Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 32
32
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
Helgarblað ________________________________________________________________________________________________py
Fyrrverandi ráðherra á Grænlandi fluttur til íslands:
Samgöngurnar jafnerfiðar
og á dögum Eiríks rauða
- fámenn og afskekkt lönd þar sem íbúarnir lifa á fiski
Þegar Benedikta Thorsteinsson
kom fyrst til íslands í kringum
1970 kom hún frá Kaupmanna-
höfn og var grænlenskur hippi
með sítt hár og í mussu. Það varð
umferðaröngþveiti þegar hún
gekk niður Laugaveginn því
margir íslendingar höfðu aldrei
séð útlending sem leit svona út.
Benedikta eða Bendó, eins og
hún er oftast kölluð, er nú flutt
búferlum til íslands og það tekur
enginn eftir því að hún skeri sig
neitt úr íjöldanum þótt hún sé
ekkert minna framandi í útliti en
fyrir þrjátíu árum. Yngsti sonur
hennar og Guðmundar eigin-
manns hennar fer í nýbúadeild í
Austurbæjarskólanum en árið
1970 haföi enn enginn sagt orðið
nýbúi á íslensku því það var ekki
búið aö finna það upp.
Benedikta og Guðmundur
bjuggu á íslandi í samtals 12 ár á
árunum 1971 til 1984 en þá fluttu
þau til Grænlands og bjuggu þar
þangað til fyrir rúmri viku að
þau sneru aftur til íslands.
Benedikta tók virkan þátt í
grænlenskum stjórnmálum þegar
hún sat í stjórn fyrir Siumut-
flokkinn sem félags- og atvinnu-
málaráðherra i tvö og hálft ár en
hún starfaði einnig á vettvangi
sveitarstjórnar árum saman.
Benedikta Thorsteinsson, fyrrverandi ráðherra á Grænlandi, er flutt búferlum til íslands.
Eiginmaöur hennar, Guömundur Thorsteinsson, og yngsti sonur, Eqaiunnguaq Kristiansen, fyigja meö. Sonurinn er jafnframt eina barniö af fjórum sem
fætt er á Grænlandi.
Pamela Anderson:
Barmurinn
lyftist að nýju
Mun aftur upp rísa segir í góðum
texta. Barmur Pamelu hefur greini-
lega tekið þessa ábendingu nokkuð al-
varlega því nú segja menn að hann sé
aftur farinn teygja sig upp til himins
í gegnum hálsmál sandgyðjunnar
fríðu. Flestir minnast þeirra tiðinda
með skelfmgu þegar hún tjáði heimin-
um að hún ætlaði að íjarlæga silíkon-
ið úr brjóstunum. Nú segja samstarfs-
menn hennar í sjónvarpsþáttunum
VIP að brjóstin séu að verða nokkuð
við vöxt að nýju. Þegar umboðsmaður
Pamelu var spurður um brjóst um-
bjóðanda síns vildi hann engu svara.
Annars er allt gott að frétta úr lífi
hinnar fögru sandgyðju. Hún virðist
hafa náð sér í yfir meðallagi geðheil-
brigðan kærasta, sérstaklega ef miðað
er við Tommy Lee.
Brjóst hennar munu eflaust rísa og
hníga um ókomna tíð henni sjálfri og
öðrum til ánægju. Og gerir þá nokkuð
til þótt hún grípi til stækkunar og
minnkunar til skiptis. Gott er að
minnast þess að þar til nýlega þótti
stórmál að hleypa úr og í dekk í fjalla-
ferðum - en nú er það bara gaman.
Píanókeppni í fyrsta sinn á íslandi:
Leynast stjörnur meðal nemenda?
íslandsdeild EPTA (Evrópusam-
band píanókennara) mun dagana
22.-26. nóvember standa fyrir
fyrstu íslensku píanókeppninni
og er hún ætluð efnilegum píanó-
nemendum 25 ára og yngri.
