Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Side 58
66
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
Tilvera r>V
1 í f iö
E F T I R V I N M IJ
Brúðarsýning á
Akureyri
Á brúðarsýningu í Toyotahús-
inu Akureyri verður sýnt það
nýjasta í brúðarvöndum, skreyt-
ingum, kjólum, hárgreiðslu og
förðxm, jafnframt nýjustu brúð-
arbílunum frá Toyota. Sýningin
stendur frá kl. 12-18.
Klassík
■ SONGTONLÉIKAR T SÁLNÚM
Þóra Einarsdóttir sópran og Jónas
Ingimundarson píanóleikari halda
. tónleika í Salnum kl. 17.
í ■ VORTÓNLEIKAR VOX
ACAPEiyilCA verða I
Seltjarnarneskirkju á morgun, 13.
maí, kl. 17. Stjórnandi er Hákon
Tumi Leifsson. Frumflutt veröur verk
eftir Atla Heimi.
■ TÓNLEIKAR í BORGARNESI
Viöar Guömundsson píanóleikari og
Halldóra Björk Friöjónsdóttir
söngkona koma fram á
útskriftartónleikum Tónlistarskóla
; Borgarfjarðar í Borgarneskirkju á
"j>-morgun, sunnudaginn 13.5., kl. 17.
i Leikhús
■ MEÐ FULLA VASA AF GRJOTI
eftir Marie Jones verður sýnt á
' aukasýningu í dag kl. 16 á Stóra
' sviöi Þjóöleikhússins.
■ SKÁLDANÓTT eftir Hallgrim
Helgason verður sýnd á Stóra sviöi
' Borgarleikhússlns klukkan 19 í
kvöld. Nokkur sæti laus.
■ BALL Í GÚTTÓ Leikfélag Akureyr-
ar sýnir í kvöld klukkan 20 leikritið
Ball í Gúttó eftir Maju Árdal.
f Kabarett
} ■ VORHATH) SIÐUSKOLA 2001 Ar
s leg Vorhátíö Síöuskóla er í dag og
- .hefst kl. 12.30 meö andlitsmálun.
Skrúðganga hefst kl. 14.00.
■ FLÓ OG FJÓR Flóamarkaöur
veröur í risatjaldi viö íþróttahúsiö
> viö Varmá í Mosfellsbæ. í kvöld
verður risadansleikur Gildrunnar og
rokkarans Eiríks Haukssonar í
tjaldinu.
■BARÐSTRENDINGAR SYÐWA
Baröstrendingafélagiö heldur
skemmtun í Hamraborg 11 (í gamla
Þinghól, uppi) kl. 10 í dag.
■ FLÓAMARKAÐUR í
BORGARTUNI Rugfrevlur og
flugþjónar Fluglelöa halda
flóamarkaö aö Borgartúni 22, efstu
hæö, frá kl. 10-18 í dag og á
« morgun. Ágóöinn rennur til
' krabbameinssjúkra barna.
* Opnanir
■ ANNA Þ. I MAN Anna Þ. Guö-
jónsdóttir opnar í dag kl. 16 sýningu
á málverkum sýnum i Ustasal Man,
Skólavörðustíg 14.
■ JÓN GÍSLASON í GAMLA LUNPI
Yfirlitssýning á myndlist Jóns Gísla-
sonar húsasmiös verður opin í
y Gamla Lundi á Akureyri í dag og á
s morgun frá kl. 14-18.
*
■ SVANAVATN Á SUNNUPÖCUM
Lýöur Sigurösson opnar í dag mál-
i verkasýningu í baksalnum í Gallerí
Fold, Rauöarárstíg 14-16. Sýning-
>una kallar hann Svanavatn á sunnu-
dögum.
■ ÍSLENSKI HESTURINN í LUNPI
Einar Gíslason opnar sýningu á
vatnslitamyndum í ash Gallerí Lundi
í Varmahlíö í dag kl. 14. Myndefniö
er íslenski hesturinn.
