að hafa ættleitt 10 ára gamlan son
sinn í gegnum Netið. Að sögn kon-
unnar var hún orðin hundleið á
frekjunni í honum.
Vei heppnuð gönguvertíð
Forsætisráðherra Bretlands,
Tony Blair, og írski
forsætisráðherr-
ann, Bertie Ahem,
hafa lýst yfir
ánægju sinni með
vel heppnaða og til-
tölulega friðsama
„gönguvertíð" á N-
írlandi í ár. Þá virt-
ust þeir vera ánægðir með lögæslu á
göngusvæðunum.