Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Blaðsíða 16
16
Helgarblað
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
I>V
Hvað gerir karlmenn kynþokkafulla?
Fyndnin
vekur fýsnir
*í ‘
-5
Nýlega var Brad Pitt kosinn kyn-
þokkafyllsti karlmaðurinn sem nú
er á dögum. Sams konar könnun
var gerð í fyrra en þá var Sean
Connery valinn kynþokkafyllsti
karlmaður aldarinnar. Það var ekk-
ert minna. Margar konur segja líka
að þeim finnist Connery miklu
þokkafyllri en margfalt yngri menn
- en hann er kominn yfir sjötugt.
„Hvað er það sem gerir Connery
svona vinsælan?“ - spurði ég nokkr-
ar valinkunnar smekkkonur, en það
varð fátt um svör. Konur eiga frem-
ur erfitt með að skilgreina hvað það
er sem gerir karla kynþokkafulla.
Mér er fyrirmunað að skilja af
hverju við getum ekki sagt eins og
karlarnir: Kynþokki er ljóst hár, blá
augu, þrýstnar varir, lögulegur aft-
urendi, langir fótleggir... en ákvað
Geturðu nefnt mér einhverja kyn-
þokkafulla alþingismenn? Hvernig
finnst þér tildæmis Ámi M.
Mathiesen?
M: Hann er nú ekkert sérstakur,
greyið. Það eru sjálfsagt óvenju fáir
myndarlegir alþingismenn og hafa
sjaldan verið. Ég sá til dæmis aldrei
hvað átti að vera kynþokkafullt við
Jón Baldvin.
þhs: En Friðrik Sophusson? Hann
þótti nú löngum besti kandidatinn i
þingsalnum.
M: Æ, ég veit það ekki. (Hugsar
sig um) En mér hefur alltaf fundist
Árni Johnsen mjög myndarlegur.
Hávaxinn og þéttur á velli. (Hikar
aðeins) Hann er kannski samt orð-
inn fullfeitur í dag.
Þannig hljóðaði samtal okkar
mömmu. Við erum mjög ósammála
Jón Baldvin Hannibalsson
Sumar sjá drjúpa af honum kyn-
þokka, en ekki mamma mín.
að reyna að komast til botns í þessu
og tala við konur á ýmsum aldri til
þess að fá svör við þessari áleitnu
spurningu: Hvað er það sem gerir
karla kynþokkafulla?
Jack Nicholson eða Harrison
Ford?
Ég byrjaði á að hringja í mömmu.
þhs: Mamma, finnst þér Sean
Connery kynþokkafullur?
M: Nei, mér finnst hann ekkert
sérstakur. Ég sá hann heldur aldrei
í Bond-myndunum.
þhs: Geturðu nefnt mér einhverj-
ar kvikmyndastjörnur sem þér
þykja kynþokkafullar?
M: (Hugsar dágóða stund) Alec
Baldwin, Richard Gere og Steven
Seagal.
þhs: Alec Baldwin! En hann er ak-
feitur!
M: Já, hann hefur fitnað mikið í
seinni tíð...en samt.
þhs: Hvað finnst þér kynþokka-
fullt við þessa menn?
M: Þeir eru myndarlegir, þreknir
og bjóða af sér góðan þokka. Ekki
sakar að þeir séu góðlegir og brosi
fallega.
þhs: Mér finnst Jack Nicholson
kynþokkafyllsti karlmaður sem
uppi hefur verið.
M: (æpir) Jack Nicholson!!! Sá
sem lék úlfinn í Wolf? Hann er nú
bara herfilega ófríður.
þhs: Ja, hann er a.m.k. ekki góð-
legur. En finnst þér Harrison Ford
góðlegur?
M: Já, og þess vegna kom mér svo
á óvart að hann skyldi vera að
skilja við konuna sína. Ég hélt að
hann væri ekki sú týpan.
þhs: (Með blaðamannslegri ýtni)
Jack Nicholson
Hann er ekki beinlínis góölegur á
svipinn en hefur engu aö síöur veriö
nefndur sem einn af kynþokkafyllstu
körlunum í draumafabrikkunni. Hvaö
skyldi þaö vera?
um kynþokkamálin. Mér finnst ekki
að karlmenn verði að vera góðlegir
til þess að þeir séu kynþokkafullir.
Mér finnst hins vegar það gagn-
stæða - eitthvað dýrslegt og óhamið
- vera stór plús. Mér finnst líka að
ummál karlmanna, hvort sem það
er á langveg eða þverveg, þurfi ekki
að vera neitt sérstaklega mikið til
þess að þeir heilli mig.
Eins og illa steikt kjötbolla
Ég hitti tvær samstarfskonur
mínar í kaffitímanum. Ég bar fram
spurninguna um hvað það er sem
gerir karlmenn kynþokkafulla í ná-
vígi og önnur sagði strax: „Leiftr-
andi gáfur“. „Æi, kommon," sagði
ég. „Getum við ekki einu sinni ver-
ið óábyrgar og ruddalegar og talað
bara um það sem við sjáum, ekki
það sem við þurfum að eyða mörg-
um dögum í að komast að? Svona
eins og karlar gera um rassa og
brjóst?“ En konan gafst ekki upp.
„Ég var einu sinni með treggáfuð-
um manni og það gerði næstum þvi
út af við mig. Maðurinn fyrir mig er
sá sem alltaf getur tekið þátt í því
sem ég er að tala um og birt mér
nýja sýn á hlutina."
