Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 14
14
Helgarblað
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001
DV
Hatrömm átök innan Geðhjálpar ná hámarki á aðalfundi félagsins í dag:
Fylkingar berjast
Hatrömm átök hafa einkennt félag-
ið Geðhjálp að undanfómu og hafa
bæði starfsmenn samtakanna og fé-
lagsmenn skipað sér í tvær andstæð-
ar fylkingar sem berast á banaspjót-
um um að ná yfirráðum í félaginu.
Deilurnar hafa tekið á sig ótrúlegustu
myndir þar sem valdabarátta, meint
drykkjulæti, stuðbyssur og ásakanir
um óheilindi skipa stóran sess. Átök-
in ná að líkindum hámarki i dag þeg-
ar framhaldsaðalfundur félagsins fer
fram á Broadway.
Hörkuslagur
Tveir menn berjast um for-
mennsku í félaginu. Kristófer Þor-
leifsson geðlæknir er annar þeirra en
hann þykir hafa víðtækan stuðning
fjölda félagsmanna auk þess sem Sig-
urður Árni Gunnarsson og starfslið
Stuðningsþjónustu Geðhjálpar stend-
ur þétt að baki hans. Sigursteinn
Másson, núverandi varaformaður, er
hinn kandídatinn en samkvæmt
heimildum blaðsins á hann einnig
vísan stuðning margra, þar á meðal
núverandi formanns, Eydísar Svein-
bjamardóttur, og framkvæmdastjór-
ans, Sveins Magnússonar.
Sigursteinn hefur reyndar sett skil-
yrði fyrir framboði sínu en það felst í
því að fyrst verði samþykkt laga-
breyting sem meinar starfsmönnum
Geðhjálpar að sitja í stjóm félagsins.
Á siðasta ári var lögum félagsins
breytt á þann veg að starfsmönnum
var leyft að setjast í stjóm og að sögn
þeirra sem þekkja til er þar undirrót
ólgunnar innan félagsins að finna. í
kjölfar þessarar lagabreytingar kaus
Ingólfur H. lngólfsson að gera starfs-
lokasamning við Geðhjálp um mitt
sumar í fyrra en hann hafði þá gegnt
stöðu framkvæmdastjóra um nokkurt
skeið. í viðtali við DV skömmu eftir
uppsögnina sagði Ingólfur að kornið
sem hefði fyllt mælinn hefði verið
þegar undirmaður hans var skyndi-
lega orðinn yfirmaður með því að
sitja í stjórn.
Snöggur endlr
Kosning til stjórnar Geðhjálpar fór
raunar fram á fyrri aðalfundinum,
sem haldinn var í lok síðasta mánað-
ar, en núverandi formaður félagsins,
Eydís Sveinbjarnardóttir, sleit fund-
inum fyrirvaralaust áður en dagskrá
hans var tæmd. Á þeim fundi var
Kristófer kjörinn formaður en sættir
tókust síðar milli hans og Eydísar um
að kosningin væri ógild og kosið
skyldi aftur í dag. Ástæða þess að
fyrri fundurinn endaði svo snögglega
var sú að Eydís formaður taldi
drykkjulæti einkenna fundinn og
þess vegna ekki mögulegt að halda
honum áfram. Andstæðingar hennar
og stuðningsmenn Kristófers sögðu
hins vegar að hún hefði fundið bak-
landið við sig bresta og þess vegna
kosið að fresta fundi. Eydís hafði hins
vegar fulla lagaheimild fyrir frestun-
inni.
Ásakanlr á víxl
Starfsemi Stuðningsþjónustunnar
hefur verið ásteytingarsteinn í vetur
og hafa brigslyrði manna gengið á
víxl þar sem hver hefur sakað annan
um að standa sig ekki í stykkinu.
Starfsmenn Stuðningsþjónustunnar
annast skjólstæðinga sem búa í hús-
næði á vegum félagsins.
„Starfsemin hefur verið í frosti
undanfarið og okkur í raun gert
ókleift að starfa eðlilega. Ég er meö
níu starfsmenn af fimmtán og það
segir sig sjálft að vinnuálagiö er gríð-
arlegt og því miður eru margir starfs-
mannanna við það að gefast upp,“
sagði Sigurður Árni Gunnarsson, for-
stöðumaður Stuðningsþjónustunnar,
stuðbyssa, meint drykkulæti og hótanir um málsókn
'tjT
Mikii spenna hefur einkennt starfsemi Geðhjálpar undanfarnar vikur
Starfsemi Stuöningsþjónustunnar hefur einkum veriö ásteytingarsteinn og hafa brigslyröi manna gengiö á víxl þar sem hver hefur sakað annan um
aö standa sig ekki í stykkinu.
í samtali við DV. Sigurður Ámi segir
Svein framkvæmdastjóra hljóta að
bera ábyrgð á hvernig málum er kom-
ið en segir hann sýna lítinn vilja til
að bæta ástandið.
Sveinn hefur sjálfur gagnrýnt starf-
semi Stuðningsþjónustunnar hart og
segir hana ekki gegna hlutverki sínu
sem skyldi. „Þegar ég hóf störf í haust
hafði enginn á orði við mig að ástand-
ið væri svo slæmt,“ sagði Sveinn en
hann hefur meðal annars lýst því yfir
að húsnæði sem sumum skjólstæð-
inga félagsins sé boðið væri ekki talið
við hæfi kakkalakka.
Áfelllsdómur
í kjölfarið skipaði Sveinn vinnu-
hóp i samvinnu við Félagsþjónustuna
í Reykjavík og Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra i Reykjavík. Vinnuhópn-
um var uppálagt að yfirfara samn-
inga með hliðsjón af lögum, efndir
þeirra auk þess að gera ítarlega
greiningu varðandi réttindi og skyld-
ur.
