Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Síða 46
54 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Stórafmæli 90 ára___________________ Ástríöur Guömundsdóttir, Efra-Seli 1, Rúöum. 80 ára Þórður Tómasson safnvöröur, Húsi Þ.T., Skógum, Austur-Eyjafjallahreppi. Þóröur verður aö heiman á afmælisdaginn. Kristján A. Guömundsson, Brekkubyggö 89, Garðabæ. 75 ára_______________________ Hansína G.E. Vilhjáimsdóttir, Hraunbæ 126, Reykjavík. Haraldur Guömundsson, Grundarbraut 5, Ólafsvík. Sigurður Sigurösson, Vonarholti, Reykjavík. Steinunn Aradóttir, Víkurbraut 28, Höfn. 70 ára______________________ Anna Tómasdóttir, Hraunbúöum, Vestmannaeyjum. Zophonías Pálmason, Hnausum 2, Blönduósi. 60 ára_____________________ Birgir Guölaugsson, Hlíöarvegi 43, Siglufiröi. Frímann Lúövíksson, Brattholti 6c, Mosfellsbæ. Magnús Matthíasson, Kleppsvegi 68, Reykjavík. Óli Friöbjörn Björnsson, Selaklöpp, Hrísey. 50 ára_____________________ Ámi S. Sigurðsson, Birkiteigi 24, Keflavlk. Bryndís Steinþórsdóttir, Heiðarvegi 10, Reyöarfiröi. Geröur Ólafsdóttir, Hraunholti 10, Garöi. Júlíus Brjánsson, Vallarási 4, Reykjavlk. Rosmary Bergmann, Seljabraut 74, Reykjavlk. Þórunn Friöriksdóttir, Gónhóli 30, Njarðvík. 40 ára Rúna Soffía Geirsdóttir hdl. Digranesvegi 30, Kópavogi. Hún tekur á móti gestum I sal Kvenfélags Kópa- I vogs, Hamraborg 10, Kópavogi, 2. hæö, I dag, laugardaginn 28.4. milli kl. 18.00 og 21.00. Aöalheiöur Sigurbjörnsdóttir, Skólabrekku 8, Fáskrúðsfiröi. Ásdís Sigrún Ingadóttir, Vesturbergi 72, Reykjavík. Hafdís Ólafsdóttir, Fögrukinn 3, Hafnarfiröi. Helga Auöunsdóttir, Fossheiöi 5, Selfossi. Hildur Björnsdóttir, laugateigi 23, Reykjavlk. Hrund Óskarsdóttir, Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum. Jóna Guömunda Ingadóttir, Fjaröarstræti 2, ísafiröi. Páll Örn Benediktsson, Kársnesbraut 106, Kópavogi. . Þorvaröur Kristófersson, Trönuhjalla 15, Kópavogi. Smáauglýsingar 550 5000 Andlát Jóhann Jóhannsson kennari, Seyðisfiröi, lést þriöjud. 24.4. Guömunda J. Halldórsdóttir, Vitastig 2, Hafnarfiröi, andaöist á Landspítalanum Fossvogi fimmtud. 26.4. Sigurást (Ásta) Jónsdóttlr, Hátúni 13, Reykjavik, lést á heimili sínu fimmtud. 26.5. ------ jjrval - gott í strætó LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 z>v Sjötíu og fimm ára Tómas Guðmundsson fyrrv. prófastur í Árnesprófastsdæmi Tómas Guðmundsson, fyrrv. sóknarprestur í Hverageröispresta- kalli og prófastur í Ámesprófasts- dæmi, Frostafold 25, Reykjavík, er sjötiu og fimm ára í dag. Starfsferill Tómas fæddist að Uppsölum í Norðurárdal í Mýrasýslu en ólst upp í Tandraseli I Borgarhreppi. Hann stundaði nám við Héraðsskól- ann í Reykholti 1942-44, Héraðsskól- ann á Laugarvatni 1945-46, lauk stúdentsprófi frá MA 1950, kandi- datsprófi í guðfræði frá HÍ 1955, stundaði framhaldsnám í sjúkra- húsþjónustu og kirkjulegu félags- starfi við St. Lukas stiftelsen í Stokkhólmi 1969-70. Þá sótti hann námskeiö við Lögregluskólann í Reykjavík 1953, námskeið i sálgæslu og félagsráðgjöf í Svíþjóð 1967 og 1968 