Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Blaðsíða 20
20
Helgarblað
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001
DV
Bubbi Morthens
„Égget sagt krökkunum frá því sem ég hef séö betur en hinir dauöu eöa geðveiku. “
Eg er í krossferð
Bubbi Morthens
fær sér vatnsglas
en ekki kaffi þegar
ég hitti hann niðri
á Hótel Borg. Hann
er líka hættur að
reykja. Ég sötra
blekið skömmustu-
leg og þori ekki að
kveikja mér í sígar-
ettu. Hingað erum
við komin til að
ræða rokkferilinn
hinn síðari sem er
nýhafinn, sæta
sigra í útlöndum,
átakið gegn eitur-
lyfjunum og gagn-
rýnisraddirnar sem
sjaldan hafa verið
háværari.
Hvaö gerir þig betur til þess fail-
inn en aðra að predika yflr bömum
um skaðsemi eiturlyfja?
„Ég hef lifað af,“ segir Bubbi. „Það
er svo einfalt. Ég bý aö reynslu sem
ekkert mjög margir hafa og ég get
miðlað henni öðrum til góðs. Frá því
1980 hafa fimmtán vinir og kunningj-
ar látist af of stórum skammti, verið
drepnir eða orðið manni að bana.
Alla þá atburði má rekja til fikni-
efna.
Ég geri mér þó grein fyrir því að
það er aldrei hægt að segja við einn
eöa neinn: „Láttu eiturlyfin í friði!“
Það er ekki hægt að segja við þrett-
án ára krakka að þau eigi aldrei að
drekka og aldrei að reykja. Hvort
sem það eru pabbi og mamma, lögg-
an eða Bubbi Morthens."
Hvað segirðu þá?
„Það sem ég get sagt er: „Valið er
þítt og þar af leiðandi verða afleið-
ingarnar þínar og ef þú kýst að fikta
við eld verður þú líka að gera þér
grein fyrir því að þú getur brennt
þig. Ef þú tekur þá ákvörðun að dópa
ekki, þá eru líkumar meiri á því að
þú farir í gegnum lífið nokkurn veg-
inn áfallalaust, klárir þitt nám og að
þér gangi allt í haginn. Ef þú velur
dópið eru líkurnar á því að þú lend-
ir í einhverjum erfiðleikum gríðar-
lega miklar. Það veit enginn hver
þolir að prófa og hver ekki. Ef ég er
að tala við 150 krakka þá er öruggt
að úr þeim hópi eru 15-20 sem eiga
eftir að fara til helvítis ef þau prófa
eiturlyf. Enginn veit hvaða skelfing
bíður þeirra, en ég get sagt þeim frá
því sem ég hef séð betur en hinir
dauðu eða geðveiku.“
Fékk hjartaáfall 28 ára
gamall
„Oft eru það krakkar sem eiga
erfitt uppdráttar sem velja dópið,“
segir Bubbi. „Ég er skriftblindur og
ég veit hvemig er að verða utanveltu
í skólakerfinu. Ég segi krökkunum
að ég viti hvemig þeim líður. Ég veit
lika að tónlistargáfan var það eina
sem bjargaði mér frá því að lenda á
Litla-Hrauni, en félagar mínir á
sama báti voru ekki eins heppnir. Ég
slapp og ég skulda þeim það að segja
frá reynslu minni. Einhver sagði að
það þýddi ekki að tala við krakka
um þessi mál nema þú sért jafnaldri
þeirra. Þetta er álíka viturlegt og að
segja að skólakerfið ætti að vera
skipað kennurum sem eru jafnaldrar
nemendanna."
Nú myndu sumir segja að þú vær-
ir sérstaklega slæmt fordæmi. Á kafi
í eiturlyfjum gafstu sennilega út tutt-
ugu plötur og svo ertu áberandi vel á
þig kominn líkamlega. Hugsa ekki
krakkamir: Ég geri bara eins og
Bubbi, ég hætti eftir þrjátíu ár ...?
„Það verða ailtaf til undantekning-
artilfelli og ég er bara eitt af þeim.
Ég var einfaldlega svona heppinn.
Fáir vita að ég fékk hjartaáfall 28 ára
gamall vegna ofneyslu lyfja. En ég
slapp og það ber að þakka. Þorgrím-
ur Þráinsson hefur verið gagnrýnd-
ur fyrir að segja fólki að hætta að
reykja, vegna þess að hann hefur
aldrei reykt sjálfur, síðan eru nokkr-
ir sem gagnýna mig fyrir að koma
þeim skilaboðum til unglinga að dóp
sé hættulegt því ég notaði sjálfur
dóp. Það er stundum vandlifað," seg-
ir Bubbi og hlær.
Af hverju ertu að þessu? Má þér
ekki vera sama hverjir dópa sig í hel
og hverjir ekki?