Píanókeppnir hafa tíðkast í öll-
um Evrópulöndum áratugum ef
ekki árhundruðum saman. En
hvers vegna ekki á íslandi fyrr en
nú.
„Það er sennilega af peninga-
leysi,“ segir Arndís Björk Ás-
geirsdóttir píanókennari sem sit-
ur 1 stjórn íslandsdeildar EPTA.
Að hennar sögn styrkir nú keppn-
ina Reykjavík Menningarborg
Evrópu, auk menntamálaráðu-
neytisins, Sjóvár-Almennra og
fleiri. En er ekki erfitt að dæma
píanóleik?
„Dómendur þurfa auðvitað að
hafa gott eyra og vera sanngjarn-
ir en annars eru reglurnar um
hvernig dæma skal mjög skýrar.
Dómarar eiga m.a. að hlusta eftir
tæknilegri færni, nákvæmni, stíl-
tilfinningu og frumleika þeirra
sem leika. Það eru þessi atriði
sem skapa góðan píanóleikara."
Arndís segir að það sé ánægju-
legt að hafa Malcolm Troup einn
af dómurum keppninnar en hann
er mjög reyndur dómari og hefur
um margra ára skeið ferðast um
heiminn og dæmt í slíkum keppn-
um. Hinir dómnefndarmennirnir
eru Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir, Anna Þorgrímsdóttir, Gísli
Magnússon og Halldór Haralds-
son.
Allt getur gerst
Heldurðu aö við íslendingar
eigum eftir að eignast píanó-
stjörnur í kjölfar keppninnar?
„Já, ég gæti trúað því,“ segir
Arndís. „Við höfum auðvitað
alltaf átt efnilega pianóleikara og
eflaust leynast þar stjörnur innan
um.“
Arndís segir að keppnin muni
áreiðanlega virka mjög hvetjandi
á unga nemendur í píanóleik og
hún hefur þegar tekið eftir mikl-
um áhuga í kringum keppnina.
Krakkarnir æfa og æfa og ætla
sannanlega að gera sitt besta.
Arndís segist vilja hvetja fólk til
að koma og horfa á því keppnin sé
hin besta skemmtan. „Keppnin er
líka spennandi og í raun getur
allt gerst."
Keppnin fer fram í Salnum
tónlistarhúsi Kópavogs, og er
opin almenningi til áheyrnar
gegn aðgangseyri. Keppend-
ur velja verk frá ákveðnum
timabilum tónlistarsög-
unnar samkvæmt upp-
gefnum verkefnalistum
fyrir hvern flokk fyrir
sig. Þorkell Sigurbjörns-
son tón-
skáld hefur samið verkið Sindur
fyrir úrslit keppninnar í efsta
flokki. _
Keppt er í
þremur
flokkum:
mið-
ur
nám (4.-5. stig, ekki eldri en 15
ára), framhaldsnám (6.-7. stig,
ekki eldri en 19 ára) og háskóla-
nám (ekki eldri en 25 ára). For-
keppni fyrir mið- og fram-
haldsnám verður haldin
miðvikudaginn 22. nóv-
ember frá
kl.10.00-16.00 og
fyrir háskólanám
fimmtudaginn 23.
nóvember frá
| kl.10.00-16.00.
Úslitakeppni í
i öllum flokkum
verður laugar-
| | daginn 25. nóv-
:í ember frá
| 10.00-16.00.
* Sunnudaginn
26. nóvember kl.
14.00 verður há-
tiðarsamkoma
þar sem tilkynnt
verða úrslit í öllum
lokkum og
menntamálaráð-
herra veitir verð-
laun og viður-
kenningar fyrir
1., 2. og 3. sæti
hverjum
flokki. Sigur-
vegarar hvers
flokks munu
koma fram
leika
fyrir
áheyrend-
Arndís Björk Asgeirsdóttir
Arndís Björk hvetur alla til aö koma aö horfa á píanókeppnina í Salnum. „Keppnin er æsispennandi og í
raun getur allt gerst, “ segir hún.