Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Qupperneq 14
14
Helgarblað
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001
DV
Hluti vinstri grænna telur réttast að bjóða fram sér í Reykjavík:
Hriktir í stoðu m
Reykjavíkurlistans
- yrði náðarhöggið, segir formaður borgarstjórnarflokks
Óvissa um framhaldið
í tvígang hefur veriö glatt á hj'alla hjá aöstandendum R-listans aö loknum borgarstjórnarkosningum en nú ríkir óvissa um framhaldið. Vinstri grænir
segja stööuna afar viökvæma.
Dagar Reykjavíkurlistans gætu
verið taldir i þeirri mynd sem ver-
ið hefur. Þreifingar eru að hefjast
við uppstillingu samtakanna fyrir
borgarstjórnarkosningarnar
næsta ár en algjör óvissa er um
hvort vinstri grænir verði með í
pakkanum. Engar formlegar við-
ræður hafa orðið um slikt og
stjórnarmaður í Reykjavíkurfélagi
VG-framboðins segir óvíst hvort
vilji standi yfirhöfuð til viðræðna
um samstarf. Málefnastaða verði
lykilmálið en það sé ekki pólitísk
skylda vinstri grænna að rugla
reytum við Samfylkingu og Fram-
sókn til þess eins að koma í veg
fyrir að sjálfstæðismenn vinni
borgina á ný.
Jafnræðisreglan gildi
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
leiðtogi R-listans og borgarstjóri í
Reykjavík, hyggst enn gefa kost á
sér eftir að hafa leitt R-listann til
sigurs tvö kjörtímabil í röð. Skoð-
anakannanir hafa sýnt að R-listinn
hefur forskot á sjálfstæðismenn en
ef vinstri grænir bjóða fram sér
setur það stórt strik í kosninga-
reikninginn.
„Það er ekki búið að ákveða
hvaða fyrir-
komulag R-list-
inn mun viðhafa
í næsta slag en
við höfum allt
sumarið til
þess,“ segir Ingi-
björg Sólrún í
samtali við DV.
Ef vinstri
grænir verða
með eru nokkrir
kostir til skoðun-
ar varðandi uppröðun. Einn er að
flokkarnir þrir, þ.e.a.s. Framsókn,
Samfylking og VG-framboðið, fái
öll tveggja manna kvóta. Síðan
muni kosning ráða sjöunda mann-
inum og Ingibjörg Sólrún verði svo
i 8. sætinu - baráttusætinu - eins
og síðast. Einnig eru uppi hug-
myndir um að flokkarnir fái að-
eins 3 trygg sæti.
„Ég hef ekki hugsað þetta til
enda en hvort sem um einn eða tvo
menn væri að ræða fmnst mér að
jafnræðisreglan eigi að gilda, enda
höfum við alltaf haft hana til við-
miðunar. Það ætti ekki síst að ráð-
ast af persónustyrk hvernig þetta
leggst að öðru leyti og þar gætu
komið inn óflokksbundnir menn.
Ég vil hafa allt opið í stöðunni en
legg áherslu á jafnréttissjónarmið-
in,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Borgarstjóri segist engin teikn
sjá á lofti sem bendi til þess að
vinstri grænir bjóði fram sér en
staðfestir að engar formlegar við-
ræður séu hafnar um þetta.
Hefur þróast í sjálfstætt afl
Ármann Jakobsson, sem situr í
stjórn Reykjavíkurfélags vinstri
grænna, segir hins vegar að algjör-
lega sé óljóst hvort vinstri grænir
verði með í samstarfinu. „Við
erum ekki einu sinni búin að
ákveða hvort við ætlum í viðræð-
ur um það eða ekki,“ segir Ár-
mann.
Hann segir óljóst innan flokks-
ins og meðal kjósenda hve mikið
fylgi sé við samstarfshugmyndina.
„Að því leytinu er þetta erfitt og
viðkvæmt mál.“
Ingibjörg Sólrún Sigrún
Gísladóttir. Magnúsdóttir.
Ónafngreindir aðilar úr röðum
vinstri grænna segja að niður-
staða skoðanakannana sé ákveðin
skilaboð. Þeir benda á að Samfylk-
ingin hafi fengið heldur dapra út-
komu undanfarið en vinstri græn-
ir hafi stækkað og eflst umfram
spár. Pólitískt sé því umhugsunar-
efni hvort sigurvegararnir eigi að
vera í bandalagi með tapliðinu.
Ármann segir erfitt að svara þess-
um spurningum en telur að
Reykjavíkurlistinn hafi átt betri
daga. Menn hafi í fyrstu verið
nokkuð sáttir við kosningabanda-
lagið en í seinni tíð hafi listinn
þróast meir í þá átt að vera sjálf-
stætt afl. „Okkur flnnst aö það þurfi
að endurskilgreina R-listann en ég
veit ekki hver staða flokksmanna er
í þessum efnum fyrr en að loknum
félagsfundi í lok maí. Þar munu lín-
ur væntanlega mjög skýrast hvort
almennur áhugi er á samstarfl eða
ekki.“ Ármann segist persónulega
þeirrar skoðunar að vinstri grænir
eigi að fara í viðræðurnar en drjúg-
ur hluti flokksmanna sé á „óljósu
miðsvæði" í viðhorfi til þessara
mála.
