Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 Helgarblað Ben Affleck leikari er orðaður við hina fíngerðu Gwyneth Paltrow Það skrýtna er að hann reynir að gera sem minnst úr sambandi þeirra og segir að þau séu bara vinir. Þau eru bara vinir Leikararnir Gwyneth Paltrow og Ben Affleck eru sögð eiga í ástar- sambandi. Þau hafa verið ljósmynd- uð í faðmlögum og kossaflensi tals- vert umfram það sem vinir almennt gera. Þau eru hins vegar staðráðin i því að samband þeirra sé aðeins platónskt. Það þýðir að sambandið er aðeins andlegt en ekki líkamlegt eða kynferðislegt. Britney Spears t.d. á aðeins platónsk ástarsambönd við karlmenn, að minnsta kosti þangað til hún ákveður annað. I viðtali við Entertainment Weekly lýsa þau sambandi sínu sem vináttusambandi eingöngu en Pal- trow segist samt gista hjá Affleck ef hún á leið um Los Angeles og Af- fleck segir að vináttusamband þeirra sé miklu mikilvægara en nokkurt ástarsamband geti nokkurn tíma orðið. DV Gunnsteinn Ólafsson, tónskáld og hljómsveitarstjóri, og Eygló Ingadóttir hjúkrunarfræðingur eiga köttinn Sómatínu: Tónfælin prím onna lega fölsk; almennilegheit tákni að eitthvað annað búi að baki. Sómatina hefur sigrað hjarta okkar. Hún er ein af fjölskyldunni." -sm heyrist í Jakobi gengur Sómatína af fundi með vandlætingu. Hún er príma- donna heimil- isins og stendur föst á sínu. Pétur Már segir að hún sé rosa- Köttur tónskáldsins þolir ekki tónlist „Þegar ég sest viö flygilinn kemur Sómatína sér eins langt í burtu og hún kemst. „Sómatina kom til okkar frá bróður mínum, Pétri Má, þegar hún var tveggja ára gömul. Þá var henni uppálagt að veiða mýs sem við höfðum orðið vör við í hús- inu,“ segir Gunnsteinn Ólafsson, tónskáld og hljómsveitarstjóri, um kisuna Sómatínu sem hefur síðan verið heimilisföst á Álftanesinu, á heimili hans og Eyglóar Ingadótt- ur. Sómatína er næstyngst á heim- ilinu en yngstur er prinsinn, Jak- ob Fjólar. Nafnið Sómatína kann að þykja nýstárlegt en það er ástæða fyrir nafngiftinni eins og flestu öðru. Ástæðan er sú að Tómasína, sem téður Pétur Már átti, hvarf og hef- ur ekki snúið aftur. Næsti köttur fékk nafnið frá Valgerði Bene- diktsdóttur skáldi og er það, eins og klókir lesendur hafa eflaust séð, orðaleikur og jafnframt virð- ingarvottur við hoifna kisu. Margar mýs á lofti Þrátt fyrir upphaflegt hlutverk Sómatínu á Álftanesinu fékk hún ekki tækifæri til veiða innanhúss þar sem allar mýsnar veiddust í músalokur. Þeim var síðan sleppt út i náttúruna. Mýsnar virða lífgjöf- ina og hafa haldið sig utan hússins frá því veiðiskapnum lauk. Hins vegar hafa mýsnar ekki getað hald- ið sig alveg frá; þær hafa hætt sér of nærri húsinu og þá lent i klónum á hinni slyngu veiðikisu Sómatínu. „Sómatína hefur hins vegar verið dugleg að leita uppi mýs og fanga, aðallega til að leika sér með. Þá liggur hún á bakinu og kastar þeim lifandi upp fyrir sig og grípur á lofti.“ Kræsin kisa Ferskleiki er okkar fag segir einhvers staðar og það á vel við Sómatinu. Hún er vandætin; litur ekki við dósamat. Nái hún ekki í ferska mús sem hún getur leikið sér aðeins með þá er úr vöndu að ráða. Hún vill helst glænýja lín- uýsu en lítur til dæmis ekki við laxi og silungi. „Ég lít svo á að eitthvað hafi misfarist í uppeldi hennar hjá bróður mínum. Ég hef vissar áhyggjur fyrir hönd sona hans.