Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Side 20
20 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 Helgarblað___________________________________________X>V Læknar gera líka mistök, þeir viðurkenna þau bara ekki Slðastliðinn þriðjudag féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Jór- unnar Önnu Sigurðardóttur gegn ís- lenska rikinu en málið höfðaði Jórunn eftir brjóstaminnkunaraðgerð sem hún fór í árið 1991. Síðan hefur Jórunn ver- ið óvinnufær og telur hún að ekki hafi verið staðið að aðgerðinni með full- nægjandi hætti. Jórunn fór fram á það í stefnu sinni að fá 20 milljónir króna í skaðabætur en fékk 1,5 milljón. Jórunn er verulega ósátt við niðurstöðu dóms- ins og segist enn fremur vera orðin mjög þreytt í baráttu sinni við kerfið þar sem hún hefúr rekist á veggi und- anfarin 9 ár. Jórunn rekur hér sögu sína og segir frá því hvemig brjóstaminnkunaraðgerðin leiddi af sér sjö aðrar aðgerðir. Stór og þung brjóst „Ég var með stór brjóst sem gerðu það að verkum að ég var með mikinn höfúðverk og vöðvabólgu. Ég leitaði til lýtalæknis í maí 1989 í von um að fá eitthvað að gert. Læknirinn skoðaði mig og komst að því að brjóstin mín væru allt of stór og þung til að bera og hann vildi framkvæma brjóstaminnk- unaraðgerð. Fram kom að það væri að minnsta kosti ársbið og það var ákveð- ið að læknirinn hefði samband þegar að því kæmi. Ég varð svo ólétt og eignaðist dreng- inn minn 1. ágúst 1990. Til stóð að ég færi í brjóstaminnkunaraðgerðina í maí ári seinna en af því varð ekki þar sem fresta þurfti aðgerðinni vegna anna á sjúkrahúsinu eftir bruna. Þann 21. ágúst ‘91 er hringt í mig og mér tjáð að ég eigi að leggjast inn daginn eftir. Þegar ég kom inn á spítalann fór ég í ljósmyndun, blóðprufu og fór í bað um kvöldið þegar ég lagðist inn. Kandídat kom til mín og tók af mér hefðbundna skýrslu en læknirinn sem sjá átti um aðgerðina kom ekki. Til mín kom þó hjúkrunarfræðingur með bækling og fór yfír fyrstu síöur bæklingsins sem fjölluðu um það hvemig aðgerðin gengi fyrir sig og sagði mér frá því hvemig sogrör og annað yrðu sett inn i bijóstin. Ég fletti bæklingnum svo yfir sjáif, reyndar frekar lauslega, því þegar mað- ur er kominn inn á spítalann er maður ekki með hugann við hugsanleg mistök sem geta orðið,“ segir Jórunn. Jórunn stefnir ríkinu í stefnu Jómnnar er byggt á því að mistök hafi verið gerð við framkvæmd og eftirmeðferð skurðaðgerðarinnar. Mistökin em tilgreind í sex liðum. Því er haldið fram í stefnunni að skort hafi á ráðgjöf og samráð við Jórunni fyrir aðgerðina, að ekki hafi verið beitt réttri eða viðurkenndri aðferð við brjóstaminnkunina og/eða mistök hafi verið gerð við framkvæmd aðgerðar- innar, að eftirlit með Jórunni hafi ekki verið nægjanlegt og eftirmeðferð ófúll- nægjandi, að útlitslegur árangur hafi verið óviðunandi og ekki í samræmi við óskir né væntingar Jórunnar og loks að skinn hafi verið tekið af röng- um stað til ígræðslu og það valdið óþarfa lýti. „Að morgni þess dags sem gera átti aðgerðina kemur lýtalæknirinn og fer með mig í herbergi og teiknar upp hvemig lögun og stærð brjóstanna eigi að vera. Ég treysti manninum fullkom- lega en það var ekki minnst einu orði á áhættuþætti eða mér sýndar ljósmynd- ir um hvað gæti farið úrskeiðis