Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Side 50
í8 Tilvera LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 :ov lifiö Vorfiðringur 4 KLASSÍSKAR halda söngskemmtun í Ými i Skógarhlíð í kvöld kl. 20.30. 4 KLASÍSKAR eru hinar landsþekktu tónlistarkonur Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Björk Jónsdóttir, Jóhanna V Þórhallsdóttir og Signý Sæmundsdóttir. Söngskemmtunin kalla þær Vorflðring sem á vel við þennan indæla árstíma. Klassík ■ VORTÓNLEIKAR LÖG- REGLUKORSilNS Lögreglukór Reykjavíkur heldur sína árlegu vor- tónleika í Seltjarnarneskirkju klukk- an 16. Gestir: Kvennakórinn Létt- sveit Reykjavíkur. ■ ÓLAFUR KJARTAN í EYJUM Baritónsöngvarinn Olafur Kjartan Sigurðarson syngur í Safnaðarheimili Vestmanneyjakirkju kl. 16 á morgun, sunnudag. Viö hljóöfæriö er Jónas Ingimundarson Leikhús ______________________ ■ FEÐGAR Á FERÐ Árni Tryggva- son og Orn Arnason eru höfundar og leikarar í leikritinu Feðgar á ferð sem er sýnt kl. 20 í kvöld í lönó. ■ PLATONOF Nemendaleikhúsið sýnir í kvöld Platonof eftir Anton Tsjekhov í Hafnarfjarðarleikhúsinu. ■ SNIGLAVEISLAN Sniglaveislan eftir Olaf Jóhann veröur sýnd í Loft- kastalanum klukkan 20 í kvöld. ■ BALL í GÚTTÓ Leikfélag Akureyr- ar sýnir I kvöld leikritið Ball í Gúttó eftir Maju Ardal. ■ FÍFL í HÓFI Gamanleikritið Fífl í hófi verður sýnt klukkan 22 í kvöld í Gamla bíól. ■ SKÁLDANÓTT Skáldanótt eftir Hallgrím Helgason veröur sýnd á Stóra sviði Borgarleikhúsins klukk- an 19 í kvöld. Opnanir ■ SÖLUSVNING í LISTASAFNI KOPAVOGS á um 80 verkum eftir marga af fremstu listamönnum þjóö- arinnar veröur opnuö kl. 15 í dag I . Listasafni Kópavogs. ■FENKE KUILING oonar Ijósmyndasýningu í Gallerí Geysi, Hinu húsinu, viö Ingólfstorg, í dag kl. 16-18. ■ MESSÍANA í HAFNARBORG Sýning Messíönu Tómasdóttur, Selló, veröur opnuö í Hafnarborg í Hafnarfiröi í dag klukkan 16. Þar eru plexí-skúlptúrar og verk fyrir barnaóperuna Skuggaleikhús Ófel- íu. ■ SÝNING i HAFNARBORG í Hafn arborg eru nú til sýnis hluti þeirra listaverka sem safniö hefur fengiö aö gjöf eöa keypt hafa veriö til safnsins undanfarin ár. Sýningin stendur til 4. júní. ■ MÓSAÍK 2001 í LISTHÚSI OFEIGS Hópur kvenna, sem kallar sig Mósaík 2001, opnar sýningu á verkum sínum í Llstmunahúsl Ofeigs viö Skólavöröustíg í dag. ■ NINNÝ í GALLERÍ LIST Jónína Magnúsdóttir, „Ninný" opnar sýningu á glænýjum myndum sínum í Gallerí Ust í Skipholti 50 d á morgun, sunnudag. Sýninguna nefnir hún Á lífsins braut. ■ BRÚÐARSÝNING Tíu akureyrsk fyrirtæki standa aö viöamikilli brúöarsýningu í Ketilhúslnu á morgun, sunnudag. Húsiö opnaö kl. 14.30. Sjá nánar: Uflð eftlr vinnu á Vísi.is Körfuboltinn er stór hluti af lífinu Helga og Teitur berjast um körfuboltann. Bauð Keflvíkingum eiginhandaráritun sitjandi úti á miðri götu: Kjóllinn leyndó og enginn pípuhattur Þau eru að gifta sig i dag í Njarð- víkurkirkju brúðhjónin Helga Lisa Einarsdóttir, starfsmaður hjá Flug- leiðum á Keflavíkurílugvelli, og Teitur örlygsson, smiður, körfuknattleikshetja, leikmaður og þjálfari Njarðvíkurliðsins í körfuknattleik. - Hvað hafið þið verið lengi sam- an? „Við byrjuðum saman áriö 1986 og trúlofuðum okkur tveimur árum seinna, þannig að þessu ætti að vera orðið óhætt, ég ætti að vera búinn að kynnast henni,“ segir Teitur og heldur áfram, „og á þessum árum höfum við svo eignast tvær dætur 9 og 4ra ára.“ - Hefur verið mikill undirbúning- ur fyrir brúðkaupið? „Nei, það hefur ekkert verið of mikið stress miðað við það sem þekkist en það er auðvitað alltaf eitthvert stúss eins og að panta kirkjuna á réttum tíma og velja föt- in. Ég veit að sjálfsögðu ekkert um kjólinn hennar Helgu Lísu en ég verð i sjakket, þó án pípuhattsins, því það er svo mikill stærðarmunur á okkur og hún neitar að ég sé með hann þvi þá líti hún út eins og dvergur við hliðina á mér.“ - Eruð þið búin að fara í steggja- og gæsapartí? „Já, já, við erum sko búin að lenda í því bæði tvö. Tíu vinir mín- ir tóku mig bara óvænt og fóru með mig í alls konar sprell, þar á meðal þurfti ég að sitja úti á miðri götu í Keflavík og bjóða Keflvíkingum eig- inhandaráritum mina og Helga Lísa lenti í að fara í kappakstur á Go- kartbil ásamt ýmsu öðru óvæntu." - Hvernig á veislan að vera? „Það er ekkert sérstakt þema en bróðir minn, Gunnar Öm, verður veislustjóri. Hann hefur aldrei gert þetta áður en hann á auðvelt meö að koma fyrir sig orði og er skemmti- legur.