Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Blaðsíða 56
/
/
Kemísk WC
frá 10.900
EVRÖ
Grensásvegi 3
s: 533 1414
Goði og Norðlenska:
Kjötvinnsla
áfram í
Borgarnesi
Forráðamenn Goða gera ráð fyrir að
kjötvinnsla fyrirtækisins i Borgamesi
verði starfrækt áfram. Samningavið-
ræður við Norðlenska standa enn yfir.
Kjötvinnslunni á Selfossi verður lokað
um mánaðamótin júni-júlí. Þar hafa
unnið um 20 manns en sumir starfs-
manna em komnir í aðra vinnu.
Kristinn Þór Geirsson, framkvæmda-
stjóri Goða, sagði að eins og málin stæðu
nú væri gert ráð fyrir að kjötvinnslan í
Borgamesi yrði starfrækt áfram og yrði
jafnvel aukin til að byrja með. Hann
sagði að sameiningarviðræðumar hefðu
tekið lengri tíma en reiknað hefði verið
með í upphafi. Ekki væri hægt að tíma-
setja hvenær þeim lyki. -JSS
OUÉE3
SAM MQUSSAlEfF tnd IAMILV
IMI
U »5 MouiiaiefFs daught«, Dornt.
ii nuking thc wwn Lut vCur
bcv'amc cngftged to thc
f presiiknt ot kcltmJ. Olatur Kasmar
I utitnsson. The íuiurc Nlts
Onm"vm cun ttice her rooi» hack
to Gctighi* Kh*n'» soldunilh Tht
Mou»wícUs arc sull in thc trj\K'
4»vl domg rathcr wvli In
McusuielT l<\s cilcrs. bascO
in Lotukm. tnadc £?.4n> pi\>lk on
*3d<\ ot' £48.?m. Th< t\rm. worth
£?0m. ts cKaikvI by Mcusuicff.
t 77. aml hi» f*mt!y ovcns »t «11. \\ <
*dU £45ra tor LXjmt's \ol< of hcr
iukc m thc C«iur> Whart comptoc
in IW9 2000: tltOm. 201*
Úr The Sunday Times
„The future Mrs Grimsson“
Strætisvagnstjóri á sjötugsaldri,
sem lenti i umferðaróhappi í
Reykjavík í fyrradag, reyndist próf-
4 laus þegar að var gáð. Bílstjórinn
hefur starfað hjá SVR frá árinu 1997
og verið próflaus allan tímann því
ökuskírteini hans rann út 1992.
„Okkur þykir þetta miður,“ sagði
Jóhannes Sigurðsson, forstöðumað-
ur þjónustusviðs Strætisvagna
Reykjavíkur. „Bílstjórinn hafði gilt
ökuskírteini til að aka fólksbíl en
meiraprófið hans var útrunnið. Það
hafði farið fram hjá honum og
einnig okkur þegar hann var ráð-
inn. Þarna urðu bersýnilega mis-
tök.“
Umferðaróhappið, sem bílstjórinn
lenti í, var minni háttar nudd við
fólksbil á mótum Vesturgötu og
Framnesvegar. Að sögn Jóhannesar
, Sigurðssonar munu ekki verða eft-
irmál vegna þessa en bílstjórinn er
í orlofi þar til hann hefur endurnýj-
að skírteinið sitt. -EIR
Moussaieff-fjölskyldan metin á 17 milljarða:
Dorrit jafnrík og George bítill
Próflaus
strætóbílstjóri
DV-MYND TEITUR
Edrú-popp í Húsdýragarðinum
Geisladiskurinn Poppfrelsi, sem gefinn er út til styrktar meðferðarstarfi fyrir ungt fólk á vegum SÁÁ, var kynntur með
tilþrifum í Húsdýragarðinum í Laugardai i gær. Á diskinum eru 14 ný lög með jafnmörgum íslenskum flytjendum sem
allir gefa vinnu sína til styrktar meðferðarstarfinu. Á myndinni þenur Beggi í Sóldögg raddböndin og Hreimur úr Landi
og sonum og Birgitta úr írafári fýlgjast með.
