Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
Fréttir
DV
Skipstjórinn sem kom upp um réttindalausa vélstjórann:
Rekinn fyrir að kjafta
- uppsögnin tengist málinu ekkert, segir útgerðarmaöurinn
Jóhannes Hauksson, fyrrverandi
skipstjóri á Friðrik Sigurössyni ÁR 17,
uppgötvaði að yfirvélstjórinn á skip-
inu væri með falsað prófskírteini.
Hann sagðist hafa látið sýslumann
vita um mánaðamótin apríl-maí og
lögregla hafi þá komið um borð. Jó-
hannes segist hins vegar hafa verið
rekinn fyrir að kjafta frá.
Jóhannes Hauksson segir Benedikt
Guðjónsson hjá Siglingamálastofnun
segja ósatt í frétt DV í gær er hann
segist ekki sjá neitt í sínum gögnum
um það hvort menn hafi einhver
dómsmál á sig. „Þetta er ósatt því þeir
vissu allir um þetta,“ segir Jóhannes.
Ráðherra
krafinn svara
Með vísan til upp-
lýsingalaga hefur DV
óskað eftir því við
Sturlu Böðvarsson
samgönguráðherra að
ráðherrann svari
nokkrum spumingum
varðandi undanþágu
er hann veitti fyrir
flugi vöruflutningavél-
ar frá Affican Airlines
hingað til lands á vegum Flugleiða í lok
ágústmánaðar.
Meðal annars er óskað eftir svörum
frá ráðherra um lagaheimildir sem
slíkar undanþágur byggjas á, hversu
oft ráðherrann hafi veitt þær, hvort
þær séu veittar skriflega eða munnlega
og þá við hvaða aðstæður. Þá er óskað
effir upplýsingum' um niðurstöður
skoðunar starfsmanna Flugmálastjóm-
ar á afrísku flugvélinni eftir að hún var
komin hingað tfl lands.
Svör samgönguráðherra verða birt
hér i blaðinu strax og þau berast. -EIR
Sturla
Böðvarsson
„Þá talaði ég líka við Þórð Þóröarson
út af þessu máli, síðast 10. ágúst.
Hann sagði mér að forsendan fyrir því
að menn fengju undanþágu væri að
fyrst hefði verið árangurslaust aug-
lýst eftir mönnum í útvarpi og blöð-
um. Það var ekki gert í þessu tUfeUi.
Manninum var strax veitt undan-
þága. Útgerðarmaðurinn Sigurður
Bjarnason ætlaði þá að þvinga mig til
að taka hann um borö en ég neitaði.
Þá fór ég ásamt fóður mínum í Vél-
stjórafélagið og talaði við Helga Lax-
dal. Hann sagði að það ætti ekki aö
verðlauna svona menn með undan-
þágu. Niðurstaðan varð sú að þessi
undanþága var tekin af honum eftir
einn sólarhring eða svo. Ég fékk hins
vegar uppsagnarbréfið frá útgerðinni
sama dag og ég lét sýslumann vita um
manninn."
Jóhannes segir að lögum sam-
kvæmt sé ekki hægt að gefa undan-
þágu ef annar réttindamaður sé fyrir
á skipinu. Manninum var hins vegar
urinn hafi verið lögskráður á umrætt
skip frá 30. ágúst 1998 tU 18. maí á
þessu ári. Þá staðfesti sýsluskrifstof-
an á Selfossi að maðurinn hefði verið
enn lögskráður á skipið þegar fréttin
var skrifuð. Samkvæmt þessu mun
maðurinn hafa veriö lögskráður á
skipið í rúm tvö ár.
Vélstjórinn vUdi ekkert tjá sig um
þessi mál í samtali við DV i gær eða
samskipti sín við Jóhannes Hauks-
son, fyrrverandi skipstjóra. „Mér
varð á og ég er búinn að taka út mina
refsingu."
Sigurður Bjamason sagði uppsögn
Jóhannesar skipstjóra ekkert tengjast
máli vélstjórans. Honum hefði verið
löglega sagt upp og gengið frá öUum
hans málum. „Mér er frjálst að skipta
um skipstjóra þegar ég vU.“ -HKr.
