Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Side 30
30
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
Helgarblað
DV
Sérstæð sakamál
Milljónasvindlarinn náðist loks:
Skapofsinn
kom skúrk-
inum á kné
Kenneth Noye
Kenneth var sjarmerandi kaupsýslumaður sem vegnaði vel. Hann átti vini
sem voru stjórnmálamenn og háttsettir lögreglumenn.
Kenneth á sextugsaldri
Lögreglan fékk vísbendingu frá breskum ferðamanni um Kenneth. Ferðamað-
urinn hafði séð mynd af Kenneth í blaði og þekkti hann af myndinni.
Ríkari með hverjum deginum
sem leið
Noye varð ríkari með hverjum
deginum sem leið og lögreglan var
örvæntingarfull. Hún vissi að hann
auðgaðist á viðskiptum sem ekki
þoldu dagsins ljós. Lögreglan gat
hins vegar ekkei gripið til neinna
aðgerða án sannana. Skapofsi Noyes
átti þó eftir að koma honum á kné.
Það gerðist 19. maí 1996 þegar
hann ók eftir þjóðveginum nálægt
Swanley í Kent. Hann komst ekki
fram úr öðrum ökumanni, Stephen
Cameron, sem var á ferð með unn-
ustu sinni, Danielle Cable.
Noye, sem var orðinn ákaflega
æstur, þvingaði Cameron til hliðar
og hörkurifrildi hófst milli mann-
anna tveggja. Því lauk, eins og
greint var frá hér að ofan, með því
að Noye stakk Cameron til bana. Sá
siðarnefndi lést í örmum unnustu
sinnar.
Nokkrum klukkustundum síðar
hafði Noye tekið þyrlu á leigu sem
hann lét fljúga með sig til Norður-
Frakklands. Þaðan tók hann lest til
Parísar og hvarf. Hann komst til
Norður-Afríku á fólsuðu vegabréfi
og með aðstoð kunningja í undir-
heimunum. Frá Afríku hélt hann til
„Costa del Crirne" á Spáni þar sem
margir félaga hans bjuggu. Noye féll
inn í umhverfið án þess að eftir
honum væri tekið. Hann keypti sér
villu á Costa de la Luz nálægt Cad-
iz.
Nýjasta ástkonan var
spænsk
Á meðan hafði Danielle Cable gef-
ið lögreglunni greinargóða lýsingu
á morðingjanum. Lögreglan var
ekki í vafa um að um Kenneth Noye
væri að ræða. Hann var nú eftirlýst-
ur bæði af lögreglunni í Kent og
Scotland Yard en hann hafði horfið
sporlaust. En hvert?
Noye var í sambandi við eigin-
konu sína og hún heimsótti hann
mörgum sinnum. Og nú hafði hann
fengið sér spænska ástkonu.
Lögreglan fékk loks vísbendingu
frá enskum ferðamanni sem hafði
þekkt Noye af blaðamynd.
Lögreglan hafði þegar samband
við starfsbræður sína á Spáni. Þeir
fylgdust með ferðum hans allan sól-
arhringinn á meðan verið var að
gefa út alþjóðlega handtökuskipun.
Ljúfu lífi Kenneths Noyes var nú
lokið. Hann var fluttur heim til Eng-
lands og látinn svara til saka fyrir
rétti í London. Hann var dæmdur í
lífstíðarfangelsi í fullri lengd fyrir
morðið á Stephen Cameron. Það
þýðir að hann verður að sitja inni
til æviloka.
Fegurðardrottning barna
JonBenet fegurðardrottning var myrt 6 ára gömul.
Þeir sem óku eftir fjölförnum
þjóðveginum tóku varla eftir mönn-
unum tveimur sem stóðu og rifust
við bíla sina í vegarkantinum. Þá
grunaði heldur ekki að rifrildið
væri upphafið að endinum á ferli at-
hafnamikils glæpamanns. Allt i
einu tók annar mannanna fram hníf
og stakk honum í hinn. Ung kona
fleygði sér veinandi yfir hinn
særða. Hnífamaðurinn stökk inn í
bil sinn og þeysti af stað.
Morðið við þjóðveginn varð ein-
um af mestu svindlurum Evrópu að
falli. Það áttu reyndar eftir að líða
mörg ár þangað til. Og það var unga
konan frá þjóðveginum sem gegndi
þá mikilvægu hlutverki.
