Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Side 46
a*______
Tilvera
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
I>V
Silfurbergsnáman á Helgustöðum opnuð fyrir ferðamenn:
- Stærstu kristallar í heimi
- sá stærsti er sagður hafa vegið 300 kíló
Erfiö aökoma
Mikill snjór er í botni gjótunnar framan viö námuopið og bráönar hann sjaldn-
ast fyrr en í ágúst.
Eitt af þeim verkefnum sem á að
laða fleiri ferðamenn að Fjarðabyggð
er uppbygging og endurreisn gömlu
silfurbergsnámunnar við Helgustaði í
Reyðarfirði og aðgengi að henni. Úr
silfurbergsnámunni komu á sínum
tíma stærstu kristallar þessarar teg-
undar sem fundist hafa í heiminum.
Áreiðanlegar heimildir eru fyrir því
-^yHð sá stærsti hafi vegið um 300 kíló og
fannst hann um 1870. Þessi steinn er
nú á Museum of Natural History
London, þangað sem hann var seldur.
Eftirsótt í smásjár
Fyrst er vitað um töku silfur-
bergs úr námunni 1668 en þá sendi
Friðrik 3. Danakonungur stein-
höggvara til íslands sem átti að
starfa við töku silfurbergs á Helgu-
stöðum í eitt misseri. Ári síðar
uppgötvaði danskur náttúrufræð-
ingur og læknir, Rasmus Bartólín,
hið einstaka tvöfalda ljósbrot í silf-
urberginu sem gerði það eftirsótt
og verðmætt í margvísleg tæki til
rannsókna, eins og t.d. í smásjár.
__ Um 1850 hófst mikil vinnsla við
hámuna en það var danskur kaup-
maður á Seyðisfirði, Thomsen að
nafni, sem fékk leyfi tO vinnslunn-
ar. Leiguréttur á námunni var síð-
an í höndum nokkurra aðila og er
vitað að á árunum 1862 tfi 1872
voru greiddir tO danska ríkisins
100 dalir í ársleigu. Árið 1879 varð
jörðin Helgustaðir eign Landssjóðs
íslands samkvæmt löggjöf sem sett
var til að hindra að útlendingar
gætu auðgast á íslenskum auðlind-
um. Upp úr 1880 var vinnslan úr
--mámunni á kostnað Landssjóðsins
en eftir taprekstur nokkurra ára
var náman leigð ýmsum athafna-
mönnum.
Námuverkfræðingur tíl starfa
Árið 1920 hófust framkvæmdir
við námuna sem stuðluðu að frek-
ari vinnslu og nú undir stjórn ís-
lensks manns sem lokið hafði námi
í námuverkfræði. Byrjað var á því
að sprengja lárétt göng inn i berg-
ið svo auðveldara væri að komast
aö æðum silfurbergsins og jafn-
framt tO að fjarlægja önnur jarð-
efni. Við þetta mynduðust stórir
haugar af grjótmulningi rétt neðan
við námuna og var í þeim mikið af
sOfurbergsmolum. Gestir og gang-
andi tíndu sér þama mola í mörg
ár.
Sjálf náman var 30-40 metrar að
ofan og 10 metra djúp fjallsmegin.
Inni i botni námunnar sjávarmeg-
in voru 60-70 metra löng göng og
eftir botni þeirra lágu jámteinar
þar sem efnið var flutt á vögnum
úr námunni.
Húðað með rosta
Síöast var unnið í námunni
Mulningsvélin
Síöast var unniö í námunni
1947-1948 og var þá tekinn svo-
kallaður rosti og hann mulinn niöur í
salla á staönum. Eru þarna enn leif-
ar af þeim vélþúnaði sem notaöur
var viö námuna.
1947-1948 og var þá tekinn svokall-
aður rosti og hann mulinn niður í
ScOla á staðnum. Eru þama enn
leifar af þeim vélbúnaði sem notaö-
ur var við námuna. Rosti var m.a.
notaður til húðunar á hús ásamt
fleiri bergtegundum og er Þjóðleik-
húsið m.a. húðað með rosta úr silf-
urbergsnámunni á Helgustöðum
Hin síðari ár hefur námuholan
skemmst vegna hruns og mikið af
jarðvegi hefur runnið tO og er nú
ekkert sýnOegt af silfurbergsæðun-
um sem vom vel sýnOegar fram
yfir 1960. Náman var friðlýst árið
1976. Eins og sagt var í upphafi
hafa forsvarsmenn Fjarðabyggöar
mikinn hug á að opna námuna að
nýju. í sumar er fyrirhugað að
ganga frá bfiastæöum við veginn
neðan námunnar og mun Vega-
gerðin sjá um þá hlið málsins og
jafnframt að setja upp upplýsinga-
skfiti þar sem segir frá námunni.