„Ég er í krossferð. Mörg ár hef ég
farið í skóla og talað við krakka, en
kveikjan að því að ég geri þetta opin-
bert er að vinur minn var drepinn og
við það fylltist ég mikilli sorg og
reiði. Það varð til þess að ég sagði
nei, hingað og ekki lengra. Nú ætla
ég að stíga fram. Ég tek ekki þátt í
því lengur að þegja.“
Sex jarðarfarir á árinu
Bubbi segir að Esso hafi beðið
hann um samstarf við vímuefnafor-
varnir og hann hafi tekið því fagn-
andi, enda sé honum sama hvaðan
gott kemur.
„Ég hef aldrei falið það að ég fæ
borgað fyrir þetta, enda hefði ég
aldrei farið í samstarf við Esso kaup-
laust. Þegar ég sá að þeir voru til-
búnir að setja marktækan pening í
þetta verkefni sló ég til. Auðvitað
eru þeir að fiska athygli, en þaö er
miklu betra að peningarnir þeirra
renni í forvarnir en að auglýsa
glansandi jeppa uppi á Vatnajökli í
kvöldsólinni. Mikiö væri gott ef
fleiri stórfyrirtæki tækju sér Esso til
fyrirmyndar og settu fjármuni í eitt-
hvað sem auðveldlega má kalla
mannrækt."
Eru þetta umtalsverðar fúlgur sem
þú færð?
„Ég ræði það ekki. En það er ljóst
að vinnan við herferðina er svo mik-
il að ég hefði aldrei haft efni á að
taka þátt í henni án þess að fá borg-
að fyrir.“
En kastarðu ekki frelsi lista-
mannsins fyrir róða? Ertu ekki orð-
inn háður auðvaldsbatteríinu?
„Þetta er bara bamaleg, heimsku-
leg klisja. Ég hef ekki ennþá hitt
þann listamann sem ekki er háður
einhverju. En ef það er verið að tala
um að selja sannfæringu sína, þá er
ég einmitt að gera það í þessu tilviki
og ég hef alltaf staðið á minni sann-
færingu. Þetta er of gott málefni til
þess að horfa fram hjá því. Ég hef
farið í fjórtán ár á Litla-Hraun til
„Ég verð að búa við það
að ég er opinber persóna.
Ég er Bubbi Morthens og
mér leyfist ekki hvað sem
er. Þegar ég fór að syngja
sálma og tala um trú
mína á Guð voru stórir
hópar fólks sem œptu og
skrcektu af hneykslan, en
þetta verð ég að lifa við
af því að ég er sá sem ég
er. Smáfólkið á það til að
hrína þegar risarnir
hreyfa sig. “
þess að spila og ég sé að fangamir
þar verða sífellt yngri. Ég er að spila
við æ fleiri jarðarfarir unglinga sem
hafa drepið sig vegna eiturlyfja og ég
er að syngja fyrir grátandi foreld-
rana. Á seinasta ári voru þær átta, á
þessu ári eru þær orðnar sex. Ég
verð að búa við það að ég er opinber
persóna. Ég er Bubbi Morthens og
mér leyfist ekki hvað sem er. Þegar
ég fór að syngja sálma og tala um trú
mína á Guð vom stórir hópar fólks
sem æptu og skræktu af hneykslan,
en þetta verð ég að lifa við af því að
ég er sá sem ég er. Smáfólkið á það
til að hrína þegar risarnir hreyfa
sig.“
Þú segist vinna eftir þinni innstu
sannfæringu. Særa þessar gagnrýn-
israddir þig ekkert?
„Neeeei," segir Bubbi og hlær. „Ef
biskupinn hefði gagnrýnt mig þá
hefði ég farið og fengið mér áfalla-
hjálp, vegna þess að ég tek mark á
honum. Ef ákveðnir prestar sem ég
hef dálæti á hefðu skammað mig
hefði ég orðið sjokkeraöur. Hefði
konan mín eða mínir nánustu vinir
gagnrýnt mig, þá hefði ég orðið
sjokkeraður. Hefði fólk innan AA-
samtakanna, sem ég umgengst, gagn-
rýnt mig, þá hefði mér ekki staðið á
sama. Þeir sem hafa gagnrýnt mig
eru ýmist virkir alkóhólistar eða
fólk sem þrífst á athygli, hvort sem
hún er neikvæð eða jákvæð, og svo
fólk sem einfaldlega veit ekki betur
vegna heimsku."
Geirharöur í Greifswald
Við endurkomu Utangarös-
manna í fyrra segist Bubbi hafa
fundið fyrir löngun til að vinna
með rokkhljómsveit og setti því
saman hljómsveitina Stríð og frið-
ur. Nú er hljómsveitin nýkomin úr
tónleikaferð um Þýskaland og Dan-
mörku.