Engar pólitískar skyldur
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingarinnar, sagði í Degi
fyrir skömmu að það væri ábyrgð-
arhluti ef vinstri grænir yrðu ekki
með í R-listanum. Vísað hefur ver-
ið til þess að Sjálfstæðisflokkurinn
ætti sigur vísan ef R-listinn
klofnaði en vinstri grænir telja sig
ekki hafa neinar pólitiskar skuld-
bindingar ef marka má orð Ár-
manns um þetta. „Sumir halda
Árni Þór Inga Jóna
Sigurösson. Þóröardóttir.
þessu fram en skilyrði samstarfs
með Reykjavíkurlistanum er að
okkur líki málefnastarfið, alveg
burtséð frá úrslitum kosning-
anna.“
- Það er sem sagt ekki pólitísk
skylda ykkar að velja R-listann?
„Nei, við lítum ekki svo á, en við
erum engir vinir Sjálfstæðisflokks-
ins heldur og það mun vega þungt
í okkar ákvarðanatöku."
Innlent fréttaljós
Björn Þorláksson
blaðamaður
Myndí styrkja
VG-framboöiö
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra er að íhuga hvort hann
gefur kost á sér í borgarstjóraslag-
inn og Inga Jóna Þórðardóttir seg-
ist áfram ætla að gefa kost á sér í
leiðtogahlutverk sjálfstæðismanna
í borgarmálunum. Hún segir lík-
legt að prófkjör muni ráða en
bendir á að það sé ekki hennar að
svara fyrir slíkt. Inga Jóna telur
það farsælt skref fyrir VG-fram-
boðið að bjóða fram sér í Reykja-
vík. „Það myndi styrkja mjög
stöðu vinstri grænna. Þeir myndu
komast í ákveðna oddastöðu sem
myndi skapa þeim miklu meiri
Helgi Ármann
Hjörvar. Jakobsson.
möguleika á báða bóga,“ segir odd-
viti sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Yröi náöarhöggiö
Sigrún Magnúsdóttir, formaður
borgarstjórnarflokks R-listans, er
annars sinnis en hún segir orðalag
Ingu Jónu eðlilegt i pólitísku tilliti.
„Þetta væri það besta sem gæti
gerst fyrir Ingu Jónu og að sama
skapi það versta sem gæti komið
fyrir okkur,“ segir Sigrún og er
ómyrk í máli ef svo kynni að fara
að vinstri grænir myndu kljúfa
samstöðuna. „Það er litið að marka
orð vinstrimanna ef þeir ætla að
verða þess valdandi aö íhaldið taki
aftur við stjórn borgarinnar. Það
yrði svo mikið áfall að það myndi
væntanlega veita Reykjavikurlist-
anum náðarhöggið," segir Sigrún.
Prófkjörin dýr
Ef samstarf verður að veruleika
treystir Sigrún sér ekki til að meta
hvaða fyrirkomulag henti best til
uppstillingar. Óneitanlega sé auð-
veldast fyrir frambjóðanda að vera
stillt upp en galopin prófkjör séu
einnig mikil hvatning og oft á tíð-
um skemmtileg. Skuggahliðar séu
hins vegar mikiU kostnaður auk
þess sem kunningjum og vinum sé
att saman. Sigrún telur hugsanlegt
að 2-2-2 kerfið kunni að verða ofan
á en hún telur ólíklegt aö fólk
muni sætta sig við opið og óbund-
ið prófkjör.
Samstaða er forsenda
Helgi Hjörvar, forseti borgar-
stjórnar, segir samstöðu vera for-
sendu þess að Reykjavíkurlistinn
vinni borgina í þriðja skipti líkt og
í tvennum síðustu kosningum.
Hann segir vinstri græna vera
mjög mikilvæga í þessari umræðu
en hefur góðar vonir, líkt og aðrir
Samfylkingarsinnar, um að sam-
staða náist. „Vinstri grænir hafa
sagt að undirbúningur málefna-
grunns standi yfir og þegar þeir
hafi lokið þeirri heimavinnu séu
þeir tilbúnir i viðræður um fram-
boðsmálin," segir Helgi.
En burtséð frá vinstri grænum
telur Helgi að það kunni að ráða
úrslitum næsta ár hvaða leiðtoga
sjálfstæðismenn velja sér? „Lán-
leysi þeirra í forystumálum síð-
ustu 10 árin er með ólikindum.
Það stafar ekki endilega af því
hvaða fólk þeir hafa sett til forystu
á hverjum tíma heldur er þetta svo
sundruð hjörð að hún hefur aldrei
getað staðið á bak við foringja
sinn. Af þeim sökum nær flokkur-
inn engum árangri, sama hve góð-
ir menn kunna að veljast til for-
ystustarfa."
Tökum okkar tíma
„Menn munu komast aö niður-
stöðu og taka ákvarðanir en þær
liggja hins vegar ekki fyrir og
þeim verður ekki flýtt með nein-
um þrýstingi,“ segir Ögmundur
Jónasson, þingmaður VG-fram-
boðsins í Reykjavik. Hann villl að
öðru leyti ekki tjá sig um málið og
sömu sögu er að segja um Árna
Þór Sigurðsson, varaborgarfull-
trúa R-listans.
Eftir stendur titringur hjá borg-
arstjórnarflokknum sem e.t.v. er
afleiðing þeirrar staðreyndar að
hugsjónin um sameiginlegt vinstri
afl á landsvísu hefur ekki gengið
upp. Telja verður þó líklegt að fæl-
ingaráhrifin gagnvart Sjálfstæðis-
flokknum muni vega þungt á vog-
arskál vinstri manna þegar upp er
staðið. Jafnvel meira en innbyrðis
pólitísk samstaða, eins og einn
viðmælandi DV komst að orði.