Maður var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að
falsa prófskírteini.
veitt undanþága að nýju 19. maí sem
enn er í gUdi. „Það var strákur þarna
með fuU réttindi og hann hætti út af
þessu rugli.“
í fréttinni í gær segir frá því að
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í
júní sl. 42 ára gamlan mann í 60 daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa
falsað prófskírteini
og nýtt sér það tU að
fá lögskráningu sem
yfirvélstjóri á fiski-
skip fyrir sex áram.
Samkvæmt upplýs-
ingum DV sem feng-
ust hjá Héraðsdómi
Suðurlands var svo
að skUja að maður-
inn hafi ráðið sig
strax á Friðrik Sig-
urðsson ÁR 17. Það mun hins vegar
ekki vera aUs kostar rétt og er beðist
velvirðingar á því.
Sigurður Bjamason útgerðarmað-
ur sagði i samtali við DV í gær að
maðurinn hefði fyrst verið ráðinn
fyrir um það bU ári. í dómi Héraðs-
dóms kemur hins vegar fram að mað-
Borgarstjórn hindrar byggingu nútímakvikmyndavers í Laugarnesinu:
Hrafn sallarólegur
í borgarráöi í fyrrakvöld var sam-
þykkt nýtt deUiskipulag fyrir Laug-
amesiö sem meöal annars felur í sér
að Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda-
leikstjóri getur ekki reist 100 fer-
metra vinnustofu á lóð sinni eins og
hann hafði áformað.
í góðri trú
„Þetta kemur mér
á óvart. Ég lifðf í
góðri trú um að ég
mætti byggja þama,
var búinn að láta
teikna vinnustofuna
og það kostar enga
smápeninga eins og
aUir vita,“ sagði
. Hrafn Gunnlaugs-
Gunnlaugsson son 1 þsð
Margt merki- er mar&rt merkUegra
legraenbygg- 1 lifinu en einn
ingarréttur. byggingarréttur. Eg
—........ er sallarólegur og
trúi því að hægt verði að fmna ein-
hveija lausn á þessu," sagði Hrafit
sem hafði áætlað að reisa nútíma-
vinnustofu til kvikmyndagerðar í
Laugarnesinu. „Þegar aUt er orðiö
stafrænt þarf kvikmyndagerðarmaö-
ur ekki nema 100 fermetra."
Bauja úr kopar og glerl
Vinnustofa Hrafns í Laugamesinu
var hugsuð eins og bauja og átti að
byggja hana úr koparlíki og gleri.
Hafði Hrafn hugsaö sér að hafa
vinnustofuna opna fyrir almenning
um helgar.
- ætlaði að byggja risabauju úr kopar og gleri
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
fluttu breytingartillögu þess efnis
að Hrafni yröi heimilt að reisa
vinnustofuna en tillagan var
felld. Július Vífill Ingvarsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, segir að með afgreiðslunni sé
gengið á ótvíræðan rétt Hrafns.
Brotið á Hrafni
' skipulags^
/ngvarsson nGfnd’ byggingar-
Brotíð á Hrafni. nefnd’ VlborJarraAðl
.............og umhverfisraði.
Hann hefur lagt í
talsverðan kostnað vegna málsins
og augljóslega haft fulla ástæðu
til þess í meira en tíu ár að ætla
að hann geti reist vinnustofu eins
og aðrir íbúar gerðu í Laugarnes-
inu. Við gerum athugasemd við
nýja deiliskipulagið og teljum að
þarna sé brotið á rétti Hrafns og
að það beri að staðfesta það í
deiliskipulagi að hann geti reist
þarna vinnustofu. Persónulega
finnst mér reyndar að það eigi að
byggja sem allra minnst í Laugar-
nesinu en fyrst Hrafn hafði feng-
ið leyfið á sú ákvörðun að
standa,“ segir Júlíus.
Hús Hrafns í Laugarnesinu
Evrópska kvikmyndaakademían stóð á öndinni af aðdáun.
