Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Síða 25
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 25 ÐV Helgarblað eð fisk á heilanum - listamaður skrifar um stangaveiði og fiskát. Haraldur Ingi Haraldsson Haraldur er myndlistarmaöur meö ólæknandi veiðidellu. Örn Árnaaon leíkari: Laxa- fiðrildi Nýttu hana í sláturtíð, framtíð, berjatíð, nútíð, vertíð og gúrkutíð því verðið er í þátíð Sú blákalda staðreynd, að AEG frystikisturnar okkar hafa verið á sama verði í ríflega eitt ár, ætti að ylja mönnum um hjartarætur. Verðfrysting Haraldur teiknar myndir af þeim sem láta uppskriftir í té í bókinni. Hér er túlkun hans á Emi Árnasyni, gamanleikara og skemmtikrafti. „Þessi hugmynd hefur ráfað milli svefns og vöku innra með mér mjög lengi en er nú loksins orðin að veru- leika. í þessari bók reyni ég að sam- eina það þrennt sem hefur verið mér kærast frá því ég var ungling- ur. Það er myndlist, stangaveiðar og matargerð." Svona lýsir Haraldur Ingi Har- aldsson, myndlistarmaður og bóka- útgefandi, nýútkominni bók sinni sem heitir Lax og silungur og fjallar um matargerðarlist og veiðigleði. I bókinni er fjallað um stanga- veiði frá ýmsum hliðum. ítarlega er fjallað um suðu á flski, reykingu og sósu- og súpugerð. Sérstakur kafli er um vín með laxi og silungi og einn kafli er lagður undir veiðisög- ur. Pjöldi mynda eftir höfundinn prýða bókina en einnig eru birtar 18 uppskriftir frá þekktum veiðimönn- um sem kynna sínar uppskriftir með nokkrmn orðum og segja frá veiðináttúru sinni. Þama eru mis- jafnlega frægir veiðimenn, s.s. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, Öm Áma- son, Stefán Jón Hafstein og Guðni Ágústsson, svo fáeinir séu nefndir Sviðsljós af þeim hópi. Með uppskriftum þeirra eru myndir af viðkomandi sem Haraldur hefur málað. En hvar finnst Haraldi sjálfum skemmtilegast að veiða? „Minn eftirlætisveiðistaður er Skjálfandafljót. Þar er náttúran stórbrotin og tröllsleg og þar gerast mikil ævintýri þegar maður er einn með sína stöng og verður hlúti af náttúrunni. Ég dvaldi lengi á Hjalt- eyri þegar ég var að vinna að bók- inni og þar var gott að renna fyrir sjóbleikjuna þegar kvöldsólin bað- aði fjörðinn og náttúran sýndi sínar fegurstu hliðar.“ En hvers vegna fer myndlistar- maður og sagnfræðingur út í það að skrifa matreiðslubók? „Ég hef gaman af að elda og fór 17 ára á matreiðslunámskeið. Ég vil sníða þessar uppskriftir að eldhús- inu heima. Þær eru fyrir venjulegt fólk sem hefur gaman af matargerð. Það er oft mikið flniríi og tilstand með matargerð og venjulegt fólk á í ósanngjamri samkeppni við glans- myndir matreiðslubókanna." -PÁÁ Of feit á forsíðuna Það er ekki ofsögum sagt að líf leikaranna snýst um ímyndina og útlitið. Rene Zellweger er ung leik- kona í Hollywood sem nýtur vax- andi vinsælda og hefur leikið í nokknun umtöluðum myndum eins og Jerry Maquire á móti Tom Cm- ise, í Me, myself and Irene á móti Jim Carrey og nýlega lék hún í kvikmyndinni Nurse Betty sem enn hefur ekki verið sýnd á íslandi. René er önnum kafin þessa dag- ana við tökur á kvikmynd eftir hinni ofurvinsælu bók, Dagbók Bridget Jones. í þeirri bók er mikið fjallað um aukakíló og örvæntingar- fullar tilraunir söguhetj- unnar til að telja hitaein- ingar. Eins og við mátti búast bætti fröken Zellweger á sig 4-5 kíló- um áður en tökur hófúst til að megrunarþráhyggja söguhetjunnar væri sennilegri. Vegna alls þessa átti að taka forsíðuviðtal við Zellweger í Harpers Baza- ar en þegar myndimar komu úr framköllun fannst ritstjóm blaðsins algerlega ófært að setja konu sem væri 4 kílóum yfir kjörþyngd á forsíð- una. Myndimar munu að líkindum ekki birtast. Þetta finnst umboös- manni Zellweger fyrir neðan allar hellur og reyndar fleirum sem líta á þetta sem sönnun þess að fjölmiðlar ali á megr- unarórum og þráhyggju kvenna varðandi útlit sitt. Rene Zellweger hélt að hún ætti að vera á for- síðu Harper’s Bazaar. AÍÞti 3 á BtgQ Vörunr. Heiti Brútto Litrar Netto Litrar Hæð sm. Breidd sm. Dýpt sm. Körfur sem fylgja Læsing Einangrun þykkt fmm. Rafnotkun m/v 18“C umhv.hita kWh/24 klst Verð áður Tílboðsverð 12HS HF120 132 126 86 55 61 1 Nei 55 0,60 43.092 29.900 23HL HFL 230 221 210 86 79 65 1 Já 55 0,84 47.843 33.900 29HL HFL290 294 282 86 100 65 1 Já 55 1,02 51.039 35.900 38HL HFL 390 401 382 86 130 65 2 Já 55 1,31 54.599 39.900 53HL EL 53 527 504 86 150 73 3 Já 60 1,39 65.116 46.900 61HL EL 61 607 581 86 170 73 3 Já 60 1,62 73.287 53.900 Qáoiommm Geislagötu 14 • Sími 462 1300 BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.