og fór námsför til Svíþjóðar 1964. Tómas stundaði ýmis sumarstörf á námsárunum, s.s. við skógrækt, trésmíðar, múrverk og vann við raf- lagnir. Þá var hann lögregluþjónn í ' Reykjavík 1952-55. Tómas var sóknarprestur í Pat- reksfjarðarprestakalli 1956-70, og gegndi þá oft aukaþjónustu í Bíldu- dals-, Sauðlauksdals- og Brjánslækj- arprestaköllum og var sóknarprest- ur í Hveragerðisprestakalli 1970-95. Hann var prófastur 1 Ámesprófasts- dæmi frá 1986. Hann var aðstoðar- prestur i ísafjarðarprestakalli 1995 og Garðaprestakalli 1999 og sóknar- prestur í Langholtsprestakalli 1996-97. Tómas var skólastjóri Iðnskólans á Patreksfirði 1957-69, kennari við Barnaskólann á Patreksflrði 1961-62, við Unelingaskóla Patreks- fjaröar 1962-63, við Hlíðardalsskóla í Ölfusi 1971-72 og við Iðnskólann á Selfossi 1973-83. Tómas sat í skattanefnd Patreks- hrepps 1956-62, var endurskoðandi Kaupfélags Patreksfjarðar 1956-62, sat í stjórn Vistheimilisins í Breiðu- vík 1958-69, í stjórn Sjúkrasamlags Patrekshrepps 1958-65, í stjóm Prestafélags Vestfjarða 1958-69, í stjórn Héraðsbókasafns Vestur- Barðastrandarsýslu og var bóka- vörður þess 1958-69, i stjórn Vinnu- heimilisins á Litla-Hrauni 1972-88, f barnaverndarnefnd Hveragerðis 1972-78, í stjóm Tónlistarskóla Ár- nessýslu 1972-77, í ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar 1981-84, í stjórn Hjúkrunarheimilisins Skjóls frá 1986-2001. Fjölskylda Tómas kvæntist 20.10.1951, Önnu Ólöfu Sveinbjörnsdóttur, f. 13.6. 1931, iðjuþjálfa. Hún er dóttir Svein- björns Sigurðssonar, f. 17.11.1901, d. af slysforum 30.11. 1940, loftskeyta- manns, og k.h., Ólafiu Þuríðar Páls- dóttur, f. 3.7.1900, d. 28.12.1988, hús- móður. Börn Tómasar og Önnu Ólafar eru Sveinbjörn Sigurður Tómasson, f. 5.4. 1952, flutningabifreiðarstjóri í Neskaupstað, en kona hans er Dag- mar Ásgeirsdóttir, f. 25.2.1954, skrif- stofumaður, og eru dætur þeirra Anna Ólöf, Fanney Sjöfn og Erla Snædís; Ólöf Elín Tómasdóttir, f. 18.11. 1958, fatahönnuður, og kjóla- meistari í Reykjavík, en maður hennar er ísleifur Sveinsson, f. 22.1. 1958, húsasmiður, og eru synir þeirra Sveinn og Tómas en dóttir Ólafar er Díana Sigurðardóttir; Guðmundur Tómasson, f. 19.4. 1964, flugmaður í Reykjavík, en kona hans er Fríða Jónsdóttir, f. 15.1. 1962, leikskólakennari, og eru böm þeirra Jón Andri, Anna Helen og Kristrún Lóa. Systur Tómasar: Fjóla Guð- mundsdóttir, f. 12.10. 1912, fyrrv. húsfreyja í Stóru-Skógum, nú búsett í Borgarnesi; Halldóra, f. 8.10. 1917, fyrrv. hjúkrunarfræðingur, búsett í Kópvogi; Margrét, f. 10.4. 1921, hús- móðir á Selfossi; Ásta, f. 28.10. 1930, húsmóðir á Selfossi. Foreldrar Tómasar voru Guð- mundur Tómasson, f. 14.9. 