Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Page 13
13
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000
DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Kynþokk-
inn kemur
innan frá
á
Jennifer Lopez er kynþokkafull í
meira lagi.
Hin kynþokkafulla söngkona
Jennifer Lopez þénar þokkalega á
sínum stinna kroppi en segir samt í
viðtali við blaðið W að kynþokkinn
komi innan frá.
„Maður er ekki sexí nema maður
hafi sjálfsálit. Fólk sem er ánægt
með sjálft sig er kynþokkafullt sama
hvemig líkama það er með,“ segir
Lopez i viðtalinu. Þrátt fyrir þetta
æfir hún sjáif hvern dag til að halda
sínum eigin kynþokka við sem er jú
hennar aðalsöluvara. Sem huggun
fyrir öll þau hin okkar sem
komumst ekki með tæmar þar sem
Lopez hefur hælana hvað líkamlegt
útlit varðar þá segir Jennifer að
hún þekki stráka sem eru hvað
mest hrifnir af konum sem eru sátt-
ar við sjáifar sig og hegða sér eftir
því.
GLO
AWAR
Á Golden Globe í janúar síðastliðnum.
Jim Carrey
giftir sig
Þá er komið að því að Jim Car-
rey gangi enn á ný upp að altar-
inu því hann er víst búinn að
biðla til leikkonunnar Renee
Zeliweger. Parið kynntist þegar
þau voru að leika í myndinni
„Ég, um mig, frá mér til írenu“.
Carrey bauð Zellweger út að
borða í London um daginn og dró
þá upp trúlofunarhring upp á
hálfa milljón og bað hennar. Bón-
orðið á víst að hafa komið henni
mjög á óvart en glatt hana mikið.
Hún hafi varla trúað því að hann
væri að biðja hennar en auðvitað
ekki þorað að stóla á það að hann
endurtæki bónorðið svo hún
sagði að sjálfsögðu já.
Ronan fær
morðhótun
Ronan Keating í hljómsveitinni
Boyzone fékk morðhótun í tölvu-
pösti í síðustu viku. Litið var
mjög alvarlegum augum á hótun-
ina en sendandinn hótaði því að
hann myndi drepa hann seinna
um daginn þar sem hann átti að
skemmta í þætti á MTV. Lögregl-
an sendi strax út sveit til þess að
passa upp á Boyzonesöngvarann
og fylgdu vopnaðir lögreglumenn
honum allan daginn. En sem bet-
ur fer varð ekkert út hótuninni
og Ronan lifir góðu lífi
Madonna gefur
út Music
Allir sannir Madonnuaðdáend-
ur ættu að nú að verða glaðir því
þann 19. september kemur út ný
plata með Madonnu. Nýi diskur-
inn heitir Music en hann dregur
nafn sitt af lagi sem er á diskn-
um.
Jonas Akerlund gerir fyrsta
tónlistarmyndbandið en hann
gerði myndbandið við lagið Ray
of Light og fékk mikið lof fyrir,
meðal annars verðlaun MTV fyr-
ir besta myndbandið.
Madonna virðist hrifin af því
að vinna með Svíum, enda eru
Svíar yfirburðaþjóð og þetta er
þriðja myndbandið sem hún læt-
ur Svia stjórna. Annað mynd-
bandið er við hið vinsæla lag Not-
hing Really Matters.
iAiwiAi.romeo.is
Við leggjum mikinn metnaö
í pökkun og frágang á
öllum póstsendingum.
Allar sendingar dulmerktar.
100% trúnaður.
Fljót og örugg þjónusta.
Áað
renna í á?
SUZUKI Grand Vitara - veiðilegur,
alvöru sportjeppi
TEGUND: VERÐ:
NYR GR.VlTARA3dvra l.789.000 KR.
GR. VITARA 2,0 L 2.099.000 KR.
GR.VITARA2,5LV6 2.449.000 KR. Sjálfekiptmg 150.000 KR.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, síml 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Hafnarfjörður. Guðvarður Elíasson,
Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Hvammstangi: Bfla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. isafjörður: Bflagarður ehf„Grænagarði, slmi 456 30 95.
Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00.
GRAND VITARA
$ SUZUKI
//
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www. suzukibilar. is