Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Page 56
brother
P-touch 1250
Lítll en STÓRmerklleg merkivél
5 leturstæröir
9 leturstillingar
prentar í 2 linur
boröi 6. 9 og 12 mm
4 gerðir at römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Simi 554 4443
Veffang. www.if.is/rafport
Innköllun 320
, Nissan-jeppa
Að beiðni Nissan, framleiðanda
Patrol-jeppanna, mun Ingvar Helga-
son M. innkalla alla nýju Patrol-bíl-
ana með þriggja lítra vélinni á
næstu vikum og mánuðum vegna
galla í olíukerfi. Innköllunin verður
eigendum bílanna. -NG
Nánar á bls. 29 í DV-Bllum
'Z*
Goði og Norðlenska:
Líklega í
eina sæng
Niðurstaða virðist í augsýn í reki-
stefnu þeirri sem ríkt hefur síðustu
vikur um framtíð Goða hf. „Sameining
við Norðlenska á Akureyri er líklegasti
kosturinn í stöðunni," sagði Kristinn
Þór Geirsson, framkvæmdastjóri Goða,
við DV í gær.
Um tuttugu starfsmönnum í kjöt-
vinnslu fyrirtækisins á Selfossi var
sagt upp i vikunni.
„Enn er hins vegar eftir aö reikna til
enda hvað gera skuli við þau ellefu slát-
urhús og þrjár kjötvinnslur sem Goði
rekur víðs vegar um landið. Allt er óá-
kveöið í því máli en mun skýrast bráð-
lega,“ segir Kristinn Þór.
Inga Þóra Karlsdóttir, trúnaðarmaö-
ur starfsfólks Goða á Selfossi, telur litl-
ar líkur á þvi að starfsmenn á Selfossi
fýsi að fylgja fyrirtækinu norður tO Ak-
ureyrar. -sbs
Ljót sjón á Sólheimasandi:
Kindahræ í hrúgu
- gat ekki lokið verkinu, segir eigandinn
Nokkur kindahræ hafa legið í
hrúgu á Sólheimasandi í Mýrdal um
nokkurt skeið. Fólk sem átt hefur leið
um sandinn hefur kvartað undan
þessu og hefur lögreglan í Vík haft af-
skipti af málinu. Eigandi kindanna
kveðst ekki hafa haft tök á að urða
þær þar sem hann hafi verið hand-
lama og ekki haft vél til verksins. Eig-
andinn hefur mann til að hirða féð
fyrir sig því hann er sjáifur bundinn í
öðrum störfum auk búskaparins, þar
sem hann er einnig kennari og í
hlutastarfi sem heilbrigðisfulltrúi.
„Þetta eru hræ af kindum sem
fengu fóðureitrun úr heyrúllum og
þurfti að aflífa," sagði Tómas ísleifs-
son, eigandi kindanna, við DV. „Ég er
búinn að biðja um að þetta verði graf-
ið en það hefur eitthvað dregist. Ég á
von á því að það sé búið að gera það
núna. Ég hafði enga vél til að moka
yfir þetta og var auk þess handlama
vegna aðgerðar í dymbilviku þegar
þurfti að aflífa kindumar. Ég hafði
því enga aöstöðu til þess að klára
verkið."
Tómas sagði að kindur dræpust
Kindahræ
Þessi hræ hafa legiö í hrúgu á Sól- .
heimasandi síöan fyrir páska.
víða úr fóðureitrun og væru urðaðar.
Það sem hefði vantað á þarna hefði
verið að ljúka verkinu. Hann sagði
það vissulega slæmt fyrir sig sem fjár-
eiganda og heilbrigðisfulltrúa að þetta
skyldi hafa komiö fyrir en röð atvika
hefði valdið því að svona fór. Hræin
ættu að vera horfin sjónum manna
nú. -JSS
Valdaafmæli
í Valhöll
Sjálfstæðismenn
ætla að fagna 10 ára
valdaafmæli Davíðs
Oddssonar i kvöld-
verðarboði sem hald-
iö verður forsætis-
ráðherrahj ónunum
til heiðurs í höfuð-
stöðvum flokksins í
Valhöll við Háaleitis-
Oddsson. braut a mánudags-
kvöld.
