Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Qupperneq 64

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Qupperneq 64
brother P-touch 1250 Lítil en STÓRmerkileg merkivél 5 leturstæröir 9 leturstillingar: prentar í 2 Imur borði 6, 9 og 12 mm 4 geröír af römmum Rafport Nýbýlavegi 14 Simi 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport SKALMHOLT? jSöngvakeppnin: íslendingur afhendir ^ verðlaunin ’* DV. kaupmannahöfnT Flestu því sem fram fer á úr- slitakvöldi evrópsku söngvakeppn- innar er haldið leyndu likt og um hernaðarleyndarmál væri að ræða. Þó hefur DV borist það til eyrna að íslendingurinn Siggi Martinsen komi til með að af- henda sigurvegurunum 2001 sjálf- an verðlaunagripinn. Siggi þessi er fararstjóri íslenska hópsins Two Tricky og hefur verið dugleg- ur við að kynna þeim undur Kaup- mannahafnar ásamt því að halda vel utan um hópinn. Siggi er danskur í móðurættina og býr í Kaupmannahöfn og kallar sig því ^igga. En aðspurður um hvort það ^ Væri rétt að hann kæmi til með að afhenda verðlaunin í kvöld vildi hann ekki tjá sig og vísaði á danska sjónvarpið. -MT Samið um sjö eyjar DV. STYKKISHÓLMI: __________ Fyrir nokkru auglýsti Stykkis- hólmsbær nokkrar eyjar til sölu sem höfðu verið leigðar til þessa. Á i*<4úndi bæjarráðs Stykkishólmsbæjar í gær voru lögð fram fjögur tilboð sem borist höfðu í eina eða fleiri eyjar í eigu Stykkishólmsbæjar eftir að þær höfðu verið auglýstar til sölu. Samþykkt var að selja Friðriki Jónssyni og Helga Haraldssyni Þor- móðseyjaklett, Leiðólfsey, Siglu- grím, Ljótunshólma, Loðinshólma, Freðinskeggja og Tindasker. Bæjar- stjóra var faliö að ganga til samn- inga við Símon Má Sturluson og Gest Hólm Kristinsson á grundvelli tilboðs þeirra í Hvítabjarnarey. -DVÓ FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREISEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ LAUGARDAGUR 12. MAI 2001 DV-MYND MIKAEL TORFASON Að duga eöa drepast ístensku keppendurnir 1 Evróvisjón eru tilbúnir í slaginn í kvöld. Bjartsýnustu spár reikna þeim fjórða sæti en til eru þeir sem telja þá vera í fallbaráttu. Niðurstaðan verður Ijós í kvöld. Norðlenskir skipstjórnarmenn sitja ekki fundi Ríkissáttasemjara: Klofin samtök skipstjórnarmanna tilboð í örvæntingarfullu kapphlaupi við tímann Klofningur virðist vera staðreynd í röðum yfirmanna á fiskiskipaflotan- um og ef ekki semst innan mjög skamms tíma muni sá klofningur koma fram af fullum þunga. Samn- ingamenn Skipstjórafélags Norðlend- inga mættu ekki á samningafundi Farmanna- og fiskimannasambands íslands og LÍÚ á fimmtudag og heldur ekki í gær. Stjórn Skipstjórafélagsins fundaði bæði á fimmtudag og fóstudag á Akureyri um stöðu mála og ákvað að sækja ekki samningsfundi í Reykjavík. Fram kom megn óánægja með frammistöðu samninganefnda í sjómannadeilunni. Þá höföu menn miklar áhyggjur af erfiðri stöðu for- seta Farmannasambandsins sem for- svarsmenn útgerðarmanna hafa lýst sem óhæfum. Árni Bjarnason, formaður félags- ins, segir að verið sé að fara yfir stöð- una með það í huga hvort sterkara sé að fara aðrar leiðir, og það sé kalt mat. Beðið sé niðurstöðu sáttafundar hjá Ríkissáttasemjara en stöðugt fleiri hallist að því að ekki sé langur timi til stefnu og ekki mörg tromp í spilun- Grétar Mar Jónsson. Sævar Gunnarsson. um. Arni segir að hvort og hvenær ár- angur næst ráði því hvort félagið kljúfi sig út úr samflotinu með FFSÍ og fari fram á samningaviðræður beint við Landsamband íslenskra út- vegsmanna. DV hefur heimildir fyrir því að Norðlendingarnir hafi farið fram á það við Vélstjórafélagið að fá að fylgj- ast með kynningarfundum þeirra um samninginn sem þeir gerðu til þess að fá upplýsingar um vélstjórasamning- inn frá fyrstu hendi. Þannig sátu tveir fulltrúar félagsins fund vélstjóra á Ak- ureyri. „Við erum þolinmóðir en ekki í það óendanlega enda orðnir hundleiðir á þessu. Við viljum fara að sinna okkar vinnu á sjó. Það er ekki að heyra að það sé neitt að gerast við samninga- borðið,“ segir Árni Bjarnason. Grétar Mar Jónsson, forseti FFSÍ, sagði síðdegis í gær vona að það væri að bresta á samningur. Grétar segist ekki vita hvort heimaseta Norðlend- inga séu mótmæli við gang mála. „Árni Bjarnason ætlaði að koma á þennan samningafund í dag og ég hef ekki heyrt að þeir séu að kljúfa