Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Síða 44
^52 ____________________________________________________________________LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 Tilvera I>V Vergjörn nunna og minnislaus óþokki Þeir sem ekki þekkja til leikstjórans Hal Hartley eru aö missa af miklu. StUl hans er afar óheföbundinn og ein- kennist m.a. af hugvitssemi í persónu- sköpun, hnyttnum samtölum og ná- kvæmri kóreógrafiu í öllum hreyfmg- um leikara. Hann er stöðugt að skemmta áhorfendanum með ein- kennUegum stUbrotum sem eru á skjön við hefðbundin kvikmyndaform. Eitt af uppáhaldsstílbrögðum hans er mótsagnakennd persónusköpun. í Amateur segir frá nunnu sem semur klámsögur. Hún segist vera kynlífs- fíkiU en hefur aldrei sofið hjá. Hún tekur að sér mann sem vafrar inn á kaffihús tU hennar. Hann hefur misst minnið, en svo virðist sem hann hafi verið hinn versti óþokki og eigi í úti- stöðum við hættulega glæpamenn. Martin Donovan leikur minnis- leysingjann af fádæma öryggi, en á móti kemur að franska snobbmynda- leikkonan IsabeUe Huppert er afar daufleg í bitastæðu nunnuhlutverk- inu og lætur hina aðalleikonuna, El- ina Löwensohn, valta yfir sig. Hal Hartley er ekki eins beinskeyttur í stUbrögðunum og oft áður og mér fannst eins og hasarinn þvældist eitt- hvað fyrir honum. Þrátt fyrir að vera með slöppustu myndum hans er Amateur þó með því betra sem við fáum á leigurnar, en ég bíð spenntur i eftir að meistaraverkin hans, The Unbelievable Truth, Simple Minds og Trust, verði gefin út. -PJ Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Hal Hartley. A&alhlutverk: Isabelle Huppert, Martin Donovan og Elina Löwensohn. Bandarísk, 1994. Lengd: 92 mín. Bönn- uö innan 16 ára. Tumble- weeds Gaman irkirk Suðurríkjcikvendi Drafandi talandi suðurrikjafólks heUlar marga. Sumir telja þó slíkan hreim eiga við um hvítan rusllýð. í upphafi myndarinnar telur maður að efhi hennar sé einmitt um hvitan rusllýð. Mæðgumar tvær sem við kynnumst í myndinni er þó nokkuð erfítt að flokka. Mamman, Mary Jo Walker, er nokkuð hefðbundin suður- ríkjamær sem fer frá einum eigin- manninum tU annars. Ekki virðist það flækja neitt málin að hún eigi dóttur, Ava. Þegar dóttirin eldist og fer að hafa almennUegt vit fyrir sér tekur henni að leiöast þessi óstöðug- leiki sem þær mæðgumar lifa við. Litríkir og töfrandi karakterar koma við sögu myndarinnar. Hún er engan veginn drepleiðinleg boðskaps- mynd um fjölskyldugUdi og annað þess háttar heldur um áttaviiltar mannverur í hinum stóra heimi og hvemig þær plumma sig. Skondnar aðstæður og drafandi hreimur móð- urinnar krydda upp á annars hefð- bundið bandarískt myndefni. Stundum fær maður á tUfmninguna að Kimberly J. Brown, sú sem leikur dótturinar, sé of meðvituð um að hún sé að leika. Það skemmir þó engan veg- inn fyrir og stendur hún sig afburðavel annars. Janet McTeer, móðirin, er sér- lega skemmtUeg og nær vel þessum daðranda suðurríkjakvenmannsí- myndarinnar. Þetta er ánægjuleg mynd fyrir þægUegt kvöld heima. -GG Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Gavin O’Connor. A&alhlutverk: Janet McTeer, Kimberly J. Brown og Jay 0 Sanders. - Bandarísk, 1999. Lengd: 102 mín. Leyfö öllum aldurshópum. Stórmótiö í Dortmund: Afkvæmi Dimmbláar teflir við þá bestu Athyglisvert skákmót fer fram þessa dagana í Dortmund Þýska- landi. Keppendur í efsta flokki eru 10 talsins, 9 frambærilegir stór- meistara og skákforrit. Forritiö heitir Deep junior og er afkvæmi Deep Blue (Dimmbláar) sem sigraði Kasparov svo eftirminnilega 1996 í einvigi. Forritið