Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2000, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2000, Side 32
>■ * -í * /II//X Frábær kjör á bílaleigu- bílum Sími: 533 1090 Fax: 533 1091 E-mail: avis@avis.is Dugguvogur10 FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Hörð gagnrýni á fjárreiður í Verkalýðsfélagi Akraness: Vantraust á formanninn - tillaga í undirbúningi fyrir aðalfund Búist er við að mikill hiti verði á aðalfundi Verkalýðsfélags Akraness sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag. Á fundi stjómar og trún- aðarráðs, sem haldinn var í fyrra- kvöld, kom fram megn óánægja með fjárreiður félagsins. Kom fram í máli manna sem DV ræddi við að ekki væri ofsagt að tala um „fjármála- óreiðu“. Skýrt var tekið fram að mál- ið snerist einungis um lélega ávöxt- un fjármagns félagsins. Siguröur H. Einarsson, sem sæti á í trúnaðarráði félagsins, sagði að- spurður að við athugun á reikning- um þess hefði komið í ljós að það ætti miiljónir útistandandi í skuld- um. Þá hefðu tekjur félagsins, þ.á m. félagagjöld, verið lagðar inn á venjulega ávísanareikninga þannig að ávöxtun væri afar léleg. Á sið- asta ári hefðu félagagjöldin numið 17,5 milljónum króna. Ljóst væri að tap á vaxtagjöldum fyrir sama tíma- Hervar Slgurður Leiörétti Óánægja meö mistökin. fjárreiöur. bil næmi 3 milljónum króna. Við síðustu athugun hefðu reynst 18 milljónir króna inni á ávísanareikn- ingi. Af þessu tilefni hefur endurskoð- endum verkalýðsfélagsins verið falið að leggja fyrir aðalfund út- reikninga á fjárhaldi félagsins fimm ár aftur í tímann. Formaður Verkalýösfélags Akra- ness, Hervar Gunnarsson, liggur undir þungu ámæli félagsmanna vegna þessa. Mikil óánægja hefur lengi kraumað undir niðri í félag- inu. Hún er nú að brjótast upp á yf- irborðið fyrir aðalfundinn. í undir- búningi er vantrauststillaga á for- mann félagsins verði borin upp á honum. Hervar Gunnarsson sagði að eng- inn gjaldkeri væri hjá félaginu en samkvæmt lögum kæmi skrifstofu- stjóri í hans stað. „En þegar upp er staðið er ég ábyrgur fyrir þessu sem formaður félagsins og skýt mér ekki undan þeirri ábyrgð,“ sagði hann. „Það er alltaf spurning hve mikið fé félagið geti bundið og það má alltaf deila um hver hæsta hugsanleg ávöxtun hefði getað verið. Þeir sem gagnrýna þetta miða að sjálfsögðu við hæstu tölur i vaxtakúrfunni. Ef gerast mistök af þessu tagi geng ég í að fá þau leiðrétt og það er ég nú að gera.“ -JSS íslensk miðlun á Vestfjörðum gjaldþrota: Byggðastofnun lagði 10 milljón- ir í púkkið - þó ekki hafi verið staðið við skilyrði Vatnavextir í Þórsmörk: Um 140 börn í hrakningum Um 140 böm frá Norðurlöndun- um lentu í miklum hrakningum í gærkvöld þegar þau voru á leið í fjórum rútum frá Teiti Jónassyni úr Básum í Þórsmörk í Kópavog. Með þeim var hópur kennara. Gifurlegir vatnavextir höfðu orð- ið og flæddu allar ár úr farvegi sín- um. Yfir fjórar ár var að fara, auk Qölda spræna sem voru orðnar að beljandi fljótum. Lagt var af stað úr Básum um fjögurleytið í gærdag. Veðurspáin gerði ráð fyrir að drægi úr rigningu þegar líða tæki á daginn en reyndin varð sú að það bætti í úrkomuna. Kallað var eftir aðstoð og kom m.a. öflugur trukkur frá Austurleið SBS á staðinn, auk bíla frá Teiti og Aust- urleið, til að taka við bömunum og halda ferðinni áfram. Voru þau ferj- uð á trukkum yfir árnar og í bílana sem þar biðu. Um tíuleytið kom fyrri hópur bamanna að Hlíðarenda en sá síð- ari um miðnætti. Þar fengu börnin að borða