Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2001, Blaðsíða 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2001
I>V
Joseph Estrada
Fyrrum Filippseyjaforseta veröa
væntaniega birtar ákærur fyrir marg-
víslega meinta glæpi í dag.
Joseph Estrada
verður ákærður
Umboðsmaður stjórnvalda á Fil-
ippseyjum sagði í morgun að lögð
yrði fram ákæra í átta liðum gegn
Joseph Estrada, fyrrum forseta
landsins, meðal annars fyrir grip-
deildir sem dauðarefsing liggur við.
Umboðsmaðurinn Aniano Desi-
erto sagði fréttamönnum að auk
ákærunnar um rán og rupl yrði
Estrada ákærður fyrir mútuþægni
og spillingu.
Estrada, sem er fyrrum kvik-
myndaleikari, hefur neitað öllum
ásökunum um að hafa brotið af sér
á meðan hann gegndi forsetaemb-
ættinu. Estrada var bolað úr emb-
ættinu í janúar, eftir eins konar al-
þýðuuppreisn.
Desierto sagði að ákærurnar yrðu
lagðar fram siðar í dag.
Evrópuleiðtogar
vilja fá Bush á
Kyoto-vagninn
Viðræður fulltrúa Evrópusam-
bandsins og bandarískra embættis-
manna um Kyoto-samkomulagið um
loftslagsbreytingar báru engan ár-
angur í gær.
Evrópuþjóðirnar hétu því að stað-
festa samkomulagið, sem kveður á
um samdrátt í losun gróðurhúsaloft-
tegunda, svo það geti gengið í gildi
á næsta ári. Bandaríkjamenn héldu
aftur á móti fast í fyrri yfirlýsingar
sínar um að samkomulagið væri
andstætt bandarískum efnahags-
hagsmunum.
Evrópsku embættismennirnir
sögðust vona að Bandarikjamenn
myndu um síðir sjá að sér og ganga
i lið með þeim.
Naumur sigur
Sigur Georges W. Bush í Flórída
tryggöi honum 25 kjörmenn og þar
meö forsetaembættiö.
Hefði líklega
sigrað í Flórída
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefði að öllum líkindum haldið
forystu sinni i Flórída þótt Hæsti-
réttur hefði ekki stöðvað endurtaln-
ingu atkvæða. Þetta er niðurstaða
könnunar dagblaðsins Miami Her-
ald sem greint var frá í morgun.
Örlítið forskot Bush hefði þrefald-
ast hefði verið farið eftir tilmælum
demókrata um aðferð við talningu.
Hefði verið farið eftir strangari skil-
yrðum, sem sumir repúblikanar
mæltu með, hefði forskotið orðið að
engu, að því er Miami Herald full-
yrðir.
Kínverjar taka
vélina í sundur
Kínverjar eru farnir að taka
bandarísku njósnaflugvélina, sem
nauðlenti í suðurhluta Kína á
sunnudaginn, í sundur. Þetta kem-
ur fram á njósnahnattamyndum
sem Bandaríkjamenn hafa. Óljóst
var í morgun hvort kínversk yfir-
völd hafa látið fjarlægja eitthvað af
njósnabúnaðinum um borð í vélinni
eða upplýsingarnar sem vélin hafði
aflaö.
Kínversk herstöð er á eynni Hain-
an þar sem bandaríska ílugvélin
nauðlenti. í herstöðinni eru sér-
fræðingar í merkjasendingum og
njósnum, að því er bandarísk yfir-
völd hafa greint frá. Bandaríska
stjórnin óttast að Kínverjar geti ráð-
ið fram úr leynilegum upplýsingum
sem ekki höfðu verið eyðilagðar.
Forseti Kína, Jiang Zemin, ítrek-
aði í morgun kröfu sína um afsök-
unarbeiðni vegna áreksturs banda-
rísku njósnaflugvélarinnar og kín-
verskrar orrustuþotu. Zemin krafð-
Erfiöir dagar
Erfiöir dagar eru nú hjá sendiherra
Bandaríkjanna í Kína,
Joseph Prueher.
ist afsökunarbeiðninnar rétt áður
en hann lagði af stað í 12 daga ferða-
lag um Suður-Ameríku.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að atvikið gæti graf-
ið undan samskiptum ríkjanna skil-
uðu Kínverjar ekki strax njósna-
flugvélinni og áhöfn hennar. Full-
trúar bandaríska hersins segja
árekstur flugvélanna yflr S-Kina-
hafi hafa verið slys en Kínverjar
fullyröa að bandaríska flugvélin
hafl flogið á þá kínversku að yfir-
lögðu ráði. Flugmanns kínversku
þotunnar er enn leitað.
Fulltrúar Bandaríkjanna fengu í
gær að hitta áhöfn njósnaflugvélar-
innar sem er í stofufangelsi. Allir
flugliðarnir 24 voru sagðir vera við
góða heilsu.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
Bandaríkjamenn þyrftu ekki að
biðjast afsökunar á neinu. Um
óhapp hefði verið að ræða.
Heim af fundi með uppreisnarmönnum
Camilo Gomez, sendifulltrúi stjórnvalda í Kólumbíu, ríöur múlasna yfir á í fylgd meö uppreisnarmönnum. Gomez fund-
aöi með leiðtogum uppreisnarmanna í samtökum sem kalla sig Þjóðfrelsisherinn uppi í San Lucas fjöllunum á dögun-
um. Stjórnvöld vilja fá leiötoga Þjóðfrelsishersins, næststærstu samtaka uppreisnarmanna, aö samningaboröinu.