sig út úr þessu samstarfi. Við erum enn þá með samningsumboðið fyrir þá,“ sagði Grétar Mar Jónsson í gær. Und- ir kvöld lögðu samnínganefndir sjó- manna fram nýtt tilboð til útgerðar- manna. Ljóst er að sjómannasamtökin eru að falla á tima og tilboð þeirra er örvæntingarfull tilraun til að missa ekki stjórn á málum. Tilboðið gerir, samkvæmt heimildum DV, ráð fyrir mun meiri hækkun en vélstjórar fengu i sínum samningi. Takist sjómönnum ekki að semja blasir við að lög verði sett á deiluna og samtök þeirra stórskaðist. -GG Rico Saccani. Sinfónían: Staðgengils stjórnanda leitað Að sögn Þrastar Ólafssonar, framkvæmdastjóra Sinfóníuhljóm- sveitar Islands, er Sinfónían í samningaviðræð- um við Rico Saccani, aðal- stjórnanda hljóm- sveitarinnar. Rico hefur misst af tveimur siðustu tónleikum Sinfóníunnar vegna veikinda og er nú leitað að staðgengli fyrir næstu tónleika hljómsveitarinnar sem verða 7. júní. Rico er nú erlendis þar sem hann tekst á við veikindi og per- sónuleg málefni. Hann er með blæðandi raddbönd og því ekki vinnufær sem stjórn- andi. Þröstur segir ekki verið búið að taka ákvörðun um hvort samn- ingurinn við Rico verði framlengd- ur eftir að hann rennur út að ári liðnu. „Það hefur ríkt mikil ánægja með Rico og við höfum fullan áhuga á þvi að hann klári samning sinn hjá Sinfóníunni en hann er að velta hlutunum fyrir sér. Hins veg- ar hefur það verið reglan að stjóm- endur Sinfóníunnar staldra við i 3 tfl 4 ár og það er einungis ein und- antekning frá því,“ segir hann. Rico Saccani er fjórtándi aðal- stjómandi Sinfóníuhljómsveitar ís- lands frá stofnun og hefur gegnt því starfi í rúman áratug. -jtr Úthlíð: Gasbruni í sumarbústaö Sumarbústaður í Úthlíð í Bisk- upstungum brann í gær. Eigandi bústaðarins hafði verið að tengja gaskút við ofn og ekki gengiö nógu vel frá verkinu. Lak gas úr leiðsl- um og lagði um allan bústaðinn. Vissi maðurinn ekki fyrr en hús hans varð skyndilega alelda og átti hann þá fótum sínum fjör að launa. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins um siðir en bústaðurinn mun vera nánast ónýtur. -EIR Valt í Eldhrauni Kona og maður slösuðust alvar- lega þegar bifreið þeirra valt í Eld- hrauni vestan við Botna í Vestur- Skaftafellssýslu síðdegis í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send til móts við sjúkrabifreið, tók hina slösuðu um borð við Ásólfs- skála og flutti á sjúkrahús í Reykja- vík. Ekki er ljóst hvað olli slysinu en fólkið var ekki talið í lífshættu við komuna til höfuðborgarinnar. -EIR Kirkjuráð veldur ólgu í Skálholti: Eg er gerður tortryggilegur - segir Guðmundur Einarsson sem mælt hafði verið með sem rektor Skilaboðin eru einföld. Ég er gerður tortryggilegur og það á ber- sýnileg að losa sig við mig,“ segir Guðmundur Einarsson sem mælt hefur verið með sem rektor Skál- holtsskóla. Kirkjuráð fjallaði um málið og samþykkti að visa því aft- ur til skólanefndarinnar og fá aðra niðurstöðu á þeirri forsendu að Guð- mundur væri ekki með háskólapróf. „í auglýsingunni er einungis sagt að umsækjendur eigi að vera með há- skólamenntun og hana hef ég því ég hef lokið kennaraprófi,“ segir Guð- mundur sem hefur starfað mikið innan kirkjunnar og var áður fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar. Hann kennir nú í Reyk- holtsskóla í Biskupstungum. Sex sóttu um stöðu rektors Skál- holtsskóla og meðal umsækjenda var séra Bernharður Guðmundsson sem er mágur herra Karls Sigur- björnssonar biskups. Vegna tengsla þeirra tveggja vék biskup sæti á fundi Kirkjuráðs þar sem fjallaö var um stöðuveitinguna og kom séra Bolli Gústafsson í hans stað. Víst Biskup vikur sæti - »c-ena lenetla \ ið umsa-liUnda Frétt DV um ólguna í Skálholti. þykir að Kirkjuráð óski eftir því að séra Bemharður hreppi hnossið og því sé málið aftur sent skólanefnd Skálholtsskóla. Formaður skóla- nefndarinnar er séra Sigurður Sig- urðarson,- vlgslubiskup í Skálholti, en hann er nú staddur í Svíþjóð. Vígslubiskupsfrúin í Skálholti, Arn- dís Jónsdóttir, liggur þó ekki á skoð- unum sínum vegna vinnubragða Kirkjuráðs: „Sveitin fylgist vel með þessu máli og Guðmundur Einars- son hefur dyggan stuðning sveit- unga sinna. Hér er hann vel kynnt- ur og við viljum ekki missa hann úr sveitinni." -EIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.