“ - Á að fara í brúðkaupsferð? „Það stendur til að fara til Spán- ar vonandi í næstu viku og eyða þar svona vikutíma. Annars langar mig líka til að komast í veiði í Mývatns- sveitina með félögunum." -W DV MYNDIR HALLDÓR RÓSMUNDUR Trúlofuð í 13 ár „Ég ætti ab vera búinn aö kynnast hennisegir körfuknattleikshetjan Teitur Örlygsson sem gengur í þaö heilaga í dag meö sinni heitt elskuöu Helgu Lísu Einarsdóttur. Strákarnir í kvöld er lokasýning á Strákun- um á Borginni. Þeir Helgi Bjöms- son og Bergþór Pálsson hafa skemmt landanum alls um 50 sinn- um í vetur. Nú er komið að lokasýn- ingu Strákanna. Ætlunin var að halda áfram í haust en nú lítur út á Borginni fyrir að svo verði ekki þannig að nú er betra að láta vaða ef maður ætlar ekki að missa af þessari einstöku skemmtun. Strákarnir fengu af- henta gullplötu á dögunum fyrir metsölu á plötu sinni, Strákarnir á Borginni. Strákarnir á Borginni Helgi Björnsson og Bergþór Pálsson. Last Night Síðustu stund- irnar ★★★■*> '' Það hafa ófáar heimsenda- kvikmyndir litið dagsins ljós á sið- ustu árum, stærst- ar hafa verið Armageddon og Deep Impact, dýrar stórmyndir þar sem jörðinni er bjargað á síðustu stundu. Last Night er kanadísk kvik- mynd, gerð með óþekktum leikurum og fyrir lítinn pening. Hún er samt langbesta heimsendakvikmyndin og í henni er engin tilraun gerð til að bjarga jörðinni, hún er dauðadæmd. Last Nigth lýsir síðustu sex klukku- stundunum í lifi nokkurra persóna. Á miðnætti verður jörðin fyrir stórum loftsteini sem sprengir hana í loft upp. Það er búið að búa fólkið undir þetta og áramótastemning er í gangi: Hvað eigum við að gera síðustu klukkutim- ana, eigum við að lifa þar til augna- blikið skellur á eða eigum við að fremja sjálfsmorð? Sumir velta þessu fyrir sér. Aðrir ætla að upplifa eitt- hvað sem þá hefur dreymt um en aldrei þorað að gera og þar fram eftir götunum. Last Night er ákaflega gefandi kvik- mynd. Leikarinn og leikstjórinn Don McKellar byggir myndina upp á kó- mískan hátt, sýnir okkur í afkima mannssálarinnar, tekur þá ákvörðun að láta engan sýna neina hræðslu, sem virkar dálítið einkennilega í byrjun en gefúr myndinni gildi þegar líða tekur á og í ljós kemur að það eru smámunirn- ir sem fólk er að hugsa um. Ef ekki væri fyrir það að bjartara verður eftir því sem líður á kvöldið er fátt sem gef- ur til kynna að heimsendir er i nánd. -HK Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Don McKellar. Leikarar: Don McKellar, Sandra Oh, Tracy Wright, David Cronenberg og Sarah Polley. Kanada, 1999. Lengd: 95 mín. Bönnuö börnum innan 12 ára. Dirty Pictures List eða klám ★ ★★ Frank Pier- son hefur '^Cgert það að sérgein sinni að gera kvikmyndir sem byggðar eru á þekktum persónum, má nefna Truman og Citizen Cohn. í Dirty Pictures tekur hann fyrir atburð sem átti sér stað í Cincinatti árið 1990 þegar bann var lagt á sýningu á ljósmyndum eftir Ro- bert Mapplethorpe (hann hafði látist úr eyðni stuttu áður). Aðalpersóna myndarinnar er Dennis Barrie (James Wood), sýningarstjóri Samtímasafns- ins, sem er ákærður fyrir að sýna klám. Barrie var venjulegur fjöl- skyldufaðir og miðað við þá lýsingu sem er á honum, hefði hann sjálfsagt aldrei sett sýninguna upp ef hann hefði vitað afleiðingamar. Það er nú samt svo að hann verður frægur mað- ur. Maðurinn sem stendur með listinni gegn „listalöggunni". í upphafi og inn á miili er skeytt við- tölum við ýmsa sem komu nálægt mál- inu á sínum tima og leitað í fréttir til að fá álit annarra. Meðal þessa fólks eru hægrisinnaðir stjómmálamenn (Jesse Helms), listamenn á borð við Salman Rushdie og Fran Lebowitz og fyrirsætur á myndum Mapplethorpe, en meðal þeirra er Susan Sarandon. Dirty Pictures er sterkt heimilda- drama, vel leikin og sérlega vel klippt svo úr verður trúverðug lýsing. Skilaboðin em að sigur er ekki alltaf sigur. Einn galh er við íslensku útgáfuna, nöfnin á öllum þeim þekktu persónum sem koma við sögu era neðst á skjánum, á sama stað og textinn er, þannig að ef andlitið er ekki því þektara þá er engin leið að vita við hvem er verið að tala. -HK Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Frank Pier- son. Leikarar: James Woods, Craig T. Nelson og Diana Scarwid. Bandarísk, 2000. Lengd: 104 mín. Bönnuö börnum innan 12 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.