Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
Helgarblað ____________________________________________________________________________________DV
Mótorhjólamenn landsins sameinast á sunnudag:
Safna fé fyrir
tryggingafélögin
„Okkur fannst við verða að
gera eitthvað í þessu. Trygginga-
félögin virðast hafa það svo bág-
borið, samanber hversu há ið-
gjöldin eru, að þeim veitir ekki
af stuðningi," segir Víðir Finns-
son, ritari Bifhjólasamtaka lýð-
veldisins, um áheitatónleika þá
sem haldnir verða á Ingólfstorgi
á simnudag.
Þar ætla hin ýmsu bifhjóla-
samtök landsins að sameinast og
safna fé fyrir tryggingcifélögin.
Fjöldi tónlistarmanna
Á meðan tónlistarmenn úr
röðum bifhjólaeigandanna stiga
á stokk, menn eins og Bjarni
Tryggva og hljómsveitirnar
KFUM and the andskotans og
Stimpilhringirnir, munu tón-
leikagestir geta sýnt stuðning
sinn við tryggingafélögin með
fjárframlögum.
„Ég býst við að söfnunarbauk-
ur verði látinn ganga á milli,“
segir Víðir og bætir við að pen-
ingunum verði dreift bróðurlega
á milli tryggingafélaganna.
Hvað búist þið við að safna
miklu?
„Við höfum ekki sett okkur
nein takmörk en vonum nátt-
úrlega að almenningur sé á
sama máli og við og sjái það að
tryggingafélögin þurfa á
stuðningi að halda," segir Víðir.
Hann vonast til þess að sjá sem
flesta bifhjólaeigendur koma á
fákum sínum á Ingólfstorgið
enda er þessi góðgerðasamkoma
kjörið tækifæri til að sýna hjólin
áður en þeim verður flestum
lagt inn í skúr fyrir veturinn.
Dagskráin hefst kl. 14.
-snæ
Prinsessan Marta Lovísa hefur ekki
hneykslað norsku þjóðina eins mik-
ið og Hákon bróðir hennar.
Norska prinsessan:
Les fyrir
börnin
Á meðan norski krónprinsinn Há-
kon er litinn hornauga fyrir það að
vera kominn í óvígða sambúð með
einstæðri móður vinnur systir hans,
prinsessan Marta Lovísa, sig í álit
meðal norsku þjóðarinnar. Fljótlega
mun hún nefnilega gleðja börn lands-
ins með söguupplestri í norska ríkis-
sjónvarpinu. Sögurnar munu að sjálf-
sögðu fjalla um prinsessur og prinsa
eins og sönnum ævintýrum sæmir en
hugmyndina að upplestrinum mun
prinsessan sjáif hafa átt. Hverjir eru
líka hæfari til þess að lesa upp kon-
ungleg ævintýri en einmitt prinsess-
ur? Prinsessan mun þó ekki vera á
konunglegum launum við verkið held-
ur verður hún í sama launaflokki og
aðrir starfsmenn ríkissjónvarpsins.
Þetta framtak á örugglega eftir að
gleðja böm landsins og kannski dreifa
athyglinni frá bróður hennar sem hef-
ur heldur betur þurft að þola sviðs-
ljósið að undanfórnu.
Menn með markmíð
Sniglarnir standa fyrir útitónleikum á Ingólfstorgi á sunnudag. Bifhjólaeigendur eru hvattir til aö mæta á fákum
sínum og almenningur með aflögu aura í vasanum til styrktar tryggingarfélögum landsins.
Survivor
16 manns eru sendir á eyðieyju og í lokin stendur
aðeins einn eftir með milljón dollara. Þáttur sem
er að gera allt vitlaust í USA.
i% 'Sfí'íí
/-'V;
The Practice
Líf og starf lögfræðinga á lítilli lögmannsstofu.
Þættirnir hlutu EMMY verðlaunin 1999 sem
besta þáttaröðin vestanhafs.
'wm*
Judging Amy
Einstæð móðir flytur í smábæ og gerist dómari.
Þættirnir hafa hlotið lof gagnrýnenda og verið
tilnefndir til fjölda EMMY verðlauna.
föstudagur
0
Charmed
Fylgist með systrunum og heillanornunum
Charmed berjast við djöfla og dára.
Providence
Stórborgarlæknirinn sem snýr aftur til heima-
bæjarins. Einn vinsælasti þátturinn á
SKJ ÁEINUM.
Oh! Grow Up
Allt getur gerst þegar þrír ólíkir karlmenn búa
saman og glíma við ýmis spaugileg vandamál.
Two Guys a Girl and a ...
Þessi skemmtilegi gamanþáttur snýr aftur og
verður á dagskrá á laugardagskvöldum.
Everybody loves Raymond
Gamanþáttur fyrir alla fjölskylduna. Hlaut EMMY
verðlaunin árið 2000 fyrir bestu aðalleikkonu í
gamanþætti
fimmtudagur
21:00
5 .
Son of the Beach
Howard Stern er ekkert heilagt og sannar það í
þessum sprenghlægilegu þáttum þar sem gert
er óspart grín að þáttum á borð við Baywatch.