Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Page 26
26 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 I>V Helgarblað Pamela Mason sneri ekki heim úr kvöldgöngunni: Ekkjan hvarf sporlaust Carol Prior Dóttirin vísaöi því á bug á móöir hennar heföi flutt til London til aö hefja nýtt líf í höfuöborginni. Kvöld eitt í júní 1989 fór Pamela Mason, sem var 77 ára, frá heimili dóttur sinnar og tengdasonar í göngutúr. Góð vinkona hennar, Joyce Hawkins, hafði hringt og stungið upp á að þær gengju eftir ströndinni. Pamela, sem var hress og kát fyrrverandi kennslukona, fór strax í peysu og sagði dóttur sinni, Carol Prior, hvert hún ætlaði. Kannski myndu þær Joyce fá sér drykk á kránni en Pamela lofaði að vera komin heim fyrir klukkan 21 um kvöldið. Pamela Mason hafði verið ekkja í sex ár og flutt til dóttur sinnar og tengdasonar. Hún var mjög athafna- söm og fjörug og átti stóran kunn- ingjahóp. Joyce Hawkins var sér- staklega góð vinkona hennar og þeim þótti gaman aö skoða fuglalíf- ið á ströndinni. Þær voru þekktar í litla bænum á austurströnd Eng- lands. En þetta fallega júníkvöld hvarf Pamela sporlaust. Hún kom aldrei á fund vinkonu sinnar sem bjó í að- eins 5 mínútna fjarlægð. Eftir hálfr- ar klukkustundar bið hringdi Joyce Hawkins til Carol Prior og spurði hvað hefði gerst. Dóttirin gat aðeins sagt að Pamela hefði farið að heim- an klukkan 19.30 og að hún hlyti að hafa hitt einhvem á leiðinni sem hún hefði gefið sig á tal við. Síðar sagði Carol við lögregluna að hún hefði ekkert verið farin að óttast um móður sína um þetta leyti kvöldsins þar sem ekki var orðið áliðið. Móð- irin var sjálfstæð kona sem var vön að bjarga sér. Með óþekktum miðaldra manni á kránni En þegar ekkert hafði heyrst frá Pamelu á miðnætti var fjölskyldan orðin áhyggjufull og hóf leit. I ljós kom að Pamela hafði verið á kránni The Old Ship Inn, ekki með vin- konu sinni heldur með miðaldra manni sem enginn hafði séð áður. Hann hafði keypt sérrí og bjór og þau höfðu sest við borð við glugg- ann. Þjóninn rak minni til þess að Pamela hefði virst glöð og afslöppuð og svo virtist sem hún þekkti fylgd- arsvein sinn vel. Hann var í dökklit- um buxum og bláum jakka og mál- far hans var vandað. Þau fóru frá kránni rétt eftir klukkan 20 og óku í átt til strandarinnar í ljósum BMW. Að sögn sjónarvotts var bíln- um lagt viö ströndina. Enginn var í bílnum en tvær manneskjur sáust á ströndinni sem annars var mann- laus. Vitnið gat ekki séð hverjir voru á ströndinni. Nú var haft samband við lögregl- una. Carol Prior greindi frá því að móðir hennar hefði ekki ætlað að vera lengi í burtu. Hún hefði ekki verið með nema 3 pund á sér og hún hafði ekki tekið töskuna sína með sér. Hún hafði heldur ekki tekið með sér blóðþrýstingslyfin sem hún varð að taka fjórum sinnum á dag. Enginn kunni skýringu á hvarfi Pamelu. Enginn þekkti dularfulla manninn frá kránni sem hin horfna hafði virst þekkja svo vel. Þegar ekk- ert hafði heyrst frá Pamelu Mason i viku taldi lögreglan ekki útilokað að glæpur hefði verið framinn. The Old Ship Inn Pameia sást síöast á þessari krá meö óþekktum miöaldra manni. Þau óku síöan á brott í Ijósum BMW bíl sem lögreglunni tókst aldrei aö finna. Pamela Mason Ekkjan athafnasama kom aldrei á fund vinkonu sinnar sem haföi ætlaö meö henni í kvöldgönguna meöfram ströndinni. Þegar vika var liðin af júlímánuði barst Carol Prior bréf sem var póst- lagt í London, líklega frá morðingj- anum. Bréfið var ritað í tölvu og það var engin undirskrift. Lögregl- an greindi ekki frá innihaldi bréfsins í smáatriðum en í því var fullyrt að Pamela Mason væri á lífi, að hún hefði það gott og hefði hafíð nýtt líf í London. Ekkert hefði gerst án vitundar hennar og vilja, að því er sagði í bréfinu. Jafnframt var þess getið að ekki yrði um frekara samband að ræða. Carol Prior vísaði fullyrðingun- Enginn kunni skýringu á hvarfi Pamelu. Enginn þekkti dularfulla manninn frá kránni sem hin horfna hafði virst þekkja svo vel. Þegar ekkert hafði heyrst frá Pamelu Mason I viku taldi lögreglan ekki útilokað að glæpur hefði verið framinn. um í bréfinu á bug. „Mamma elskaði þetta svæði og lífið með okk- ur,“ sagði hún. „Hún sagði oft að þetta væri besta heimilið sem hún hefði nokkru sinni átt,“ bætti Carol við. Bréfið sannfærði hana aðeins um að eitthvað hræðilegt hefði komið fyrir móður hennar. Lögregian sökuö um vanrækslu Þegar nákvæmlega eitt ár var lið- ið frá þvi að Pamela Mason hvarf rifjaði sjónvarpsstöð á svæðinu upp málið. I sjónvarpsþætti um hvarf Pamelu var lögreglan sökuð um vanrækslu. Hvers vegna hafði ekki tekist að flnna BMW-bílinn á heilu ári? Talsmaður lögreglunnar vísaði ásökunum á bug og sagði að kann- aðir hefðu verið 30 þúsund ljósir BMW-bílar. Enginn þeirra hafði verið á svæðinu. Yfir hundrað lög- reglumenn og sjálfboðaliðar höfðu snúið við svo að segja hverju sand- korni á ströndinni án nokkurs ár- angurs. „Það virðist sem frú Mason hafi yfirgefið þessa plánetu,“ sagði lögreglumaðurinn og andvarpaði. Óhugnanlegur fundur Pamela Mason hafði ekki horfið af jörðinni. Árið 1992, þegar verið var að leggja framræslurör með- fram ströndinni, var grafið niður á plastböggul á rúmlega 1 metra dýpi. í plastinu voru jarðneskar leifar Pamelu Mason. Hún hafði verið kyrkt með rafmagnssnúru og var snaran enn um háls hennar. Peysa Pamelu var enn heil og pundin 3, sem hún hafði haft með sér, voru enn í vasanum. Enn hefur ekki verið upplýst hvað gerðist þetta júníkvöld. Það hafa ekki fundist nein spor og engar kenningar hafa verið um tilefni morðsins. Afbrotafræðingnum Alan Hill, sem rannsakað hefur málið nákvæmlega, þykir málið hið undarlegasta. Pamela gekk aðeins nokkra metra í litla þorpinu sínu áður en hún fór inn á krá með ókunnum manni og ók síðan á brott með honum. Lik hennar fannst svo grafið rétt utan við bæinn við fjölfarinn göngustíg. Það er næstum eins og Pamela hafi verið ósýnileg síðustu augnablik ævi sinnar. Enginn hafði séð neitt. Eða ef til vill láta þorpsbúar eins og enginn hafl séð neitt. I faðm morðingja Ingrid Gremerich yfirgaf eiginmann sinn þegar hann fékk krabbamein í maga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.