Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Síða 19
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 I>V 19 Helgarblað DV-MYNDIR GVA Svona lítur slettuskjóttur hestur út. Ragnar og Oddnýju langar til aö rækta slíka hesta í Viöey. flnullarfé sem á að rækta í Viðey. Sem stendur er flnullarfé að- eins til á einum bæ á Héraði og eru í stofninum innan við 50 kind- ur. Sérstakt félag, íslenskt erfða- fé, er starfrækt um viðhald þessa merkilega stofns og er það dr. Stefán Aðalsteinsson sem veitir því forstöðu. Félagsmenn telja sig hafa himin höndum tekið að finullarfé verði ræktað í Viðey. „Sigurður Sigurðarson, dýra- læknir á Keldum, veitir okkur faglegar ráðleggingar og stuðning í þessu verkefni," segja Oddný og Ragnar. Komu fyrst aö Skriöuklaustri Ragnar og Oddný fengu þessar sjö úrvalsær frá Jóni bónda Guð- jónssyni á Laugabóli i ísafirði. Með þeim fylgdi hrúturinn Klerk- ur sem er fagurlega hymdur og ber hlutverk sitt sem ættfaðir af stakri prýði. Þetta fyrsta sumar í eynni munu ærnar sjö ganga í sérstakri hagagirðingu með af- kvæmum sínum, gestum og gang- andi til yndisauka og fróðleiks. Næsta vetur verður komið fyrir í þeim fósturvísum úr flnullarfé og þá gerast þær leigumæður og vor- ið 2002 munu það verða fínullar- lömb sem skoppa um hagana í Viðey. Það er sérstæð söguleg tUvUjun að það var skáldið Gunnar Gunn- arsson sem flutti finullarfé fyrst- ur manna tU landsins á búskapar- árum sínum á Skriðuklaustri á Flljótsdalshéraði og þaðan er núlifandi stofn ættaður. Skáldið er grafið hér í kirkjugarðinum í Viðey svo það má kannski segja að arfleifð þess sé komin hingað í fótspor þess. „Upphaflega var tilgangur þessa að halda féð sem tóm- stundagaman fyrir okkur,“ segir Ragnar. „En með þessari fínuUarrækt- un koma auðvitað upp fleiri fletir varðandi ullarvinnslu og varð- veislu þess stofns." Að sögn Ragnars og Oddnýjar koma gestir til Viðeyjar nær hvern dag ársins. Á veturna eru það einkum gestir veitingahúss- ins en strax og sól hækkar á lofti fara lausir ferðamenn að streyma út í eyju. Um þessar mundir ber mest á fuglaskoðurum sem lúra milli þúfna rýnandi í sjónauka sína enda umferð gangandi fólks um þéttasta varplandið suðaustan á eynni með öUu bönnuð frá 1. maí til 30. júní. „Það er nauösynlegt að fólk haldi sig fjarri meðan fuglinn er að setjast upp enda best að fylgj- ast með úr fjarlægð," segir Odd- ný. Slettuskjóttir draumar Við setjumst yfir kaffibolla og Ragnar segir okkur af áformum sínum um hrossahald í eynni og þá skal lögð áhersla á að hafa slettuskjótta hesta. Slettuskjóttir hestar eru með hvít andlit og alltaf glaseygir. Slíkt hefur reynd- ar aldrei þótt prýði á hestum enda er sagt að slettuskjóttur stóðhest- ur, sem til er norður i landi, hafi upphaflega verið látinn lifa upp á grín af því hann þótti svo ljótur. Hvort hinir slettuskjóttu draumar íbúanna í Viðey rætast verður þó tíminn einn að leiða i ljós. -PÁÁ Ættfaöirinn aö vestan Hrúturinn Klerkur er frá Laugabóli í ísaflröi eins og allar ærnar í Viöey. Ánna bíöur það hlutskipti aö veröa leigumæður fyrir ræktun á fínullarfé. Gulrætur eru góðar við geytuleysi! Ein dugar ef hún er bundin nógu fast!!! li no • 1« (k SAMík 1 reykingar geti valdið getuleysi hjá karlmönnum á besta aldri? ■ 15% af krabbameinstilfellum í börnum megi rekja til sýktra sæðisfrumna föður af völdum reykinga? 1 25% þrenging slagæðar í getnaðarlimi komi í veg fyrir stinningu? ' hver reykt sígaretta stytti ævina um 10 mínútur? ■ í sígarettureyk séu 40 krabbameinsvaldandi efni? ■ árlega missi fieiri en 10 íslendingar útlimi vegna reykinga?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.