Niðurstaða vinnuhópsins reyndist
þungur áfellisdómur yfir starfsemi
Stuðningsþjónustunnar og meðal
annars var til þess tekið að ástand í
húsnæðismálum væri óviðunandi
auk þess sem hópurinn fann að því að
forstöðumaður Stuðningsþjónustunn-
ar, Sigurður Árni Gunnarsson, væri
ekki fagmenntaður. Þá þótti ljóst að
eftirliti með þjónustunni hefði verið
ábótavant.
„Skýrslan er góðra gjalda verð en
mér þykir Sveinn vera að skjóta sig í
fótinn með þessu. Hann er fram-
kvæmdastjóri félagsins og hefur ver-
ið það í níu mánuði. Hann kveðst
hafa fengið sjokk í haust og svo virð-
ist sem hann sé enn í sjokki,“ sagði
Sigurður Ámi um niðurstöðu skýrsl-
unnar.
Stuðbyssa og melðyrðl
Báðum megin borðs eru menn
reyndar sammála um að vinna þurfi
betur að málum Stuðningsþjónust-
unnar. Sveinn segir þegar nokkuð
hafa áunnist, lyfjagjafir hafi verið
Húsnæði á vegum Stuðningsþjónustunnar
Vinnuhópur komst aö því aö húsnæöismál félagsins væru óviöunandi.
Arndís Þorgeirsdóttir
blaöamaöur
skoðaðar sérstaklega auk þess sem
viðhald á húsnæði sé hafið á
nokkrum stöðum. Á sama tíma segir
Sigurður Ámi að starfsemin sé meira
og minna lömuð og ef ekki væri fyrir
Vant starfsfólk væri þjónustan í molum.
Sveinn og Sigurður Árni hafa eldað
grátt silfur um skeið og á dögunum
komust deilur þeirra á nýtt stig þegar
sá fyrrnefndi hélt því fram opinber-
lega að starfsmaður Stuðningsþjón-
ustunnar hefði verið vopnaður svo-
kallaðri stuðbyssu en með slíku tæki
er hægt að gefa manneskju raflost án
fyrirhafnar. Sigurður Ámi brást
ókvæða við og sagði framkvæmda-
stjórann fara með fleipur enda kæm-
ist enginn starfsmaður upp með að
nota slíka byssu. Svo harðar urðu
deilurnar á timabili að Sveinn sagði
lögreglurannsókn myndu skera úr
um réttmæti orða sinna á meðan Sig-
urður Ámi íhugaði ásamt starfs-
mönnum sínum aö höfða meiðyrða-
mál gegn framkvæmdastjóranum.
Hóta að hætta
Víkjum aftur að aðalfundinum í
dag sem ef að líkum lætur verður sá
fjölmennasti í sögu Geðhjálpar.
Ástæðan er einfóld, félagsmönnum
hefur fjölgað um þriðjung frá þvi á
fyrri aðalfundinum í mars, úr 618 í
960. Það er nokkuð augljóst að smöl-
un hefur átt sér stað vegna stjómar-
kjörsins en stuðningsmenn
kandídatanna tveggja bera slíkt af
sér. Rúman sólarhring tók að ganga
frá nýju félagatali eftir að lokað var
fyrir inngöngu nýrra félaga síðastlið-
inn þriðjudag. Kristófer og hans
stuðningsmenn hafa gagnýnt vinnu-
brögð skrifstofunnar og sagt að drátt-
ur á endanlegu félagatali hafi verið
úr hófi fram. Að sögn Sveins tók
lengri tíma en áætlað var að skrá
nýja félaga en félagaskráin var lögð
fram á fimmtudagsmorgun. Heimildir
DV herma að erfltt sé að spá fyrir um
úrslit kosninganna en menn virðast á
einu máli um að baráttan verði hörð
á fundinum í dag.
„Því er ekki að leyna að ég óttast
óróleika á fundinum. Félögum hefur
fjölgað gífurlega frá síðasta fundi og
meira en eðlilegar vinsældir félagsins
geta falið í sér,“ sagði Sveinn Magn-
ússon en hann hefur látið sterklega
að því liggja að hann muni láta af
störfum fari leikar svo að Kristófer
Þorleifsson verði kjörinn formaður.
„Ég tel Kristófer vera talsmann kyrr-
stöðu og ég hef áður sagt að ég stend
og fell með þeirri sannfæringu minni
að hvorki félagið né Stuðningsþjón-
ustan verði rekin eins og gert hefur
verið. Breytinga er þörf,“ sagði
Sveinn.
Fleiri háfa hótað að hætta því Sig-
urður Árni segir alla starfsmenn
Stuðningsþjónustunnar munu hætta
störfum verði Sigursteinn kjörinn
formaður. „Við erum komin að enda-
punkti og treystum okkur einfaldlega
ekki til að vinna undir slíkri stjóm,"
sagði Sigurður Árni en hann telur
einnig von til þess að Stuðningsþjón-
ustan verði flutt frá Geðhjálp og sett
undir hatt Svæðisskrifstofunnar.
„Fari svo að ég hætti störfum í
kjölfar fundarins þá mun ég ekki
ganga ósáttur á brott. í ljósi atburða
síðustu vikna tel ég fullreynt að við
Kristófer getum unnið saman. Það er
hins vegar löngu tímabært að þessari
orrahríð linni og friður komist á í fé-
laginu. Skjólstæðingar okkar verða
að ganga fyrir og þeir mega allra sist
við átökum sem þessum," sagði
Sveinn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Geðhjálpar.