Fjarðabyggö ætlar að ganga frá
göngustíg frá þessum bílastæðum
og upp að námunni. Miðað er við
stíg með hvfidarpöfium með reglu-
legu mfilibOi þannig að sem fiest-
um ætti að vera fært að ganga upp
að námunni. Þá verður komið upp
upplýsingaskiltum við námuna
með ítarlegri upplýsingum en
þeim sem verða við veginn.
Einstök saga
Stefnt er að því að þessum fram-
kvæmdum loknum að fá leyfi Nátt-
úruverndar ríkisins tO að opna
námuna að nýju og hafa hana tO
sýnis og samflétta hana inn í söfn-
in í Fjarðabyggð þannig aö þetta
verði eitt „útibú“ þeirra og hluti af
sýningum hvers árs en í Fjarða-
byggð eru náttúrugripascifn í Nes-
kaupstað, sjóminjasafn á Eskifirði
og stríðsárasafn á Reyðarfirði og í
sumar verður byrjað á að setja upp
Sögu- og smiðjusafn Jósafats Hin-
rikssonar í Neskaupstað. Saga
námunnar er einstök í íslandssög-
unni og það er þess virði að kynna
hana á ný. -EG
Freisting skíðamannsins;
Austfirsku alparnir
Brekkurnar vlö Oddsskarð
Skíöamiöstööin í Oddsskaröi hefur aösetur í rúmgóöum skála. Þar er svefnpokaþláss fyrir allt að 35 manns í einu og
aö auki þjóöa Austfiröingar upþ á fjölbreytta gistingu á fjöröunum.
í skarðinu á mOli Eskifjarðar og
Norðfjarðar luma Austfirðingar á
skíðaparadís. Þeir hafa ekki hátt
um þetta leyndarmál, en leika sér
sjálfir daglangt í fiölbreyttum
brekkum Oddsskarðs yfir vetrar-
tímann og njóta góðrar aðstöðu í
•^stórkostlegu austfirsku landslagi. í
Oddsskarði hafa menn langa
reynslu af rekstri skiðasvæðis því
fyrsta lyftan þar var tekin í notkun
árið 1979.
Greinarhöfundur hélt ásamt fleiri
forföllnum skiðamönnum á vit
Austfirsku alpanna um páska og
kom þessi skíðaparadís þægOega á
óvart. Margt gesta var á svæðinu og
höfðu menn ýmist aðsetur á fiörð-
unum eða á Héraði. Ef ekki viðraði
til skíðaiðkunar í Oddsskarði var
hægt að bregða sér á skíðasvæði
Seyðfirðinga í Stafdal.
Ein lengsta skíðabrekkan
Frá Eskifirði og Norðfirði er að-
- eins nokkurra mínútna akstur upp í
Oddsskarð og þar eru þrjár góðar
toglyftur. Skíðamiðstööin i Odds-
skarði hefur aðsetur í rúmgóðum
skála á hægri hönd þegar ekið er í
áttina til Norðfiarðar. Þar er hægt
Kaupmannahöfn
Góð gisting,
á besta stað.
^Í^MILY Hor^
*“ Valberg
Síml +45 33252519
ísl. símabókanir milli kl. 8 og 14.00.
| Fax +45 33252583
www.valberg.dk
\é » Net tilboð
> —
að fá gistingu í svefnpokaplássi fyr-
ir áfit að 35 manns í einu og að auki
bjóða Austfirðingar upp á fiöl-
breytta gistingu á fiörðunum.
Tvær toglyftur eru í skarðinu fyr-
ir vanari skíðamenn - samfelld tæp-
lega 1260 metra lyfta. Farið er af
stað með neðri lyftunni úr 513
metra h.y.s. og þegar komið er upp
á topp er skíðamaðurinn kominn í
840 metra hæð. Þama er því ein af
lengstu samfelldu skíðabrekkum
sem völ er á hérlendis fyrir vana
skíðamenn og kallast hún Goða-
braut. Auk þess er hægt að velja sér
auðveldari leiðir eftir Selbraut, nið-
ur gil og léttari bakka í skarðinu.
Vegna þessa hefur skíðasvæðið i
Oddsskarði verið viðurkennt af FÍS,
Alþjóða skíðasambandinu, og hefur
leyfi til að halda alþjóðleg skiðamót.
