Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Síða 59
A Ti/
cr fTUOAQHÁölTÁxI
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
I>V
Tilvera
Dagur slagverksins í Geröubergi:
Búmm, Krass, Bang
,';r a
Bamboozled
Grafalvarleg kómík
Spike Lee hefur 1
gegnum tíðina verið
sá leikstjóri sem
skotið hefur hvað
fóstustum skotum
að hvíta kynstofnin-
um. Oft á tíðum
tekst þetta mjög vel
og reiði hans skilj- _____________
anleg. Stundum á
hann þó til að fara offari, eins og í
Bamboozled, þar sem hann dælir úr
vélbyssu sinni á þá sem ráða sjón-
varpi og segir óbeinum orðum að þeir
hafi gert svarta skemmtikrafta að fifli.
Þetta reynir hann að gera á kómískan
hátt en í þetta skiptið hitta brandar-
arnir ekki í mark og því verður ádeil-
an, sem örugglega á að mörgu leyti
rétt á sér, frekar þreytandi þegar til
lengdar lætur.
Myndin gerist á sjónvarpsstöð. Dag-
skrárstjórinn (sem að sjálfsögðu er
hvítur) er að missa allt niður um sig;
enginn horfir á gamanþætti hans.
Honum dettur því það snjallræði í
hug að fá svörtum aðstoðarmanni sín-
um, Pierre, það verkefni að gera gam-
anþátt þar sem eingöngu svartir
skemmtikraftar koma við sögu. Pierre
hefur gengið vel í starfi og þykir
snjall. Hann er því fyrst og fremst að
hugsa um sinn frama þegar hann fær
þá hugmynd að gera grínþátt sem
byggður er á gömlum skemmtiþáttum
þar sem hvítir voru málaðir svartir
og gerðir að aumkunarverðum figúr-
um. Breytingin er að nú eiga svartir
að gera svarta að fiflum. Eins og
nærri má geta eru ekki allir sáttir við
þetta og eru afleiðingamar hörmuleg-
ar.
Spike Lee er mikill fagmaður og
hugmyndaríkur og margt er vel gert
og leikur allur til fyrirmyndar en þeg-
ar á heildina er litið þá er Bamboozled
skot yfir markið. -HK
Útgetandi: Myndform. Leikstjórn og
handrit: Spike Lee. Leikarar: Damon Wa-
yans, Savio Glover, Jada Pinkett-Smith.
Bandaríkin, 2000. Lengd: 135 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Fist of Legend ★★
f ísr af
LEGEIMD
Slagsmálasnilld
Nýjasta kvik-
myndastjarnan frá
Hong Kong, sem
Hollywood hefur
tekið upp á sína
arma, er Jet Li sem
þegar hefur vakið
miklá athygli í
tveimur bandarísk- ______________
um kvikmyndum,
Lethal Weapon 4 og Romeo Must Die.
Li, sem er ekkert unglamb lengur,
orðinn fertugur, á að baki glæsilegan
feril í kínverskum spennumyndum og
er jafnoki Jackie Chan í slagsmálum
en var ávallt í skugga hans. Vegna
frægðar Lis í dag hefur rykið verið
dustað af nokkrum eldri mynda hans.
Fist of Legend, sem er frá árinu 1994,
er talin með betri Hong Kong-spennu-
myndum og er vel þess virði að skoða
hana þó hún höfði vissulega ekki til
annarra en þeirra sem hafa gaman af
slíkum myndum, en auk góðra slags-
málaatriði þá býður hún upp á ágæta
sögu, er kvikmyndalega faglega gerð
og klippingar oft góðar.
Um er að ræða endurgerð kvik-
myndar sem Bruce Lee lék í árið 1972.
Myndin á að gerast í Sjanghæ og Jap-
an og segir frá ungum Kínverja sem
lært hefur bardagalistir hjá miklum
meistara. Þegar meistari hans er
myrtur snýst reiöi hans gegn japönsk-
um drottnurum (myndin á að gerast
þegar Japanar ætluðu að leggja Kína
undir sig) og það eina sem kemst að í
huga hans er hefnd. Þegar svo kemur
að því að hann finnur út hver bar
ábyrgð á dauða meistarans er boðið
upp á fimmtán mínútna langt slags-
málaatriði sem er fullmikið af því
góða.
-HK
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjórar:
Woo-ping Yuen og Gordon Chan. Leikar-
ar: Jet Li, Paul Chiang, Siu-hou Chin og
Ada Chai. Kínversk, 1994. Lengd: 98
mín.Bönnuö börnum innan 16 ára.
