Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV
Finnst ég vera
kornung
- Vala Matt. talar við Kolbrún
Bergþórsdóttur um langt líf í
fjölmiðlum, opinská viðtöl,
vinnuálag og ástina.
Valgerður Matthíasdóttir hefur
átt lengra líf í Islenskum fjölmiöla-
heimi en margur annar. Þar hefur
hún verið áberandi í fimmtán ár,
sífellt jafn fersk og hugmyndarík.
Undanfarið hefur hún verið um-
sjónarmaður hins vinsæla þáttar
Innlit-Útlit á Skjá einum, þar sem
fjallað er um arkitektúr, innan-
hússhönnun og fleira og litið inn til
þekktra og óþekktra einstaklinga
og híbýli þeirra skoðuð.
Þegar Vala er spurð hver lykill-
inn sé að vinsældum þáttarins seg-
ir hún: „Það er nú einu sinni
þannig að maður er manns gaman.
Það sem er mannlegt og persónu-
legt og hægt er að samsama sig við
vekur áhuga fólks.“
Vala hefur farið með sjónvarps-
vélar inn á heimiii fólks sem ekki
er þekkt fyrir að opna híbýli sín
fyrir fjölmiölum. „Löng reynsla
mín i sjónvarpi nýtist mér í þessari
þáttagerð," segir Vala, „fólk veit
nokkurn veginn að hverju það
gengur. Það veit hvemig ég vinn
hlutina, þekkir mínar áherslur og
treystir mér kannski þar af leið-
andi. Ég held að það sé lykilatriðið
þegar fólk samþykkir að koma í
þáttinn."
- Þú ert alltaf svo jákvæð í þess-
um þáttum. Kemurðu ekki stund-
um inn á heimili, lítur í kringum
þig og hugsar: „Óskaplega er þetta
púkalegt," en gerir svo bara gott úr
öllu saman af því þú ert í vinn-
unni?
„Ég er mjög rómantísk,
en ég hef undanfarin ár
verið föst í munstri sem
ég hef átt erfitt með að
koma mér út úr. Ég hef
leitað í og orðið ástfangin
af mönnum sem hafa
verið erfiðir og ég greini-
lega fengið heilmikið út
úr því að kljást við þá.
En það er ekki hollt. Allt
of miklar sveiflur. “
„Nei, það gerist ekki. Og í þess-
ari þáttagerð eins og í öllu sem ég
hef unnið í fjölmiðlum vel ég að
miðla því sem mér finnst vera fal-
legt eða vel gert á hvaða sviði sem
það er og læt það sem mér fmnst
miður gott eiga sig. Þannig hef ég
líklega fengið þennan stimpil að
vera alltaf jákvæð. Ég nenni ekki
að setja mig í gagnrýnandastöðuna.
Það er nóg af slíku „harðlífisliði".
Ég er mjög hrifnæm og finnst mjög
gefandi að miðla því sem hrífur
fólk og heillar og nánasta umhverfi
fólks getur verið áhugavert á svo
margan hátt. Smekkur okkar er
misjafn og það er það sem gerir líf-
ið litríkt og skemmtilegt. Svo er
það líklega aukabónus fyrir mig að
ég hef auga arkitektsins og get því
fókuserað á og dregið fram hluti
sem ýmsir aðrir koma kannski
ekki auga á.“
Vala segist ekki hafa gefið sér
mikinn tíma til að vinna sem arki-
tekt. „Ég á til dæmis alveg eftir að
teikna húsið mitt. Ég er í sömu
stöðu og rithöfundur sem hefur
lengi gengið með bók í maganum
en á eftir að setjast niður og koma
orðunum á blað. En ég veit að ég á
einhvern tíma eftir að teikna mitt
hús.“
A5 miðla því skemmtilega
Eftir sex ára mastersnám i húsa-
arkitektúr við listaháskólann í
Kaupmannahöfn kom Vala heim og
starfaði á teiknistofu Guðna Páls-
sonar arkitekts en vann einnig við
að innrétta Hressingarskálann,
áður en honum var breytt i McDon-
ald’s. „Það var eins og mér væri
ekki ætlað að vinna við arkitektúr-
inn um sinn, vegna þess að sama
kvöldið og ég lauk við að hanna
Hressó hitti ég Jón Óttar Ragnars-
son og sogaðist inn í fjölmiðlaheim-
inn. Á þessum tíma var Stöð 2 á
hugmyndastigi. Ég hafði alveg frá
þvi ég var smástelpa haft brenn-
andi áhuga á myndlist, leiklist,
kvikmyndum, dansi og tónlist og
þar sem sjónvarp er miðill þar sem
þessar listgreinar allar sameinast
varð ég gagntekin af hugmyndinni
um Stöð 2. Ég byrjaði á því að
hanna stöðina og dróst svo inn i
dagskrárgerðina. Sjónvarpsvinnan
sameinaði öll mín áhugamál, mitt
fag og mína menntun. Ég fékk út-
rás fyrir þá sköpunarþörf sem bjó
innra með mér. Það má líka segja
að miðlun sé mér í blóð borin þar
sem ég kem úr mikilli kennarafjöl-
skyldu. Þegar ég upplifi eitthvað
skemmtilegt fmn ég hjá mér ríka
þörf fyrir að koma því til sem
flestra og þá finn ég mér leið til
þess gegnum fjölmiðla."
