Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 Fréttir ÐV Pinglok hugsanleg í dag: Smábátar standa í ríkisstjórninni Stjórnarliðar stóðu í allan gærdag í miklu samningaþrefi um málefni smábáta en hart er tekist á um það innan flokka og milli flokka hvort setja eigi smábátana inn í kvóta- kerfið 1. september eins og óbreytt lög gera ráð fyrir eða hvort fresta eigi gildistöku laganna um eitt ár enn. Næsta víst er talið að góður meirihluti sé í þinginu fyrir frestun. Þegar hefur gildistöku þessa ákvæð- is verið frestað einu sinni og knýja vestfirskir þingmenn, framsóknar- menn og flestir stjórnarandstæðing- ar á um að kvótasetningunni verði frestað á ný, enda séu hagsmunir heilu byggðarlaganna í húfi. I Sjálf- stæðisflokknum eru það einkum Einar K. Guðfinnsson, Einar Oddur Kristjánsson og Gunnar Birgisson sem beitt hafa sér fyrir frestun ákvæðisins en aðrir þingmenn eru hlynntir því að „böndum verði kom- ið á smábátana", eins og það hefur verið orðað. Ekki er talið aö látið verið reyna á þetta mál án þess að áður liggi fyrir samkomulag og í gærkvöld stefndi í að menn gætu náð saman um málamiðlun sem fæli í sér ívilnun til smábátasjómanna umfram það sem yrði í kvótakerf- inu en þeim yrði skorinn þrengri stakkur en ef gildistökunni yrði al- farið frestað. Málið var rætt í ríkis- stjórn 1 gær og samkvæmt heimild- um DV beitti Davíð Oddsson sér fyr- ir því að sættir næðust í málinu. Hinn möguleikinn sem talinn var koma til greina í gærkvöld var að fresta málinu einfaldlega, láta lögin hafa sinn gang en taka það síðan upp í haust og breyta þá lögunum eftir að menn hefðu haft sumarið til að ná saman og endurskoðun fisk- veiðistjórnunarinnar væri komin lengra. Náist samstaða um frumvarp sem er ívilnandi fyrir trillusjómenn var í gær búist við að slíkt frumvarp ætti greiða leið í gegnum þingið. Óvissa var um þinglokin í gær en fastlega var þó búist við að unnt yrði að ljúka því í dag, jafnvel þótt frumvarp um smábátana kæmi fram. -BG Illdeilur í Skagafirði: Messufall í Miðgarði - dansleik aflýst „Það verður messufall í Miðgarði, við tökum ekki áhættuna," segir Kol- beinn Kolbeinsson húsvörður sem af- lýst hefur dansleik hljómsveitarinnar Á móti sól um næstu helgi. Ástæðan er hert aldursmörk sýslu- manns i Skagafirði sem ákvað að frá og með 15. maí sl. væri öllum innan 18 ára bannaður aðgangur að almennum dansleikjum. Landslög segja hins veg- ar að 16 ára og eldri geti sótt almenna dansleiki og hafa húsvörður og hús- stjóm Miðgarðs sent stjórnsýslukæru til dómsmálaráðuneytisins vegna máls- ins. Logandi illdeildur eru í Skagafirði af þessum sökum og hafa um 1000 manns ritað nöfn sín á lista þar sem ákvörðun sýslumanns er mótælt. Rök sýslumanns eru einkum að minnka unglingadrykkju sem hann segir mikið vandamál á þessum „flöskuböllum" en Kolbeinn segir málið ekki snúast um það. Húsvörðurinn segir verulega veg- ið að viðskiptagrunni sínum, enda séu 16-18 ára unglingar um 70% ballgesta. Dæmt verður i kærumálinu innan 14 daga. -BÞ DVJHYND TEITUR Brunabót Landssamband Slökkviliös- og sjúkraflutningamanna og Launanefnd sveitarfélaga undirrituöu í gær kjarasamning og af- stýröu meö því yfirvofandi verkfalli. Kjarasamningurinn gildir út áriö 2005. Samiö var um veruiegar grunnkaupshækkanir og breytingar á vinnufyrirkomuiagi. Á myndinni undirrita Þórír Einarsson ríkissáttasemjari og Guömundur Vignir Óskarsson, for- maöur Landssambandsins, kjarasamninginn. Aö baki þeim er Bragi Michaelsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi. Félagsmálaráðherra og borgarstjóra Reykjavíkur greinir á um fatlaða: Sjóðasukkinu linni - segir Ingibjörg Sólrún sem segir vegið að sjálfstæði sveitarfélaganna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar- stjóri í Reykjavik, segir rangt að and- staða Reykjavíkurborgar hafl valdið því að ekkert verður af flutningi félags- þjónustu fatlaðra til sveitarfélaganna. Páll Pétursson félagsmálaráðherra hef- ur dregið frumvarp um flutning til baka og sagði hann í DV að andstaða þriggja stórra sveitarfélaga hefði ráðið úrslitum. Hann nefndi Reykjavíkur- borg, Kópavog og Hafnarflörð í þessu efni og lýsti miklum vonbrigðum með að málið væri úr sögunni, enda hefði undirbúningur verkefnisins staðið yflr í tæpan áratug. „Það er engin andstaða hjá þessum stóru sveitarfélögum gegn þvi að taka við málaflokknum. Við viljum hins vegar sjá öll spilin áður en þetta er ákveðið,“ segir borgarstjóri