og hvað sé þá til ráða,“ segir Jómnn en um þetta atriði ber henni og lækninum, sem framkvæmdi aðgerðina, ekki sam- an, frekar en um margt annað í tengsl- um við aðgerðina. Vérkír eftir aðgerðina „Þegar ég vakna eftir aðgerðina finn ég strax fyrir þrýstingi í hægra bijósti en mér var sagt að það væri eðlilegt. Ég geri mér vitaskuld grein fyrir því að maður er aumur eftir svona aðgerð. Mér var sagt að þetta stafaði af sogker- unum sem em sett í brjóstin við aðgerð- ina. Það blæddi mjög mikið og mér gekk illa að sofa um nóttina og fékk bæði svefnlyf og verkjaiyf. Aðgerðin fór fram á fostudegi og á laugardeginum var ég orðin mjög slæm af verkjum og kvartaði yfir þrýstingi en ég fékk sömu svör og það var ekki kall- að á lækni. Á sunnudagskvöld kemur svo annar læknir til mín og það er sprett upp nokkrum saumum til þess að hleypa út blóði vegna þess að sogkerin virkuðu ekki nógu vel. Á mánudagsmorguninn kemur svo lýtalæknirinn sem framkvæmdi aðgerð- ina til mín og þá þarf aftur að hleypa út blóði. Um þetta, hvemig blóðinu var tappað úr bijóstinu, er ekkert sagt í neinum sjúkraskýrslum heldur verð ég að sanna að þetta atvik hafi átt sér stað. Ég get ekki sýnt fram á að það á neinn annan hátt en með mínum orðum en læknarnir neita þessu aifarið. Annar læknanna segist aldrei hafa hitt mig, þrátt fyrir að hafa verið vakthafandi læknir þessa helgi,“ segir Jórunn sem segist reið og svekkt út í læknana. Hún segir líka að þeir hjúkrunarfræðingar sem kallaðir voru til vitnis í dómnum hafi ekki verið þeir sem meðhöndluðu hana. Vantar sannanir fyrir orðum sinum „Ég hef ekki ímyndarafl né þekkingu tii að ijúga svona löguðu en mig vantar sannanir fyrir orðum mínum. Mistökin vom gerð strax í byijun, fyrir það fyrsta voru bijóstin á mér sett allt of hátt upp. Hægra bijóstið mitt lak niður í drep og því þurfti að færa vinstra brjóstið niður til samræmis við það hægra. Alls hafa verið framkvæmdar fimm aðgerðir á vinstra brjósti en í dómnum segir að aðeins hafi verið gerð ein aðgerð," segir Jórunn en hún hefúr verið óvinnufær eftir aðgerðina. Siðan hefur hún barist við kerfið og er að eig- in sögn ekki á því að gefast upp. „Ég stóð uppi eftir aðgerðina gjör- samlega bijóstalaus og með iila unnið verk læknanna. Þetta þurfti að lagfæra og hefur kostað mig átta aðgerðir. I brjóstaminnkunaraðgerðinni voru tek- in 600 grömm af hvoru brjósti. Ég spurði að því fyrir aðgerðina hvort til væru staðlar á bijóstum og bað lækn- inn um að fá að hafa alla vega miðl- ungsstærð. Útkoman varð hins vegar önnur. Svo virðist líka sem ég eigi að bera ábyrgð á því hvemig útkoman varð og bera ábyrgð á fylgikvillum að- gerðarinnar. Við það get ég engan veg- inn sætt mig. Ég er með skerta hreyfi- getu í öxlum og höndum og ég á samkvæmt dómn- um að bera ábyrgð á þvi. Ég er því með það vottað frá fjór- um aðilum og af Tryggingastoínun ríkisins að ég sé metin allt frá 20-35% öryrki. Á þessu er ekki tekið í dómnum því það þótti ekki nægilega vel sannað að um mistök hafi verið að ræða. Orð mín virð- ast ekkert vægi hafa en ég er þar að auki með það vottað frá Landlæknisembætt- inu frá 9. júní i ár að ekki hafi verið rétt staðið að verki i sambandi við þessa aðgerð. Högni Ósk- arsson geðlæknir metur mig 35% var- anlegan öryrkja. Hann