Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 Helgarblað________________________________________________________________________________________PV Þorvaldur Davíð Kristjánsson er upprennandi stjarna innan skemmtanabransans: Því verður ekki sleppt að elska Þorváldur Davíð Krist- jánsson virðist eiga fram- tíð fyrir sér innan skemmtanabransans. Frá því hann var smápolli hefur hann komið fram í útvarpi, sjónvarpi og á leiksviði. Rödd hans er að finna í svo til hverri vid- eohillu í landinu því það var hann sem Ijáði hinni feikivinsœlu teiknimynda- persónu Simba í Konungi Ijónanna rödd sína. í dag leikur hann eitt aðalhlut- verkið í sýningunni Thrill- er í Loftkastalanum. DV forvitnaðist meira um lragi þessarar rísandi stjörnu. Þorvaldur Davíð er á sautjánda ári, borinn og barnfæddur Reykvík- ingur en á þó ættir sínar að rekja út á land. Foreldrar hans eru Helga Jóna Óðinsdóttir og Kristján Þor- valdsson, ritstjóri Séð og heyrt. For- eldrarnir eru báðir frá Fáskrúðsfirði og Þorvaldur er þeirra einkabarn. „Ég er samt ekki ofdekraður en það er hægt að orða það þannig að ég hafi alltaf fengið góða þjónustu," segir Þorvaldur og glottir. Þróttari af lífi og sál Það var ekki söngur og leiklist sem voru númer eitt í huga Þorvaldar þegar hann var krakki, eins og í dag, heldur miklu frekar fótbolti og aðrar íþróttir. „Ég bjó skammt frá gamla Þrótt- araheimilinu þannig að ég komst ekki hjá því að æfa með liðinu," seg- ir Þorvaldur sem vegna anna i skóla og leiklistinni er nýbúinn að leggja skóna á hilluna. Tónlistaráhuginn kviknaði þó einnig snemma hjá drengnum sem átti það til að glamra á orgelið í stof- unni. „Sem barn hlustaði ég mikið á tón- list og setti t.d. gjarnan Edith Piaf á fóninn, svona yfir kvöldmatnum," segir Þorvaldur sem var þó sérlegur aðdáandi Franks Sinatra. „Ég horfði mikið á sjónvarp þegar ég var yngri og var sérlega hrifinn af Sinatra. Hann hefur alltaf verið átrúnaðargoð mitt og ég grét meira að segja þegar hann dó,“ upplýsir Þorvaldur. Röddin hans Simba Hvernig Þorvaldur Davíð var upp- götvaður af skemmtanabransanum, ef svo má að orði komast, má rekja til þess dags þegar hann var staddur uppi í Ríkisútvarpi 10 ára gamall. „Faðir minn átti eitthvert erindi upp á RÚV og ég fór með honum ásamt einum vini mínum. Meðan við erum að biða eftir pabba dettur okkur félögunum í hug að fara inn á bama- og unglingadeild- ina, sem þá var undir stjórn Elísabet- ar Brekkan, og spyrja að því hvort við gætum ekki fengið að vera með þátt. Það var ekkert tekið illa í það og við vorum beðnir um að lesa „Það hafa verið að hringja í mig ókunnar stelpur á öllum tímum sólarhringsins. Fyrst fannst mér þetta bara verið fyndið en með tímanum hefur þetta orðið mjög truflandi og leiöinlegt. Svo ekki hringja í mig oftar, stelpur, ef þið lesiö þetta.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.