Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001
51
Formúla 1
Tölvan tekur völdin
Eftir sjö ára fjarveru frá Formúlu 1
hefur gripstýringin verið leyfð á ný.
Þó fæstir séu ánægðir eru flestir sam-
mála um að ekki sé lengur hægt að
útiloka rafeindabúnaðinn frá For-
múlu 1.
Formúla 1 er fullkomnasta
kappakstursíþrótt heimsins þar sem
færustu tæknimenn og ökumenn sem
völ er á leiða saman hesta sína og
hleypa þeim á skeið á helstu
kappaksturbrautum jarðarkringlunn-
ar. Dýrasti og fullkomnasti búnaður
sem völ er á er notaður til að ná fram
sem mestum árangri og ekkert er til
sparað. Síðan 1993 hefur þó verið ein
undantekning þar á. Þá var allur raf-
eindabúnaður sem aðstoðar öku-
manninn bannaður til að hæfíleikar
hans réðu úrslitum frekar en forrit og
tölva bílsins. ABS-bremsur og grip-
stýring voru þar á meðal. Flestir voru
mjög ánægðir með þá ákvörðun al-
þjóða akstursíþróttasambandsins,
FIA, en aðrir bentu á þann möguleika
að hægt yrði að fela búnaðinn í tölv-
um bílanna og brjóta reglurnar.
Lögbrot orðlð löglegt
Ron Dennis, liösstjóri McLaren, var
einn þeirra. „Það ætti aldrei að banna
það sem ekki er hægt að hafa eftirlit
með,“ sagði hann strax árið 1993 og
bætti við að allur hjálparbúnaður
kæmi til með að verða algerlega órekj-
anlegur. Það hefur komið á daginn og
eftir að eitt ónefnt keppnislið hefur
verið staðið að reglubrotum árið 1999
sá FIA sér ekki annað fært en að leyfa
búnaðinn á ný. Allt er þetta gert til að
jafna leikinn. Nú mega allir „svindla"
frá og með keppninni á Barcelona um
þessa helgi. Flestir eru óhressir með
þessar breytingar en allir gera sér
grein fyrir nauðsyn þess að keppt sé á
jafnréttisgrundvelli.
Ökumaöurinn óþarfur?
Það er fullmikið sagt að ökumenn-
irnir verði óþarfir með innkomu grip-
stýringarinnar en akstur í beygjum
verður þeim auðveldari. Einn af erf-
iðustu hlutum í stjórn á Formúlu 1
bíl, sem vegur rétt yfir 600 kg með yfir
800 hestafla vél, er að koma í veg fyr-
ir að gefa of mikið afl til hjólanna og
„missa" þau í spól. Þá tapast grip, bíll-
inn skrikar til og mikill tími tapast.
Hingað til hafa ökumenn þurft að
stjóma þessu sjálfir með örnæmum
bensínfætinum en frá og með keppni
helgarinnar kemur gripstýring bílsins
til með að sjá um þessa hluti fyrir
hann. Hún sér til þess að mesta hugs-
anlega afl fari til hjóla bílsins og komi
honum á mesta hugsanlega hraða án
þess að missa gripið við yfirborð
brautarinnar. Afleiðingin er meiri
hraði og minna slit á afturdekkjum.
En verður þá Enrique Bernoldi
jafngóður ökumaður og David Coult-
hard? Alls ekki ef marka má orð
heimsmeistarans þrefalda, Michaels
Schumachers, sem bæði hefur ekiö
með og án gripstýringar. „Sá eigin-
leiki að geta ekið bíl stanslaust á ystu
mörkum er það sem gerir ökumenn
góða,“ segir Ferrari-ökumaðurinn
sem á að baki 46 sigra í Formúlu 1.