SJá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Sævar
skrifar
Skákþátturinn
ið er að það gátu engir fengið svona
stöðu upp á móti Capa nema Bot-
vinnik og það aöeins einu sinni,
S.B.) 30. Ba3!!!!! Ég veit að það er
ekki hægt að gefa svona margar
upphrópanir. (Aðeins þú getur það,
Siggi Dan.) 30. - Dxa3 Á hvítur
ekki bara að gefa strax? Lék hvítur
af sér manni? 31. Rh5+ Þetta er
ekki skák fyrir byrjendur, það er
víst ábyggilegt. 31. - gxh5 32. Dg5+
Kf8 33. Dxf6+ Kg8 34. e7! AUir
aðrir hefðu fallið I gildruna? 34. -
Dcl+ Lokadansinn 35. Kf2 Dc2+
36. Kg3 Dd3+ 37. Kh4 De4+ 38.
Kxh5 De2+ 39. Kh4 De4+ 40. g4
Del+ 41. Kh5 1-0. Það er eins gott
að hafa hjartað í lagi þegar svona
skák er skoðuð.
Snillingurinn Capablanca
Mig hefur oft langað til að skrifa
um snillinginn José Raul Capablanca
sem ég hér eftir nefni gælunafni hans,
Capa, í þessari grein. Hann fæddist
1888, eða 4 árum áður en þeir Steinitz
(fyrsti heimsmeistarinn) og Tchigorin
tefldu eitt af einvígjum sinum í
Havana um heimsmeistaratitilinn.
Faðir Capa var hermaður og segja
sagnir að Capa hafi lært að tefla 4 ára
með því að horfa á fóður sinn tefla við
bróður sinn og leiðrétta þá þegar ann-
ar þeirra lék ólöglegum leik. Ekki
ætla ég að rengja þessa gömlu þjóð-
sögu en líklegt er að heimsmeistara-
einvígið 1892 hafi kveikt áhugann á
skákinni beint eða óbeint.
1901 þegar Capa var 12 ára vann
hann sterkasta skákmann Kúbu,
Juan Curzo, í einvígi með 4-3 og 6
jafntefli. 1904 varð hann svo í 4. sæti
á sínu fyrsta kúbverska meistara-
móti en bróðir Curzo, Enrico, varð
efstur. 1904 hélt hann svo tO New
York og lauk menntaskólanámi. 1906
innritaðist hann í háskóla og ætlun-
in var að læra efnaverkfræði en
skákgyðjan hafði náð heljartökum á
honum og hann hélt að mestu til í
Manhattan Chess Club og tefldi öll-
um stundum, m.a. við þáverandi
heimsmeistara, Emanuel Lasker sem
var heimsmeistari nr. 2. Capa hefur
eflaust lært mikið og óneitanlega
minnir þessi atgangur á Robert
James Fischer 55 árum síðar.
1908 komust velunnarar hans að
því að ungi maðurinn sem þeir höfðu
kostað í háskóla í New York væri
lagstur í skák og hættu öOum fjár-
hagslegum stuðningi við hann. Þá
var ekki annað að gera fyrir Capa en
að gerast atvinnumaður í listinni sér
til lífsviðurværis. Hann mátaði
Bandaríkjamenn tO hægri og vinstri
næstu árin og 1911 vann hann síðan
mjög sterkt mót í Mexíkó í San
Sebastian og skoraði á Lasker heims-
meistara í einvígi. Lasker tók ekki
Ola í það en samningar strönduðu á
fjölda skáka, Lasker vOdi að sá ynni
sem fyrst ynni 6 skákir og vildi ekki
hafa þær fleiri en 30. Það gat Capa
ómögulega samþykkt. Þeir tefldu svo
loks einvígi 1921, tíu árum síöar, en
fyrri heimsstyrjöldin setti strik í
reikninginn.
Giftlst ráherradóttur
Eftir þessar samkomulagstOraun-
ir 1911 hélt Capa tO Kúbu og festi ráð
sitt. Stúlkan var ráðherradóttir og í
september 1913 fékk Capa titOinn
„Sérstakur ambassador Kúbu um
heim allan“, hvorki meira né minna.
Þetta hafði aðaUega þau áhrif að fjár-
hagsáhyggjur Capa í framtíðinni
hurfu eins og dögg fyrir sólu. Upp á
trúlofunina var haldið með skákmóti
að sjálfsögðu, Capa vann mótið en
tapaði einni skák á móti Bandaríkja-
manninum skemmtOega, Frank
MarshaU. Hann krafðist þess að
borgarstjórinn í Havana sæi tO þess
að enginn væri í salnum þegar hann
gafst upp og fékk það í gegn. Líklega
varð borgarstjórinn að loka dyrun-
um á eftir sér.