“ Foröast flygilinn Heimili Gunnsteins og Eyglóar er tónelskt, mikið er hlustað á tónlist og leik- ið á hljóðfæri. En Sómatína er príma- donna sem er viðkvæm fyrir tónlist. „Þegar ég sest við flygilinn kemur Sómatína sér eins langt í burtu og hún kemst. Helst fer hún út en ef henni eru allar bjargir bannaðar skríður hún í felur í hinum enda hússins. Ragnhildur mág- kona min leikur á fiðlu og á meðan Sómatína var búsett hjá henni sá hún að eina gagnið í tónlistarflutn- ingi væri að þá gæti hún skrið- ið ofan í fiðlukassann." Ein af okkur Sómatína litur ekki við barninu á heimilinu „Hún sér það ekki. Ef eitthvað Hallgrímur Helgason Endurminning frá Austur-Berlín Hallgrímur Helgason skrifar Ég er búinn að vera nokkra daga i Berlín þegar ég átta mig á því að ég sakna Austur-Berlínar. Ég geng í sæluvímu inn í þau port sem tíminn hefur ekið hjá á sínum svarta Audi; þar sem hinn illa þefjandi anda Ho- neckers er enn að finna. Nú þegar terrorinn er horfinn úr Austur- Berlín blasir fegurð hennar við; hin hrollkalda, gráleita, fyrirskipaða fegurð. Helfór í steypu og gler. Bauhaus-martröðin. Og það er eitt- hvað magnað við hana. En hvers vegna þessi nostalgía? Mystík kommúnismans? Kannski langar mig bara aftur í austur-þýskt fangelsi? Ég var handtekinn í Berlín árið ’79, nítján ára listnemi á götóttum jakka með myndavél að taka mynd af múrnum austan frá. í gegnum að- dráttarlinsuna sá ég varðmann í tumi sem stóð á milli múranna tveggja. (Berlínarmúrinn var tvö- faldur með jarðsprengjuakri á milli.) Hann horfði á mig úr kíki. Skömmu síðar stóðu tveir alvopnað- ir hermenn við hlið mér og færðu mig inn á milli múra og vörpuðu mér í dýflissu í kjallara varðturns- ins eftir að hafa tekið af mér myndavélina og töskuna. Á 40 stiga heitum sumardegi sat ég heilan klukkutíma í illa þefjandi skellótt- um steypukjallara undir sjálfu Jám- tjaldinu og taldi víst að ég ætti ekki afturkvæmt vestur yfir. Kannski yrði ég látinn laus í skiptum fyrir Boris Spassky? Wolf Bierman? Eða kúbanska kvennalandsliðið i blaki? Nei, líklega ekki. Ég var í raun far- inn að sætta mig við að ganga í Kúnstakademíu austur-þýska hers- ins og gerast sannur DDR-ari, fá að sýna í galleríunum í Karl-Marx- Stadt og skrifa smásögur um fasana- veiðar með foringjunum í skógun- um útí Potsdam. Mín framtíð var orðin mjög rauð þegar hermaður birtist niður stiga með filmulausa myndavél og skipaði mér að fylgja sér. Út. Sólin skein á milli múra, á þenn- an kirkjugarð sem fólk þurfti að hlaupa yfir til þess að komast í kjöt- borðin og bítlabúðirnar fyrir vest- an. Hér lágu 70 lík á milli jarð- sprengja. Ég gekk hægt á undan hermanninum eftir þurrgulum sprengjuakrinum og fann hitann frá moldinni í gegnum ódýra skósól- ana. Ég var annaðhvort á leið útí frelsið eða í alvöra fangelsi. Við stóðum á götunni fyrir utan. Hann skipaði mér að bíöa hjá sér og talaði í talstöð á óskiljanlegri kommúnísku. Stuttu síðar kom