Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Side 47
55 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 PV_______________________________________________________________________________________________Islendingaþættir Fímmtugur 90 ára__________________________ Ólöf Kristjánsdóttir, Gautsstöðum, Akureyri. 85 ára__________________________ Soffía Jónsdóttir, Hvanneyrarbraut 3b, Siglufirði. 80 ára__________________________ Guðbjörg Einarsdóttir, Sólheimum 27, Reykjavík. Guðný Kjartansdóttir, Kirkjubraut 29, Njarðvík. Júlíus Þórðarson, Skorrastað 3, Neskaupstaö. Lúðvík D. Þorsteinsson, Stigahlíð 39, Reykjavík. Stefanía Magnúsdóttir, Háeyrarvöllum 38, Eyrarbakka. 75 ára__________________________ Sigrún Þorsteinsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. 70 ára__________________________ Hjalti Sigurjónsson, Raftholti 2, Hellu. Ingibjörg Magnúsdóttir, Nesbala 62, Seltjarnarnesi. Karl Þorgrímsson, Efri-Gegnishólum, Selfossi. Kristín Erla Valdimarsdóttir, Hraunbæ 166, Reykjavík. Unnur Jónsdóttir, Hvanneyrarbraut 42, Siglufirði. 60 ára__________________________ Kristín Kristjánsdóttir, Sunnubraut 23, Búöardal. 50 ára__________________________ Edda Björnsdóttir, Miðhúsum, Egilsstöðum. Helga Berglind Atladóttir, Bergstaðastræti 31a, Reykjavík. Jafet Ólafsson, Langagerði 26, Reykjavík. Kristinn Guðni Hrólfsson, Laxakvísl 1, Reykjavík. Steinunn Hjálmarsdóttir, Kleifarseli 43, Reykjavík. 40 ára__________________________ Flosi Einarsson, Jörundarholti 232, Akranesi. Lára Marteinsdóttir, Óðinsgötu 6a, Reykjavlk. Lilja Jónsdóttir, Hlíðarhjalla 40, Kópavogi. Óskar Kristinn Bragason, Nesvegi 74, Reykjavík. Ragnheiður Sveinsdóttir lyljatæknir, Fífulind 7, Kópavogi. Þröstur Arnarson, Miövangi 133, Hafnarfirði. Þröstur Már Sigurðsson, Eiðismýri 11, Seltjarnarnesi. Smáauglýsingar Þjónustu- auglýsingar ►I550 5000 Friðbert Pálsson framkvæmdastjóri í Reykjavík Friðbert Pálsson, framkvæmda- stjóri er fimmtugur í dag. Starfsferill Friðbert fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaskólanámi frá Hér- aðsskólanum á Núpi við Dýrafjörð, lauk stúdentsprófi frá MA 1972 og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá HÍ 1978. Samhliða háskólanámi starfaði Friðbert hjá Framkvæmdastofnun ríkisins, Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna, Fiskiðjunni Freyju á Suður- eyri og Heildverslun Friðriks Bert- elsen, en að loknu námi var Frið- bert aðstoðarmaður prófessors við HÍ 1978-79. Friðbert tók við starfi fram- kvæmdastjóra Háskólabíós 1979 og sinnti því starfi í tuttugu ár. Sam- hliða störfum fyrir HÍ og Háskóla- bíó sinnti hann kennslu á ýmsum námskeiðum í stjórnunarfræðum á árunum 1977-88. Árið 1999 stofnaði Friðbert fyrirtækið Góðar stundir sem kaupir inn og dreifir kvik- myndum í kvikmyndahús á Islandi, gefur út myndbönd sem dreift er á myndbandaleigur á íslandi og til sýninga i sjónvarpi. Friðbert sat í byggingarnefnd vegna viðbyggingar Háskólabíós 1986-91, sat í stjóm Kvikmyndasjóðs íslands 1987-92 og í stjóm Norræna kvikmyndasjóðsins 1993-96, var for- maður Félags kvikmyndahúsaeig- enda 1982-89, formaður og stofnandi samtaka myndbandaútgefenda, Samtaka rétthafa myndbanda á Is- landi 1984-88, sat tvisvar í dóm- nefnd Norrænu kvikmyndahátíðar- innar i Haugasundi og á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Edinborg, hefur auk þess sinnt störfum fyrir Media Program Evrópusambands- ins sem vinnur að dreifingu á kvik- myndum og að fjármögnun á fram- leiðslu kvikmynda innan Evrópu- sambandsins. Fjölskylda Friðbert er kvæntur Margréti Theodórsdóttur, f. 28.3. 