1891, d. 13.9.1980, bóndi og smiður i Tandra- seli i Borgarhreppi, og k.h., Ólöf Jónsdóttir, f. 13.11.1887, d. 15.8.1955, húsfreyja. Ætt Guðmundur var bróðir Eiríks kolakaupmanns. Guðmundur var sonur Tómasar Guðmundssonar, b. á Einifelli, og k.h., Ásrósar Sumar- liðadóttur. Ólöf var dóttir Jóns Bjamasonar, b. á Einifelli, og k.h„ Gróu Halldóru Jónsdóttur. Sjötugur Hafsteinn Þorvaldsson fyrrv. framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands Guðmundur Hafsteinn Þorvalds- son, fyrrv. framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands, Engjavegi 28, Selfossi, er sjötugur í dag. Starfsferill Hafsteinn fæddist í Hafnarfirði og ólst þar upp til fermingaraldurs en flutti þá með foreldrum sinum að Lambhúskoti í Biskupstungum og 1948 að Syðri-Gróf í Flóa þar sem hann hóf búskap 1950 í sambýli við foreldra sína. Um árabil var hann við nám og störf hjá Sigurði Greips- syni í Haukadal. Hafsteinn og fjölskylda hans fluttu til Selfoss 1961 þar sem þau hafa búið síðan. Þar starfaði hann hjá Selfosshreppi í eitt ár og síðan í lögreglunni í Árnessýslu í fjögur ár. Þá var hann sölumaður hjá Sam- vinnutryggingum á Suðurlandi í eitt ár en 1967 var hann ráöinn framkvæmdastjóri Sjúkrahússins á Selfossi og 1981 Sjúkrahúss Suður- lands og Heilsugæslustöðvar Selfoss en því starfi gegndi hann til 1995. Hafsteinn var formaður Ung- mennafélagsins Vöku 1950-59, var eitt ár formaður Ungmennafélags Selfoss, var níu ár í stjóm Skarp- héðins, nokkur ár í stjórn FRÍ og fjórtán ár í stjórn UMFÍ, þar af tíu ár formaður. Hann sat um árabil í Æskulýðsráði ríkisins og var í fjög- ur ár formaður þess. Hafsteinn var formaður rekstrar- stjórnar Vinnuhælisins að Litla- Hrauni í rúm tíu ár, sat fjórtán ár í sveitarstjórn á Selfossi og var fyrsti formaður bæjarráðs hins nýja Sel- fosskaupstaðar. Hann sat í mið- stjórn Framsóknarflokksins um skeið, sat mörg ár í stjórn Lands- sambands sjúkrahúsa og Félags for- stöðumanna sjúkrahúsa á íslandi. Þá átti hann um tíma sæti í skóla- nefnd Iþróttakennaraskóla íslands á Laugarvatni, sat í stjórn íþróttamið- stöðvar íslands á sama stað og íþróttanefndar ríkisins, tilnefndur af UMFÍ. Hann hefur átt sæti í stjóm Landssambands eldri borgar sl. fjögur ár. Fjölskylda Hafsteinn kvæntist 27.5. 1951 Ragnhildi Ingvarsdóttur, f. 13.8. 1929, húsmóður. Hún er dóttir hjón- anna Ingvars Jóhannssonar og Jón- ínu Ragnheiðar Kristjánsdóttur, bænda á Hvítárbakka. Böm Hafsteins og Ragnhildar eru Þorvaldur, f. 13.5. 1950, vélfræðing- ur og kennari við FS, búsettur á Sel- fossi, kvæntur Kristínu Hjördísi Le- ósdóttur skurðstofuhjúkrunarfræð- ingi og eru börn þeirra Júlía, Haf- steinn og Haukur; Ragnheiður Inga, f. 10.3. 1952, handavinnukennari á Selfossi, gift Birgi Guðmundssyni, mjólkurbússtjóra MBF, og eru fóst- urbörn þeirra Sigurður Rúnar og Kristjana Bima; Þráinn, f. 6.9. 1957, íþróttafræðingur og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í Grafarvogshverfi í Reykjavík, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Þórdísi Lilju Gísladóttur, íþróttafræðingi og kennara, og eru dætur þeirra Helga og Hanna; Aðal- björg, f. 11.1. 