ísraelar og Palestínumenn ræða vaxandi ofbeldi:
Israelskar herþyrlur gerðu
harðar hefndarárásir á Gaza
ísraelskir og palestínskir yfir-
menn öryggis- og hermála ætla að
hittast i dag til að ræða vaxandi of-
beldi á heimastjórnarsvæðum
Palestínumanna.
Háttsettur palestinskur embættis-
maður og ísraelska útvarpið sögðu í
gær að fulltrúi bandarískra stjórn-
valda myndi sitja fundinn sem hald-
inn verður að áeggjan Colins
Powells, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna.
Þungvopnaðar ísraelskar herþyl-
ur gerðu harðar árásir á búðir
palestínskra öryggissveita á Gaza í
gær. Árásimar voru gerðar til að
hefna fyrir það að ísraelskt ungbam
særðist þegar sprengikúlu var skot-
ið á landnemabyggð gyðinga.
Þyrlurnar sveimuðu yfir norður-
og suðurhluta Gaza og skutu flug-
Shimon Peres
Utanríkisráöherra ísraels hittir lík-
lega palestínskan ráöherra í dag.
skeytum sinum á fyrirfram valin
skotmörk.
Starfsfólk sjúkrahúsa sagði aö
tuttugu og fimm manns að minnsta
kosti hefðu særst í loftárásunum
nærri Gazaborg og bænum Khan
Yunus.
Sjónarvottar sögðu að um tuttugu
flugskeyti hefðu hæft bækistöðvar
lögreglunnar nærri forsetahöll
Yassers Arafats, leiðtoga Palestínu-
manna. Átökin fyrir botni Miðjarð-
arhafsins hafa nú staðið í á sjöunda
mánuð og fyrri tilraunir til að stilla
til friðar hafa ekki tekist.
Shimon Peres, utanrikisráðherra
ísraels, sagði í París í gær að hann
myndi ef til vill hitta palestínska
ráðherrann Nabil Shaath að máli í
Aþenu í dag. Þar sitja þeir alþjóð-
lega ráðstefnu um viðskipti.
KS
Sögulegur sigur
Bandaríska þing-
manninum John
McCain hefur tekist
að fá öldungadeild-
ina til að stöðva
frjálst fjárstreymi 1
vasa stjómmála-
manna þrátt fyrir
andstöðu flokks
síns, Repúblikanaflokksins.
Klámbransinn í farsímana
Klámiðnaðurinn beinir nú sjón-
um sinum að wap-kynlífi og klám-
myndum sem sendar verða beint i
farsíma.
Skotinn í Stokkhólmi
Kráargestur í Stokkhólmi særðist
er skotið var á hann í nótt. Tveir
menn voru síðar gripnir vegna árás-
arinnar.
Ekki bara Haider
Evrópuráðið hefur áhyggjur af
kynþáttahatri í stjómmálum í Aust-
urríki. ískýrslu ráðsins segir að
kynþáttahatur ríki ekki bara í
Frelsisflokki Jörgs Haiders heldur
einnig í öðrum flókkum.
Fjöldamorðingi gripinn
Lögreglan í Tékklandi hefur
handtekið Víetnama sem var eftir-
lýstur í Þýskalandi vegna 30 morða.
Hann er einnig grunaður um fjölda
morða i Tékklandi.
af Danmörku
Mogens Lykke-
toft, utanríkisráð-
herra Danmerkur,
segir skýrslu Evr-
ópuráðsins um kyn-
þáttahatur í Dan-
mörku gefa ranga
mynd auk þess sem
hún sé úrelt. Hún
hefði átt betur við fyrir ári. Leiðtogi
Þjóðarflokksins, Pia Kjærsgaard, er
æf. Hún krefst þess að Poul Nyrup
Rasmussen beri fram mótmæli við
Evrópuráðið.
Danir verða tilbúnir
Danmörk verður að vera tilbúin
að taka á móti miklum Qölda flótta-
manna ef til stríðsátaka kemur á ný
í Evrópu. Dönsk stjórnvöld hafa í
undirbúningi lagafrumvarp um
réttindi flóttamannahópa.
Heimsreisa á traktor
Hinn 43 ára gamli Fransmaður
Christian Hurault ætlar að aka um-
hverfis jörðina á Valtra 6200 drátt-
arvél sinni sem kemst ekki hraðar
en 43 kílómetra á klukkustund, að
sögn Jyllands-Posten.
Landamæri opnuð
Tvær landamærastöðvar milli
Makedóníu og júgóslavneska hér-
aðsins Kosovo verða opnaðar í dag.
Þær höfðu verið lokaðar í 2 vikur.
Dæmdur fyrir áreiti
Karlmaður sem sagðist elska
tennisstjörnuna Martinu Hingis var
í gær fundinn sekur um að ofsækja
hana. Maðurinn fylgdi Hingis hvert
fótmál og sendi henni blóm og bréf.
Haloen í Kaupmannahöfn
Tarja Halonen Finnlandsforseti
og eiginmaður hennar höfðu í nógu
að snúast í opinberri heimsókn
sinni í Kaupmannahöfn í gær. For-
setahjónin snæddu meðal annars
kvöldverð hjá drottningu.
Röng mynd