Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 19. MAl 2001
19
DV
Helgarblað
Glíman viö Joöin þrjú
- Hvað er eftirminnilegast frá
þínum stjórnmálaferli?
„Ég nefni þann þátt velferðar-
kerfisins sem unniö var að á ís-
landi eftir 1980. Þá á ég við lög um
heilbrigðismál, um málefni fatl-
aðra og aldraðra, alls kyns endur-
bætur á almannatryggingalöggjöf-
inni, verkamannabústaðalögin og
húsnæðismálalög. Sömuleiðis gjör-
breyting á menntamálalögunum á
árunum 1988 til 1991. Þetta er það
sem mér þykir vænst um á mínum
persónulega stjórnmálaferli.
Svo eru tindar eins og til dæm-
is kosningasigur okkar árið 1978.
Myndun ríkisstjórnar Gunnars
Thoroddsens var líka ótrúlegt æv-
intýri og svo stjórnin sem varð til
eftir að Þorsteinn Pálsson skilaði
lyklunum að stjómarráðinu. Þetta
eru augnablik sem maður gleymir
aldrei. En ég held að það sem sé
miklu stærra og varanlegra sé lög-
gjöfm í menntamálum, heilbrigöis-
málum og félagsmálum. Hún er
einn af tindunum í seinni tíma vel-
ferðarsögu íslands.“
- Á ferli þinum hefurðu unnið
meö fjölmörgum mönnum, hverjir
þeirra eru eftirminnilegastir?
„Ég get nefnt marga stjóm-
málamenn eins og Gunnar
Thoroddsen, Lúðvík Jósefsson og
Steingrim Hermannsson. Líka
Svövu Jakobsdóttur, Ragnar Arn-
alds og Eðvarð Sigurðsson. Af
seinni tíma stjómmálamönnum
nefni ég fyrst Davíð Oddsson sem
er að mörgu leyti afburöamaður.
Svo fer ekki á milli mála að þótt
við Ólafur Ragnar værum ósam-
mála um flest meðan viö vorum
saman í pólitíkinni þá er hann
einn af þeim mönnum sem sitja eft-
ir í endurminningunni og þrátt
fyrir allt áttum við margt sameig-
inlegt, allt frá því á menntaskóla-
árum okkar. Ög erum að vinna
saman að nýjum verkefnum nú
DV-MYNDIR E.ÓL.
Svavar og Guörún Agústsdóttir stóðu saman í sendiherrastarfinu
„Starfiö gekk vel og okkur Guörúnu leiö vel þarna. Enda vorum viö tvö í þessum verkum og lögöum saman alla okkar
krafta. Þetta voru reyndar góö kaup fyrir ríkisstjórnina því viö vorum tvö í einum pakka og Guörún er fráþær í allri
skipulagningu og því aö taka á móti fólki þannig aö því líöi vel. “
orðið. Halldór Ásgrímsson og ég
vorum samferða á Alþingi lengi og
svo i ríkisstjórn um skeið; honum
hef ég kynnst betur í seinni tið og
hann er að skrifa merkilegan kafla
í íslenskri stjórnmálasögu. Ég
nefni Steingrim J. Sigfússon sem
varð einn af mínum bestu vinum
og er heldur betur að skapa nýtt
skeið í islenskum stjórnmálum
með félögum sinum. Og ætli glím-
an við Joðin þrjú í stjórninni 1988
til 1991 skipi ekki lengi sinn sess;
þau voru Jón Baldvin, Jón Sig-
urðsson og Jóhanna. Allt sterkir
og metnaðarfullir einstaklingar
sem var lærdómsríkt að vinna
með. En ég get ekki tekið einn
mann út úr þessum hóp og vil það
reyndar ekki. Og svo eru menn
eins og Kjartan Ólafsson, sem var
með mér ritstjóri Þjóðviljans langa
tíð, og Ámi Bergmann. Þeir voru
daglegir samverkamenn mínir í
rúm tíu ár og ég held að þeir hafi
sett meira mark á viðhorf mín og
vinnubrögð en flestir aðrir menn.“
- Þessir menn koma væntan-
lega Eillir við sögu í bókinni sem þú
hyggst skrifa?
„Já, þeir verða allir þar. En
hún verður ekki palladómar um
fólk eins og mér finnst síðasta
bindið í sögu Steingríms vera. Það
er komið nóg af sliku.“
Gore er mjög vinstrisinn-
aöur
- Ef viö víkjum aöeins að inni-
haldi í nútímastjórnmálum. Mætti
þar ekki vera meiri húmanismi?
„Pólitíkin er orðin ansi mikO
afurð markaðsþjóðfélagsins þar
sem lögð er áhersla á að selja póli-
tíkusa. Þetta sekúndulýðræði er
auðvitað áhyggjuefni, vegna þess
að það er aldrei farið djúpt ofan í
hlutina, menn eru á yfirborðinu
meö alla skapaða hluti. Menn selja
ekki mannleg viðhorf og mýkt, það
er harkan sem selst. Það vantar
sannarlega meira rými í pólitíska
umræðu fyrir sammannleg við-
horf.
Ég fylgdist mjög grannt með
forsetakosningunum í Bandaríkj-
unum og það kom mér mjög á
óvart hvað Gore er vinstrisinnað-
ur. Ég ólst upp við þaö á íslandi
sem gamall vinstrimaður og her-
stöðvaandstæðingur að það væri
aUt eins í pólitíkinni í Bandaríkj-
unum og engu máli skipti hver
væri forseti. Það er ekki rétt. Stað-
reyndin er sú að Gore er mjög
vinstrisinnaður, en umræðan í for-
setakosningunum snerist um hörð
gildi fremur en mannleg viðhorf.
Þessar áherslur endurspeglast líka
hér á landi. Þó er það þannig að
hér eru alls kyns mannleg gildi í
heiðri höfð, en mörg þeirra þykja
jafn sjálfsögð og andrúmsloftið eða
sólskinið.
Það verður spennandi að sjá
hvernig menn fara aö því að glíma
við þessi vandamál, til dæmis í
Svíþjóð sem á sér mjög merkilega
pólitíska sögu. Við Guðrún erum á
leið til Svíþjóðar í sumar og mun-
um fylgjast með því hvemig Svíar
fara að því að laga hið gamla
sænska velferðarkerfi að markaðs-
þjóðfélaginu og Evrópusamband-
inu. Ég skal segja þér frá þvi eftir
tvö til þrjú ár hvemig mér flnnst
sú tilraun takast. Ég er spenntur
að fá að fylgjast með þeim tíðind-
um frá degi til dags.“
STÓRSÝNING
um helgina kl. 14-1 7 - kaffi og meðlæti - verið velkomin í reynsluakstur
NY MAXIMA
Ný og kraftmikil V6 3000 vél
16” álfelgur
Leðursæti
Rafstillingar á framsætum
Hiti í framsætum
Ljóskastarar
Virkir höfuðpúðar
4 loftpúðar
Frjókornasía
ABS hemlalæsivörn
Cruise Control (skriðstillir)
Tvívirk rafdrifin sóllúga
Spólvörn
Snerpugír (sportstilling)
Og margt fleira
■
;
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000
www.ih.is