1954, stofn- anda og skólastjóra Tjarnarskóla í Reykjavík. Hún er dóttir Emu R. Jónsdóttur, húsmóður og fyrrv. verslunarmanns í Reykjavík, og Theodórs Jónssonar, f. 21.8. 1929, fyrrv. skipstjóra, en sambýliskona hans er Sólveig Baldursdóttir, sjúkraliði og nuddari, f. 27.10. 1941. Börn Friðberts og Margrétar eru Guðmundur Páll, f. 12.12. 1974, svæðisstjóri Fiárfestingar & ráðgjaf- ar á Akureyri; Theodór, f. 12.9.1981, nemi við Verslunarskólann í Reykjavík. Systkini Friðberts: Sævar Páls- son, f. 17.1. 1942, d. 1998; Gunnar Pálsson, f. 11.7. 1946, en sambýlis- kona hans er Hafdís Pálmadóttir og reka þau saman efnalaug; Leó Páls- son, f. 22.7. 1955, sölustjóri mynd- banda hjá Háskólabíói, kvæntur Ingunni M. Þorleifsdóttur hár- greiðslumeistara. Foreldrar Friðberts: Páll Frið- bertsson, f. 10.11. 1916, d. 5.11. 1989, forstjóri og stofnandi Fiskiðjunnar Freyju, Suðureyri, og Svanhvít Unnur Ólafsdóttir, f. 19.6. 1916, bú- sett í Reykjavik. Páll stundaði í mörg ár umsvifamikinn útgerðar- rekstur og rak Fiskiðjunna Freyju á Suðureyri þar til fyrirtækið og út- gerðin voru seld 1982. Ætt Páll var sonur Friðberts Guðmundssonar, útgerðarmanns, kaupmanns og hreppstjóra á Suðureyri, og k.h., Elínar Þorbjarnardóttur. Svanhvít Unnur er dóttir Ólafs Sæmundssonar, sjómanns í Reykjavík, og k.h., Jósefinu Þorfinnsdóttur. Friðbert, Margrét og synir taka á móti vinum og vandamönnum í Norræna húsinu á afmælisdaginn 28.4. milli kl. 17.30 og 19.30. Gígja S. Tómasdóttir starfsmaöur Heilbrigðisstofnunar ísafjarðar Gígja Sigríður Tómasdóttir, starfsmaður Heilbrigðisstofnunar ísafjarðar, Sólgötu 5, ísafirði, verð- ur sextug á morgun. Starfsferill Gígja fæddist á Stóru-Giljá í Aust- ur-Húnavatnssýslu en ólst upp á Akureyri. Hún var í barnaskóla á Akureyri og einn vetur í gagnfræða- skóla. Gigja hefur stundað ýmis störf ut- an heimilis en sl. átta ár hefur hún starfað við Heilbrigðisstofnun ísa- fjarðar. Fjölskylda Eiginmaður Gígju er Reynir Torfason, f. 1.11. 1939, sjómaður. Hann er sonur Torfa Bjamasonar, f. á ísafirði 2.8. 1916, d. 16.2. 1986, og Ingibjargar Hjálmarsdóttur, f. i Bol- ungarvik 6.11. 1920, d. 3.6. 1999. Sonur Gígju er Ómar Traustason, f. 8.6.1957, en sambýliskona hans er Sigurbjörg Jóhannsdóttir, f. 7.7. 1969, og eiga þau þrjú börn, Önnu Vilborgu, f. 19.7. 1990, Gunnar Ágúst, f. 2.9. 1993, og Ólöfu Mar- gréti, f. 3.1.1997, en sonur Ómars frá því áður er Friðrik, f. 11.8. 1980. Fósturson- ur Gígju og Reynis er Þórður Krist- inn Andrésson, f. 18.2. 1967, d. 9.7. 1996, en dóttir hans er Ragna Sól- veig, f. 21.10. 1994. Systkini Gígju: Bjarni Ragnar Sigurðsson, f. 14.1.1934, d. 4.11.1954; Guðríður Sigurðardóttir, f. 19.6 1935, húsmóðir á Akranesi; Þor steinn Helgi Sigurðsson, f. 15.7.1937 verkamaður á Blönduósi; Jónas S Sigurjónsson, f. 5.4.1945, verkamað ur á Blönduósi; Hávarður Sigur jónsson, f. 17.7. 1948, verslunarmað ur á Blönduósi. Kjörforeldrar Gígju voru Tómas Antonsson, f. 15.11. 1915, d. 7.1. 1949, sjómaður á Akureyri, og Anna Sig- urlína Guðmundsdóttir, f. 6.1. 1914, d. 18.9.1974, verkakona á Akureyri. Kynforeldrar Gígju voru Sigurð- ur Laxdal Jónsson, f. 25.4. 1907, d. 10.11. 1940, og Klara Bjarnadóttir, f. 11.8. 1911, d. 20.1. 