og heitt kakó. Engum varð meint af volkinu svo vitað sé. Börnin sem em í heimsókn hér eru frá vinabæjum Kópavogs. -JSS Forsvarsmenn íslenskrar miðlun- ar á Vestfjörðum hafa óskað eftir gjaldþrotaskiptum. í gær var starf- semi á Þingeyri innsigluð vegna van- goldinna vörsluskatta. íslensk miðlun á Vestfjörðum ehf. var rétt rúmlega eins árs og sjálfstætt útibú samnefnds fyrirtækis í Reykja- vík. Var það með símsvörunarþjón- ustu á Þingeyri, Bolungarvík, Suður- eyri og ísafirði. Fyrirtækið var inn- siglað í vor vegna vangoldinna vörslu- skatta en fór í gang að nýju í ágúst eft- ir uppstokkun á starfseminni. Endurskipulagning sem fram- kvæmd var í sumar fólst m.a. í því að Byggðastofnun lét 10 milljónir af hendi rakna, m.a. gegn skUyrðum um að gert yrði upp við starfsfólk. Þá breytti ísafjarðarbær skuldum í hlutafé og fleiri lögðu hönd á plóg. Verkalýðsfélög á svæðinu höfðu áður lagt milljónir króna í að að- stoða starfsfólk fyrirtækisins sem ekki hafði fengið greidd laun. Gunnhildur Elíasdóttir, verka- lýðsformaður á Þingeyri, sagðist vonast tfl að ábyrgðasjóður launa endurgreiddi félaginu launagreiðsl- umar. Hún sagðist ekki skflja hvem- ig í ósköpunum íslensk miðlun hefði getað fengið 10 mOljónimar frá Byggðastofnun eftir að skOyrt hefði verið að gengið yrði frá launagreiðsl- um og vangreiddum opinberum gjöldum. SkOyrðið hefði aldrei verið uppfyOt. „Ég er nærri handviss um að með þessari ráðstöfun var verið að mismuna kröfuhöfum." Sam- kvæmt heimOdum DV er ekki talið útOokað að krafist verði lögreglu- rcmnsóknar vegna meintrar mis- mununar kröfuhafa í gegnum íjár- muni frá Byggðastofriun. -HKr. MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 DV-MYND TEfrUR Fjör á kassabíl Þrátt fyrir tilkomu hjólabretta, línuskauta og hlaupahjóla fara kassabílar greinilega aldrei úr tísku. Hlöðufell: Fimm ungmenna leitað í nótt - fundust í morgun Olympíuvefur Vísis Sérstakur vefur, helgaður Ólymp- íuleikunum í Sydney, hefur verið opnaður á Vísi.is. Leikamir verða settir aðfaranótt fóstudags. Úrslit í öOum greinum munu birtast á vefn- um um leið og þau liggja fýrir. Með samningum við AP-frétta- stofuna hefur Vísir.is tryggt sér upplýsingastraum frá Sydney en blaðamaður DV-Sport verður einnig á staðnum og sér um að tíð- indi berist af gengi íslensku kepp- endanna. Lesendur Vísis.is geta einnig les- ið dagbókarfærslur sundlandsliðs- ins og sent því kveðjur í gestabók- inni sem haldin er á vefnum. í morgun höfðu hátt í hundrað manns sent þeim hvatningu eða kveðju. -ss Björgunarsveitir á Suðurlandi og lögreglan á Selfossi leituðu fimm ungmenna í nótt. Að sögn lögregl- unnar á Selfossi lagði fólkið af stað um klukkan 14 i gær og ætlaði sér aö ganga á HlöðufeO, suður af Langjökli. Þegar það hafði ekki skO- að sér tO baka klukkan 22 í gær- kvöld var lögreglan látin vita. Björgunarsveitimar vora kaOaðar út klukkan tvö í nótt og fannst fólk- ið skömmu fyrir klukkan níu í morgun, aOt heOt heOsu. Að sögn lögreglunnar á Selfossi hafði fólkið vOlst í þokunni í gær og tók þá ákvörðun að bíða af sér veörið. Veður á svæðinu var slæmt í nótt en fór heldur skánandi með morgn- inum þrátt fyrir lélegt skyggni. Þyrla Landhelgisgæslunnar var í viðbragðsstöðu í morgun en ekki var flugveður á svæðinu. -SMK SYLVANIA Tilboósveró kr. 4.444 brother p-touch 1250 Lítil en STORmerkileg merkivél 5 leturstæröir 9 leturstillingar prentar í 2 linur boröi 6, 9 og 12 mm 4 gerðir af römmum Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.