Hinum megin þjóðvegar er Sól-
skinsbraut, löng og aflíðandi brekka
þar sem gott er fyrir byrjendur að
athafna sig. Þar er líka nýleg lyfta
sem tekin var í notkun veturinn
1999. Hægt er að renna sér frá aðal-
svæðinu yfir í Sólskinsbraut og ligg-
ur sú leiö yfir mynni Oddsskarðs-
ganga.
Á austfirskum góðviðrisdegi er
útsýni úr efstu brekkum engu líkt.
Þaðan sést vítt yfir firði og fiöll.
Ógleymanlegt er að skíða með slíka
fegurð í fangið niður brekkur Odds-
skarðs.
Páskaeggjamót og þoturall
Hörðustu kempur, sem ekki
höfðu fengið nóg eftir langan skíða-
dag, renndu sér í kvöldsólinni á
milli fialla, niður í Oddsdal og út í
Norðfiarðarsveit þar sem ferðafélag-
ar hirtu þá upp við þjóðveginn.
Mikið var um dýrðir hjá aust-
firskum skíðamönnum yfir pásk-
ana. Hið árlega Oddsskarðsmót var
haldið ásamt Austurlandsmóti. Að
auki var haldið páskaeggjamót fyrir
yngstu kynslóðina í Sólskinsbraut.
Yngstu keppendur voru vart meira
en tveggja ára gamlir, en tóku þó
þátt í samhliðasvigi með dyggri aö-
stoð vandamanna og fengu að laun-
um páskaegg. Þann dag komu
einnig nokkrir skíðamenn spari-
klæddir í skarðið og kipptu skiða-
kappar sér ekkert upp við að sjá
frakkaklædda herramenn með hatta
á skíðum eða litla pottorma í
strápilsum. Árlegt þoturall var hald-
ið í brekkunni fyrir neðan skálann,
en þar reyndi á hugmyndaflugið því
keppendur máttu renna sér á öllu
öðru en hefðbundnum snjóþotum.
Vaskaföt, bílaferöakistur og gúmmí-
bátar þóttu henta ágætlega í
þoturallinu ásamt öðru smálegu
sem finna mátti til i bílskúrum og
geymslum. Austfirðingar og gestir
þeirra tóku líka lagið viö skálann og
hljómsveitin Buttercup, sem sá um
fiörið i Egilsbúð um páskahelgina,
tók létta sveiflu í skarðinu.
Selir hafa hamsklpti
Aðkomufólk skynjaði sterkt að
fyrir Austfirðinga og Héraðsbúa er
Oddsskarð meira en skiðastaður
um páska. Fjöldi fólks kom saman
til þess eins að hittast og njóta veð-
urblíðunnar. Stólar og borö voru
við annan hvem bíl, kafFibrúsar á
lofti og ofurstórir kleinukassar
opnir fyrir gesti og gangandi.
páskadagskrá Fjaröabyggðar var
þéttskipuð. Litlar manneskjur dáð-
ust að blöðrusel, flækingsfuglum
og merku steinasafni á Náttúru-
gripasafninu, fullorðnir skemmtu
sér hið besta á Bítlakvöldi í Egils-
búð þar sem tónelskir heimamenn
fóru í föt fiórmenninganna fræknu
með glæsilegum árangri. Kóratón-
leikar voru i Eskifiarðarkirkju og
klukkan sex á páskadagsmorgun
stóð Ferðafélag Fjarðamanna fyrir
morgungöngu í Páskahellinn,
skammt utan við Neskaupstað. TO-
gangur göngunnar var aö sjá sólar-
uppkomuna og kannski líka sólar-
dansinn - tilkomumikinn undan-
fara sólarupprásarinnar þegar sól-
in fagnar upprisu frelsarans. Leið-
sögumaður sagði sögu Páskahellis-
ins sem byggist á þekktri þjóðtrú
um seli sem höfðu hamskipti,
gengu á land á hátíðum og stofn-
uðu til gleðileika. Einu sinni í
fyrndinni, á páskadagsmorgun
náði bóndasonurinn á Bakka sels-
ham svo stúlkan sem átti haminn
slapp ekki aftur í sjóinn. Hann
kvæntist stúlkunni, átti með henni
sjö böm, en svo fann hún selsham-
inn og flúði til sins heima.
Fjarðabyggð hefur löngum þótt
einstakur ferðamannastaður að
sumarlagi og Austfirðingar ávallt
höfðingjar heim að sækja, og hitt
má ljóst vera að þar eystra er sann-
kölluð vetrarparadís um páska
þegar veðurguðirnir leika við
hvum sinn fingur.
-KHG