Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Page 4
4
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001
I>V
Fréttir
Réttarhöld í máli rannsóknarlögreglumanns sem stefnir sýslumanni á Akureyri:
Lögreglu hótað og bíl-
ar ítrekað skemmdir
- fullyrðingar um tjón lögreglumanns byggðar á getgátum, segir ríkislögmaður
Lögreglumenn á Akureyri hafa
oft orðið fyrir hótunum vegna
starfa sinna í fíkniefnamálum. Bíl-
ar embættisins og einkabílar lög-
reglumanna hafa ítrekað verið
rispaðir og skemmdir. í eitt sinn
var sett festing i púströr einkabíls
eins lögreglumannanna gagngert
til að vinna tjón þegar bílnum yrði
ekið af stað. Hótanirnar beinast
aðallega gegn lífi lögreglumann-
anna og limum, fjölskyldum þeirra
og eignum. Splunkunýr lögreglu-
bíll, eins og það var orðaö í réttar-
haldinu í gær, var einnig rispaður
og skemmdur á stæði fyrir utan
lögreglustöðina á Akureyri á síð-
asta ári.
Þetta kom fram í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær þegar lögreglu-
menn á Akureyri voru yfirheyrðir
vegna máls Daniels Snorrasonar,
yfirmanns rannsóknardeildar
embættisins nyrðra. Hann stefnir
sýslumanni til greiðslu bóta fyrir
tjón sem var unnið í tvigang á bíl
hans. Lögreglumaðurinn telur
tjónið í bæði skiptin hafa verið
unnið á bílnum sem hefndarað-
gerðir fyrir rannsóknarstörf hans
í fíkniefnamálum. Ríkislögmaður,
Skarphéðinn Þórisson, mótmælti
Óttar Sveinsson
skaðabótakröfunni, samtals 128
þúsund krónum. Hann telur full-
yrðingar lögreglumannsins um
það hvernig tjónið var unniö
ósannaðar. Skarphéðinn sagði að
þær væru byggðar á hreinum get-
gátum og ágiskunum.
Einkabílar og sími notað
án gjalds
í málflutningi Kristjáns Thor-
lacius, lögmanns Daníels, kom
fram að lögreglumenn á Akureyri
hafi oft notað eigin bíla og síma í
starfi sinu án þess að fá nokkuð
greitt fyrir það.
Hann sagði einnig að auk hót-
ana og skemmdarverka hefðu
upphafsstafir Daníels verið mál-
aðir á almannafæri í bænum og
einnig á bíl sem tilheyrir rútufyr-
irtæki sem hann tengdist.
Lögmaðurinn sagði að það gæti
tæpast talist tilviljun að bíll Dan-
íels, sem stóð á merktu bílastæði
lögreglu, hefði verið skemmdur á
milli klukkan 9 og 12 að morgni
og það á miðvikudegi.
Þessu svaraði Skarphéðinn rík-
islögmaður m.a. með því að þarna
hefðu börn eða unglingar getað
verið að verki og þá í allt öðrum
tilgangi en stefnandi heldur fram.
Skarphéðinn sagði að þó 30. grein
lögreglulaga kveði á um að lög-
reglumönnum skuli bætt likams-
og eignatjón yrði að sýna fram á
hver veldur tjóninu. „Við vitum
ekki hver olli tjóninu og hvernig
og ekki heldur hvenær eða hvers
vegna,“ sagði ríkislögmaður.
Þegar Sigríður Ingvarsdóttir
héraðsdómari spurði ríkislög-
mann um önnur tjón sem lög-
reglumönnum hafa verið bætt í
hliðstæðum tilvikum sagði lög-
maðurinn að hann sjálfur vissi
ekki til slíkra mála sjálfur.
Lögmaður stefnanda segir að
ekki sé skrýtiö að ríkislögmaður
þekki ekki sjálfur til slíks þar
sem sýslumannsembættin hafi
greitt lögreglumönnum tjón án
þess að þurfi að skjóta þeim til
dómstóla - lögreglumenn hafi
fengið tjón sem þeir urðu fyrir í
starfi bætt - ekki síst í á bíla-
stæði í porti lögreglunnar við
Hverfisgötu - án þess að alltaf
hafi verið sýnt fram á hver olli
tjóninu.