„Ég á nokkra þýska aðdáendur
og þeir hafa verið að koma hingað
til að hlusta á mig. Meðal þeirra er
prófessor í íslensku við háskólann
í Greifswald sem kallar sig Her-
móð og hefur ódrepandi áhuga á ís-
lenskri menningu og sögu. Her-
móður er búinn að smita heilan
bæ af rosalegum íslenskuáhuga og
heldur norrænt festival á hverju
ári. Þarna eru Ijóö, myndlist, bíó
og tónlist svo eitthvað sé nefnt af
fjölmörgu og við vorum beðnir að
fara og rokka fyrir íslands hönd.“
Yfirleitt vOja útlendir íslensku-
spekúlantar bara lesa Eglu og
Njálu ...
„Hermóöur gerir þaö líka, mikil
ósköp. Þegar við komum þama
vorum við að rekast á alls konar
fólk sem talaði lygilega góða ís-
lensku og oft var það sláandi. „Ég
heiti Geirharður og dvaldi nokkur
misseri á Borgarfirði eystri með
800 rollum," sagði einn meö ótrú-
lega skýrum framburði þegar hann
kynnti sig,“ segir Bubbi hlæjandi.
Danska meö grænlenskum
hreim
Bubbi segir að það hafi líka ver-
ið makalaust að Hermóöur og nem-
endur hans höfðu þýtt alla textana
hans á þýsku fyrir tónleikana. Her-
móður hafði beðið um lagalista fyr-
ir fram og menn gátu fengið text-
ana við dymar tO þess að fylgjast
með.
„Við vorum með þrjú gömul lög
en hin voru öll ný. Það var mjög
skrýtið að sjá fólk dansa og hoppa
við nýju lögin, en það var líka
skrýtiö að heyra fólk klappa þegar
Talað við gluggann í þungarokks-
útgáfu og ísbjarnarblús byrjuöu.
Þá fengum við að vita að Hermóð-
ur hefur áður nýtt sér lög mín og
texta við kennslu."
Bubbi bætir við að íslandsáhug-
inn sé allt að þvi áþreifanlegur í
Þýskalandi og virkOega gaman að
vera íslendingur þar. í Danmörku
var líka húsfyOir á tónleikunum.
Bubbi syngur aOtaf á íslensku en
segist eiga það til að bregða undir
sig danska fætinum á mOli laga og
jafnvel taka eitt og eitt danskt lag.
Með móðurmjólkinni drakk Bubbi
dönskuna og hann finnur slátt
hennar innra með sér. Að vísu seg-
ist hann eitt sinn hafa lent í því að
Dani reiddist honum vegna þess að
hann talaði dönsku með græn-
lenskum hreim! „Helvítis rasist-
inn,“ segir Bubbi og hlær.
Aö hafa sjálfan sig á
hreinu
Stríð og friður hafa tekið upp
plötu sem kemur út í haust og síð-
an fara þeir í tónleikaferðalag tO
Finnlands og Svíþjóðar. Kannski
spOa þeir hér heima í sumar, en
þeim stendur líka tO boða að spOa
víða erlendis. Bubbi segir að
ástæðan fyrir því að hann hafi
sjaldan spOað í útlöndum sé sú að
hann hafi ekki verið tObúinn að
fara eitt né neitt.
„Líf mitt hefur snúist um það að
verða edrú - að ná tökum á sjálfum
mér. Rokktónlistin er kannski ekki
heObrigðasta formið til þess. Þaö
sem sagt er um lífiö í rokkinu er
bæði mýta og raunveruleiki. í
rokkinu fellur fólk fyrir örvandi
efnum tO þess að halda sér vak-
andi og róandi efnum tO þess að ná
sér niður eftir tónleika. Þú ert í há-
vaða, kikki og adrenalínkeyrslu,
en síðan er aOt búið. Allt sem er
eftir er hávaðinn inni í þér og aOt
er þar á suðupunkti. Það er algengt
að fólk fari og keyri sig niður á
einhverju öðru en bók, vídeói, mat
eða kynlífi. Ef maður ætlar að vera
í rokkinu verður aö skipuleggja
hvernig maður ætlar að tækla
þessa hluti og hafa sjálfan sig á
hreinu."
Heldurðu að þú takir aldrei dóp
aftur?
„Ég get ekki svarað því,“ segir
Bubbi alvarlegur. „Ég veit að það á
að koma út plata í haust en ég veit
ekkert hvort ég verð lifandi. Það
getur líka vel verið að ég standi
upp fuOur af lífsþorsta og verði
undir bO hér fyrir utan. Ég veit
bara eitt og það er að planið hjá
mér í dag er: Ég ætla ekki að
reykja sígarettur og ég ætla ekki
að taka dóp.“ -þhs