Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000
Helgarblað
23
JOV
Olil sem fór þaöan að Skaröi i Land-
sveit.
Svona gekk þetta í nokkur ár, Olil
fór á milli bæja og vann hér og þar.
„Fyrstu árin var ég eiginlega bara
að vinna fyrir fæði og húsnæði og
smá vasapening. Það gekk bara vel
þar sem maður gerði lítið annað en
vasast í hestunum og þurfti ekki
mikinn pening. Maður tók bara þátt
í lífinu á þeim stað sem maður var
staddur á hverju sinni,“ segir Olil.
Árið 1985 hittir Olil svo bamsfóð-
ur sinn, hestamanninn Gisla Gísla-
son, og þau fara að búa að Stangar-
holti á Mýrum í Borgarfirði. Þar bjó
Olil í 10 ár eða allt þar til þau skildu
en saman eiga þau börnin Freyju 14
ára, Steinar 9 ára og Brynju sem er
6 ára. Eftir skilnaðinn flytur Olil
aftur á Selfoss og er búin að vera
þar síðan, þ.e.a.s. fimm ár.
Hrifin af Gáska og Kolfinni
í hesthúsinu hjá Olil á Selfossi er
norsk aðstoðarstúlka sem fetar i fót-
spor Olil þar sem hún er komin
hingað til landsins til þess að vinna
við hesta alveg eins og Olil gerði á
sinum tíma. Börn Olil hafa heldur
ekki farið varhluta af hestaáhuga
móður sinnar og er elsta dóttirin
Freyja mjög áhugasöm og lenti hún
í fyrsta sæti í flokki unglinga á
landsmótinu.
Dagarnir hjá Olil fara í þjálfun,
tamningar og reiðkennslu, og ekki
er óalgengt að hún fari út til Noregs
til að halda reiðnámskeið. Einn af
þeim gæðingum sem Olil hefur
komið nálægt og vert er að minnast
á er Snjall sem keppti m.a. á heims-
meistaramótinu árið 1989. Olil rækt-
ar einnig sitt eigið hestakyn.
„Ég er með nokkrar hryssur í
ræktun og það er kannski tilviljun
að þær séu ættaðar frá Kleifum í
Gilsfirði. Mér líkaði einfaldlega við
þær. Ég er mikill aðdáandi Kolflnns
frá Kjamholtum og Gáska frá Hofs-
stöðum og það eru hestar sem ég
reyni að halda inn í mínu kyni,“
upplýsir Olil stolt enda hefur hún
margsinnis sýnt Kolfinn á mótum.
Hvað með stóðhestinn Orra?
„Hann hefur alltaf verið í uppá-
haldi hjá mér og er mér alveg
ógleymanlegur þegar Rúna Einars-
dóttir sýndi hann i Gunnarsholti 5
vetra gamlan. Hann kemst þó ekki á
sama stall og Gáski og sérlega ekki
Kolfinnur. Með fullri virðingu fyrir
öllum þeim hestum sem ég hef kom-
ið nálægt um dagana þá er Kolfinn-
ur samt sá mesti gæðingur sem ég
hef nokkurn tímann komið á bak
á,“ segir Olil og heldur áfram:
„Ég er náttúrlega alveg ofboðs-
lega hrifin af íslenska hestinum en
ég hefði örugglega allt eins getað
verið í hindrunarstökki eða ein-
hverju öðru erlendis. Það vildi bara
þannig til að nágrannar mínir
keyptu sér íslenskan hest og þá
heillaðist ég af honum og islenska
hestakyninu en ég á ekki erfitt með
að skilja áhuga fólks á hinu hesta-
kyninu því það eru til gæðingar i
öllum hestakynum."
Mér heyrist sem þú sért komin til
að vera hér á landi?
„Ég hef aldrei gefið neinar yfir-
lýsingar um það en ég get ekki
ímyndað mér annað en ég verði hér
áfram. Á meðan hestamennskan er
min atvinna þá sé ég ekki fyrir mér
að ég geti farið frá íslandi. Hér eru
gæðingarnir, hér eru átökin og
besta reiðmennskan. Hér er hægt að
gera og þróa svo mikið. Framtíðin
er einfaldlega hér. Ef ég flyttist út
þá væri það bara að fara niður á
við. Þar eru ekki eins góðir hestar
og þar er ekki eins mikið að gerast,"
segir Olil að lokum. -snæ
DVWND GVA
Olil Amble er talin vera elnn bestl relðmaður landsins og hafa einstakt lag á hrossum
Hér ásamt hryssunni Álfadís.
Verslunarmannahelgin
í London
frá 19.000
Nú getur þú notað tækifærið og dvalið um verslunarmannahelgina
í London á hreint ffábæru verði. Beint flug til London á
fimmtudagskvöld kl. 18.30 og heim á mánudagsmorgni. Hjá
Heimsferðum getur þú valið um úrval gististaða í hjarta London.
Verðkr. 19.000,"
Flugsæti fram og til baka.
Skattar, kr. 3.790, ekki innifaldir
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð,
595 1000, www.heimsferdir.is
21.00-03.00
Stórtónleikar og dansleikur
laugardagskvöldið 15. júlí
5331100
Fax
5331110
Tónleikar
BarnahljómsveitTónlistarskóla Borgundarhólms, kvintett
og sólistar undir stjórn Gregor Siegler, Accordéon
Mélancolique, Sergei Voitenko, Gena Churchill (USA),
Stórhljómsveit Harmonikufélags Færeyja, Matthías
Kormáksson, Garðar Olgeirsson, Jóna Einarsdóttir,
Sveinn Rúnar Björnsson, dúettinn Svanur og Guðbjörg,
Ása, Ingunn og Hekla Eiríksdætur, Stormurinn frá
Harmonikufélagi Reykjavíkur, stjórnandi Örn Falkner.
Dansleikur
Léttsveit Harmonikufélags Reykjavíkur, Neistar Karls
Jónatanssonar ásamt bluessöngkonunni Iben Kellerman
frá Danmörku, Hljómsveit Hjördísar Geirs og frá Færeyjum
kemur hin vinsæla hljómsveit Berg og Jacobsen's
Dansiokestur.
Miðaverð kr. 1.500 á tónleika og dansleik og
kr. 1.000 eftir kl. 23.00.
þú greiðir
með korti
við veitum
15%
afsiátt af
smáauglýsingum
PorSchoQ^^ _________
V/SA
EUROCARD
Masíerj
(£) 550 5000
dvaugl@ff.is
Skoðaðu smáuglýsingarnar á V'ÍSÍi'-