Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Qupperneq 23
23 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001________________________________ DV _______________________________________________________________________________________ Helgarblað Sextíu og sjö ára öryrki og ellilífeyrisþegi í Reykjavík: Lagöi allt undir og líf mitt er lagt í rúst - eftir kaup á hlutabréfum í Thermo Plus Gjaldþrot Thermo Plus Europe í Keflavík er ekki síst átakanlegt fyrir að það dregur hugsanlega flölda ein- staklinga með sér í fallinu. Einstak- linga sem keyptu hlutabréf í góðri trú um mikla gróðamöguleika. Trú þeirra var greinilega byggð á röngum upplýs- ingum forráðamanna fyrirtækisins um stöðu þess og framtíðarhorfur. Einn þeirra sem þannig horflr nú fram á persónulegt gjaldþrot er Jónas Þór Guðmundsson stýrimaður, sextíu og sjö ára öryrki og ellilífeyrisþegi í Reykjavík. Hann er algjörlega niður- brotinn maður í dag og nú er bankinn hans farinn að þjarma að honum. Lagði allt undir „Ég lagði hreinlega allt undir og líf mitt er nú lagt í rúst. Ég og sonur minn tókum lán upp á fimm milljónir og keyptum hlutabréf á genginu sex í mars í fyrra. Af því átti ég eina og hálfa milljón sem ég tók að láni hjá Búnaðarbankanum og var það milli- fært. Ég sá hins vegar í DV á dögunum að á þessum tima hafl stjórnendur sagst hafa verið að selja á genginu 1,1. Kostakjör trúboðans Okkur var sagt að um takmarkað magn hlutafjár væri að ræða. Eitthvað um 20 til 30 milljónir sem Hinrik Þor- steinssor (forstöðumaður í Hvíta- sunnusöfnuðinum) hafði yfir að ráða. Sagt var að færri kæmust að en vildu og allir lögðu allt sitt í þessi hlutafjár- kaup. Allt var þetta meira og minna lánsfé og með ábyrgðum fjölda einstak- linga. Vinir sonar mins hafa líklega keypt hlutabréf upp á um 15 miUjónir króna. Þetta byijaði þannig að sonur Hin- riks og sonur minn voru góðir félagar. í samtölum heima hjá syni mínum fer Samúel að segja mér deili á pabba sín- um. Hann hafi byijað sem hárskeri og síðan farið í fasteignaviðskipti og húsaviðgerðir og grætt vel á því. Síðan hafi hann snúið sér algjörlega að hluta- bréfaviðskiptum. í framhaldi af því berst talið að Thermo Plus og mál þró- uðust þannig að okkur var boðið að kaupa bréf á genginu sex. Ég treysti Hinriki, enda var þetta trúboðsfjöl- skylda. Ekki hægt að gefa peninga lengur Ég man að síðasti maðurinn sem komst inn i þessi kostakjör fékk að heyra það frá Hinriki að hann væri sá síðasti sem fengi bréf á þessum kjör- um. Þetta gengi ekki lengur, það væri verið að gefa peninga með því að selja á genginu sex. Ég kannaði það svo nokkrum mán- uðum seinna, síðsumars í fyrra, að Sparisjóður Keflavíkur var að selja hlutabréf og þá á genginu níu, en lítið var þá sagt vera um viðskipti. Ef hringt var hins vegar beint í Thermo Plus var boðið upp á kaup á hlutabréf- um á genginu tólf. (Þetta mun hafa ver- ið eftir að kynnt voru áform um kaup á kanadíska móðurfyrirtækinu, - inn- skot blaðamanns). í ársskýrslu fyrir árið 1999, sem gef- in var út hjá fýrirtækinu í júní 2000, kom fram að stærsti hluthafinn væri Hitaveita Suðumesja og ýmsir aðrir sterkir aðilar væra þar einnig hluthaf- ar. Allt var þetta því mjög trúverðugt. Þar var líka sagt í skýrslu stjómar að hlutafé sem selt hefði verið á reikn- ingsárinu hefði verið selt á meðalgeng- inu þrir komma fimm. Fór að efast eftir frétt í DV Eftir frétt í DV í haust um deilur stofnenda við fyrirtækið og að stjóm- endur fyrirtækisins væra með óhreint mjöl i pokahominu brá mér mjög. Lét DV-MYND PJETUR Jónas Þór Guömundsson Stýrimanninum var ásamt syni sínum og félögum hans talin trú um að Thermo Plus væri vægast sagt mjög aröbært fyrirtæki. aðra hlut- hafa til að tala sig saman um aðgerðir og hugsanlega málsókn. Biður hann þá að hafa samband við son sinn, Jónas Jónasson, í sima 697 8200. Umboöslaun fyrir ómakið Jóhannes B. Jóhannesson, íslands- og Norðurlandameistari í snóker, var í þessum sama hópi hlutafjárkaupenda og Jónas Þór Guðmundsson. Hann sagði að það hefði vakið nokkrar grun- semdir hjá sér þegar ljóst var að hóp- urinn átti að greiða Hinriki umboðs- laun upp á 2,5%. Jóhannes segist hafa keypt hlutabréf upp á 1,9 milljónir króna og umboðslaunin sem hann hafi átt að greiða hafi verið tæpar 50 þús- und krónur. Samanlagt hafi því hann og félagar hans átt að greiða nærri hálfa milljón í umboðslaun. „Daginn eftir þessi kaup hringir Sigurður bróð- ir minn í Thermo Plus og var þá boðið að kaupa hlutabréf án þess að borga krónu í umboðslaun. Þetta kveikti strax efasemdir og gaf til kynna að ein- hver óþefúr væri af þessum viðskipt- um.