Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Blaðsíða 50
58
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
Formúla 1
David Coulthard, McLaren Mercedes
„Við sönnuðum það I Barcelona að bíllinn okk-
ar er hraður við keppnisaðstœður par sem ég
gat tekið fram úr mönnum ó Praut sem er ekki
þekkt fyrir mörg tœkifœri til framúraksturs. Ég
hef klárað í fyrstu sex sœtunum í öllum keppn-
um ársins hingað til og ég trúi því að ég sé sá
eini og œtla að halda því áfram."
Mika Hakkinen, McLaren Mercedes
„Síðustu þrjú ár hef ég átt góöar keppnir á A1
ring með þremur heimsóknum á verðlaunapall,
og tvisvar sem sigurvegari. Mér líkar að aka á
þessari braut, sem svipar tii gó-kart brautar
vegna stuttrar vegalengdar hennar og krappra
beygja. Einnig eru nokkrir möguleikar á framúr-
akstri."
Jos Versiappen, Arrows
„Tímatakan er alltaf svolítið áhugaverð á A-1
ring. Hópurinn er alltaf mjög nœrri í tímum
(vegna stuttrar brautar) svo það er alltaf
möguleiki á að ná í góða rásstöðu fyrir keppn-
ina. Brautln er með margar hœgar beygjur svo
það þarf að Premsa kröftuglega. Einnig er góð
hröðun mikilvœg.”
Juan Pabk) Montoya, BMW. Willkmrs F1
„Ég fer fullur sjálfstrausts til Austurríkis, sérstak-
lega eftir annað sœtið mitt á Spáni fyrir hálfum
mánuði. Ég á góðar minningar frá A-1 ring því
ég hef keppt þar í tvígang í F3000 - sigraði 1997
og varð annar 1998. Við áttum mjög jákvœðar
prófanir á Valencia og ég vonast til að árang-
urinn láti sjá sig í Austurríki."
Michael Schumacher, Ferrari
„Með stanslausum inngjöfum, erfiðum bremsu-
köflum í bland við höggin frá beygjuköntunum
á hálsinn er Austurríkiskappaksturinn erfiður og
tekur sinn toll af bílnum, af mér og Rubens.
Brautin er mjög krefjandi tœknilega en ég er
vongóður þar sem ég hef Ross Brown á þjón-
ustusvœðinu vlð hlið mér."
Button á botninum og
gengi hans með Benetton
hefur verið lélegt á árinu
lega gagnrýndur fyrir að taka inn í
liö sitt óreyndan komungan Breta
sem hafði sýnt áhugaverða hluti í
Formúlu 3 sumarið áöur. Menn
kepptust við að koma með yfirlýs-
ingar og spár um að Formúla 1 yrði
Jenson Button of erfið og hann réði
ekki við hraðann, kraftana og álag-
ið sem fylgir því að vera Formúlu 1
ökumaður. Það var ekki liðið langt
á tímabilið þegar þeir hinir sömu
þurftu að éta ofan í sig yfirlýsingar
sínar og Button varð yngsti öku-
maður í sögu Formúlu 1 til að vinna
sér inn stig í kappakstrinum. Þá
nýorðinn 20 ára. Button átti marga
góöa spretti með BMW. Williams F1
á síðast ári og var farinn að pressa
verulega á félaga sinn, Ralf
Schumacher.
En með komu Juans Pablos
Montoya til liðsins varð Frank að
taka aðra erfiða ákvörðun og hann
lánaði hugarfóstur sitt til Benetton
Renault-liðsins til tveggja ára. En
gengi nýja liðsins hefur verið í
meira lagi brösótt og það kann að
verða Button erfitt að endurheimta
sæti sitt hjá Williams ef fer sem
horfir. Hann er farinn að njóta lífs-
ins til hins ýtrasta og á við meiösl
að stríða. En stærsti bitinn til að
kyngja er slakur árangur. Hann hef-
ur alls ekki sýnt sömu tilþrif í ár og
i fyrra og hefur verið í baráttunni
um neðstu sætin við Minardi-öku-
manninn Tarso Marques.
