Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Page 27
I>V LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 27 „Ég trúi á álfa og aðrar vœttir, ekki síst vegna þess að ég tel heiminn vera skemmtilegri fyrir vikið. Heimurinn er eins og við sjáum hann - en eru þá pabbi og mamma bara til þegar við sjáum þau? Hvað þá með alla álfana?“ Gráti næst Verk Ólafs um Benedikt búálf er nú á leið milli forma, frá bók yfir á leiksvið. „Hinrik Ólafsson leikari keypti bókina í fyrra og sagðist hafa séð í henni lítið sætt leikrit. Gunnar Gunnsteinsson og Draumasmiðj- an komu síðan inn i myndina og nú er leikritið stórt bamaleikrit með dönsum og söngvum sem verður vonandi frumsýnt næsta haust.“ Auk þess að vinna sem listrænn stjómandi hjá Kynningu og mark- aði sækir Ólafur námskeið í leik- ritun hjá Endurmenntunarstofn- un HÍ sem Karl Ágúst Úlfsson sér um. „Það er mjög gaman að skrifa leikrit. Ég fékk til dæmis það verkefni að skrifa einræðu fyrir yngstu dótturina í Stundarfriði Guðmundar Steinssonar. Ung og efnileg leikkona flutti textann svo í tíma og það lá við að ég færi að hágráta. Ég fann að þetta var til- finning sem ég vildi lifa oftar; að heyra textann minn lifna við. Þetta var eins og vera viðstaddur barnsfæðingu eða veiða fyrsta flugulaxinn." Mekka teiknimyndanna Síðasta sumar fór Ólafur með fjölskyldu sinni til Flórida. Hann hafði samband við yfirmenn lista- deildarinnar í gamla skólanum sínum sem hjálpuðu honum að komast í samband við yfirmenn hjá Disney, þá Mark Seppala, yfir- mann hönnunardeildar Disney, og Jack Lew, yfirmann teiknimynda- deOdarinnar. Þegar Ólafur gekk inn á skrifstofu Marks heilsaði hann honum á íslensku; hann hafði verið hermaður í herstöð- inni á Keflavíkurflugvelli fyrir mörgum árum. „Þeir tóku mér mjög vel og voru ánægðir með það sem ég hafði fram að færa. Þeim leist vel á Benedikt búálf.“ Ólafur er með fórum sínum handrit að teiknimynd um vík- f-serin BETRA MINNl - SKARPARI HUGSUN BRAINBOW er fæðubótarefni sem eflir starfsemi heilans og talið er baeta verulega minnið með því að hjálpa taugaboðum að berast á milli taugamóta. » # Helgarblað inga. Hann hafði ásamt Saga Film reynt að ná sambandi við Disney og fleiri risa í kvikmyndaiðnaðin- um en ekki tekist þar sem þau fyr- irtæki taka helst ekki við hug- myndum sem ekki kvikna innan þeirra. Ólafur hafði lýsingu á myndinni með sér á fund Disneys. Mark Seppala tók upp bókina sem lýsti myndinni, persónum og sögu, og spurði hvað þetta væri. „Þegar ég sagði honum að þetta væri hugmynd að mynd sem ég vildi að Disney framleiddi lagði hann bókina snöggt niður og sagði: Ég skoða þetta ekki. Ástæð- an er sú að Disney tapaði nýlega máli fyrir rétti þar sem deilt var um höfundarrétt að hugmynd að íþróttagarði sem þeim hafði verið kynnt og þeir hafnað á þeim for- Ævintýri búálfsins Benedikt búálfur heldur áfram æv- intýrum sinum i nýju bókinni. sendum að þeir hefðu slíkt á teikniborðinu. Þeir vilja því ekki skoða hugmyndir annarra." Víkingamyndarhandritið komst samt til skila en Ólafur setti það með í umsóknina. Upp í næstu vél Ólafur segir að Hollywood hafi alltaf mistekist að gera myndir um víkinga, Þar gætu menn ekki komið þessu epíska hetjuefni á framfæri án þess að klúðra því. „Víkingarnir voru villimenn en ekki bara villimenn. Teiknimynd- in hefur hins vegar tólin til að búa til epíska hetjusögu sem þarf ekki að eltast við raunveruleikann; í teiknimyndum má fegra raun- veruleikann. í sögu Disneys um Pocahontas kom til dæmis ekki fram að hún dó komung í Lund- únum úr sýfílis." Umsókn Ólafs hjá Disney er í farvegi sem fáar umsóknir komast í. Hann er i sambandi við teikni- myndastórveldið í vestri sem fylgist vel með því sem hann er að gera. Eftir áramót verður ljóst hvort nafn Ólafs kemst í eina eft- irsóttustu stimpilklukku heims- ins. „Ég er bjartsýnn en þetta skipt- ir mig þó ekki öllu máli. Ég hef nóg að gera hér heima, er með leikrit í vinnslu, alfheimar.is er að fara í loftið og margt fleira. Ég verð hins vegar nokkuð fljótur að panta flugfarið, verði mér boðið starf hjá Disney." -sm frumsýnum fallegasta bíl í heimi OPEL- Söludeild nötaðra bíla er opin báða sýningardagana með stórsvningu á jeppurn á útsöluverði. Komið og gerið góð kaup fyrir veturinn. OpelAstm Coupé var vidirm fallegasti bííl í heimi afalfjoMegri dómnefnd skipuð hönnuðum, blrtðctmönnurn og listamvnnum. Opel Astra Coupé er hannaSnr eif italska bilohönnuðinum Bertone. Br’Uinn er fiögurra sœta, og stnðaibúnaður hans er m.a.: 15 ” Opei dlfilgur, ijóskastantr r framstuðaro, sporbetti, hvtcir sportmahu útvarp/geisbtspilari m/fiarstýringu i stýr 't, tölvustýro spólvörn, geymsla fyrír geisltidiska, mfinagn / rúöum ogspeghtm og margt fieira. Opið um helginct kl. 14-17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.