Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 JDV Helgarblað „Ég er svolítið hallur undir þá skoðun að ann- aðhvort séu menn leikar- ar eða ekki og menn geti vel starfað við það þrátt jyrir skólagöngu en ekki beinlínis vegna hennar. Ég er í félagi leikara en menn tuðuðu svolítið þegar ég var tekinn inn. Ég hef áreiðanlega gengið í þúsund gryfjur á svið- / inu sem lœrðir leikarar falla í meðan þeir eru enn í skólanum. “ „Það er hérna blátt reiðhjól..." Þessi fleygu orð Dúdda rótara í hljómsveitinni Stuðmenn, þegar hann gerir örvæntingarfulla til- raun til að skemmta gestum þeirra með skyggnilýsingum, koma ósjálfrátt upp í hugann þegar maður mætir Eggert Þor- leifssyni leikara sem fór með hlutverk hins brjóstumkennan- lega Dúdda. Það er eitthvað í senn óvænt og einkennilegt við tilhugsunina um framliðið reiðhjól og þótt Eggert sjálfur minni lítið sem ekkert á reiðhjól þá hefur hann oft komið okkur til að hlæja með þvi óvænta og einkennilega. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um kvikmyndina Með allt á hreinu sem 116 þúsund íslending- ar görguðu af hlátri yfir í upp- hafi níunda áratugarins og verð- ur það hláturmet seint slegið. Hér þarf ekki að rekja frekar efni eða söguþráð myndarinnar, hvað þá rifja upp hvað Dúddi segir næst í hinu fræga skyggnilýsing- aratriði þvi þetta er eitthvað sem allir kunna. Fleiri íslendingar geta farið orðrétt með ræðu Dúdda en vitnað í Njálu. Að slá í gegn Eggert segist ekki muna hvaða ár myndin var gerð nema vegna þess að sonur hans fæddist í miðjum tökum árið 1982. Hann staðfestir hins vegar allar sög- urnar um að viö gerð myndarinn- ar var ekkert skrifað handrit til í hefðbundnum skilningi heldur nokkurs konar leiðarlýsing um ferðir Stuðmanna og Gæranna og hugmyndir um það hvað myndi gerast í einstökum atriðum. Sam- tölin voru að mestu leyti spuni. „Menn voru afskaplega sveigj- anlegir, opnir og skapandi, þetta var stanslaus flaumur sköpunar- gleði. Það sem hljómsveitin þurfti að gera í raunveruleikan- um var síðan fellt inn í handrit- ið, eins og ferðir til Óslóar og Kaupmannahafnar,“ segir Eggert þegar hann rifjar upp þessa tíma í samtali við DV. í þvi atriði myndarinnar sem tekið var fyrst, þar sem Dúddi er að rogast með hljóðfæri og tösk- ur í nánd við Holmenkollen í Noregi, var lagður, að sögn Egg- erts, grunnurinn að hinni grát- broslegu persónu Dúdda sem er neðstur í goggunarröðinni innan um stjörnurnar í hljómsveitinni. Læðist í giljadrögum Eggert varð landsfrægur á skömmum tíma þegar myndin var gerð og er að mati margra að- dáenda skops og gamansemi með- al fyndnustu leikara á íslandi. Hann segist hafa byrjað á toppn- um. „Þetta var alveg toppurinn og síðan hefur leiðin legið niður á við og maður er bara að laumast i giljadrögum niðri við sjó. Þetta er í rauninni alveg eins og lífið sjálft að þessu leyti. Það er mest gaman fyrst.“ í kjölfar velgengni Með allt á hreinu lék Eggert í gríðarlega vinsælum gamanmyndum Þráins Bertelssonar sem ganga undir DV-MYNDIR HARI Eggert sló í gegn í Meö allt á hreinu „Þaö hefur alloft komiö fyrir aö fólk veitist aö mér á förnum vegi og æpir að mér einhverjar setningar sem ég skil alls ekki. Ég.hef áttaö mig á því meö tímanum aö sumar þeirra muni vera úr Meö allt á hreinu eöa einhverjum öörum myndum sem ég hef leikiö í. “ Ekkert grín að vera fyndinn - þjóðin hlær að Eggert Þorleifssyni leikara. Hann segir okkur frá uppskrift Chaplins, depurð trúðsins og sannleikanum um stór og lítil hlutverk nafninu Líf-myndirnar og hétu Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf. Hann hefur alls leikið í 15 íslenskum kvikmyndum síðustu 18 árin og sú síðasta var Villiljós sem var sýnd árið 2001. Hann segist hafa verið á frumsýningu Með allt á hreinu en síöan hefur hann ekki séð þá umtöluðu mynd. Stundum æpir fólk eltt- hvaö „Það hefur alloft komið fyrir að fólk veitist að mér á förnum vegi og æpir að mér einhverjar setningar sem ég skil alls ekki. Ég hef áttað mig á því með tím- „Ég vona að það séu ekki allir gamanleikarar þunglyndir en það getur gert hvem sem er dapran að vera maður. Niðurinn í lífinu getur auðveldlega gert mann dapran og þá er ekkert sem fróar manni eins mikið og sak- laust grín. Það er ekkert grín að vera fyndinn, alls ekki. “ anum að sumar þeirra muni vera úr Með allt á hreinu eða ein- hverjum öðrum myndum sem ég hef leikið í.