Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Qupperneq 20
20 Helgarblað LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 DV Gerður Kristný, skáldkona og ritstjóri: Skáld- skapur- inn er leitin að lyginni - íslensk umræða um ljóð minnir á Jerry Springer Gerður Kristný, skáld og rit- stjóri, er Guðjónsdóttir þótt það sé yfirleitt ekki látið fylgja. Hún byrjaði 21 árs gömul í blaðamennsku á Tímanum en er nú ritstjóri Mannlífs. Hún hefur ort síð- an hún var 10 ára gömul og var að- eins 16 ára þegar viðtal og ljóð eftir hana birtust í Þjóðviljanum. Þá orti hún í hefðbundnum stíl með stuðlum og höfuðstöfum og viðurkennir að sér finnist ljóð enn hafa meiri slagkraft þegar hefðbundnu formi er fylgt. Fyrsta ljóðið sem Gerður birti opin- berlega fjallaði meðal annars um dauð skáld en líka um óréttlætið í heiminum og löngun skáldsins til þess að deila ljóðum sínum með öðr- um. Það hefur Gerður gert því nú er komin út ný ljóðabók hennar, Laun- kofi, en síðast gaf hún út ljóðabókina isfrétt fyrir sex árum. í millitíðinni hefur hún skrifað skáldsöguna Regn- bogi í póstinum, smásagnasafnið Eitr- uð epli og fyrr á þessu ári var sýnt eftir hana leikritið Bannað að blóta í brúðarkjól. í ljóðabókinni Launkofi eru 30 ljóð sem eru m.a. um Guð, ástina, eftirsjá og þá athyglisverðu staðreynd að stysta leiðin að hjarta mannsins ligg- ur beint i gegnum brjóstkassann. Það tók Gerði sex ár að semja þessi ljóð enda segist hún ekki oft fá hugmynd- ir að ljóðum sem gefur til kynna að hún yrki hægt en hugsi hratt. Minnir á Jerry Springer Þótt víða glitti í stuðla og höfuð- stafi eru flest ljóðin nær laus við „stuðlanna þrískiptu grein“ heldur óhefðbundin. En hefur skáldið reynt allar þær viðkvæmu tilfinningar sem lýst er í ljóðunum sem fiest eru eink- ar persónuleg? „Umræðan um ljóðagerð á íslandi er oft á svipuðu plani og þegar talað er um sjónvarpsþætti Jerry Springer. Fólk viU fá að vita hvort allt sé satt og skáldin hafi örugglega upplifað allt sem þau yrkja um. Gott ljóðskáld á hins vegar að geta ort um allt án þess að hafa upplifað það sjálft. Þó viður- kenni ég að margt í bókinni er satt,“ segir Gerður og hvessir á mig augun. Við sitjum á Hótel Borg í úrillu morgunregni og skylmumst yflr borð- ið meðan túristarnir ljúka við morg- unmatinn. Ég drekk kaffl, Gerður kók og borðar bland í poka sem hún hefur keypt á leiðinni. Kjarngóður morgunmatur. Skáldskapur og skurðlr Það var Hrafn Jökulsson sem tók viðtalið við Gerði í Þjóðviljanum þeg- ar hún var 16 ára og kvartaði hástöf- um undan því í inngangi hvað það væri erfitt. Ungskáldið svaraði aðeins einsat- kvæðisorðum. Hrafn stóð á þeim tíma fyrir grasrótar- eða malbikssamtök- um sem köliuðu sig Besta vin ljóðsins og Gerður hringdi í hann og stakk upp á því að hún fengi að lesa upp ljóðin sín á einu upplestrarkvöldanna sem einmitt voru haldin hér á Borg- inni. En hvert er hlutverk skálda í sam- tíma okkar? Eiga þau að syngja okk- ur í svefn eða vekja okkur af værum blundi? „Ég sé engan mun á skáldskap og skurðgrefti og þ.a.l. ekki skáldum og öðru fólki. Einu skyldurnar sem skáld hafa er að vera til friðs eins og annað fólk.“ Dáln skáld á stalli En við hefjum skáldin á stall og hlustum af andakt á það sem þau segja, er það ekki? „Mér flnnst það sem skáldin segja yfirleitt ekki það merkilegt að þörf sé á sérstakri andakt en auðvitað dettur mörgum þeirra þó ýmislegt fallegt og merkilegt í hug, s.s. eins og Kristínu Ómarsdóttur og ísak Harðarsyni. Einu skáldin sem ég sé á stalli eru þessi dánu sem fuglarnir kúka á. Það kostar auðvitað sitt að vera settur á stali." Það er ljóst að eina leiðin út úr þeim ógöngum sem þessar umræður stefna í er hefðbundin skáldaspurn- ing í skáldaviðtali. Hver telur að sé þinn helsti áhrifavaldur í ljóðlist? „Ég hef mikið dálæti á verkum hinnar dönsku Piu Taftrup og Mar- inu Tsvetaevu sem var rússneskt skáld í upphafi aldarinnar. Hún hengdi sig því hún var óhamingju- söm og svo var henni líka oft alveg óskaplega kalt eins og sést í ljóðunum hennar," segir Gerður. Leitin að lyginni Þó eru þeir eru til sem halda því fram að skáld yrki aldrei betur en þegar þau þjást. Ertu sammála þessu? „Skáld þurfa ekkert að þjást. Það er leiðindaklisja og ósönn með öliu. Það er auðveldara að skrifa þegar manni líður vel. Og það á ekki bara við um skáldskap þvi allt verður auðveldara þegar manni líður vel.