Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Side 41
49
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001
I>V Tilvera
Mir Sulthan Khan:
Þjónninn sem sigraði þá bestu
Skáklistin á sér
margar þjóðsagnaper-
sónur. Ein þeirra er
Indverjinn (Pakistan-
inn) Mir Sulthan
Khan. Hann birtist í
Englandi 1929 og
ástæðan var sú að
húsbóndi hans átti er-
indi þangað. Eins og
margir vita er mikil
stéttaskipting í Ind-
landi og er stéttaskipt-
ingin kölluð „kast“
(köst) í sumum ís-
lenskum kennslu- og
fræðibókum. Hús-
bóndi Sulthans Kkans
var „Maharaja", sem
er eitt hæsta kastið.
En Sulthan var aðeins
þjónn. Sulthan var frá
þeim hluta Breska
heimsveldisins sem í
dag heitir Pakistan.
Ekki er mikið vitaö um líf Sult-
hans annað að hann var fæddur
1905 og dó úr berklum 1966 í
Pakistan. Hann var mjög góður í
indverskri skák sem á þeim tíma
var frábrugðin „venjulegri skák“.
Til dæmis gátu peð aðeins tekið
eitt skref í einu. Sulthan var kennd
venjuleg skák í Bretlandi og var
hann fljótur að ná tökum á henni.
Hann var ólæs og óskrifandi og
þegar hann tefldi kappskákir þá
þurfti hann aðstoðarmann til að
skrá niður leikina. Meðan á dvöl
hans í London stóö var hann þjónn
hjá Umar Hayat Khan Tiwano sem
var „colonel" og hermaður sem sá
um hestastóð Georgs V.
Sulthan vann Breska meistara-
mótið (Breska samveldismótið sem
svo var kallað og það reyndar enn,
held ég) þrisvar, 1929, ‘32 og ‘33, og
svo tefldi hann fyrir England á
þremur Ólympíumótum, ávallt á
fyrsta borði. Honum tókst að bera
sigurorð af Capablanca,
Nimzowitch og Rubinstein, bara til
að nefna þá bestu sem hann lagði
að velli.
Paul Morpy tefldi aðeins í þrjú
ár, 1857-1859, Mir Sulthan Khan
tefldi aðeins í fjögur ár, 1929-1933,
hvemig fóru þeir að því að verða
svona góðir í skáklistinni? Capa-
blanca kallaði Sulthan snilling,
það er mikið hrós. 1933 var Banda-
ríska skákólympíuliðinu boðið til
kvöldverðar hjá húsbónda Sult-
hans.
Hann varð hins vegar að gegna
stöðu sinni sem þjónn og þjónaði
öllum til borös! Áriö 1933 krafðist
húsbóndi hans þess að hann færi
aftur til Indlands, honum hefur
vafalaust leiðst að hafa þjón sem
var oft í burtu að tefla. Mir Sulth-
an Khan sneri heim og gerðist
bóndi í þeim hluta Indlands sem
nú heitir Pakistan. Líklega hafa
honum áskotnast nokkrir skilding-
ar við skákiökunina og hann þess
vegna fengiö sig lausan. Honum
var boðið á stórmótið í Moskvu
1936 en hann var of fátækur til að
eiga heimangengt. Skákin er harð-
ur skóli!
Sjaldan ef nokkurn tíma var
Capa leikinn svo grátt.
Hvítt: Mir Sulthan Khan
Svart: José Raoul Capablanca
Drottningar-indversk vörn 1930
1. Rf3 Rf6 2. d4 b6 3. c4 Bb7 4.
Rc3 e6. Eftir næsta leik hefur af-
brigði þetta verið kennt við þá Petr-
osjan og Kasparov. En það er ljóst
að þjónn og bóndi frá Pakistan á
sennilega heiöurinn af þessum leik.
5. a3 d5 6. cxd5 exd5 7. Bg5 Be7 8.
e3 0-0 9. Bd3 Re4 10. Bf4 Rd7 11.
Dc2 f5.
Eitthvað hefur Capa teflt byrjun-
ina ógætilega. Ef svatur leikur eftir
12. Rb5 c6 13. Rc7 Hc8 14. Re6 og
skiptamunur fellur. 12. Rb5! Bd6
Frekar óyndislegt úrræði. 13.
