Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Side 51

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Side 51
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 59 DV________________________________ Tilvera Breytingar fyrir næsta ár Reglubækur Formúlu 1 sofna aldrei. Þaö sanna stöðugar breyt- ingar varðandi öryggi, líkt og sést á grafi á síðunni þar sem sagt er frá auknum öryggiskröfum til að koma í veg fyrir að hjól losni af bílunum. En það er ekki bara ör- yggið sem rætt er um. í kjölfar fundar, sem Bernie Ecclestone, Max Mosley og allir liðstjórar héldu á Heathrow-flugvellinum í London, var annar fundur fyrir síðustu keppni á Monza. Þar voru samþykktar nokkrar breytingar sem huga að áhorfendum sem og starfsmönnum Formúlunar sem hafa verið undir miklu álagi síð- an tímabilið hófst í byrjun mars. Eftir að hafa rætt um hvort hafa eigi tveggja daga tímatökur eða stytta eigi keppnishelgina í tvö daga, laugardag og sunnudag, var ákveðið að halda núverandi fyrirkomulagi. Klukkutíma tíma- taka þykir henta vel í sjónvarp og er áhorf á tímatökur ávallt mikið og er talið víst að það minnki, komi tímatakan til með að vera í tvo daga. Til að gera föstudagana áhuga- verðari fyrir áhorfendur verður dekkjagöngum, sem hver kepp- andi fær til umráða fyrir hverja keppni, Qölgað úr 8 i 10. En til að sjá til þess að þau tvö aukasett verði notuð á föstudegi verður skylt að skila inn þremur um- göngum að loknum æfingum. Þetta er talið verða til þess að föstudagarnir, sem oft hafa verið frekar daprir, verði fjörugri í framtíðinni. Sumarfríi verður komið á. Það var samþykkt að það verði þriggja vikna hlé í ágúst. Senni- lega með því að taka tvær keppn- ir með viku millibili og færa svo til það sem á eftir kemur. Allar prófanir verða bannaðar á þessu tímabili. Þetta er gert til að hleypa starfsmönnum Formúlun- ar í frí, því álagið er mikið og þvi nauðsynlegt. Eddie Jordan átti þessa hugmynd og fær eflaust klapp á bakið frá starfsmönnum sínum. Strangari prófunarreglur voru samþykktar á fundinum á Monza- brautinni fyrir hálfum mánuði. Prófanir verða leyfðar á Monza, Silverstone, Barcelona og Magny Cours en ekki fjórum vikum fyrir hverja keppni á viðkomandi braut. -ÓSG HM-Keppnin Ökumaður Lið 1 Hákkinen 80 McLaren 131 T~ M Schumacher 78 Ferrari 127 3 Coulthard 61 Willlams 34 4 Barrichello 49 Benetton 20 5 R Schumacher 24 Jordan 13 J Fisichella 18 BAR 13 7 Villeneuve 11 Arrows 7 8 Button 10 Sauber 6 9 Frentzen 7 Jaguar 3 10 Trulll 6 Prost 0 10 Salo 6 Minardi 0 12 Verstappen 5 13 Irvine JJ ' % 14 Wurz 2 14 De la Rosa 2 I) lltj 14 Zonta 2 Areiðanleiki í keppni (Fyrstu 10) Hringir kláraðir % 1 Mika Hákkinen 810 90.80 2 Ralf Schumacher 771 86.43 3 Rubens Barrichello 757 84.86 4 Gaston Mazzacane 752 84.30 5 Michael Schumacher 739 82.84 6 Ricardo Zonta 738 82.73 7 David Coulthard 720 80.71 8 Jacques Villeneuve 719 80.60 9 Jenson Button 704 78.92 10 Alexander Wurz 703 78.81 (Fjöldi hringja á tímabilinu: 892) % = prósenta kláraðra hringja miðað við fjölda hringja á timabilinu .