Lifir hátt og nýtur þess
Button hefur skotist hratt upp á
stjörnuhimininn og er nú ein af
frægari persónum Bretlands.’ Ríka
og fræga fólkið býður honum í
veislur og hann leigir risíbúð í
hinu fræga Metropolitan-hóteli í
London meö útsýni yfir Hyde
Park. Þar býr hann ásamt unnustu
sinni, hinni 23 ára Louise
Grifflths, þá daga sem hann er
„heima“ því hann er þegar kom-
inn með lögheimili í Mónakó. Þau
eru bæði ástfangin upp yfir haus
og sjá ekki sólina hvort fyrir öðru.
Þrátt fyrir erfiöa tíma með
Benetton borgar liöið Jenson vel
og þarf hann tæpast að hafa áhygg-
ur af peningaleysi í bráð. Aðeins á
sínu öðru ári í Formúlu 1 er hann
kominn með hærri laun en eldri
og reyndari kappar eins og David
Coulthard, Jean Alesi og H-H
Frentzen. Hann er „aðeins“ með
um þaö bil 450 milljónir ísl. króna
í árslaun ef miðað er við óvenju-
hátt gengi dollarans um þessar
mundir. Ekki er heldur óvarlegt
að áætla að þessar tekjur séu tals-
vert hærri ef beinar auglýsinga-
tekjur hans eru teknar með inn í
dæmið. „Ég hefði aldrei trúað
þessu fyrir einu ári. Það frábæra
við að eiga alla þessa peninga er
að geta farið á veitingastað og val-
ið það sem manni líkar og þurfa
ekki að hafa áhyggjur af verðinu,"
segir Bretinn nýríki.
Stewart hefur áhyggjur
Gamli heimsmeistarinn Jackie
Stewart hefur áhyggur af þessu og
vill meina að Button sé farinn að
gleyma sér í losta lífsins og ein-
beiti sér ekki nægilega að akstrin-
um. „Ég held að hann hafi fengið
of mikið of snemma því hann er
aðeins búinn að vera í Formúlu 1
í eitt ár og er nú þegar fluttur til
Mónakó og þénar mikla peninga.
Þess konar lifsstíll virðist ekki
henta ungum ökumanni. Það þarf
aðeins aö líta á Michael
Schumacher til að sjá hvernig
hugarfar hann hefur til vinnu
sinnar. Hann er fullkomlega ein-
beittur og árangur hans sannar að
það virkar mjög vel,“ segir
Stewart og vill að Button geri eins
og Ferrari-ökumaðurinn.
„Jenson er mjög fiölhæfur en
þaö eru fleiri sem eru það einnig
svo hann ætti að setja kappakstur-
inn í algeran forgang," segir
Stewart sem nýlega tilkynnti að
hann gæti verðið á leið til Jagúar
á ný eftir frí vegna veikinda sonar
sins. En Jenson Button segist til-
rfej ClF
"4BB í m' *
STAÐAN 12.5
Nr. Nafn Lið Stig
01. Michael Schumacher Ferrari 36
02. David Coulthard McLaren- 28
03. Rubens Barrichello Ferrari 14
04. Ralf Schumacher Williams 12
05. Nick Heidfeld Sauber 8
06. Jarno Trulli Jordan 7
07. Juan Pablo Montoya Williams 6
08. Heinz-Harald Frentzen Jordan 6
09. Jaques Villeneuve BAR 4
10. Mika Hákkinen McLaren 4
11. Olivier Panis BAR 3
12. Kimi Raikkonen Sauber 1
13. Giancarlo Fisichella Benetton 1
- - ;
STAÐA UÐA
Nr. Nafn Stig
01. Ferrari 50
02. McLaren 32
03. Williams 18
04. Jordan 13
05. Sauber 9
06. BAR 7
07. Benetton 1