Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 25
25
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000________________________________
I>V ____________________________________________________________________ Helgarblað
með Víkingi, varð fyrirliði liðsins
og leiddi það til sigurs í íslands-
meistarakeppni árið 1991. Á þess-
um árum var Atli í sambúð með
unnustu sinni og þau eignuðust
saman barn 1989.
Atli útskrifaðist úr lögfræðinni
vorið 1993 með II einkunn, 6,74, og
skrifaði lokaritgerð sína í lögfræði
um samþjöppun félaga. Eftir út-
skrift réðst hann til starfa á lög-
mannsstofu Atla Gíslasonar, nafna
síns og félaga úr Víkingi, sem var
meðal þekktra stuðningsmanna
liðsins.
Dauða bróður hans bar
að með þeim hœtti að
lögreglan veitti bíl hans
eftirför vestur Skúla-
götu að næturlagi seint
x september. Á móts við
afgreiðslu Akraborgar-
innar snarbeygði bíll
hans og ók beint fram
af bryggjunni. Kafari
fann bílinn 15-20
metra frá bryggju með
allar hurðir lœstar og
ökumanninn látinn.
Þeir sem störfuðu við hlið hans
í knattspyrnunni segja hann hafa
verið heilsteyptan, vinmargan og
lífsglaðan mann sem var gæddur
talsverðum leiðtogahæfileikum og
var auk þess góður knattspyrnu-
maður.
Atli skipti um íþróttafélag árið
1994 og gekk til liðs við Val og lék
þar til ársins 1997 þegar hann
lagði fótboltaskóna á hilluna.
Skuggar fíkniefna birtast
Svo virðist sem það hafi verið
um líkt leyti og Atli útskrifast úr
lögfræðinni sem hann fer að neyta
örvandi efna, s.s. amfetamins og
kókaíns. Samkvæmt bestu heim-
ildum DV leitaði hann sér með-
ferðar við vimuefnavanda sínum á
meðferðarheimili árið 1996 um líkt
leyti og honum var sagt upp vinnu
á lögfræðistofunni. Orsakir upp-
sagnar hans voru fjárdráttur sem
mun hafa tengst neyslu vímuefna.
Meðferðin gekk vei og mun Atli
hafa verið samvinnuþýður og op-
inskár við meðferðaraðila sem þar
störfuðu og voru þeir bjartsýnir
fyrir hans hönd.
Hann leigði sér skömmu síðar
aðstöðu á lögfræðistofu í Borgar-
túni í félagi við nokkra aðra lög-
fræðinga en tók lítinn virkan þátt
í samstarfi við þá heldur hélt sig
út af fyrir sig.
Blekkti hann alla?
Svo virðist sem nokkur hvörf
hafi orðið á ferli Atla árið 1997
þegar hann hætti að leika fótbolta.
Upp úr því virðist sem hann hafi
leitað á ný á náðir fikniefna og það
er mat þeirra sem DV hefur rætt
við um þau atvik sem leiddu til
þess að Atli réð Einari félaga sín-
um bana í Öskjuhlíð fyrir 10 dög-
um að allt bendi til þess að hann
hafi verið undir áhrifum fíkni-
efna.
Fjölskylda Atla mun allt fram til
þess að harmleikurinn í Öskjuhlíð
varð lýðum ljós hafa trúað því
statt og stöðugt að hann væri laus
undan oki vímuefna og lifði hefð-
bundnu lífl í samræmi við þann
árangur sem hann náði í fíkni-
efnameðferðinni 1996.
Margir hafa undrast framkomu
Atla í tengslum við leitina að Ein-
ari Erni Birgissyni þar sem hann
tók virkan þátt á vettvangi og
ræddi opinskátt við fjölmiðla um
áhyggjur sínar vegna málsins. DV
er kunnugt um að eftir að leitin
hófst og meðan á henni stóð leitaði
Atli meðferðar hjá vönum meðferð-
araðila og fór í gegnum slökunaræf-
ingar og samtalsmeðferð sem áttu
að hjálpa honum að losa um spennu
vegna þessara atburða. -PÁÁ
Missa tengslin viö
raunveruleikann
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, þekkir flestum íslendingum
betur áhrif og afleiðingar lang-
vinnrar neyslu örvandi flkniefna,
eins og amfetamíns og kókaíns, en
það eru þau efni sem Atli Helgason
mun einkum hafa notað.
„Kókaín veldur mikilli örvun,
hraðri hugsun og menn verða örir
og fullir orku. Þeim flnnst þeir geta
gert hvað sem er - fyllast oftrú á
sjálfum sér. Undir áhrifum þess
missa margir aUt skyn á raunveru-
leikann og geta upplifað umhverfið
sem fjandsamlegt og geta fyllst
ranghugmyndum um t.d. hvað þeir
eiga og hvað ekki.“
Þórarinn sagði að kókaín væri
dýrt fíkniefni á íslandi og neytenda
þess væri því helst að leita í efri
lögum samfélagsins og það væri oft
talið flkniefni ríka fólksins og fólks
í skemmtanaiðnaðinum. Gangverð
á kókaíni mun vera kringum 10
þúsund krónur fyrir grammið.
„Langvarandi neysla þess kallar
fram þunglyndi og breytt skapferli.
Menn verða
gleðisnauðir og
önugir án áhrifa
og geta fyllst tor-
tryggnihug-
myndum um
samfélagið."
Spurður hvort
fallnir kókaín-
flklar gætu leynt
neyslu sinni fyr-
ir sínum nán-
ustu sagði Þórarinn það vel geta
gerst.
„Það er mjög misjafnt hvernig
þetta virkar á fólk. Sumir nota það
lengi um helgar án þess að neinn
sjái á þeim. Aðrir eiga miklu hrað-
ari og illvígari feril í neyslu þess.“
-PÁÁ
Þórarínn
Tyrfingsson
Ertu með eitthvað
d heilanum?
Talaðu við sérfræðingl
Glitnir er sérfræðingur í fjármögnun atvinnutækja
Rétt val á fjármögnun getur skipt miklu um heildarkostnað við fjárfestingu.
Glitnir býður fjórar. ólíkar leiðir við fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru
afgreiddar á skjótan hátt þegar nauðsynleg gögn liggja fyrir.
Hafðu samband við ráðgjafa Glitnis eða heimsæktu heimasíðu okkar
www.glitnir.is ogfáðu aðstoð við að velja þá fjármögnunarleið sem best hentar.
Glitni getur þú treyst. Það sem sagt er stendur.
Glitnir
Kirkjusandi, 155 Reykjavfk,
sfmi 560 8800, www.glitnir.is
-hluti af Íslandsbanka-FBA