Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Side 48
56 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 Tilvera X>V Bananar eru bæði hollir og góðir eins og flestir vita væntanlega. Þeir eiga sér langa sögu og uppruni þeirra er jafnan talinn vera í suðausturhluta Asíu. Orðið banani kemur úr arabísku þar sem „banan“ merkir fingur. Ban- anajurtin þrífst best í hitabeltisloftslagi og nú á dögum eru ekki færri en eitt hundrað afbrigði til af ræktuðum bönun- um. Sjálf bananajurtin líkist mjög pálmatrjám en þvert á trú margra er ekki um tré að ræða heldur jurt og trúlega eina þá stærstu í heimi. Hvenær menn byrjuðu að neyta banana er ekki ljóst en trúlega var það langt aftur í fornöld. Öruggt þykir að Alexander mikli kynnt- ist þessum góða ávexti þegar hann ferðaðist um Indland á fjóröu öld fyrir Krist. Bananar munu ekki hafa borist Evrópumönnum að ráði fyrr en í lok 19. aldar en þeir urðu fljótlega meðal allra vin- sælustu ávaxta. mmmsmm Bananar í kókoshnetu- Tyrfingur Tyrfingsson, matreiðslumeistari á Humarhúsinu, Girni- leg keila Þurrkuöu ban- anarnir eru sérstak- lega Ijúffengir. mjólk Hér er uppskrift að taílenskum eftirrétti sem er bæði góður og ódýr. í réttinn, sem er fyrir fjóra, þarf fjóra græna banana og hálf- dós af kókoshnetumjólk. Mikil- vægt er að bananarnir séu óþroskaðir en þeir eru skornir í þrennt og síðan langsum í hæfi- legar sneiðar. Kókoshnetumjólk- in er sett í pott og jafnmikið magn af vatni. Bananarnir eru settir út í og siðan bætt við sykri eftir smekk og örlitlu salti. Ban- anarnir eru soðnir í kókósmjólk- inni i 5 til 10 mínútur eða þar til þeir eru orðnir mjúkir. Rétturinn er borinn fram í litlum skálum og borðaður heitur. Á Taílandi er til siðs að skreyta diskana með ban- analaufum og leggja síðan jasmínblóm ofan á. Blómin er eingöngu til skrauts og á ekki að borða. Bananar og avókadó ia- og adósalsa- sa á vel við egar vel cryddaðir (júklingar ;ru annars 'egar. Sker- i banana og ikadó . Sprautið aiLiuiiuacua yfir. Setjið bananabitana og avókadóið í skál ásamt smátt skornum chili-pipar, 1/2 rauðum lauk í bitum og söx- uðum ferskum kóríanderlaufum. Bleytið upp með ólífuolíu og límónusafa. Bætið salti og pipar út í og salsasósan er tilbúin. Bananabrauð Bananabrauð getur verið afar bragðgott og góð tilbreyting frá öðru sætabrauði. Hrærið saman 1 1/2 bolla af hveiti, 3/4 tsk. salti, 1/2 tsk. matarsóda og 1/4 tsk. lyftidufti. Setjið í stóra skál og bætið út í 5 msk. af smjöri og 2/3 bolla af sykri. Hrærið vel saman. Þá eru tekin fram tvö stór egg og hrærð saman áður en þeim er blandað hægt saman út í deigið. Næst eru tveir vel þroskaðir ban- anar maukaðir og bætt rólega út í ásamt 1/2 bolla af grófsöxuðum valhnetum eða pecanhnetum. Setjið deigið i form og bakið við 150 gráður í 50 til 60 mínútur við eða þar til ekkert loðir við tann- stöngul sem stungið er í mitt formið. „Þurrkuðu bananamir koma skemmtilega út með flski,“ segir Tyrfingur Tyrfmgsson, matreiðslu- meistari á Humarhúsinu. „Að fá sætt á móti pipamum eins og t.d. í réttinum sem ég gef uppskriftina að núna.“ Kokkar Humarhússins hafa einnig haft grillaða banana með fiski, auk vinsælla eftirrétta með banönum eins og creme hrulée í kókoshnetu með banana- og sykm-- húð. „Svo era bananamir ailtaf vin- sælir í skreytingum á desertum í gæsapartíum." Tyrfmgur gefur lesendum DV tvær uppskriftir þar sem bananar leika misstórt hlutverk. Annars veg- ar er um að ræða fiskrétt þar sem bananinn er í aukahlutverki og hins vegar böku þar sem bananinn er í öndvegi. , . Bananar vinsælir í gæsapartíum Keiluflok 1 piparnjup meo Tyrfingur Tyrfingsson matreiðslumeistari segir kóríanderolíu, gráöaosti Og banana vera