og nefnir sem dæmi flutning tekna til sveitarfélaganna og endurskoðun á kostnaðarmati. Spurð um hvaða ástæöur geti verið fyrir því að Páll tali á svo ólíkum nótum og bæði Ingi- björg Sólrún og formaður Sambands sveitarfélaga segist borgarstjóri ekki hafa skýringar á því. Hins vegar telji hún að andstaða hafi komið fram við málið i fjármálaráðuneytinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Borgarstjóri segir að flutningur á verkefnum yfii' til sveitarfélag- anna verði að haldast í hendur við stærð og styrk þeirra. „Sveitar- stjómarmenn verða að horfast í augu við að ef þeir ætla að taka við stórum verkefnum þá þýðir ekki að vera með allan þennan flölda lítilla sveitarfélaga úti um landið. Þeir em ekki í stakk búnir til að taka við þessu og það sem verra er að það verður svo flókið að flytja fjármunina til sveitarfé- Páll Pétursson. laganna. Það þarf að búa til alls kyns sjóði og úthluta úr þeim eftir flóknum reglum í stað þess að flytja einhliða tekjustofh," segir borgarstjóri. „Verst við þetta mál er að það er að verða til hálfgert sjóðasukk í kringum þetta allt saman,“ segir Ingibjörg Sól- rún. Hún nefnir að í Jöfnunarsjóði séu 7-8 miiljarðar króna og með flutningi félagsþjónustu fatlaðra myndu bætast við milljarðai' sem rynnu í gegnum Samband sveitarfélaga. „Ég vil miklu frekar að við tökum að okkur verkefni og fáum tekjustofh, ríkið lækki hjá sér tekjuskattinn og við fáum útsvar. Okk- ur fmnst kerfið vega að sjálfstæði sveitarfélaganna." _bþ Blaðið í dag Hnefahöggið hjálpar ekki Erlent fréttaljós Varkár íhaldsmaður Svavar Gestsson Hriktir í stoðum Reykjavíkur- listans Innlent fréttaljós Morðinginn var einn af bæjarbúum Sérstæð sakamál ItfljlÍtSlÍS: HHÉsíiss Ungrú ísland 2001 íslensk fegurö Ekkert grín að vera fyndinn Eggert Þorleifsson Skortur á læknum —— Jóhannes M. JWwfe Gunnarsson, lækn- ■T^ ^ ingaforstjóri Land- Mfggte^Jr spítalans - háskóla- 'Wjf sjúkrahúss, segir læknaskort í land- inu. Helst skortir B « H unglækna, heilsu- gæslulækna svo og sérfræðinga í ýmsum greinum. Enn um læknaskort Neyðarástand mun skapast á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í sumar þar sem enginn útskriftar- nemi úr læknadeild Háskólans ætl- ar að hefja störf þar vegna óánægju með starfsaðstæður, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá Félagi unglækna. Samdráttur á íbúðamarkaði Spennan sem verið hefur á íbúða- markaðnum er I hjöðnun. 11% færri umsóknir um húsbréfalán bárust íbúðalánasjóði fyrstu Ijóra mánuði ársins en sömu mánuði í fyrra. Færeyskar óskir til ASÍ Verkalýðsfélag Færeyja hefur ósk- að eftir því við ÁSÍ að íslenskt verka- fólk landi ekki úr færeyskum fiski- skipum meðan á verkfalli verkafólks í Færeyjum stendur. Verkfallið nær til allra ófaglærðra í Færeyjum að undanskildu verkafólki i Klakksvík og verkakarla i Þórshöfn. Flugmálastjórn Samgönguráðu- neytinu hefur enn ekki borist formlegt svar frá Flugmála- stjórn vegna erind- is sem það sendi fyrir hálfum öðrum mánuði. í erindinu var Flugmálastjórn falið að grípa til ýmissa ráðstafana til að auka öryggi í flugi. Örbruni Slökkvilið var hvatt að húsi við Hverfisgötu í Hafnarfirði síðdegis í gær þar sem mikinn reyk lagði út um kjallaraglugga. í ljós kom að örbylgjuofn hafði verið skilinn eftir ofan á logandi hellu - og brann. Fákeppni - atvinnulíf Fákeppni einkennir íslenskt at- vinnulíf og þrátt fyrir sölu ríkisfyr- irtækja hefur eignarhlutur ríkisins í atvinnulífinu aukist síðustu ár. Þetta eru tvær af meginniðurstöð- um Samkeppnisstofnunar í skýrslu um stjórnunar- og eignatengsl í ís- lensku atvinnulífi. Dýr húsaleiga Kostnaður rlkis- sjóðs vegna flutn- -ings 6 fyrirtækja og stofnana ríkisins í Borgartún 21 er 313 milljónir króna. Alls greiðir ríkið um 120 milljónir króna á ári fyrir leigu húsnæðisins, hæstar um 3 milljónir á mánuði fyrir íbúðalána- sjóð sem áður var í eigin húsnæði. Grænmetistolla burt Efnahags- og viðskiptanefnd Al- þingis gengur út frá því að landbún- aðarráðherra nýti að fullu þær heim- ildir sem hann fær til að lækka tolla á grænmeti til hagsbóta fyrir neyt- endur. Þetta segir í nefndaráliti sem dreift var á Alþingi í fyrrakvöld um frumvarp til breytinga á toilalögum. Mótmæli á Austurvelli Landssamband smábátaeigenda hvetur félaga sína til að mæta á Austurvöll klukkan 13 í dag til að mótmæla gildistöku laga um smá- bátaveiðar. -EIR Seinlæti hja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.