1914 var hann svo kominn tU
Sankti Pétursborgar í Rússlandi og
tefldi þar í einu sögufrægasta móti
allra tíma. Lasker vann mótið eftir
að hafa lagt Capa en hann varð í
José Raul Capablanca
Einn mesti snillingur skáksögunnar.
öðru sæti. Keisarinn Nikulás 0 út-
nefndi 5 efstu stórmeistara í skák og
þannig kom sá titOl tU sögunnar.
Þeir Lasker og Capa lögðust í samn-
inga um heimsmeistaraeinvígi en
stríðið og síðan byltingin 1917 brut-
ust út og skákmenn máttu sín litUs
gegn faUbyssum og héldu tO síns
heima. Lasker hélt tO Berlínar og
fjárfesti allar eigur sínar í þýskum
stríðsskuldabréfum - svona eftir á
séð ekki hyggileg ráðstöfun. Capa
hélt tO New York og tók tO við fyrri
iðju, að máta Bandaríkjamenn. 1916,
í þeirri ágætu borg, tapaði hann svo
skák fyrir Chajes nokkrum.
Tapaði ekki skák í átta ár
Næstu átta árin tapaði hann svo
ekki skák og menn voru farnir að
trúa því að hann væri ósigrandi -
jafnvel að hann hefði gert samkomu-
lag við hann í neðra. 1920 gaf Lasker
svo eftir heimsmeistaratitOinn í
bréfi tO Capa sem hafnaði því auð-
vitað! Hann fékk félausan Lasker tU
að koma til Havana og 15. mars 1921
hófst einvígið. Verölaunaféð var
25.000 dollarar í guUi og Lasker átti
að hljóta 13.000 doUara hvort sem
hann tapaði eða vann. Lasker var
niðurbrotinn maður eftir stríðið og
Capa á hátindi sínum sem eftirlæt-
iselskhugi skákgyðjunnar Caissu og
vann einvígið örugglega með 4 vinn-
ingum á móti engum - 10 jafntefli.
Lasker hætti og gaf einvigið vegna
þess að hann vissi að þetta var þýð-
ingarlaust. Þar með varð Capa þriðji
heimsmeistarinn í skák.
Einhvers staðar í mUlitíðinni
hafði Capa glatað ástum sínum á
ráðherradótturinni og taldi óhætt að
gifta sig aftur í desember 1921, án
þess að eiga það á hættu að afbrýð-
isöm kona og stoltur ráðherra á
Kúbu biði mikinn hnekki. En ráð-
herrann sá við honum og lækkaði
hann í tign. Hann var ekki sendi-
herra Kúbu um heim aUan heldur
var hann gerður að „Commercial
Attaché" og þóttist nokkuð hólpinn
með þau málalok. Næstu árin voru
ár glæstra sigra og það var ekki fyrr
en á öðru sögufrægu móti, stórmót-
inu í New York 1924, að Capa tapaði
skák gegn Tékkanum Richard Reti,
miklum snOlingi og hugsuði i skák-
inni, og þetta tap varð til þess að
Lasker gamli rændi af honum efsta
sætinu. En heimsmeistaratitilinn
hafði hann og hann lék meira að
segja í kvikmynd í Moskvu 1925,
„Chess fever“. Það var um það leyti
að fögur leikkona bauð honum upp í
skák og svarið var nokkuð hroka-
fuUt: „Því skyldi ég gefa þér ókeypis
auglýsingu?" Hann lenti i 3. sæti á
Moskvumótinu - kvikmyndaieikur
og skák fara greinUega ekki saman.
Einvígi í lokuðu herbergi
í september 1927 settist hann svo
niður á móti Alexander Aljekin í Bu-
enos Aires og heimsmeistaratitUlinn
var í veði og verðlaunapotturinn var
10.000 doUarar í gulli. Einvígið á
miUi Capa og Aljekin var teflt í lok-
uðu herbergi, engir áhorfendur og
engir ljósmyndarar (ertu að lesa,
Guðmundur G. Þórarinsson?). í lok
nóvember lauk einvíginu og Aljekin
hafði teflt betur og vann 6-3 og 25
jafntefli. Byrjunin i 32 af 34 skák-
anna var hefðbundið drottningar-
bragð. (Besta skák Fischers gegn
Spasski í Reykjavík 1972 var einmitt
hefðbundið drottningarbragð, 6.
skákin.) Næstu ár voru að mestu ár
sigra því Aljekin tefldi aðeins á örfá-
um mótum þar sem Capa var þátt-
takandi.
