Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Qupperneq 23
23 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001____________________________________________________________ I>V ______________________________ Helgarblað Sunna Borg segir upp störfum hjá Leikfélagi Akureyrar: Úr leikhúsinu í hómópatíu - hyggst víkka sjóndeildarhringinn Sunna Borg hefur sagt upp störf- um hjá Leikfélagi Akureyrar og hyggst snúa sér að nýjum viðfangs- efnum. Sunna segir að ákvörðunin sé tekin í fullri sátt við leikhúsið en henni finnist tími til kominn að söðla um. Nú sé tækifæri til að vikka sjóndeildarhringinn en Sunna útilokar þó ekki tilfallandi verkefni á leiksviðinu í framtíð- inni ef til hennar verður leitað. „Ég er búin að vera á föstum samningi frá 1979 en svo fór ég í fjögurra ára nám og fannst ekki sanngjarnt gagnvart leikhúsinu aö vera lengur fastráðin, þvi námið kallar á dálítil ferðalög suður. Ég er að læra hómópatíu eða smá- skammtalækningar sem eru að hluta til fjarnám,“ segir Sunna. Hún var á leið í lífeðlisfræði í Verkmenntaskólanum á Akureyri í gær þegar DV náði tali af henni og er svolítið sérstök upplifun að hennar sögn að setjast aftur á skólabekk. Síðustu skref hennar með LA standa nú yfir í Sniglaveislunni og hún lýsir leikara- starfinu sem krefj- andi og gefandi í senn. Ég á mér mörg minnisstæð hlutverk að baki og hef tekist á við mik- inn fjölda af persón- um sem er gott fyrir leikara. Það sem tók mest á mig var Sig- rún Ástrós. Mér fannst mjög erfitt að takast á við hana en það var lika mjög skemmtilegt." Sunna nefnir fleiri hlutverk s.s. þátt sinn í Bar-pari og Ibsénverkunum, sérstaklega Aftur- göngunum. -BÞ Kveður leikhúsiö eftir 21 árs starf „Það sem tók mest á mig var Sigrún Ástrós," segir Sunna Borg um minnisstæöasta hlutverkiö á ferlinum. DV-MYND BRINK Halie Berry leikkona. Hún varö fræg fyrir aö leika í X-Men en líka fyrir aö aka full. Halle Berry: Fer í mál við blöðin Leikkonan Halle Berry hefur ákveðið að fara í mál við ameríska tímaritið Star vegna slúðurfregna sem ritið flutti af þvi að hjónaband hennar og leikarans Erics Benets væri að liðast í sundur. Berry var mjög í sviðsljósinu síðastliðið ár eft- ir að hún ók mann niður og stakk af frá öllu saman og slapp naumlega við fangelsisvist í kjölfarið. Talið var að hún hefði ekki verið alveg allsgáð þegar sá leiðindaatburður átti sér stað. Frú Berry vill fá 3 milljónir doll- ara í skaðabætur frá Star. Blaðið fullyrti sem sagt að eiginmaður hennar væri fluttur að heiman. Það er að vísu rétt en engu að síður vill Berry skaðabætur því hún segir að ung dóttir þeirra hafi beðið skaða af þessum fréttaflutningi sem hafi ver- ið bæði ótímabær og smekklaus.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.