„Þetta mun setja alla ökumenn á
hærri stall en á þessum nýja og hærri
stalli koma góðu ökumennimir til
með að verða áfram þeir góðu.“
Einnig bendir hann á að góður árang-
ur í tímatökum kemur til með að
verða mun þýðingarmeiri en áður því
gripstýringin kemur einnig sterk inn
í ræsingum „Gripstýringin verður til
þess að ræsingamar verða öruggari
og því verða mun minni líkur á því að
hægt verði að græða stöðu með góðri
ræsingu eins og sést hefur undanfarin
ár.“ Síðast var það bróöir hans, Ralf,
sem skaust úr þriðja sæti í það fyrsta
eftir að Coulthard fataðist flugið í
ræsingunni af ráspól á Imola fyrir
hálfum mánuði. Peningar og tækni-
búnaður kemur til með að skipta
miklu máli á ný í Formúlu 1 og þær
gripstýringar sem notaðar voru fyrir
sjö ámm eiga heima á þjóðminjasafn-
inu í dag því þróun á tölvubúnaði á
þessum tíma hefur verið ótrúleg. Það
verður því spennandi að fylgjast með
ræsingunni og keppninni þegar Penti-
um IH örgjörvamir taka völdin á
Circuit de Catalunya á Spáni á morg-
un. -ÓSG
Soánn
Circuit de Cataiunya
Lengd brautar: 4.730 km
Eknir hringir: 65 hringir/ 307.323 km
Banc
Sabadell
Campsa
Nlssan
Repsol
Hraðar beygjur
Stöðug veðrátta
Ánæjulegur vlðkomustaður
Framúrakstur nær ómögulegur
Liðin þekkja brautina of vel
Mikið dekkjaslit
Svona er lesið
A Gír
Samanlagt
Svæði
Hraðasti hringur: Mika Hakkinen
201.586 km/klst (hringur 28)
Hraði Togkraftur
Númer beyju —O
Ráspóll: Michael Schumacher
Keppnlstíml (klshmln.sek)
Pole: M Schumacher
210.289 km/klst
P4: Barrichello
209.148 km/klst
P2: Hakklnen 210.087 km/klst
GðgnrengbifrS OrðllÚé ARROWSJF
P4: Coulthard
209.132 km/klst
P5: Villeneuve P5: R Schumacher
207.752 km/klst 208.883 kmAlst
Graphic: 0 Russell Lewis & SFAhönnun
yfirburðir TæknÍVal
COMPACl
Tæknin tekur völdin
Hinn geysilega flókni og fullkomni tæknibúnaður
nútima Formúiu 1 bila hefur gert þaö nærri ómögulegt
fyrir FIA að rannsaka forritun tæknibúnaöar þeirra.
Eftir nokkurra ára ásakanir, kærur og þref hefur
gripstýringin verið gerð lögleg i Formúlu 1 á ný,
fæstum til mikillar gleði.
I * IFJ Tæknireglur FIAsem snúa að vélar-
«Haiog glrkassastýringum hafa gengiö i
gegnum miklar breytingar.
Tvær mikilvægar reglur hafa verið fjarlægðar úr
reglugerðinni en þær bönnuðu eftirfarandi:
1: Allan tæknibúnað milli bensíngjafar og
kveikjukerfis (Regla 5.7.1)
2: Enginn búnaður má koma f veg fyrir eöa vara
ökumann við spóli afturhjóla. (Regla 9.2.1/9.2.2)
Kveikju-
srfið bregst
við og
stýrir afli
félarinnar.
Sérstakir nemar mæla snúning fram- og afturhjóia.
Spól fær afturhjólin til að snúast hraðar en þau fremri
,og gripstýringin leiðréttir mismuninn með því aö minnka afl vélarinnar.
í stuttu máli: Takmark gripstýringarinnar er að fullnýta samspil vélar og
yfirborðs brautarinnar eins og frekast er kostur.
-Aukning
Tími I I I I I I I I » I
i Afl vélarinnar er minnkaó I augnablik um leið og
' spól mælist. Þetta gefur jafna og stöðuga hröðun.
Hröðun bilsins er jöfn því hjólbarðar halda stöðugu
gripi. Hámarkshraöa er því náð á skemmri tíma.
■ Þó það taki vélina örlítið lengri tíma aö ná fullum snúningi nær billinn hámarks-
hraða mun fyrr sökum betri hröðunar.
Með tilkomu gripstýringarinnar, sem JaS
kemur í veg fyrir spól, verður
auðveldara að verja dýrmæta
rásstööu í ræsingu.
Keppnisáætlanir
gætu breyst þvl
afturhjólbarðar
endast lengur.
Grafík: © Russell Lewis &
Barcelona
Timamarkmld
llpprifjun á 2000 Timi (rásmark) Brautarmet 2000
Timamunur og hraði i tímatókum 2000
Að hemja aflið
Ef billinn spólar
sendir grip-
itýringin boð sem
hafa forgang á
önnur merki
+ Mest munar um
gripstýringu i hægurn
beygjum og sérstakloga
á blautri braut.
Mika Hakkinen 1:33:55.390 2
David Coulthard +0:16.088 1
Rubens Barrichello +0:28.112 3
Ralf Schumacher +0:37.311 4
Michael Schumacher +0:47.883 9
Heinz-Harald Frentzen +1:21.925 12
i n
H m Handvlrkt Grip- stýring