-----I____________t____________■__.......... einnig mikið. Bridgestone hefur sérhannaða hjólbarða fyrir þessa einu keppni svo þeir þoli álagiö í beygju 13 sem verður tekin á um þ.b 320 km/klst. Til að það takist er mjög mikilvægt að loftþrýsting- ur barðanna verði réttur og alls ekki of lágur því hefur framleið- andinn varað keppnisliðin við hættunni og segist enga ábyrgð bera, fari liðin ekki eftir þeirra tilmælum. Hættan er sú að við aukinn þrýsting í hjólbörðum verða þeir „hálii“ á innri-braut- inni og því freistandi að láta leka aðeins úr dekkjunum og fá meira grip. Það getur aftur á móti orðið dýrkeypt í beygju 13 ef hjólbarð- arnir gefa sig undan þeirri geysi- legu áraun sem þeir verða fyrir. Allir í tölvuleik Allt síðan lega brautarinnar lá fyrir hafa liðin verið í tölvuleikj- um. Að visu talsvert fullkomnari og dýrari en PlayStation, því í höfuðstöðvum sínum geta þau út- búið líkan af brautinni og keyrt bíla sína, allt í tölvu. Og sá sem er bestur í þeim tölvuleik kemur best útbúinn til keppni á morgun. Fjaðurbúnaður, gírhlutfoll og væng-grip er prófað og skrifað í skruddurnar (sem að öðru leyti eru auðar). Þegar föstudagsæfing- arnar hófust í gær, höfðu liðin ör- litla hugmynd um það hvemig best væri að byrja. Líklegasta uppsettning fyrir keppnina á morgun er ekki ósvipuð Hocken- heim, þar sem aðstæður eru álíka. Langir beinir kaflar og þröngur miðjukafli. En samspilið á milli mikils hraða á beinu köflunum og aukins væng-grips í beygjum er alltaf erfitt og verður áhugavert að sjá suma taka mesta endahrað- ann og missa svo dampinn i þröngum erfiðum beygjunum. Og öfugt. -ÓSG Tæknireglur FIA Grein 10.3.4 ‘ Banvænt flugskeyti Hið hræðilega siys á Monza-kappakstursbrautinni fyrir hálfum mánuði, er brunavörður lét lífið af völdum fljúgandi hjóls eftir árekstur bíla, verður vonandi aldrei endurtekið. Hjólöryggiskapallinn sem innleiddur var af FIA árið 1999 hefur ekki staðið undir væntingum sambandsins og fyrir næsta ár eru fyrirhugaðar breytingar. í júní á þessu ári var samþykkt að frá árinu 2001 yrðu tveir 8 mm stálkaplar festir í hvert hjól til að koma íveg fyrir að þau losni frá bflnum. Komist aö nióurstööu... Að neðan sjáið þið lykilskrefin í þróun FIA til að verja ökumenn, starfsmenn og áhorfendur gegn þessari ógn Fe Stærð vandans. Iga og hjólbarði vega samanlagt um 20 kg. Eftir óhöpp fylgir oftast annar búnaður með sem gerir hjólið, fari það á flug, að banvænu flugskeyti. Þó að mest fari fyrir hjólinu eru beitt og brotin koltrefjaefnin, sem enn eru föst við hjólið, mjög hættuleg og skapa sérstök vandræði. Tæknireglur FIA Grein 10.3.1 / 10.3.2 Liðamót á innri festingu neðri fjaður- armsins. Reglur um fjaðurarma óbreyttar en bílar hafa mjókkað úr 200 cm í 180 cm. Reglubreyting sem beindist eingongu að höfuðvörn ökumanna. Neðri fjaðurarmar, bæði að aftan og framan, verða að geta snúist 60° til beggja hliða frá sinni upphaflegu stöðu allt þar til hjólbarði snertir bílinn og hjólið losnar af. 60 graöa snúningur Uppfærðar s. reglur: Stefnubreyting sem miðast við að halda hjólinu föstu við bflinn. Stálkaplar binda saman hjól og bíl til að verja höfuð ökumanna. Hver stálkapall hefur 5 tonna togþol. Stál- kapallinn skal ekki vera lengri en nauðsyn krefur vegna fjöðrunar. Kaplarnir eru inni í fjaðurörmunum. Sem sagt... Margsinnis hefur vörnin bilað í árekstri svo FIA hefur ákveðið að stíga skrefi framar til að minnka hættuna. Tveir kaplar verða í öll hjól, sinn með hvora festinguna við hjól og bíl. 1) Ef reynir á báða kapla í einu getur átakið orðið allt að 10 tonn 2) Efannar (TJ kapallinn brestur ætti sá seinni að geta haldið hjólinu við bílinn. 8 mm kapal! Grafik: Russell Lewis COMPACL yfirburdir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.