„Þarna er ég ekki sammála þér,“
sagði hin konan, sem er lítið eitt
eldri og lífsreyndari. „Þetta hefur
ekkert með greind að gera. Maður
getur hrifist af karli sem gengur inn
í herbergi og fundist hann kyn-
þokkafullur áður en hann opnar
munninn. Hér erum við að tala um
atgervi, en í því er ýmislegt fólgið,
svo sem líkamsburður og tjáning,
einhvers konar útgeislun, burtséð
frá ákveðnum útlitseinkennum.
Karlmaður getur verið fullkominn í
útliti, en ef hann er tómur að innan,
þá er hann ekkert meira aðlaðandi
en illa steikt kjötbolla."
í því kemur aðvífandi þriðja kon-
an, landsþekkt fyrir ákveðnar skoð-
anir á mönnum og málefnum. „Ég
hef aldrei hrifist af fallegum mönn-
um. En ef ég má ekki svara þessum
spurningum þínum með þvi að
segja gáfur, þá verð ég að segja
húmor. Karlmenn sem koma mér til
að hlæja, þeir geta líka komið mér í
rúmið."
„Finnst þér Laddi þá yfimáttúru-
legt kyntröll?" spyr ég.
„Ég var ekki að meina svoleiðis
fyndni,“ segir konan móðguð.
Handtak amöbunnar
Er konum þá alveg sama hvernig
karlmenn líta út? spurði ég og þótti
nú botninn dottinn úr umræðunni.
Mamma hafði að vísu talað við mig
um útlitsþætti sem ýta undir kyn-
þokka - en það er annað að tala um
kvikmyndastjörnur og pólitikusa
heldur en karlmenn í návígi. „Nei,
auðvitað ekki,“ sögðu konurnar og
fóru að tala um ómótstæðilegar
karlaraddir, bládjúpar - og augu
sem virðast sjá lengst inn að kviku.
Fljótlega snerist talið að því sem
alls ekki er kynþokkafullt. Það sem
slekkur á kynhvötinni í stað þess að
kveikja hana. „Mér þykja lágvaxnir
karlmenn ekki þokkafullir," segir
sú yngsta í hópnum og hinar eru
sammála um að karlmenn verði að
vera a.m.k. jafnstórir og maður
sjálfur, ef ekki stærri. „Að upplifa
sjálfa sig eins og tröllskessu er ekki
skemmtilegt," segir kona um þrí-
tugt, sem ekki lítur út eins og
tröllskessa. Að minnsta kosti ekki
svona ein og sér.
„Mér finnst ótrúlega óaðlaðandi
að taka í höndina á manni sem tek-
ur ekki þéttingsfast á móti. Það er
eins og maður sé með amöbu í hend-
inni,“ segir elsta konan í hópnum
og hinar hrylla sig. Konumar halda
áfram að telja upp: fitugt hár, jogg-
ingbuxur með hnjám í, áberandi
ölvun og dónaskap. Mér til kæti,
nefndi ein konan að aflitað hár á
körlum þætti henni sérstaklega
óaðlaðandi. Hinar tóku undir og ég
komst að því að hjá hópi vinkvenna
er útlit karla sem hafa gult hár af
aflitun kallað „Selfoss lúkkið". Ég
hef ekki grænan grun um af hverju.
En það sýnir að vandrataður er veg-
urinn til fullkomnunar.
Danny Devito
Mjög lágvaxnir karlmenn
höföa ekki sterkt til
kvenna. Samt er
Danny vel giftur.
Sean Connery
Kynþokkafyllsti maður aldarinnar, samkvæmt nýlegri könnun. Töffaraskapur
hefur löngum komiö konum til og lék Connery ekki einmitt mesta töffara í
heimi - James Bond?
Dýrslegur John Malkovich
Ég ákvað að fara á fund konu sem
hefur verið hamingjusamlega gift í
meira en þrjátíu ár. Hún hefur líka
næmt auga fyrir karlmannlegri feg-
urð. Einu sinni var hún stödd í leik-
húsi í London og sá John Malkovich
með eigin augum. Hann var þarna
bara eins og hver annar leikhús-
gestur. Hún hefur oft lýst því fyrir
mér hvaða áhrif það hafði, en henni
var vist skapi næst að fleygja sér í
faðm hans.
Þegar ég geng á fund hennar lang-
ar mig að fá að heyra eitthvað um
dýrslegt að-
dráttarafl
karla
á
borð við John Malkovich, en hún
bregst mér og segir: „Gáfur sem
koma fram í leiftrandi samræðu-
snilld, orðheppni og fyndni.“ „Það
er nú bara þannig,“ bætir hún við
þegar hún sér fýlusvipinn á mér.
Það hlýtur að vera munur á kynj-
unum hvað þetta varðar. Karlar
gera ekki alltaf miklar kröfur til
persónuleika kvenna sem þeir sofa
hjá. Það er oft eins og þeir láti aug-
un stjórna sér, en konurnar aftur á
móti eyrun. Útlitið viröist ekki
skipta þær máli, heldur bara það
sem karlar segja. Öfugt við hitt kyn-
ið.
Þegar ég viðraði þetta við
karlkyns samstarfsmann
minn fannst honum ég
vera komin á hálan ís.
„Með þessu ertu að
segja að við séum
metnaðarlausir fagur-
kerar, en þið sjón-
daprar tilfinninga-
verur..." sagði hann
og hló.
Ég verð vist að
viðurkenna að nið-
urstöðurnar úr
þessari óformlegri
könnun voru ekki
þær sem ég von-
aðist eftir.
-þhs