her- trukkur með segluðum palli. Fanga- flutningabíllinn. Bilstjórinn talaði út um opna rúðu. Ég skildi að þeir voru að ráðskast með næstu tuttugu árin í mínu lífi. Þeir voru að ákveða það hvort þessi pistill yrði skrifaður á íslensku eða þýsku. Hallgrímur eða Holzengrim. Þeir þjörkuðu nokkra stund og virtust ósammála. Ég horfði út yfir traböntuð torgin og hugsaði um mömmu og ísland, Me- gas og Norður-Kjallara. Aldrei myndi ég sjá það allt aftur. Að lokum klykkti bilstjórinn út með því að hann væri á leið á fót- boltaæfingu hjá hemum og hann mætti ekki vera að því að skutlast með vestrænan njósnara dulbúinn sem listnema. Trukkurinn hvarf með drunum. Eftir stóðum við; ég og hermaður. Hann var svo svekkt- ur að ég var næstum búinn að bjóða honum að skjóta mig á staðnum. En sleppti því þó. Og hann síðan mér. Ég eyddi því sem eftir lifði af mér og deginum í Austur-Berlín, dáldið taugaóstyrkur en jafnframt heillaður af því að hafa loksins fundið fyrir LÍFINU. Ósköp var allt hér dapurlegt. Húsin í niðumíöslu, allt svo skítugt og andlitin öll hernumin af Sovét- mönnum. Jafnvel stelpumar voru hér ekki eins sætar og fyrir vestan, og var þetta þó sami kynstofn, sömu stelpur. Hvernig stóð á því? Var feg- urð óhugsandi án meik-öpps og maskara? Yfirlæti vesturlandabúa var þó jafn dapurlegt: Á götu mættu mér þrjár v-þýskar skólastúlkur og vildu gefa mér alvöru þýsk mörk af því það væri „svo erfitt hjá ykkur hér fyrir austan". Einhvernveginn hafði handtakan gert mig að algjör- um DDR-ara. Ég var kominn með kúgunarsvipinn. Ég reiddist ölmus- unni og hvæsti að þeim á full- kominni amerísku „fuck off!“ (í fyrsta sinn sem íslendingur notaði það snjalla orðatiltæki á erlendri grund.) Um kvöldið var ég handtekinn í annað sinn. Ég hafði bæjarleyfi til miðnætt- is. Kl. 00.00 áttu allir útlenskir gest- ir að vera mættir í Checkpoint Charlie. Ég sat á veitingastaö við Alexanderplatz þegar ég áttaði mig á þvi að klukkuna vantaði bara korter í tólf. Ég hljóp yfir torgið og inn í brautarstöðina en áttaði mig þar á því að ég hafði gleymt treflin- um á veitingastaðnum. Ég hljóp aft- ur yfir torgið til að ná í hann. Þeg- ar ég kom hlaupandi í þriðja sinn yfir torgið á innan við þremur mín- útum var okkar mönnum nóg boðið. Borgaraleg vanhegðun. Úr skúma- skoti vatt sér að mér hermaður og bað um passann. Talaði svo í tal- stöð. Var þetta kannski maðurinn sem var að taka myndir af múrnum í dag? Mér leið eins og óvini ríkis- ins númer eitt. Klukkuna vantaði fimm mínút- ur í tólf þegar hann sleppti mér. Ég kom tveimur mínútum of seint á Checkpoint Charlie, náfólur og skjálfandi á beinum, þess fullviss að ég væri fallinn á tíma og fengi aldrei að sjá „Prúðuleikarana“ á ný. Landamæravörðurinn brosti - fyrsta og eina brosinu sem ég sá í Austur-Berlín - og sagði: „Því miður, vinur, þú kemur of seint. Það er búið að loka Járntjald- inu.“ Það leið yfir mig. Ég rankaði við mér i amerískum hersjúkrabíl með rödd íslenska sendiherrans í Bonn í öðru eyranu. Síðan hef ég alltaf kosið í öllum þing-, forseta- og sveitarstjórnar- kosningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.