Ríkissáttasemjari:
Miðlunartillaga
í Hafnarfirði
Ríkissáttasemj-
ari hefur ákveðið
að leggja fram
miðlunartillögu í
kjaradeilu verka-
lýðsfélagsins Hlíf-
ar í Hafnarfirði og
launanefndar
sveitarfélaga. Til- . _.
, , „ Þorir Einarsson
lagan verður af-
hent deiluaðilum á mánudaginn,
kynnt á fundi sama dag og borin und-
ir atkvæði á þriðjudag.
Kjaradeilan í Hafnarfirði hefur lam-
að leikskóla- og skólastarf í bænum og
orðið til þess að þúsundir barna og
unglinga hafa þurft að halda sig heima
með tilheyrandi röskun á venju-
bundnu Qölskyldulífi í Firðinum. -EIR
Samvinnuferðir-Landsýn:
3000 sólarsæti
afskrifuð
- hafna Atlantaþotu
Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-
Landsýn hefur skorið niður framboð
sitt á flugsætum í sólarlandaferðir og
verður þeim fækkað um þrjú þúsund.
Vegna offramboðs á sætum hefur
ferðaskrifstofan samið við Flugleiðir
um flutning á sólarlandafarþegum og
rift fyrri samningum við Atlanta um
afnot af einni af nýju breiðþotum fé-
lagsins á þeirri forsendu að hún sé
allt of stór. -EIR
Dorrit Moussaieff og fjöl-
skylda hennar eru á lista
The Sunday Times yfir rík-
asta fólk Bretlands og deila
þar 268. sætinu með ekki
minni mönnum en bítlinum
George Harrison og stór-
popparanum Sting. Moussai-
eff-fjölskyldan er metin á 17 George Harrison
milljarða íslenskra króna. í f sama klassa
The Sunday Times segir orð- Moussaieff-
rétt um fjölskylduna: fjölskyldan.
„Það er dóttir Moussaieffs
gamla sem heldur nafni fjölskyldunn-
ar á lofti. Á síðasta ári trúlofaðist hún
Ólafi Ragnari
Grímssyni,
forseta ís-
lands. Verð-
andi frú
Grímsson
getur rakið
ættir sínar
aftur til gull-
smiða Gengis
Khan.
Moussaieff-
flölskyldan
er enn að og gerir það
bara gott í gullinu. Á
árunum 1999-2000 seldu
skartgripaverslanir
Moussaieff, sem eru í
Lundúnum, skartgripi
fyrir um 7 milljarða ís-
lenskra króna og hagnað-
ist við það um rúman
milljarð. Sjálft er fjöl-
skyldufyrirtækið metið á
10 milljarða islenskra
króna og því er stjórnað
af Sam Moussaieff (föður
Dorritar) sem er 77 ára
gamall."
The Sunday Times bæt-
Dorrit og Olafur
Verðandi „Mrs Grimsson “ ekki á
flæðiskeri stödd.
ir 45 milljónum punda við auðæfi
Moussaieff-fiölskyldunnar sem er tal-
inn hagnaður Dorritar sjálfrar vegna
sölu hennar á hluta sínum í Canary
Wharf-byggingunum. -EIR
Geðsjúkur síbrotamaður ákærður fyrir 11 afbrot:
Með stóra hnífa
innanklæða
Hafliði ekki
ákærður
Hafliði Halldórsson, fyrrum skóla-
stjóri Hestaskólans á Ingólfshvoli,
verður ekki ákærður fyrir meinta illa
meðferð á dýrum.
Árið 1999 kærðu
fiórir sænskir
nemendur Hesta-
skólans Hafliða til
lögreglunnar.