„Við erum að þessu fyrir fólk sem
hefur þörf fyrir að koma róti á til-
finningalíf sitt enda höfum við orð-
ið mjög varir við þá þörf!“ segir Pét-
ur Grétarsson slagverksleikari
glettnislega og bætir við: „Þetta er
hin hliðin á slökunartónlistinni!"
Hér er hann að vísa til þess að á
sunnudaginn gefst almenningi tæki-
færi til að kynnast heimi slagverks-
ins í sinni fjölbreyttustu mynd í
Gerðubergi. Þá er dagur slagverks-
ins og yfirskriftin er Búmm, Krass,
Bang.
Pétur verður í aðalhlutverki á
tónleikunum, ásamt þeim Steef van
Oosterhout, Eggert Mássyni og
Snorra Sigfúsi Birgissyni. „Við
erum slagverkshópurinn Benda sem
hefur verið hálfgert í felum til
þessa,“ segir hann og vill auk þess
undirstrika að með Bendu komi
fram fleiri valinkunnir listamenn,
þau Tena Palmer, Herdís Jóndóttir,
Frank Aarnink og Matthías MD
Hemstock.
Herma eftir rigningu
„Slagverkið hefur mikla mögu-
leika í -túlkun," segir Pétur og nú
hefur gáskinn þokað fyrir alvör-
unni. „Það er þessi roknahávaði
sem flestir setja í samband við slag-
verk og er vissulega einn af notkun-
armöguleikum þess en svo er hin
hiiðin, þessi þýða og lagræna sem
við spilum helling af líka. Við tök-
um til dæmis rosalega fallegt jap-
anskt verk þar sem verið er að
herma eftir rigningu. Það er, eins og
krakkarnir segja, „alveg geðveikt.“
Þetta stemmir við lýsingu í frétta-
skeyti Gerðubergs þar sem ritað er:
„Á efnisskrá má heyra allt frá lág-
stemmdum tónum til ærandi fall-
byssuskothríðar. Þar munu hljóma
ævafornir dúettar fyrir pákur og
trommur, nútímaverk fyrir segul-
band og slagverk, handtrommur í
anda regnskóganna, seiðandi tónar
írsku bohdran trommunnar, ærandi
keðjusláttur, steinaspil og margt
fleira."
Dagskráin í Gerðubergi er unnin
í samvinnu við Félag íslenskra
tónlistarmanna og er framhald á
samstarfsverkefnunum Gítar í
Gerðubergi, Dagur flautunnar og
Dagur hinna djúpu strengja. Þeim
sem áhuga hafa gefst færi á aö prófa
trommusett frá Hljóðfærahúsinu í
Gerðubergi á sunnudag og verða
slagverksleikarar um stund.
Hljóðfæri, nótur og fleira tengt
slagverkinu verður einnig til sýnis
gestum og gangandi. -Gun
Karlakór
Keflavíkur
í Ymi
Karlakór Keflavíkur heldur tón-
leika i Ými, húsi Karlakórs Reykja-
víkur, Skógarhlið 20, á morgun kl.
17. Kórinn mun flytja fjölbreytta og
skemmtileg efnisskrá sem sam-
anstendur af íslenskum og erlend-
um lögum. Má þar nefna hefðbund-
in karlakóralög, verk úr óperum,
valsasyrpu og dægurlög. Frumflutt
verður lagið Heimkoman eftir
Pálmar Þ. Eyjólfsson.
Stjórnandi kórsins er Smári Óla-
son tónlistarmaður. Smári hefur
starfað sem tónlistarkennari og yf-
irkennari, organisti, kórstjóri og
sjálfstætt sem tónvísindamaður.
Undirleik á píanó annast Ester
Ólafsdóttir tónlistarmaður. Ein-
söngvarar með kórnum eru Steinn
Erlingsson, Rúnar Guðmundsson,
Smári Ólason og Sveinn Sveins-
son.
Karlakór Keflavíkur er stofnað-
ur 1. des 1953. Á þessum tíma hef-
ur kórinn sungið viða um land og
fengið góðar viðtökur. Einnig hef-
ur kórinn sungið í sjö þjóðlöndum,
bæði austanhafs og vestan. Á síð-
asta vori var farið í söngferð til
Færeyja og fékk kórinn afar góðar
móttökur.
Framleiðum 50-70 og 100 mm
stoðir úr 0,6 og 03 mm þykku efni.
Getum framleitt sérlengdir.
TIMBUR & STAL HF.
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 554 5544 • Fax: 554 5607
DV MYND HILMAR ÞÓR
Þeir elska að berja bumbur
Pétur Grétarsson, Eggert Másson og Steef van Oosterhout.
föstudag og laugardag
Sýnum OPEL og ISUZU bíla
*»ÝÍa 9i®sllega oPe/