talsvert á matseöli Humarhússins. stökkum banana Keiluflökum velt upp úr pipar- blöndu, rósapipar og svörtum pipar eft- ir smekk. Kóríanderolía 2 bollar olía, 1/2 bolli ristaðar fúruhnetur 1/4 bolll rifinn parmesanostur 1 poki ferskt kóríander 1 lítið búnt steinselja 2 hvítlauksgeirar Kryddjurtir og olía maukað í mat- vinnsluvél. Furahnetum og osti bætt í og maukað varlega. Bragðbætt eftir smekk með salti og pipar. Stökkir bananar Bananar skomir í þunnar sneiðar endOangt, t.d. með ostaskera, lagðir á léttsmurðan smjörpappír, sykri stráð yfir og bakað í ofni við 150" í eina klukkustund. Tekið út og látið harðna. Má móta áður en harðnar. Fiskur steiktur í oliu. Kóreanderolia sett á diskinn, fiskurinn ofan á hana, muldum gráðaosti stráð á diskinn eftir smekk, skreytt með stökkum bönunum og ristuðum fura- hnetum. þar til deigið molnar. Bætið þá klakavatninu í þar til deigið verður að kúlu. Fletjið á disk og kælið í minnst 30 mín. Hitið ofn í 180°. Rúllið deigið á hveitist- ráðu borði og setjið í 22 cm bökuform. Flettið kantinum að- eins yfir brúnir formsins. Kælið í frysti í 20 mín. Takið úr frysti og blindbakið í 20 mín., þ.e. legg- ið álpappír ofan á deigið og bak- ið með þurrum baunum eða grjónum ofan á álpappímum. Takið því næst álpappírinn af og bakið í 10 mín. í viðbót eða þar til bakan er gulbrún að lit. Kælið. Fylling 1 bolli mjólk 3 msk. hveiti 3 msk. sykur 3 eggjarauður 2 msk. bananalikjör 1-2 bananar Bananabaka Deig 1 bolli hveiti 1/4 tsk. salt 1/2 tsk. sykur g kælt smjör í tening- um 1/2 msk. jarðhnetuolía 1/2 msk. klakavatn Blandið þurrefnum, bætið við af smjörinu og olí- unni. Blandið síðan seinni helmingnum og hrærið Hitið mjólkina í vatnsbaði, blandið hveiti og sykri saman. Takið mjólkina úr hitanum og hrærið henni hægt og stöðugt út í þurrblönduna. Setjið yfir hita (vatnsbað) og hrærið þar til þykknar. Hrærið eggjarauður þar til þær eru þykkar og ljósar að lit, bland- ið 1/4 af heitu blöndunni út í eggin og hrærið stöðugt í. Takið síðan þessa blöndu og hellið út í afganginn af heitu blöndunni. Hitið og hrærið vel. Takið úr hitanum, sigtið í skál og blandið bananalíkjör i, setjið strax filmuplast yfir (til að losna við skán) og kælið í ís- baði. Setjið helminginn af fyllingunni yfir bökuna, þá koma þunnt skomir bananar og svo hinn helmingurinn. Gott er að setja bráðið súkkulaði yfir. Kælt í is- skáp. Borið fram með þeytt- um rjóma. um Sæt og góö baka Kara- mellu- ísterta Góðan undirbúning þarf fyr- ir ístertuna og eins þegar hún er borin fram. Botn 65 g smjör 50 g síróp 65 g hveiti 1 msk. kartöflumjöl ís 2 egg 1 1/2 msk. sykur á pönnu: 160 g sykur 1 1/2 dl rjómi 2 dl rjómi þeyttur Smjör og síróp er hrært vel sam- an, hveiti og kartöflumjöl er sigtað út í. Öllu er blandað saman. Setjið í form (jafn stórt og ísformið sem notað er) og bakið við 180" í 15-18 min. ÍS Egg og sykur er þeytt vel saman, sykur brúnaður ljósbrúnn á pönnu, rjómanum er hellt saman við og sykurinn er látinn leysast upp. Hellið út í þeytinguna, kælið lítillega, blandið svo saman við þeyttan rjómann. Leggið botninn í hringform og heliið ísnum yfir, frystið. Þegar ísinn er borinn fram er pera sett yfir hverja sneið og súkkulaðisósa borin fram með ísn- æringargildi Bananar eru afskaplega hollir og orkuríkir ávextir. C-vítamín er að finna i nokkru magni í bönunum og einnig svolítið af A-vítamíni. Það sem gerir banana hvað hollasta er hversu ríkir þeir eru af kalíum en það hefur góð áhrif á blóðflæði líkamans auk þess að virka vel á taugakerfi og vöðva. Fiskur og baka með banönum 100 g af hráu blómkáli Innihalda: 95 kaloríur 1.2 g prótein 0.3 g fitu 23.2 g kolvetni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.