Rxd6! cxd6 14. h4! Hc8 15. Db3
De7 16. Rd2! Rdf6 17. Rxe4! fxe4
18. Be2 Hc6 19. g4 Hfc8 20. g5 Re8
21. Bg4. Hvítur lætur sér fátt um
finnast og heldur ótrauður áfram
aðgerðum á kóngsvæng. 21. - Hcl+
Capa teflir ekki eins og hann er
vanur, eftir 22. Kd2 Hxal 23. Hxal
Hc7 24. f3 stendur hvítur betur en
eftir að hann þvingar Sulthan til að
láta drottninguna fyrir 2 hróka á
hann ekkert mótspil og getur bara
beðið. Sulthan sýnir ótrúlega þolin-
mæði!. 22. Kd2 H8c2+ 23. Dxc2
Hxc2+ 24. Kxc2 Dc7+ 25. Kd2 Dc4
26. Be2 Db3 27. Habl Kf7 28.
Hhcl Ke7 29. Hc3 Da4 30. b4 Dd7
31. Hbcl a6 32. Hgl Dh3.
Takið eftir þessari stöðu, hún
breytist lítið nema hvítur bætir
stöðu sína hægt og rólega. Hótunin
eftir næsta leik er 34. Hc7+ og tveir
menn falla fyrir hrók. Sulthan hefur
eflaust þekkt kyrkislöngur vel! 33.
Hgcl Dd7 34. h5 Kd8 35. Hlc2
Dh3 36. Kcl Dh4 37. Kb2. Peðið er
náttúrlega baneitrað, ef 37. Dxf2 38.
Bxa6 og biskupinn fellur. 37. - Dh3
38. Hcl Dh4 39. H3c2 Dh3 40. a4
Dh4 41. Ka3 Dh3 42. Bg3 Df5 43.
Bh4 g6 44. h6 Dd7.
Enn herðir hann takið. 45. b5 a5
46. Bg3 Df5 47. Bf4 Dh3 48. Kb2
Dg2 49. Kbl Dh3 50. Kal Dg2 51.
Kb2 Dh3 52. Hgl
Hvítur hótar 53. Bg4, 54. Be6 og 55.
Bg8 og svörtu peðin falla. Svarleikur
Capa er þvingaður, en þá kemur
hvíta innrásinn. 52. - Bc8 53. Hc6!
Dh4 54. Hgcl Bg4 55. Bfl Dh5 56.
Hel Dhl 57. Hecl Dh5 58. Kc3 Dh4
59. Bg3! Dxg5 60. Kd2 Dh5.
^Sti
Smáauglýsingar
visir.is
Nú fellur peðið á b6 og síðan
ryðst hvíta b-peðið áfram. Ég lærði
mikið af þessari skák á sínum tíma
og alltaf uppgvötar maður eitthvað
nýtt. Ef menn hafa gaman af skák,
þá er nauðsynlegt að skoða þessa á
minnst fimm ára fresti, ef menn eru
að skoða hana í fyrsta skipti í dag er
nauðsynlegt að skoða hana á morg-
un líka. Það hafa margir Benóný-
arnir verið til i gegnum tíðina! 61.
Hxb6 Ke7 62. Hb7+ Ke6 63. b6 Rf6
64. Bb5 Dh3 65. Hb8. 1-0.
Hér ættu allir að fá eitthvað við
sitt hæfi. Litrík og skemmtileg
tónlist af öllum stærðum og
gerðum frá óllkum tlmum og
mörgum löndum. Sannkölluð
tónlistarveisla fyrir hvern mann.
Miðasala kl. 9-17 virka daga
Háskólabíó v/Hagatorg
Sími 545 2500
www.sinfonia.is
25. mai kl. 19.30 & 26. maí kl. 17.00
Dimitri Shostakovich: Hátíðarforleikur
Bedrich Smetana: Þrír dansar úr óperunni Selda brúðurin
Sergei Rachmaninoff: Tilbrigði við stef eftir Paganini
Hector Berlioz: Rómverskt karnival
Charles Gounod: Dansar úr óperunni Faust
Maurice Ravel: Bolero
Hljómsveitarstjóri: Bob Bernhardt
Einleikari: Elizaveta Koppelman
©
Græn áskriftarröð