“ Stjómendur fyrirtækisins, Kristinn Jóhannesson framkvæmdastjóri og Ás- bjöm Jónsson, fyrrum stjómarformað- ur, hafa I samtölum við DV ekki viljað tjá sig um þá ósannsögli sem borin hef- ur verið á þá. Hinrik Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformaður, sagði einnig í samtali við DV að hann vildi ekki tjá sig opinberlega um málefni Thermo Plus. -HKr. ég ótta minn í ljós og í október fór ég i kynnisferð í fyrirtækið ásamt syni mínum. Framkvæmdastjórinn, Krist- inn Jóhannesson, leiddi okkur um allt og sýndi okkur aðstöðuna. Benti hann m.a. á gám fyrir utan sem verið væri að fylla. Bara á þessum eina gámi sagði Kristinn að fyrirtækið græddi 20 milljónir króna. Ef allt gengi eftir myndu þeir selja einn til einn og hálf- an gám á viku. Sagði hann að hug- myndin væri því að stækka húsnæðið út i portið til að geta grætt enn meira. Stofnendur rægðir Lítið var gert úr deilum stofhenda við stjómendur en sagt að þeir væra bara sárir og allt væri í skilum af fyr- irtækisins hálfú gagnvart þeim. Var okkur sögð saga um Ragnar Sigurðs- son stjómarformann sem þeir hefðu orðið að láta fara vegna vafasamrar fortíðar. Kristinn sagði einnig við okkur að allt væri óbreytt varðandi góða stöðu fyrirtækisins að öðra leyti en því að hagnaðinum seinkaði. Fögur mynd Pri ceWatertiou seCoopers PriceWaterhouseCoopers fundu það út í skýrslu fyrir nokkrum mánuðum að rétt verð á hlutabréfum væri 17,80. Ég fékk aldrei aö sjá þá skýrslu en þessum upplýsingum var greinilega flaggað til að létta menn upp andlega. Þess vegna héldu menn að sér hönd- um. Enn bjart fram undan rétt fyrir gjaldþrot Ég fór ásamt syni mínum á hlut- hafafúndinn sem haldinn var skömmu fyrir gjaidþrotið. Fundurinn tók ekki nema nokkrar mínútur og þar vora fáir stjórnarmenn mættir, einn stjóm- armaður og framkvæmdastjórinn. Þar var ekki einu sinni á fundinum stjóm- arformaðurinn sem tók við af Hinriki og lýsti síðar fyrirtækið gjaldþrota. Við gagnrýndum þetta og sagði Krist- inn að Hinrik hefði veikst og fengið hjartaáfall. Reyndar frétti ég síðar að hann hefði verið staddur úti í Marokkó á einhverri kristniboðsráð- stefnu. Fundurinn var haldinn til að fá samþykki fyrir auknu hlutafé. Úr því að fundurinn var svo snubbóttur töluð- um við okkur nokkrir saman úti í homi á eftir og kom þar fram mikil gagnrýni á fundarsköp. Kristinn sagði að nauðsynlegt væri að fá 200 milljónir til viðbótar, en búið hefði verið að ná inn af því um 160 til 180 milljónum í aukið hlutafé. Aðeins vantaði því um 20 til 40 milljónir til að dæmið gengi upp. Ég spurði hann þá hvað ef fundurinn heföi ekki staðist lög og stjómin ekki fengið samþykki til að auka hlutaféð. „Þá væri þetta búið og við yrðum að loka,“ segir Kristinn. Kristinn sagði í sinni stuttu ræðu að ef menn hefðu samband við fyrirtækið þá gætu þeir þá þegar keypt hlutafé með afslætti. Ég veit ekki hvaða af- slættir voru þar í gangi. Eftir fundinn sagði Kristinn að nú væri framtíðin tryggð. í plús á árinu Á fundinum reiknuðu stjómendur með að fyrirtækið yrði komið í plús síðar á þessu ári. ÖÚum hagnaði hefði seinkað og var ýmsu borið við, en að- allega að kröftum fyrirtækisins hefði um of verið dreift út um heim. Nú væri hins vegar horft á Englands- markað, en samt annaði fyrir- tækið ekki eftir- spm-ninni. Maðkur í mysunni Það sem ég skil ekki er hvernig það getur staðist að fyrirtæki sem ekki annar einu sinni eftirspurn fái ekki nema um 10% af þeim tekjum sem inn þurfa að koma. Ef maðm; ber þetta saman við fiskvinnslufyrirtæki í ljósi þess að gengið hefur verið fallandi, þá ætti að vera blómatími núna. Það ætti að vera að fá um 30% meira í dollurum en á sama tima í fyrra. Þess vegna held ég að það sé einhvers staðar maðkur í mysunni. Hræöilegt áfall Nokkrum dögum eftir hluthafafund- inn heyrum við í tilkynningu á Stöð tvö að Thermo Plus hafi verið lýst gjaldþrota. Þetta var reiðarslag og ég hefði þurft að fá áfallahjálp á þeirri stundu. Ég var þá í algjöra losti og leit- aði til læknis. Ég er enn ekki búinn að ná mér eftir áfallið og nú er bankinn byrjaður að heija á mig. Ég á hins veg- ar ekki neitt og veit ekkert hvemig ég á að snúa mér. Ég veit ekki hvemig í helv..ég á að fara að greiða þetta nið- ur af þeim sextíu þúsundum sem ég fæ í lífeyri á mánuði. Ég næ mér aldrei andlega eftir þetta og er í þokkabót orðinn hjartaveill og heilsulaus," segir Jónas Þór Guðmundsson og hvetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.