„Listaverk í sjálfu sér“
Byggingar Hrafns Gunnlaugs-
sonar í Laugarnesinu hafa vakiö
athygli langt út fyrir landstein-
ana og í sumar hélt evrópska
kvikmyndaakademían þriggja
daga fund í Laugarnesinu hjá
Hrafni. í fréttatilkynningu frá
akademíunni, sem send var út að
fundi loknum, var Laugarnesinu
lýst þannig:
„Flestir funda okkar voru
haldnir í húsi Hrafns Gunnlaugs-
sonar á Laugarnestanga. Húsið,
sem er listaverk í sjálfu sér, opn-
aði hugi gestanna þannig að þar
ríkti andríki, áður óþekkt hug-
myndastreymi og mörgum hindr-
unum var rutt úr vegi. Fólk sem
hafði aldrei hist áður yfirgaf
Laugarnesið eins og gamlir vin-
ir.“ -EIR/GAR
Dregiö úr tekjutengingu bóta
Ingibjörg Pálma-
dóttir heilbrigðisráð-
herra kynnti í dag
reglugerð sem felur í
sér nokkra hækkun á
frítekjumörkum ör-
yrkja og ellilífeyris-
þega. Þetta mun
kosta ríkissjóð um
það bil 180 mifljónir á ári. Visir.is
greindi frá.
Útlit fyrir litlar breytingar
Frumniðurstöður rannsókna í sum-
ar benda til þess að breytingar á
ströndinni við Héraðsflóa verði hvorki
stórvægilegar né hraðar við það að
stífla Jökulsá á Dal vegna Kárahnjúka-
virkjunar. Visir.is greindi frá.
Góð útkoma á Listahátíð
Fulltrúaráðsfundur Listahátíðar í
Reykjavík var haldinn í gær i Þjóð-
menningarhúsinu. Þar kom fram að af-
koma hátíðarinnar hafi verið mjög góð
og kom hún út í hagnaði. Hátíðin velti
um 90 mifljónum króna. Samanlagður
gestafjöldi á yfir 30 atriðum á hátíðinni
voru yfir 30 þúsund. Visir.is greindi
frá.
Jákvætt skref
Guðrún Ögmunds-
dóttir, þingmaður
Samíylkingar, sem á
sæti í félagsmála-
neíhd Alþingis, fagn-
ar nýrri reglugerð
Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigðisráð-
herra, sem dregur úr
tengingu tryggingabóta við tekjur
maka. Hún segist þó gjama vilja sjá
meira að gert. Visir.is greindi frá.
Yfir 100 manns sýktir
Tala þeirra sem .sýkst hafa af
salmonellu er nú komin upp í 106 og
enn má búast við að fleiri greinist með
sýkinguna á næstu dögum. Að sögn
Guðrúnar Sigmundsdóttur hjá land-
lækni er nú verið að vflma úr gögnum
og má ekki búast við nýjum fréttum af
þvi fyrr en eftir helgi. Visir.is greindi
frá.
Óskarsverölaunaleikur Bjarkar
Kvikmyndagagn-
rýnandi CNN má
vart vatni halda yfir
frammistöðu Bjarkar
í kvikmyndinni
Dancer in the Dark.
Myndin sjálf, sem
verður frumsýnd í
New York í kvöld
eins og hér á landi, fær þokkalega um-
sögn en Björk á að fá Óskarinn - án
formsatriða eins og útnefningar. Vis-
ir.is greindi frá.
Albright til íslands
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, kemur í opin-
bera heimsókn tfl íslands laugardaginn
30. september í boði Hafldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra. Visir.is
greindi frá.
Alþingi svarar BÍ
Forsætisnefnd Alþingis svaraði í dag
fyrirspum Blaðamannafélags íslands
varðandi heimsókn kínverska þingfor-
setans hingað til lands. Nefndin telur
að starfsmenn Alþingis beri enga
ábyrgð á því að fjölmiðlum var mis-
munað við aðgang að dagskrá heim-
sóknarinnar. Visir.is greindi frá.
Synjaði beiöni
Ríkissaksóknari hefur enn synjað
beiðni Magnúsar Leopoldssonar um
rannsókn á tildrögum þess að nafn
hans tengdist hvarfi Geirfinns Einars-
sonar þannig að hann var settur í langt
gæsluvarðhald. Jón Steinar Gunn-
laugsson, lögmaður Magnúsar, segir að
Magnús krefjist þess nú að dómsmála-
ráðherra felli synjun rikissaksóknara
úr gildi. RÚV greindi frá. -KEE