Töldu nemend-
urnir að hestar í
skólanum sættu
harðræði og illri
meðferð af hendi
Hafliða. Þau gögn
sem fram hafa komið við rannsókn
málsins hjá sýslumannsembættinu á
Selfossi þóttu ekki gefa tilefni til sak-
fellingar. Rannsókn hefur því verið
hætt og sýslumaðurinn á Selfossi hef-
ur ákveðið að ákæra ekki en láta mál-
ið falla niður. -JSS
Hafliöi
Rannsókn hætt.
- við handtöku - úrræði skortir í dómskerfinu, segir yfirlæknir á Sogni
Tvítugim síbrotamaður, sem svipt-
ur var sjálfræði ótímabundið árið
1999 en var eftir það í geðlæknismeð-
ferð á Sogni í rúmt ár en var sleppt á
síðasta ári, situr nú í síbrotagæslu
ákærður fyrir 11 afbrot. Þegar Kópa-
vogslögreglan færði manninn í hand-
járn við verslun 10-11 í Engihjaila í
apríl var hann með tvo stóra eldhús-
hnífa innanklæða. Maðurinn hafði á
þessum tíma verið í mikilli fikniefna-
neyslu. Sami maður lagði eld að
bensínblautum fotum pilts með
slæmum afleiðingum, rifheinsbraut
17 ára stúlku og réðst með ósakhæf-
um pilti á annan og sparkaði í hann
liggjandi árið 1997.
Magnús Skúlason, yfírlæknir á
Sogni, segir að mál þessa síbrota-
manns og fleiri slíkra sé í raun geð-
heilbrigðismál en úrræði skorti í kerf-
inu til koma til móts við slíka einstak-
linga. Ungi maðurinn, sem hefur átt
við mikinn flkniefnavanda að stríða,
er talinn sakhæfur þó svo að fyrir liggi
að hann á við mikil geðræn vandamál
að stríða.
„Þessi einstaklingur er dæmi um all-
Vettvangurinn
10-11 verstunin við Engihjalla þar sem maðurinn var
handtekinn.
stóran hóp ungra manna sem brjóta lög
og hljóta refsidóma en eru úrskurðaðir
sakhæfir þrátt fyrir alvarleg geðræn og
félagsleg vandkvæði. Ástæðan er sú að
þeir eru ekki haldnir þeirri alvarlegu
sturlun sem eru skilyrði fyrir þvi að
vera ósakhæfur og þar með úrskurðað-
ur í sjálfkrafa öryggisvistun og með-
ferð,“ segir Magnús.
Hann segir að dómskerfið skorti
ákveðið miilistig - á milli sakhæfis og
ósakhæfis - sem feli í sér hjálpar- og
meðferðarúrræði af háifu heilbrigðis-
kerflsins. „Þessir einstaklingar þurfa
mjög á slíkri hjálp að halda. Ég tel að
þeir þurfi frekar með-
ferðarinngrip fremur
en einhliða fangelsis-
vistun. Stjórnvöld
mættu stefna að því
að. auka samhæflngu
réttargeðsviðsins og
meðferðarstoftiana og
sér í lagi að skipu-
leggja og efla eftir-
meðferð. Það myndi
bæta batahorfur
margra sem illa er
ástatt um,“ segir yfirlæknirinn.
Framangreindur maður hlaut 18
mánaða fangelsi íyrir íkveikjuna og lík-
amsárásirnar á árinu 1998. Eftir það af-
plánaði hann fangelsisvist en var síðan
sviptur sjálfræði og gekkst undir lækn-
ismeðferð á Sogni. Þeir sem DV ræddi
við um mál hans voru sammála um aö
þegar hann útskrifaðist þaðan á síðasta
ári hefði alls ekki litið illa út með and-
lega heilsu hans og því engin ástæða til
að halda honum lengur þar. Á hinn bóg-
inn fór að halla undan fæti hjá mannin-
um þegar hann skorti ákveðinn stuðn-
ing. -Ótt
FRETTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá i síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
LAUGARDAGUR 19. MAI 2001