Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Page 15
15
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001_______
DV_______________________________________________________________________________Helgarblað
Kappinn er aö sýsla við framleiðslu
kvikmynda en þar gengur á ýmsu.
Mick Jagger:
Kann ekki
að prútta
Söngvari Rolling Stones, Mick
Jagger, hefur undanfarin ár verið
að sýsla við að framleiða kvikmynd-
ir þótt sumir segi að rokk sé betra
en fúlltæm jobb. Það lítur út fyrir
að þetta sé starfsgreinin sem Jagger
vill hasla sér völl í þegar hann loks-
ins slekkur á míkrófóninum og
hengir upp leðurbuxurnar.
Hann á þó sitthvað ólært eins og
sást á dögunum þegar fyrirtæki
hans, Jagged Films, hafði lokið við
kvikmyndina Enigma sem Jeremy
Northam og Kate Winslet leika í og
er sögð dúndurgóð.
Jagger labbaði til Miramax með
spóluna og vildi fá þá til að annast
dreifingu. Hann var ekki sáttur við
þá upphæð sem Miramax bauð hon-
um fyrir dreifmgarréttinn og sagð-
ist geta fengið betra verð annars
staðar og stormaði út.
Þetta reyndist ekki ganga upp því
enginn vildi dreifa myndinni fyrir
meira fé og Jagger endaði aftur inni
á gólfi hjá Miramax en þar á bæ sáu
menn sér leik á borði og lækkuðu
fyrra tilboð verulega. Sagt er að erf-
iðar samningaviðræður standi yfir
en Jagger er augljóslega ófær um að
prútta.
Michael Jackson
Sögur herma að Jacko sé að
verða blankur.
Michael Jackson:
Er hann í
fjárkrögg-
um?
Michael Jackson, söngvari og dans-
ari, hefur lengi verið talinn býsna
stöndugur en það kann að vera að
breytast. Fullyrt er í slúðurdálkum
amerískra blaða að Jackson sé í fjár-
kröggum og leiti ákaft leiða til að bæta *
úr því. Sagt er að hann hyggist fara að
dæmi Davids Bowie og stofna hlutafé-
lag um sjáifan sig og verk sín og selja
þau almenningi.
Ástæðumar eru sagðar vera þær að
síðasta plata meistarans, Blood on the
Dancefloor, seldist treglega en kostaði
afar mikið í framleiðslu. Stöðugt heyr-
ast sögur af nýrri plötu sem á að vera
í vinnslu og sagt að Jacko hafi þegar
eytt miiljónum dollara í hana en útgef-
endur hans hafa hálfvegis snúið við
honum bakinu og ætla að sögn ekki að
gefa plötuna út að svo komnu máli.
Catherine Zeta-Jones:
Afþakkaði hlutverk á
móti Grant
IVestur í Ameríku er verið að gera
kvikmynd. Þetta eru ekki nýjar fréttir
en þessi kvikmynd heitir About a Boy
og er gerð eftir sögu breska rithöfund-
arins Nick Homby. Hann gerði einnig
sögumar Fever Pitch og High Fidelity
sem báðar urðu að vinsælum kvik-
myndum enda vel til þess falinar.
Það hefúr gengið mjög erflðlega að
j manna þessa annars efnilegu sögu.
Fyrst vildu menn endilega hreint láta
George Clooney leika aðaihlutverkið
og hann las handritið en vildi ekki
leika hlutverkið því hann sagðist vera
of fallegur til þess. Hann vildi að ein-
hver látlausari yrði ráðinn og það varð
á endanum Hugh Grant sem var víst
ekkert ánægður þegar hann heyrði
hvers vegna hann varð fyrir valinu.
Mótleikari hans átti að vera hin ít-
urvaxna Catherine Zeta-Jones sem
varla þarf að kynna fyrir nokkrum les-
anda. Hún gekk frá borði mjög skyndi-
lega þegar hún fékk tilboð um að leika
í Zorro II sem mun einnig vera í und-
irbúningi. Þeir vom tilbúnir að tvö-
falda laun hennar og buðu tvær millj-
ónir dollara í stað einnar. Þetta var
ekki spuming. Catherine fór í snatri.
Catherine Zeta-Jones
Hún afþakkaði hlutverk í kvikmynd-
inni About a Boy.
www.flugfelag.is
einfalt
hratt
websales@airiceland.is
sími 570 30 30 - fax: 570 3001
hagkvæmt
.fljúgðu frekar
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
- fyrir félk ein$ og þig!