Geirfinnsmálið
verði tekið upp
Hart var þó deilt á Al-
þingi við afgreiðslu
frumvarps Sólveigar
Pétursdóttur dómsmála-
ráðherra sem opnar leið
til að taka upp fymd
mál af toga Guðmundar-
og Geirfinnsmálanna.
Sólveig Þingmönnum Samfylk-
Pétursdóttir. fannst frumvarpið
gera ráð fyrir of opinni
og almennri heimild.
„Það á að heimila end-
urupptöku Geirfinns- og
Guðmundarmála. Þing-
menn allra flokka vildu
greiða fyi-ir þvi,“ segir
Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylking-
arinnar. Samfýlkingar-
menn lögðu fram breytingartillögu sem
gerir ráð íyrir því að við upptöku
fymdra mála sem ríkissaksóknari vill
ekki taka upp geti ráðherra leitað til
Alþingis eftir heimild. Þessi breyting-
artillaga var felld. -HKr
Ossur Skarp-
héöinsson.
Voöríö i kvold
Austur-Landeyj ar:
Draugagangur á Krossi
- séra Halldór í Holti kallaður til
„Prestar eru oft beðnir um að
fara með bænir og blessun á
heimilum," sagði séra Halldór
Gunnarsson í Holti sem nýverið
var kallaður til af heimilisfólkinu
á Krossi í Austur-Landeyjum
vegna meints draugagangs.
Fyrri ábúendur á Krossi færðu
Félagi langveikra barna íbúðar-
hús sitt að gjöf fyrir skemmstu en
leigja það nú út til Guðlaugs Eyj-
ólfssonar sem starfar hjá Slátur-
félagi Suðurlands á Hvolsvelli.
Guðlaugur býr á Krossi ásamt
konu sinni en þau fluttu í Rang-
árvallasýsluna frá ísafirði.
„Séra Halldór gekk hér um allt
húsið og kvað niður drauginn
með bænum,“ sagði Guðlaugur
þegar hann var inntur eftir heim-
sókn prestsins. „Við fluttum
hingað inn í febrúar og fundum
strax fyrir einhverju ókennilegu
- áttum það til að fá gæsahúð af
minnsta tilefni en um þverbak
keyrði þegar drykkjarkanna möl-
brotnaði á meðan við vorum í
fastasvefni. Engu var líkara en
könnunni hefði verið kastað af
miklu afli í gólfið því hún var
mölbrotin."
Eftir heimsókn séra Halldórs
hefur ekkert borið á draugagangi
á Krossi og unir heimilisfólk hag
sínum mun betur nú en áður.
-EIR
Vettvangur draugagangsins
Kross í Austur-Landeyjum - HeimUis-
fóik fékk gæsahúö af minnsta til-
efni.
Vcöríð a morgun
(p. ■
3 h -J' 3“ 2
• -3'4“ r°
B iTs
(ío -4“ r
^rv ' Va*
m
Hlýjast suövestanlands
Noröaustlæg átt, víða 8-13 m/s. Væta sums
staöar en léttir smám saman til um landið
vestanvert. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast suövestan
til.
Sólarlag í kvöld 21.43 21.46
Sólarupprás á morgun 05.10 05.07
Síódegisflóö 21.51 02.24
Árdeglsflóö á morgun 10.25 14.58
Skýrága? á Vflöurtáknum
^VINDÁTT 10%-Hm -10° '-*XVINDSTYRKUR ^Vroncr f metrum á wkúndu HHDSKiRT
IÉTTSKÝJAÐ /3 HÁLF- SKÝJAO £>I SKÝJAÐ ö ALSKÝJAÐ
o •w RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
rS ‘itgij? ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Stjörnuspeki
í byrjun maí veröur Júpíter lágt á
norövesturhimni þegar dimmir í
Reykjavík en hann nálgast sól og
hverfur síöan í sólarbirtuna. Mars
kemur upp fyrir birtingu fyrri hluta
maímánaðar en er svo lágt á lofti aö
hans gætir ekki.
Skýjað með köflum
Fremur hæg norölæg átt og skýjað meö köflum en breytileg átt
sunnanlands og skúrir. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast suðvestanlands.