„Það em miðstjórn og þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins sem standa að
samsætinu. Þarna verður borinn fram
kvöldverður," sagði Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins. „Þetta verður 70 manna hóf
þingmanna og miðstjórnarmanna meö
mökum.“
Davið Oddsson varð forsætisráð-
herra 30. aprfl árið 1991 og hefur setið
óslitið síðan. Auk samsætisins í Val-
höll hyggjast meöráðherrar hans
einnig heiðra hann meö móttöku þar
sem mæta allir ráðherrar sem starfað
hafa undir stjóm hans síðastliðinn 10
ár: „Nei, ég býst ekki við að Jón Bald-
vin komi frá Ameriku vegna þessa,“
sagði Kjartan Gunnarsson aðspurður.
Nánar um Davíð á bls. 20-21
-EIR
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001
DV-MYND HARI
Stórbruni á Hvaleyrarholti
Allt tiltækt slökkviliö á höfuöborgarsvæöinu baröist viö eld í húsnæði íslenskra matvæia í Hafnarfiröi í gær. Reykský lagöist yfir stóran hluta bæjarins og víöa
eins og myrkur væri um miöjan dag. Sjá bls. 2.
Ráðstefna lækna og lögfræðinga um friðhelgi og gagnagrunn:
Kári olli uppnámi
- bannaði sínu fólki að mæta - reynt að bola Ragnari Aðalsteinssyni út
Kári
Stefánsson.
Kári Stefánsson,
forstjóri íslenskrar
erfðagreiningar,
bannaði tveimur
starfsmönnum sínum
að sitja ráðstefnu um
friðhelgi og gagna-
grunn sem Lög-
mannafélagið og
Læknafélag Islands
stóðu fyrir á Grand
Hótel Reykjavík í
gærdag. Þótti Kára sem auglýstir ræðu-
menn og þátttakendur i pallborðsum-
ræðum væru yfirlýstir andstæðingar
sínir. Uppnám varð skömmu áöur en
ráðstefnan hófst þegar tilraun var gerð
til aö bola Ragnari Aðalsteinssyni lög-
manni frá pallborði þar sem hann átti
sæti og koma þannig til móts við sjón-
armið Kára.
„Þetta átti að vera tilraun til aö leysa
málið en ég sat sem fastast," sagði
Ragnar Aðalsteinsson í ráðstefnulok.
„Það versta sem komið getur fyrir ráð-
stefnu sem þessa er að utanaðkomandi
aðili sé að hafa afskipti af því hvemig
Sat sem fastast
Ragnar Aöalsteinsson lögmaöur á ráöstefnunni í gær. Neitaði aö víkja sæti
til aö þóknast Kára Stefánssyni.
hún fer frarn."
Sigurbjörn Sveinsson, formaður
Læknafélagsins, sagði hins vegar að
aldrei hefði verið ætlunin að íslensk
erfðagreining ætti fulltrúa á ráðstefn-
unni. Þetta hefði verið fundur lækna og
lögfræðinga um lagaieg og siðferðileg
efni en ekki fundur um einstök fyrir-
tæki: „Ef menn hafa túlkað það sem
svo að slagsíða hafi verið á fundinum
hefði verið enn frekari ástæöa fyrir ís-
lenska erfðagreiningu að hafa fulltrúa
sina á ráðstefnunni,"
sagði formaöur
Læknafélagsins.
Starfsmenn ís-
lenskrar erfðagrein-
ingar, sem boðið
hafði verið til fundar-
ins en hættu við eftir
skipun Kára, vom
Einar Stefánsson
læknir og Hlynur
Halldórsson lögfræð-
ingur.
Sigurbjörn
Svelnsson.
„Það var slagsíða á þessum fundi.
Langflestir ræðumenn sem þama voru
kynntir em yfirlýstir andstæðingar
gagnagmnnsins," sagði Páll Magnús-
son, upplýsingastjóri íslenskrar erfða-
greiningar. „Við létum umrædda menn
vita að ekki væri óskað eftir því að þeir
mættu á ráöstefnuna og töluöu þar í
nafni íslenskrar erfðagreiningar. Þeir
gátu hins vegar mætt þar sem ein-
staklingar."
Starfsmennimir tveir mættu ekki til
fundarins og var það sérstaklega til-
kynnt við upphaf ráðstefnunnar. -EIR
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555