Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Síða 49
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
57
Uppskriftir
Nykaup
Þar sem ferskleikinn býr
DV
Tilvera
Eldað eftir minni ósk
- að ég hélt
Það er Gísli Einarsson sem er
matgæðingur vikunnar. Hann
stundar nám við Háskóla íslands og
lærir þar líffræði af miklum áhuga.
„Áhuginn minn á mexíkóskum mat
vaknaði strax á unglingsaldri.
Ég var eins og margir unglingar
mjög matvandur og sökum „mat-
vendni" minnar var það þannig oft-
ar en ekki á heimilinu að matseðill-
inn var tví- ef ekki þríréttaður. í
upphafi var það þannig að ef ekki
var matur sem hentaði matarvenj-
um mínum fékk ég yfirleitt að velja
eitthvað annað. Ég bjó þá hjá móð-
urforeldrum mínum og gekk svo
sannarlega á lagið. Áður en langt
um leið var amma mín farin að elda
samkvæmt minni ósk þegar t.d.
fiskur var á borðum eða eitthvað
álíka óspennandi.
Kjúklinga „burrito“
fyrir fjóra
Hveiti-tortillaskökur (mjúkar)
Úrbeinaður kjúklingur (tvær
bringur og tvö læri)
Cajun kryddblanda
Grófmalaður pipar
Herbes de Provence
BBQ-sósa
Laukur
Sveppir
Salsasósa, mild
Tómatar, skomir smátt
Jöklasalat (Dole)
Sýrður rjómi (18%)
Mexíkósk baunastappa
Hrísgrjón
Lýðháskóli í Danmörku
Einstakt tækifæri!
Námskeið
... fyrir þig, ef þú ert 18 ára eða
eldri og með áhuga á altskonar list.
Meiriháttar upplifun í 4Vi, 8Vi, 17
eða 25 mánuði.
Kennsla - Skemmtun;
veislumatur alla daga;
Hreint ótrúlegt umhverfi
og verðíö er sanngjarnt.
Allar nánarí upplýsíngar í;
Síma: 0045 - 75883555
Faxí: 0045-75883650
Eða kikið á heimasiðu skólans á
(danska / onska)
www.engelsholm.dk
koramlk - skúlptúr og fleira.
Fyrsta mexíkóska matinn fékk ég
þvl í gegnum slíkan „gikkshátt".
Það er þó ekki þannig að mér hafl
þótt allur matur vondur og óætur
heldur notaði unglingurinn sér að-
stöðuna til fulls.
Amma mín dó ekki ráðalaus því
auðvitað vissi hún að drengur á
unglingsaldri þurfti virkilega á holl-
um mat að halda fyrir líkamann.
Hún fór því að lauma fisk, lauk og
alls kyns mat sem ég hafði aldrei
borðað inn í bökumar og alltaf
borðaði ég með bestu lyst og hugs-
aði hlýlega til ömmu sem skildi mig
svo vel.
Ég er því mjög stoltur af ömmu
minni fyrir að hafa
komið mér í
kynni við
framandi
matargerð
á þessum
árum. En
það skal
tekið fram :
að í dag
borða ég
flest en þegar
til ömmu er kom-
ið situr sú gamla oftar en ekki í
gamla farinu og ber á borð marg-
réttaðar máltíðir og „laumar" holl-
ustunni inn i matargerðina,“ sagði
Gísli.
Listauki fyrir fjóra
Margarita:
skot tequila
4 skot triple sec
Blandist i lítra könnu (2
pint). Myljum ís og fyllum
að þremur fjórðu. Setjum
tequila og Triple Sec út í
og fyllum með sítrónu og
lime safa.
Glös bleytt á
börmum með
sneið af limeávexti
og dýft í salt svo
það sitji á brún-
um. Skreytt með
sítrónusneið og
af lime.
báti
Strawberry daiquiri:
4 skot af Bacardi
fersk jarðarber (blönduð í mat-
viimsluvél)
limesafi
Blanda jarðarberja og limesafa
(3:1)
Sletta af ferskum appelsínusafa
Notum lítra könnu (2 pint). Mylj-
1 ís og fyllum að þremur
fjórðu. Bætum út í Bacardi.
Fyllt upp með jarðar-
berjablöndu og limesafa.
Að endingu er örlitlu af
appelsínusafa bætt í.
Skreytt með appel-
sínusneið og háti af
lime.
Kjúklingurinn er skorinn í smáa
bita og steiktur á pönnu. Pipar og
salti stráð yfir eftir smekk ásamt
cajun kryddi. Næst er lauknum
(ekki of smátt söxuðum) bætt út á
pönnuna og látinn steikjast með
kjúklingnum. Þegar laukurinn er
orðinn meir er BBQ-sósu bætt í eft-
ir smekk og allt hrært saman. Látið
krauma í nokkrar mínút-
ur.
Meðlæti er svo
ferskir sveppir sem
eru skornir í sneiðar,
saxaðir tömatar,
saxað jöklasalat (Dole),
sýrður rjómi og mexíkósk bauna-
stappa (með eða án chillipipars).
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
Grill gúff
Þorir þú að drekka kók með
þessum?
100 g rifið súkkulaði
3 stk. kókosbollur
500 g ávaxtasalat, t.d. jarðarber,
kiwi, bláber, vínber, perur, ban-
anar og epli.
Ávextirnir skomir í bita og settir
í álbakka. Súkkulaðinu sáldrað yfir
og kókosbollunum þrýst ofan á.
Grillið í u.þ.b. 10 mínútur við lág-
an hita.
Humar með
villisveppum
Fyrir 6
500 g skelflettur humar
50 g smjör
Villisveppasósa
30 g þiurkaðir villisveppir
1 stk. skalottlaukur
1 stk. hvítlauks-
geiri
2 msk. furuhnetur
1 peli rjómi
1 dl fisksoð eða
vatn og teningur
2 msk. rjómaostur
salt og pipar
1 stk. súputeningur
Meðlæti
Laufsalat, t.d. eik-
arlauf og smá-
brauð.
Byrjið á að laga
sósuna. Hitið smjörið
á pönnu uns freyðir.
Þerrið humarinn og
steikið í smjörinu,
kryddið með salti og
pipar. Hellið tilbú-
inni sósunni yfir og
látið sjóða í eina
mínútu. Berið strax fram. Skreytið
með laufsalati og steinselju.
Villísveppasósan
Sjóðið villisveppina í tveim dl af
vatni í fimm mínútur, veiðið síðan
sveppina upp úr. Saxið laukinn og
steikiö glæran ásamt villisveppun-
um og örlítilli oliu, bætið síðan
furuhnetum og hvítlauk saman við.
Kryddið með salti og pipar. Bætið í
rjóma, rjómaosti, sveppasoði og ten-
ingum. Sjóðið við vægan hita í 3-4
minútur.
Hollráð
Gætið þess að ofelda ekki humar-
inn. Því minna sem hann er eldaður
þvi betri verður hann.