Capa reyndi mikið að fá einvígi
við Aljekin sem ávallt krafðist 10.000
doUara verðlaunasjóðs í guUi. En
heimskreppan gekk í garð 1929 og
stuðningsmenn Capa fóru því miöur
Ula út úr verðbréfahruninu í WaU
Street. Capa fékk aldrei annað tæki-
færi þó að hann sýndi og sannaði oft
að það átti hann að fá. FerUl hans
var einkar glæsUegur, hann tefldi
567 kappskákir í lífi sínu og tapaði
aöeins 36 skákum, flestum á móti
sterkustu skákmönnum heims. Hann
átti aldrei tafl heima hjá sér og hann
var mesta náttúrubam í skák sem
skákheimurinn hefur eignast!? 1939
tefldi hann á Ólympíuskákmótinu í
Buenos Aires þar sem íslendingar
unnu sögufrægan sigur í B-riðli.
Capa náði besta árangri á fyrsta
borði með 7 sigrum og 9 jafnteflum.
Síðan kom stríðið og Capa og Lasker
héldu tU New York. Lasker dó þar
1941 og Capa fékk hjartaslag í Man-
hattan Chess Club 1942 þar sem
hann var að fylgjast með hraðskák.
Hann dó á sama sjúkrahúsi og
Lasker, Mount Sinai-sjúkrahúsinu.
Eftirfarandi skák var tefld á
miklu stórmeistaramóti í Hollandi
skömmu fyrir stríð.
Hvitt: Michail Botvinnik
Svart: José Raul Capablanca
Nimzo-indversk vöm.
Sámisch-afbrigðið. Avro-mótið 1938
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
e3 d5 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7.
cxd5 exd5 8. Bd3 0-0 9. Re2 b6 10.
0-0 Ba6 11. Bxa6 Rxa6 12. Bb2
Dd7 13. a4 Hfe8 14. Dd3.
Þetta þykir nokkuð hefðbundin
taflmennska enn i dag enda ekki
leiðum að líkjast. Er einhver að
berjast fyrir jafntefli! 14. - c4 15.
Dc2 Rb8 16. Hael!! Rc6 17. Rg3
Ra5 18. f3 Rb3 Þvilikur fluttning-
ur! Og tímafrekur. 19. e4 Dxa4 Peð
er peð. 20. e5 Rd7.
Svona leika aðeins gáfnaljós.
Hvers vegna? 21. Df2!!! g6 22. f4 f5
23. exf6 Rxf6 24. f5 Vá, vá! 24. -
Hxel 25. Hxel He8 26. He6! Hxe6
27. fxe6 Kg7 28. Df4 Hótar hverju?
28. - De8 29. De5 De7.
Einhver frægasta staða skáksög-
unnar! Was nun, meine Herren?
Svona á ekki að vera hægt. (Sumir
skákmenn halda því fram að fléttan
sé ekki erflð. Kannski, en aðalatrið-
Áttræöur á
grásleppu
DV, AKRANESI:________________________
Mjög góð grásleppuveiði hefur
verið hjá veiðimönnum sem stunda
veiðar frá Akranesi en um helgina
var lítil veiði. Þeir Ríkharður Sæ-
mundsson, 80 ára, og Fjalar sonur
hans á Sæma AK 13 voru að koma
úr róðri þegar DV ræddi við þá.
Þeir sögðu að veiðin hefði verið góð
að undanförnu en nú væri komin
bræla og þari í netin. Þeir voru að-
eins með 50 kg af hrognum og sögð-
ust hafa tekið upp netin þar sem
spáð væri vestanátt en þeir voru
ánægðir með afraksturinn hingaö
til.
Þónokkrir eldri kallar stunda grá-
sleppuveiðar á Akranesi, svo sem
Skarphéðinn Árnason sem er 77 ára
og er kominn með yfir 2 tonn af
hrognum og er með 300 net og Gisli
Teitur Kristinsson sem verður 80
ára í ágúst. Þeir slá ekki af þó þeir
séu hátt á áttræðisaldri. -DVÓ
DVA1YND DANÍEL V. ÓLAESSON
Lætur ekki deigan síga
Ríkharöur Sæmundsson á Sæma Ak 13, áttræöur og í fullu fjöri.