sem ég kalla „Dýr- ið“ er ekki jafn duglegt að vinna stórmeistarana enda hafa menn tek- ið eftir göllum í þvi, sem og Dimm- blá heitinni. Ungu stórmeistararnir hafa ekki þennan beyg við tölvurn- ar sem Kaspi hafði aUavega 1996. Við Jóhann Þórir Jónsson heitinn héldum að Kaspi hefði tapað vilj- cindi en það er aUt önnur saga. Þama tefla sem sagt margir af fremstu meisturum í dag nema Kaspi. Ætii þeir séu bara ekki fegn- ir að vera lausir við hann við og við? Mótið einkenndist af því í byrjun að Anand og Adams voru með for- ystuna. Adams vann Kramnik í 4 umferð og hafði þá Kramnik ekki tapað kappskák í 18 mánuði og teflt yfir 80 gegn fremstu stórmeisturum þessa heims. Anand vann svo Ad- ams í 5 umferð og virtist tU aUs lík- legur. En þá kom opinbera yfirlýs- Skákþátturinn mgin um heimsmeistaraeinvígið tti sögunnar og Vladimir Kramnik tví- efldist við það. Hann vann „Dýrið“ í fimmtu umferð og síðan lá Anand á móti honum í 6. umferð. Þeir eru efstir og jafnir þegar 3 umferðir eru eftir og líklegt að eldmóður mikiU sé hlaupinn í Kramnik og hann sigri á mótinu. En spyrjum að leikslokum. Skákimar í dag eru vinningsskákir Kramniks gegn „Dýrinu" og Anand. Hvítt: Vladimir Kramnik (2770) Svart: Deep Junior (6 ára) Grjótgarðsbyrjun l.d4 d5 2. e3 Rf6 3. Bd3 e6 4. f4 Be7 5. Rf3 c5 6. c3 0-0. Byrjun þessi er ákaflega traust og einkennist af lok- uðum stööum sem er gott ráð gegn „Dýrinu". Vandræðin eru hins veg- ar að svartur getur auðveldlega jafnað taflið ef hann kærir sig um og kann! 7. Rbd2 Rg4? 8. De2 c4?. „Dýriö“ lokar taflinu aUt of mikið og gefur Kramnik góðan tíma tU að undirbúa sóknaraðgerðir á kóngs- væng. Eyjólfur Ármannsson kom fyrstur fram með þessa uppskrift til að máta „tölvudýr". 9. Bc2 f5. 10. Hgl! Ekki hefur „Dýrið" skU- ið þennan leik, en við dauðlegir erum með á hreinu hvað Kramnik hyggst fyrir 10. -Rc6 11. h3 Rf6 12. g4 Re4 13. Dg2 g6. Þaö má „Dýrið" eiga að það sér aUar beinar hótanir. 14. Dh2 Kh8 15. h4 Rxd2. Blessað Dimmblá og Kasparov Kasparov tapaöi eftirminnilega fyrir forvera Deep Junior áriö 1996. barnið. 16. Bxd2 fxg4 17. Rg5! De8. Nú ryðst Kramnik í gegn og fátt er tU varnar „Dýrsins" sóma. 18. h5 gxh5 19. Hxg4! Hf6 20. Hh4 Hh6. Það er merkiskertislegt hvað svartur er varnarlaus. Nú kemur varaliðið tti sögunnar. 21. 0-0-0 a5. Nú reynir „Dýrið“ gagnsókn en faU- ið er Danaveldi engu að síður. 22. Hhl b5 23. Bdl! Það á að opna h- línuna, sama hvað tautar og raular! 23. -Ha7 24. Bxh5 Df8 25. e4! Nú er hinn klerkurinn tilbúinn í slaginn. 25. -Bd8 26. f5 b4 27. Bg6 Hxh4 28. Dxh4 bxc3 29. bxc3 Bf6. Jæja þá! 30. Dxh7+ Hxh7 31. Hxh7+ Kg8 32. Bf7+ Dxf7 33. Hxf7 1-0. Eftir 33. Bxg5 34.Hc7! hrynur allt sem hrunið getur. Anand hefur eflaust verið með beyg þegar hann settist niður gegn Kramnik eftir þessa flug- eldasýningu. Hvítt: Vladimir Kramnik (2770) Svart: Viswanathan Anand (2762) Enski leikurinn 1.RÍ3 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 0-0 5. a3 Bxc3 6. Dxc3 b6 7. e3 Bb7 8. Be2 d6 9. 0-0 Rbd7 10. b4 a5 11. Bb2 De7 12. d4 axb4 13. axb4 Hfc8 14. Hxa8. Teflt er eftir hefðbundnum leið- um. Það er athyglisvert að Kramnik lætur a-línuna eiga sig. 15. d5! Rf8. Nauðsynlegt, annars ryðst hvítur inn á c7 ef svartur tekur peðið. Einnig má mmna á aö opnað er fyr- ir al-h8 skálínuna. 16. Hdl Bc8 17. Rd4 e5 18. Rb3 Bd7 19. fB Dd8 20. Kramnik má eiga það aö hann hefur líkan skákstíl og ég! Hann teflir að- eins betur. 23. c5! bxc5 24. bxc5 f5. Svarta staðan viröist vera í lagi ef ekki væri fyrir veikleikann á d6. Það dugir Kramma. 