IVI.iiuul
Vindur:
8-13 m/s
Hiti 5° til 10
Suölæg átt, 8-13 m/s og
rlgning og síöan skúrlr
sunnan- og vestanlands,
en hægari og þurrt
noróaustan tll. Hitl víöa 5
tll 10 stlg.
Vindur:
8-13
til 10“
Hiti 5 til 10
Suövestan 8-13 m/s og
skúrlr en þurrt aö mestu
um landlö austanvert.
Áfram fremur mllt.
IWiAvikli
Vindun C (T '~V
S-iOnvA \ /
Hiti 2” til 7°
Norölæg átt og víöa
rigning en él um landlö
noröanvert. Nokkuö kólnar
í veöri.
Bensínhækkun á mánudagskvöld
Giaöningur á degi verkalýðsins.
Bensínhækkun:
Dælum breytt
- tekur gildi 1. maí
Starfsmenn olíufélaganna vinna
nú að því að gera klárt fyrir hækk-
un á bensíni á degi verkalýðsins, 1.
maí. Samkvæmt upplýsingum DV
munu flestar afgreiðslustöðvar á
höfuðborgarsvæöinu ráða við það
að verðlagning á bensíni fer i
þriggja stafa tölu. Á einhverjum
stöövum, sem flestar munu vera
úti á landi, þarf þó að gera breyt-
ingar.
Hafa starfsmenn olíufélaganna
verið á þönum víða um land til að
breyta bensíndælum svo ekki komi
til neinna vandræða þegar glaðn-
ingurinn birtist á hátíðisdegi
verkalýðsins.
Reynir Guðlaugsson hjá olíufé-
laginu Skeljungi segir að flestar
bensínstöðvar á höfuðborgarsvæð-
inu ráði við hækkun í þriggja stafa
tölu. Það séu eldri dælurnar sem
þurfi að breyta en hægt verði að af-
greiða bensín þó þetta verði ekki
komið í lag á tUsettum tíma. Hann
segir ekkert hafa breyst frá þvi DV
greindi frá væntanlegum hækkun-
um sl. fimmtudag og því megi
áfram búast við um 5 króna hækk-
un á lítra. Endanleg ákvörðun
veröur þó ekki tekin fyrr en á
mánudag en hækkunin tekur
væntanlega gildi þá um kvöldið.
-HKr.
Vopnafjörður:
Ræningjar frá
Rússlandi
Fjórir erlendir sjómenn voru
staðnir að hnupli á Vopnafirði á
fimmtudag. Sjómennirnir starfa á
tveimur fiskiskipum, öðru frá Lett-
landi og hinu frá Rússlandi, sem
munu hafa stutta viðdvöl í bænum.
Að sögn lögreglu var þjófnaður
mannanna ekki stórvægilegur en
þeir höfðu náð að hnupla hinu og
þessu í bænum, einkum útvörpum
og öðru lauslegu úr bílum. Málið
telst upplýst af hálfu lögreglu og
þýfmu hefur verið skilað til réttra
eigenda. -aþ
mmm
AKUREYRI skýjaö 9
BERGSTAÐIR skýjaö 7
BOLUNGARVÍK skúrir 8
EGILSSTAÐIR 7
KIRKJUBÆJARKL. rigning 7
KEFLAVÍK rigning 7
RAUFARHÖFN skýjaö 5
REYKJAVÍK skúrir 3
STÓRHÖFÐI rigning 4
BERGEN skýjaö 8
HELSINKI rigning 11
KAUPMANNAHÖFN rigning 9
ÓSLÓ alskýjaö 6
STOKKHÓLMUR 13
ÞÓRSHÖFN skýjaö 7
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað 14
ALGARVE léttskýjað 22
AMSTERDAM skýjaö 12
BARCEL0NA
BERLÍN skýjaö 15
CHICAGO heiðskírt 12
DUBLIN rigning 9
HALIFAX rigning 2
FRANKFURT rigning 11
HAMB0RG rigning 10
JAN MAYEN snjókoma 1
LONDON skýjaö 13
LÚXEMBORG rigning 9
MALLORCA rigning 19
MONTREAL alskýjaö 9
NARSSARSSUAQ léttskýjaö 0
NEWYORK léttskýjaö 10
ORLANDO léttskýjaö 15
PARÍS skýjaö 14
VÍN léttskýjaö 17
WASHINGTON heiöskírt 6
WINNIPEG heiöskírt 8