Mælir með sálfræöiaöstoö
Það þarf ekki að tala lengi við
Völu til að átta sig á að hún er
mjög einlæg manneskja. Á tímabili
var hún gagnrýnd fyrir að tala ansi
opinskátt um einkalíf sitt í viðtöl-
um, og þá sérstaklega ástarsam-
band sitt við Jón Óttar Ragnarsson.
„Þegar ég kom heim, búin að vera
búsett tæpan áratug erlendis fannst
mér ekki spennandi að fara í viðtöl
eins og þau voru yfirleitt á þeim
tíma hér heima, það er að segja,
ópersónuleg og svo leiðinleg að
maður nennti varla að lesa þau. í
erlendum viðtölum talaði fólk um
tilfinningar og hvernig það sigrað-
ist á erfiðleikum. Mér fannst þau
viðtöl oft veita mér hvatningu og
innblástur. Þau skildu eitthvað eft-
ir. Mig langaði að brjóta upp þetta
deyfðarlega islenska viðtalsform og
reyndi að gera það, ásamt
nokkrum öðrum á þessum tíma. Og
eins og alltaf þegar farið er nýjar
leiðir rísa upp ákveðnir aðilar og
Þegar ég var í beinni út-
sendingu fimm kvöld í
viku á Stöð 2 lenti ég í
því að það leið yfir mig í
miðju viðtali úti í bœ.
Þegar ég rankaði við mér
úr yfirliðinu var kona að
nudda á mér fætuma til
að fá blóðrásina af stað.
Ég heyrði að hún sagðist
vera að fara vestur á
Reykhóla að vinna sem
nuddari á heilsubótar-
dögum þar. Mér fannst ég
fá þama ákveðin skila-
boð. Nú þyrfti ég að fara
á heilsubótardaga og
byggja mig upp og skoða
minn gang. “
reyna að mótmæla. I dag eru viðtöl
orðin allt önnur og oft og tíðum
áhugaverð og skilja eitthvað eftir
hjá lesandanum. Ég man til dæmis
hvað ég fékk mikil viðbrögð þegar
ég sagði frá því að ég færi iðulega
til sálfræðings og fengi stuðning og
hjálp við ýmis mál sem ég væri að
kljást við. I dag þykir það ekki
fréttnæmt að nýta sér sáífræðiað-
stoð. Að fara til sálfræðings er eitt
af því besta sem ég hef upplifað, þó
það sé stundum erfitt. Ég mæli með
því, við erum svo lokuð þjóð að við
þurfum á því að halda."
- Eitt sinn las ég viðtal þar sem
þú sagðist hafa gengið fram af þér
við vinnuna á Stöð 2?
„Já og ekki bara þar. Ég er
alltaf að reyna að vinna í því að
verða ekki svona heltekin af vinn-
unni. Og það má eflaust flokka
þetta undir vinnuflkn, það er að
segja, ég verð að passa mig á því að
keyra mig ekki í kaf og klára öll
batteríin og varabatteríin! Ég er
búin að vera að skoða þetta vanda-
mál mitt og lengi vel setti ég þetta
*/T " 'Ií * jjjp ' : J
'."’J X Á
11 4bUbl ÆgB Bn I
fj ijjgBffi Æ8m
/f.
Valgerður Matthíasdóttir er betur þekkt sem Vala Matt. dvmynd þök
„Ég nenni ekki að setja mig í gagnrýnandastöðuna. Þaö er nóg af slíku „harðlífisliði. “ Ég er mjög hrifnæm og finnst mjög gefandi að miðla því sem hrífur fólk og heillar og nánasta umhverfi
fólks getur veriö áhugavert á svo margan hátt. “