Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Page 19
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 19 DV Helgarblað Betri fullnæging fyrir konur: Nýtt hjálpar- tæki slær í gegn - fæst gegn lyfseðli í Bandaríkjunum Það hafa lengi verið til alls kon- ar hjálpartæki og lyf gegn getu- leysi karlamanna. Minni áhersla hefur verið lögð á hitt kynið hvað þetta varðar og konur hafa haft úr litlu sem engu að velja á þessu sviði. Fullnægingarvandamál kvenna er vandamál sem er til staðar samkvæmt nýlegri banda- rískri könnun sem sýnir að 43% aðspurðra kvenna á við vandamál að etja í kynlífinu. Það eru sér- staklega konur sem nota þung- lyndislyf sem eiga við þetta vanda- mál að etja sem og konur sem komnar eru á breytingaskeiðið. Vonir kvenna voru lengi bundnar við Viagratöfluna en nú virðist sem nýtt hjálpartæki hafi komið á markaðinn. Eykur blóðflæðið Þetta nýja tæki á að geta hjálpað konum sem eiga í fullnæging- arvandræðum með að fá það og er eins konar snípsuga eða EROS- CTD (clitorial therapy device) sem er lítil pumpa sem gengur fyrir batteríum Pumpan er sett ofan á snípinn þar sem hún gefur snipnum létt sug. -- Þar með eykst blóð- flæðið, konan verður tilfinn- inganæmari, æsist upp og framleiðir meira slím í leggöngunum. í Bandaríkjunum . er aðeins hægt að nálgast þessa undrasugu gegn lyfseðli og er verð- ið i kring- um $359. Hvenær eða hversu mikið tækið mun kosta á íslenskum markaði er enn ekki vitað en eitt er víst; íslenskar konur munu lík- lega kætast þegar sugan kemur á íslenskan markað. Góð á breytingarskefðinu Snípsugan er sögð vera einstak- lega góð fyrir konur sem komnar eru á breytingarskeiðið sem og þær sem misst hafa móðurlífið. Það skal þó tekið fram að sugan er enginn titrari sem leiöa á til full- nægingar. Hún er einungis hjálp- artæki sem hita á upp fýrir kynlíf- ið með því að auka blóðflæðið til kynfæranna . Tímarit bresku læknasamtak- anna (BMJ) segir frá könnun sem gerð var á 25 konum. 15 konur af þeim sögðu að þær ættu við vandamál að etja varðandi full- nægingu en sjö þeirra náðu henni í fyrsta sinn með snípsugunni og tólf aðrar sögðu að þær hefðu orð- ið mun ánægðari með kynlíf sitt eftir að þær kynntust tækinu. Fjórar af þeim tíu konum sem tóku þátt í könnuninni sem ekki höfðu nein vandamál með fullnæ- ■ingu áður en könnunin hófst sögðu að þær hefðu orðið mun næmari af notkun sugunnar og aðrar fjórar sögðust hafa náð mun betri fullnægingu en áður. Þá er bara að bíða þess að íslenskir læknar fari að skrifa út lyfseðla fyrir þessarri stórkostlegu snipsugu... -snæ Sviðsljós Britney Spears: Ástfangin upp fyrir haus Loksins talar poppsöngkonan Britney Spears út um samband sitt við Justin Timberlake í hljómsveit- inni ‘N Sync og það í Elle magazine. Ýmsar spekúlasjón- ir hafa verið í gangi í sambandi við sam- band þeirra en í Elle er það haft eft- ir stjömunni að hún sé ástfangin upp fyrir haus. „Þegar þú hefur það virkilega fmt með þeim sem þú elskar þá þarftu ekki að segja neitt. Þannig er það með okkur Justin. Þegar við erum saman þá er þögnin oft best, við þurfum ekki að segja neitt. Og þegar við erum úti að skemmta okkur þá finnst mér við stundum vera þau einu á staðnum. Það er sönn ást, „ segir Britney í viðtalinu. Parið hefur sést mikið saman undanfarna mánuði og var jafnvel talað um að þau væru að fara að gifta sig en þau hafa alltaf bara sagst vera gpðir vinir, sem er greinilega ekki rett. Þau hittust fyrst þegar þau voru bæði að vinna fyrir Mikka mús klúbbinn á Disney Channels. Britney hefur fundið ástina í lifi sínu. I GALLUP Aukavinna þegar þér hentar! Vantar þig aukavinnu? Viltu vinna fyrir Gallup? Vegna mikilla verkefna vantar Gallup fólk til starfa á kvöldin og um helgar. Um er að ræða hlutastörf í sveigjanlegri vaktavinnu við að afla svara í könnunum okkar. Hvernig væri að slást í hópinn? Nánari upplýsingarveitirHjördís Búadóttirí Gallup Snípsugan klikkar ekki Vonandi veröur fljötlega hægt að nálgast snípsuguna í íslenskum apótek- um en hún hefur hjálpaö bandarískum konum til betra kynlífs. Gallup er hratt vaxandi þekkingarfyrirtæki sem býður upp á spennandi og krefjandi starfsumhverfi. Gallup hefur forystu á íslandi í gerð markaðsrannsókna, skoðana- og þjónustukannana, auk þess að vera leiðandi á sviði fyrirtækjarannsókna. Hjá fyrirtækinu er mjög góður starfsandi og þar ríkir metnaður og framsækni. Gallup er hluti af IMG. í síma 5401000 milli kl. 08:00 -12:00 alla virka daga. Umsókn ásamt mynd þarfað berast Ráðningarþjónustu Gallup jyrirföstudaginn 6. okt. n.k- merkt „Aukavinna - 259907". GALLUP RAÐNINGARÞJONUSTA Smiöjuvegi 72, 200 Kópavogi Sími: 540 1000 Fax: 564 4166 Netfang: r a d n I n g a r @ g a 11 u p . i s í samstarfi við RÁÐGARÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.