mat það þannig að 20% örorkunnar væm líkam- leg en 15% vegna líðan minnar eftir að- gerðina til dæmis vegna þess þunglynd- is sem ég varð fyrir. Það var heldur ekki tekið mark á öðrum sérfræðingum sem hafa metið líkamlegan skaða minn í dómnum." Tók tvö ár að fá sjúkraskýrslur Jómnn segist ekki hafa fengið að- gang að sjúkraskýrslum sínum fyrr en eftir tveggja ára bið en samkvæmt sjómsýslu- og upplýsingalögum á hún rétt á því að fá þær afhentar. „Allir vissu að ég var að höfða mál og ég spyr mig að því hvað var gert í millitíðinni. Við Róbert Ámi Hreiðarsson lögmaður minn fórum upp á spítala en fengum ekki sjúkraskýrslumar. Þegar við loks- ins fengum skýrslumar sendar eftir tvö ár þá vantaði gögn í þær. Annaðhvort hafa þessi gögn týnst eða þau hafa hreinlega verið tek- in í burtu," segir Jómnnogbætirvið, „Allt sem ég hef em mín orð. Ég get ekki gert að því að lækn- ar vogi sér að taka skýrslur frá. Atvik eru ekki skráð, sum- ir læknanna segjast ekki hafa hitt mig. Hver ber ábyrgð á því?“ Svo virðist sem Jórunn hafi þurft að hafa fyrir hverju skrefi málsins. „Það tók mig fimm ár að fá út úr slysatrygg- ingunni og ég þurfti að kæra það til Um- boðsmanns Alþingis þar sem úrskurður féll mér í vil. Síðan fór úrskurðamefnd Almannatrygginga yfir málið mitt aft- ur, en Tryggingaráð hafði alltaf hafhað þvf að gera það, og ég var dæmd 20% varanlegur öryrki út af bijóstaminnkunaraðgerðmni." Dómur héraðsdóms Dómurinn fellst á að bijóst Jórunn- ar hafi verið lítil eftir aðgerð lýtalækn- isins, að staðsetning vinstri geir- vörtunnar hafi verið óeðlilega há og því misræmi á milli. Þetta olli því að aðrar aðgerðir urðu nauðsynlegar til að leið- rétta legu vinstri geirvörtunnar. Dóm- urinn fellst lika á það að svæði það við hné, sem skinn var tekið af til þess að laga bijóstið eftir drep, geti ekki talist eðlilegt þar sem viðtekin venja sé að tökusvæði sé ekki á áberandi stað. Að öðm leyti eru kröfur Jórunnar ekki teknar til greina og henni dæmdar 1,5 miiljónir króna í miskabætur. Dómur- inn er þó þeirrar skoöunar að afieiðing- ar skurðaðgerðarinnar hafi haft miklar og langvarandi afleiðingar á líðan Jór- unnar en felist ekki á að stefndi beri skaðabótaábyrgð á ætlaða örorku sem varð vegna drepsins. Hvað finnst þér um dóminn? „Ég er ekki ánægð með dóminn ein- göngu vegna þess að í honum kemur sannleikurinn ekki í ljós. Þama eru orð gegn orði og mín orð virðast engu máli skipta. Það var vitlaust staðið að þessu máli frá upphafi og alveg til enda. Land- læknir fúndaði með lögmanni mínum og vildi að það yrði samið um málið en Misræmi í brjóstunum Jórunn er ósátt vió aögeróina og útkomuna. Hún segir of mikió hafa veriö tekió af brjóstunum, þau uröu of lítil. Brjóstin voru sett of hátt uppi og þegar reynt var aó laga brjóstió sem drep komst í var tekin húó af hnénu til þess aö setja á brjóstió. Brjóst Jórunnar eru alsett örum en hún fékk saltpoka í brjóstin til þess aö reyna skapa barm á hana aftur. Fyrir brjóstaminnkunaraðgerðina Jórunn var meö stór og þung brjóst og leitaöi lýtalæknis til þess aö minnka þau þar sem hún þjáöist vegna brjóstanna. Hún segist ekki hafa fengiö upplýsingar um áhættuþætti aögeröarinnar né um hugsanlega fýlgikvilla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.