1959, meinatæknir við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, gift Ólafi Öskarssyni, rafvirkja og iþróttakennara, og er dóttir þeirra Þóra; Vésteinn, f. 12.12.1960, iþrótta- kennari og landsliðsþjálfari i frjáls- um íþróttum, en kona hans er Ánna Östenberg, sjúkraþjálfari sem er að ljúka doktorsnámi í þeirri grein, og er sonur þeirra Örn. Bræður Hafsteins eru Eysteinn, kennari við KHÍ; Svavar, sölumað- ur hjá Blindrafélaginu; Gunnar Kristinn, rafvirki, nú búsettur í Noregi. Foreldrar Hafsteins voru Þorvald- ur Guðmundsson, f. 25.9. 1900, d. 26.6. 1975, bóndi og síðar verkamað- ur á Selfossi, og k.h., Lovísa Aðal- björg Egilsdóttir, f. 7.9. 1908, d. 8.2. 1994, húsfreyja. Ætt Þorvaldur var sonur Guðmundar, b. í Jaðarkoti í Villingaholtshreppi, Þorvaldssonar, og k.h., Kristínar Stefánsdóttur. Lovísa er dóttir Egils Egilssonar, b. á Galtalæk í Biskupstungmn, og k.h., Guðlaugar Steinunnar Guð- laugsdóttur. Hafsteinn og Ragnhildur verða að heiman á afmælisdaginn. Árinu clrtri Mánl Sigurjónsson, hinn góðkunni org- elleikari og tónlistarkennari I Kópavogi, er 69 ára í dag. Bróöir Mána var Sindri skrifstofustjóri, faöir Einars yfirlæknis og Heimis, tannlæknis og tónskálds sem samdi og söng lagið Hótel Jörö viö Ijóö Tómasar, sællra minninga. Máni er einnig bróöir Frosta læknis og Fjalars, fyrrv. prófasts á Kálfafellsstaö, fööur Mána læknis sem var á sínum tíma I hjálparstafi I Bosnlu. Angantýr Einarsson, skóla- stjóri Litlulaugaskóla I Reykjadal er 63 ára I dag. Angantýr var kennari á Þórshöfn, skólastjóri I Skúlagarði I Keldunes- hreppi, viö Grunnskólann á Raufarhöfn og kennari þar en hefur verið skóla- stjóri viö Litlulaugaskóla frá 1994. Hann var á sínum tíma oddviti á Rauf- arhöfn og stjórnarformaður Rskiöju Raufarhafnar, auk þess sem hann starfaöi mikið fyrir Alþýöubandalagiö. Angantýr er sonur hins vinsæla dag- skrárgeröarmanns, Einars heitins Krist- jánssonar frá Hermundarfelli. Sveinn Runólfsson, land- græöslustjóri I Gunnarsholti, er 55 ára I dag. Sveinn hef- ur verið landgræöslustjóri frá 1972. Hann lauk stúd- entsþrófi frá MR, B.Sc.-þrófi frá háskólanum I Aberdeen og fram- haldsnámi I landgræöslu viö Cornell-há- skólann I New York. Þaö hefur veriö mikill gróandi I ættum Sveins þvi Runólfur faðir hans var skólastjóri á Hvanneyri og sand- græöslustjóri og Páll, bróöir Runólfs, var landgræðslustjóri. Þeir voru synir Sveins á Fossi, bróöur Gísla Sveinsson- ar alþingsforseta. Margrét Jóhanna Pálma- dóttir söngstjóri er 45 ára í dag. Þaö hefur heldur betur munaö um Margréti I sönglífi þessarar söng- elsku þjóöar á síðustu ár- um. Hún stofnaöi Kvennakór Reykjavík- ur fyrir sjö árum og geröi hann feikilega vinsælan.Eftir aö hún sleppti hendinni af kórnum stofnaöi hún kvennakórinn Vox Feminae sem geröi garöinn frægan I kórakeppni á Italíu á siöasta ári þar sem kórinn hreppti silfurverölaun fyrir sín kristaltæru hljóð. Sjálf Regína Thorarensen, nestor íslenskra fréttaritara fyrr og síðar, veröur 84 ára á morgun. Reglna var um árabil fréttaritari DV á Ströndum, á Selfossi og á Austfjöröum og er nú búsett á Eskifirði. Hún var engum llk sem fréttaritari, af- kastamikil og tók málefni I héraöi traustum tökum. Hún fær hlýjar af- mæliskveöjur frá félögum sínum á DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.