25. Ba3! Hc8 26. cxd6 cxd6 27. Db4 Dg5 Nú er nauðsynlegt að ná gagnsókn ef ein- hver möguleiki væri á því. 28. Dxd6 Rf6 29. Bc5 Kh7 30. exf5 Bxf5 31. Rc4 e4 32. Be3 Dh5. Með peð í hönd snýr Krammi liði sínu til vamar kóngi sínum. En sennilega hefði verið betra að leika 33. Rd2 exf3 34. Rxf3 Bg4 35. Be2 og hvítur hefur vinningsmöguleika. En nú fellur frípeðið frækna. 33. Dg3 exf3 34. gxf3 Rh4 35. Rd2 Hc2 36. Be2 Rxd5 37. Bd4 Bg6 38. Dg4 Rf5? Leikur af sér skákinni, betra var 38. -Dxg4 39. fxg4 Rf4 og jafntefli er líkleg úrslit. 39. Dxh5 Bxh5 40. Bd3! Bg6 41. Bxc2 Rxd4. Getur það verið að Anand hafi haldið að hann gæti hangið á jafntefli hér? Nei, lík- lega lék hann af sér skiptamunin- um. 42. Bxg6+ Kxg6 43. Kf2 Re6. Nú fylgir úrvinnsla af hæsta gæðaflokki! 44. Re4 Ref4 45. Hal Rh5 46. Ha6+ Kf7 47. Rd6+ Ke7 48. Rf5+ Kf7 49. Re3 Rdf4 50. Rg4 Rd5 51. Re3 Rdf4 52. Rf5 Rd5 53. Kel Rdf6 54. Kd2 Rd5 55. Ha5 Ke6 56. Re3 Rdf4 57. Hf5 Ke7 58. Rg4 Ke6 59. He5+ Kf7 60. Ke3 Kg6 61. Ke4 Rh3 62. Ha5 Rg5+ 63. Ke3 Re6 64. Re5+ Kf6 65. Rd3 1-0. Eftir 65. -g5 eða 65. -g6 kemur 66. Ke4 og svartur neyðist tti að bakka. í þessum gæðaflokki játa menn sig sigraða í svona stöðu i kappskák. Nýtt heimsmeistaraeinvígi! Gefm hefur verið út yfirlýsing frá Raymond Keene og fleiri fjármála- jöfrum í London, Englandi, um nýtt heimsmeistaraeinvígi í skák. Það mun vera fyrirtækið The Brain Games Network eða á íslensku Heila- leikjanetavinnan sem stendur að em- víginu á milli Gary Kasparovs og Vladimir Kramniks. Teflt verður í the Riverside Studios, London, og verölaunapotturmn er 2 miljónir Bandaríkjadollara. Einvígið verður haldið dagana 8. október til 4. nóvem- ber ef þörf krefur. Allar skákimar hefjast kl. 15 og teflt verður á þriðju- dögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum. Þannig að íslenskir skákáhugamenn eiga eflaust eftir að líta mn. David Levy, mágur Keene og kunnur drekaskákmaður hér áður og samstarfsmaður Keene, hefur harð- lega gagnrýnt hann fyrir að fara á bak við sig og fjölskyldu sína í sam- bandi við skipulagningu einvígisms. Þeir reka fyrirtæki saman sem hefur það að markmiði að koma skák á framfæri og gera þá ríka. Það eru þeir líka, Keene er að nálgast mtiljón pund í eignum og Levy eitthvað að- eins minna. Keene hefur sagt að hetiafélagið eigi eftir að gera hann margmiljónara í pundum. Er nema von að mágur hans og samstarfsmað- ur sé svekktur. Svo svekktm- að hann skrifaði opið bréf tti að segja frá belli- brögðum Raymonds Keene. Keene mun hafa stofnað hetiafélagið án þess að láta samstarfsfólk sitt vita og pukrast með einvígið í laumi. Eru nánustu ættingjar Keenes æfir og telja hann hafa farið á bak við sig í fjármálum. Nóg um það, auðvitað er alltaf einhver skandall í sambandi við heimsmeistaraemvígi. Evrópumót unglinga í sveitakeppni Drengjaliðið gerði jafntefli, 2-2, í 5. umferð gegn Rúmeníu í Evrópu- keppni ungmenna 18 ára og yngri sem nú fer fram í Balatonlelle í Ung- verjalandi. Stúlknaliðið tapaði, 0-2, gegn Þýskalandi. Drengjaliöið hefur ávallt fengið 2 vinninga í hverri umferð og hefur nú 10 vinninga af 20 mögulegum. Stefán Kristjánsson sigraði í sinni skák. Sig- urður Páll Steindórsson og Dagur Arn- grímsson gerðu jafhtefli en Davíð Kjartansson tapaði. Halldór B. Hall- dórsson frá Akureyri er einnig í liðinu. Stúlknaliöið tapaði, 0-2, gegn Þýskalandi og hefur nú 2£Vinnmg af 10 mögulegum. Ingibjörg Edda Birg- isdóttir og Aldís Rún Lárusdóttir tefldu fyrir liðið. Anna Lilja Gísla- dóttir er einnig í íslenska liðinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.