“ Um þessar mundir er Eggert að leika eitt aðalhlutverkiö i farsan- um Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney sem á að frumsýna í Borgarleikhúsinu 24. maí nk. Þarna eru margir valinkunnir gamanleikarar, auk Eggerts, sem stíga á stokk og má kalla þetta landsliðið í gríni. Var þetta svona fyndiö? „Það er skrýtið hvernig menn tala stundum um grin sem keppnisíþrótt og tala um lands- liðið. Ég hef aldrei heyrt menn tala um landslið í harmleik," seg- ir Eggert sem segir að leikritið sé á erfiðu stigi þegar viðtal okkar fer fram i einhverju undarlegu rými baksviðs í Borgarleikhús- inu sem er víst eins konar setu- stofa leikara. „Við erum hætt að hlæja að bröndurunum og okkur vantar áhorfandann sem er mikilvæg- asti mótleikari gamanleikarans. Þetta gerist alltaf þegar er verið að setja upp gamanleiki. Svo hrekkur maður við þegar fólk hlær og segir við sjálfan sig: Heyrðu, var þetta svona fyndið? Það er nefnilega algerlega til- gangslaust að vera meö eitthvert grín ef enginn hlær.“ Eggert heldur því fram að leik- húsið sé að þessu leyti langlíft listform sem engin samkeppni geti gengið af dauðu, hvorki kvikmyndir, myndbönd né neitt annað. Áhorfendur eru trampólín „Áhorfendur verða að vera við- staddir og ef allt gengur vel myndast þetta einstaka samband milli leikarans og áhorfandans þegar þeir magna upp gleðina hver í öðrum. Áhorfendur gegna sama hlut- verki fyrir leikara og trampólín fyrir fimleikamann. Þegar allir vinna saman stekkur leikarinn hærra og hærra uns hann spring- ur í tætlur og bomburnar, litirn- ir og reykurinn fylla loftið. Svo fellur tjaldið og allir fara glaðir út i lífið. Þetta tekst auðvitað ekki alltaf en þegar það tekst þá er gaman að vera til. Þetta er markmiðið okkar með þessari sýningu og ég er að vona að það verði svolítið gaman. Þetta er sammannleg reynsla sem ekkert tekur fram.“ Hver kenndi þér? Eggert hefur aldrei unnið við neitt annað en að leika ef frá er talið að hann sagði börnum til í klarínettuleik um hríð á sínum yngri árum. Eggert er samt ekki lærður leikari en lagði stund á klarínettuleik og hefur fengist mikið við tónlist. Raunar lá leið hans inn í leikhúsið með þeim hætti að hann var fenginn til þess að leika á hljóðfæri og vera statisti að auki. Það eru ekki mörg dæmi um ómenntaða leik- ara í íslensku leikhúslífi á okkar tímum og þarf eiginlega að vitna í Egil Ólafsson eða Ladda í þessu sambandi. En hver kenndi Egg- ert að leika? „Ég vil nú helst ekkert segja um það hvort einhver hafi kennt mér,“ segir Eggert snúðugt. „Ég er svolítið hallur undir þá skoðun að annaðhvort séu menn leikarar eða ekki og menn geti vel starfað við það þrátt fyrir skólagöngu en ekki beinlínis vegna hennar. Ég er í félagi leik- ara en menn tuðuðu svolítið þeg- ar ég var tekinn inn. Ég hef áreiðanlega gengið í þúsund gryfjur á sviðinu sem lærðir leik- arar falla í meðan þeir eru enn í skólanum." Eggert segist vera alveg stein- hættur að spila á klarínettið góða en þegar gengið er á hann rifjast upp þátttaka í ballettsýningu fyr- ir þremur árum með hljómsveit- inni Skárra en ekkert. „Ég á einhver rör heima en ég snerti þau eiginlega aldrei," seg- ir hann og meinar áreiðanlega klarínettið. Við þetta má reyndar bæta því að Eggert gerði ásamt hópi ann- arra tónlistarmanna og leikara fræga barnaplötu árið 1978, sem hét Hrekkjusvínin, og í hópnum mátti kenna menn eins og Val- geir Guðjónsson Stuðmann, Leif Hauksson útvarpsmann, Pétur Gunnarsson rithöfund og fleiri. Eggert viðurkennir að næstum allir núverandi félagar hans í „Vífinu" hafi verið í pollagöllum þegar platan kom út og alist upp með hana í eyrunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.