“ Gerður er bæði blaðamaður og skáld. Hver er munurinn á þessu tvennu? „Blaðamennska er leitin að sann- leikanum en skáldskapur er leitin að lyginni. Það felst í orðanna hljóðan." Maður hittir áhugavert fólk Myndir þú vilja hætta blaða- mennsku og helga þig skáldskapnum eingöngu? „Blaðamennska er afskaplega skemmtilegt starf og ég finn ekki hjá mér neina löngun til að hætta því. Ég eyddi líka talsverðum tima og pening- um í að mennta mig til þessa starfs þegar ég fór í hagnýta fjölmiðlun í Geröur Kristný hefur ort síöan hún var barn Fyrstu Ijóö hennar sem birtust opinberlega voru heföbundin og fjölluöu meöal annars um dauö skáld. Hún situr hér viö fótstall eins hinna dauöu sem hefur fengiö styttu af sér á almannafæri. Háskólanum. Ég lít ekki á mig sem gest í þessu fagi. Þegar manni er síð- an treyst fyrir ritstjórn blaðs á borð við Mannlíf læðist að manni sá grun- ur að maður sé jafnvel á réttri hiliu." Hvað er svona skemmtilegt við blaðamennsku? „Maður hittir margt áhugavert fólk og heyrir margar merkilegar sögur,“ segir Gerður og bætir við: „Þetta hljómar eins og svar fegurðardrottn- ingar við spurningunni um það hvers vegna hún tekur þátt í keppninni. Ferðalög og lestur góðra bóka koma þó sjaldan við sögu í blaðamennsk- unni.“ Mér leiðast átök Gerður skrifaði leikritið Bannað að blóta í brúðarkjól sem var sett upp í Kaffileikhúsinu í vor. Leikritið hvarf næstum í skuggann af harkalegum deilum sem hún og Bergljót Amalds áttu í um höfundarrétt verksins og sýningarrétt. Hvernig fannst þér að þurfa að verja rétt þinn á opinberum vettvangi með þessum hætti? „Margir virðast halda að ég hafl haft mjög gaman af því en það er ekki rétt. Mér leiðist að standa í átökum og er mjög fegin því nú að ég skyldi taka þá ákvörðun að skrifa aðeins eina grein um málið í Morgunblaðið í stað þess að sprikla í öllum íjölmiðl- um, eins og vissulega stóð til boða. Þegar Morgunblaðið leitaði síðan til hlutlauss lögfræðings sem sagði höfundarréttinn ótvírætt minn þurfti ég heldur ekki að hafa mn þetta fleiri orð. í sama blaði birtist lika fallegur dómur Soffiu Auðar um leikritið. Það var gaman þann dag.“ Ekki mjög frumiegt Um þessar mundir er sýnt í Borg- arleikhúsinu leikrit HaOgrims Helga- sonar, Skáldanótt, og þar má með nokkurri vissu þekkja Gerði Kristnýju á sviðinu sem fyrirmynd blaðakonu nokkurrar. Haft er fyrir satt að í Vitleysingum Ólafs Hauks Símonarsonar, sem sýndir eru í Hafn- arfirði, sé einnig að finna blaðakonu sem margir telji að sé mótuð með Gerði sem fyrirmynd. Hvernig finnst skáldinu að vera orðin persóna í verkum annarra? „Ef rétt er að tveimur karakterum byggðum á mér bregði fyrir hvorum í sinni sýningunni finnst mér þeir Ólafur og HaUgrímur ekki ýkja frum- legir þetta sísonið. Mér fannst ógeð- felld myndin sem HaUgrímur dregur upp af blaðamennsku í leikritinu sínu. Annað er mér sama um.“ Það er ekki hægt að skiljast við skáldið á Borginni án þess að spyrja það hvert sé uppáhaldsljóð þess í ný- útkominni ljóðabók. „Ég býst við að það sé ljóðið um Guð,“ segir Gerður Kristný að lokum. Guð Þegar ég dey skaltu tálga úr tönnum mínum bítandi frost búa tU blístrur úr beinunum og leika á þær ýifur í vindum Þangað tU minnir þú á þig með því að strá glimmeri yfir nýfaUinn snjóinn Yfir mér slútir verndarvængur þinn og hefur enga fjöður feUt PÁÁ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.