Á toppinn með vafasömum
viðskiptum
Morðinginn hét Kenneth Noye.
Ferill hans var dæmi um hvemig
gríðarlegur metnaður og algert til-
litsleysi getur komið manni á topp-
inn. Á áttunda og niunda áratugn-
um komst hann í álnir vegna vafa-
samra fasteignaviðskipta í Englandi
og i Bandaríkjunum. Samtímis var
hann í sambandi við glæpaklíkur.
Hann varð skjótt milljónamæringur
og keypti lúxusvillu í Kent sem
hann kallaði Hollywood Cottage.
Lögregluna grunaði hann um hvít-
þvott á mafiufé en hún gat ekkert
sannað.
Noye var dæmigerður Jekyll og
Hyde-persónuleiki. Annars vegar
var hann töfrandi kaupsýslumaður
sem vegnaði vel og átti vini meðal
stjómmálamanna og jafnvel hátt-
settra lögreglumanna. Hins vegar
var hann tillitslaus glæpamaður
sem lét ekkert stöðva sig.
Brenda konan hans stóð ætíð við
hlið hans og sætti sig meira að segja
við fjölda fallegra ástkvenna hans.
En skapofsi Noyes var akillesarhæll
hans.
Lögreglan hafði lengi vitað, án
þess þó að geta sannað það, að Noye
tengdist miklum gullþjófnaði frá ör-
yggisgæslufyrirtæki á Heath-
rowflugvellinum árið 1983. Þrjú
tonn af gullstöngum hurfu. Gullið
komst þó aftur á markaðinn og er
talið að þar hafi Noye komið við
sögu. Aðeins hefur tekist að finna
lítinn hluta þess.
Stakk lögreglumann til bana
með köldu blóði
I upphafi ársins 1985 reyndi lög-
reglan að fella Noye, meðal annars
Stephen Cameron
Morðið á Stephen, sem var stunginn
til bana úti 1 vegarkanti, leiddi til
falls illvirkjans. Stephen varð fyrir
barðinu á skapofsa morðingjans.
með því að fylgjast með villunni
hans, Hollywood Cottage. Kvöld
nokkurt uppgötvuðu varðhundar
Noyes tvo lögreglumenn og hann
„Nokkrum
klukkustundum síðar
haföi Noye tekið þyrlu
á leigu sem hann lét
fljúga með sig til
Norður-Frakklands.
Þaöan tók hann lest til
Parísar og hvarf. Hann
komst til Noröur-
Afríku á fölsuðu
vegabréfi og meö...“
þaut út vopnaður stórum slátrara-
hníf. Annar lögreglumannanna
lagöi á ílótta en hinn, John
Fordham, reyndi að fela sig á bak
við tré. Noye stakk hann til bana
með köldu blóði.
Fyrir rétti i London hélt Noye því
fram að hann hefði talið lögreglu-
manninn, sem hann stakk til bana,
vera ræningja. Hann hefði verið
svartklæddur og með grímu. Kvaðst
Daniell Cable
Danielle gat gefið svo greinargóða
lýsingu á morðingjanum að lögreglan
var ekki í neinum vafa um hver hann
væri.
Hollywood Cottage í Kent
Hér bjó Kenneth á meðan allt lék í lyndi.
Noye hafa stungið hann í sjálfsvöm.
Kviðdómendur lögðu trúnað á
frásögn Noyes og hann var sýknað-
ur. Hann gekk út úr réttarsalnum
sigri hrósandi. En ári seinna stóð
hann í sama réttarsal. Þá hafði lög-
reglunni loksins tekist að benda á
tengsl hans við gullþjófnaðinn.
Noye var dæmdur i 14 ára fangelsi.
Hann fékk æðiskast við dómsupp-
kvaðninguna og hrópaði að hann
óskaði þess að allir viðstaddir létust
af völdum krabbameins.
Hann var látinn laus 1994 þrátt
fyrir grunsemdir lögreglunnar um
að hann hefði skipulagt frá fangels-
inu umfangsmikil fikniefnavið-
skipti frá Kólumbíu um Bandaríkin.
Hann keypti sér nýja lúxusvillu í
Kent, ekki langt frá lögreglustöð.