1996. Gígja heldur upp á afmælið í dag, laugardaginn 28.4., í Kiwanishús- inu, Skeiði, á ísafirði. Fertug Ásdís Tómasdóttir fjármálastjóri í Reykjavík Ásdís Tómasdóttir íjár- málastjóri, Vesturási 58, Reykjavík, er fertug í dag. Starfsferill Ásdís fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp í Vog- unum. Hún lauk stúdents- prófi frá MS 1981, stund- aði nám í London 1982, stundaði nám í stjómmálafræði og íslensku við HÍ 1983-85 og stundaði nám í stjórnun og rekstri fyrirtækja við Endurmenntunarstofnun HÍ 1989-91. Ásdís stofnaði, ásamt Garðari Þorbjörnssyni, jarðverktakafyrir- tækið Urð og grjót í ársbyrjun 1999. Fyrirtækið sér um gatna- og gang- stígagerð og hefur sinnt fjölda verk- efna er lúta að uppbyggingu og frá- gangi við skóla og leikskóla. Ásdís var meðal stofnfélaga í Fé- lagi kvenna í atvinnurekstri. Fjölskylda Ásdís giftist 18.6. 1983 Garðari Þorbjörnssyni, f. 19.11. 1958, fram- kvæmdastjóra. Hann er sonur Þor- björns Sigursteins Jónssonar, f. 9.1. 1922, d. 12.2. 1981, bifreiðarstjóra og Vibeke Harriet Westergárd, f. í Dan- mörku 20.6. 1925, d. 5.11. 1999. Börn Ásdísar og Garð- ars eru Tómas Sigur- steinn Garðarsson, f. 13.10. 1985, nemi; Þor- björn Garðarsson, f. 23.4. 1987, nemi; Sigrún Silka Garðarsdóttir, f. 4.10. 1999. Foreldrar Ásdísar eru Tómas Þor- steinn Sigurðsson, f. á Sauðárkróki 29.4. 1932, forstöðumaður vita- og skoðunarsviðs og staðgengill for- stjóra Siglingastofnunar, og Sigrún Sigurbergsdóttir, f. 10.10.1931, kenn- ari. Þau eru búsett í Reykjavík. Ætt Tómas er sonur Sigurðar Péturs- sonar, verkstjóra vitabygginga, og Margrétar Björnsdóttur hannyrða- konu. Sigrún er dóttir Sigurbergs Helga Þorleifssonar, vitavarðar og hrepp- stjóra á Garðskaga, og Ásdísar Káradóttur, skáldkonu og vitavarð- ar. Ásdís var dóttir Kára Sigurjóns- sonar, steingervingafræðings og b. á Tjörnesi, og Sigrúnar Árnadóttur frá Þverá. Jarðarfarir Ögn Sigfúsdóttir, Ljósalandi, Hvera- gerði, veröur jarösungin frá Hveragerðis- kirkju laugard. 28.4. kl. 14.00. Þóra Haraldsdóttir, Heiöarvegi 54, Vest- mannaeyjum, veröur jarösungin frá Landakirkju laugard. 28.4. kl. 14.00. Torfi Steindórsson, Hala, Suöursveit, sem lést á hjartadeild Landspítalans, Fossvogi, þriðjud. 17.4., veröur jarö- sunginn frá Káifafellsstaðarkirkju í Suö- ursveit laugard. 28.4. kl. 14.00. Sigríöur Guömundsdóttir, frá Björnskoti, Skeiöum, Grænumörk 1, Selfossi, verö- ur jarösungin frá Selfosskirkju laugard. 28.4. kl. 15.30. Jón I. Guömundsson, fyrrv. yfirlögreglu- þjónn, Sunnuvegi 9, Selfossi, verður jarösunginn frá Selfosskirkju laugard. 28.4. kl. 13.30. iráBænr Dómari „Þórhallur heldur uppi leiknum með mikilli innlifun, glettilega góðri tímasetningu og fjölbreytilegum tiktúrum sem alltféll í goðan jarðveg." sveinnHaraidsson, mu „Laddi er frábær, skemmtilegur, hugljúfur... er að sýna nýja hlið..." Hávar Sigurjónsson „Fífl í hófi er nútímalegur gamanleikur með hvössum broddi... ' t svið í list sinni... Silja Aðalsteinsdóttir. DV iii i iiuii iiuuiimicyui yaiiiaiiicuvui iiicu uv Laddi kemst upp á nýtt svið í list sii Sýningin rennur lipurlega, hun er fyndin..." c „Laddi fer á kostum, fyndnari en nokkru sinni.. Bhófi anar sýmngar f aprn ao veraa uppseinan Sýnt í Gamla bíói (í húsi Islensku óperunnar). Miðasala í síma 5114200. Miðasaia á vefnum. midavefur.is magnafslátt! Hafið samband I sfma 511 7060 Athugið! 25 i á Café Öpeni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.