Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Page 51

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Page 51
1 59 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 IÖV Tilvera Nýstárlegt innlegg í kaffihúsamenninguna: Spáð í bolla og nudd Löngum hefur landanum þótt rjúkandi kaffisopinn góöur og var sá drykkur lengi vel haföur til spari þegar þjóðin bjó viö kröpp kjör og átti vart fyrir soðningu. En nú er öldin önnur og þessi munað- arvara þátíðarinnar rennur ljúf- lega um munn og maga hvers manns virka daga sem og aðra há- tíðlegri. Heimsborgaraleg kaffi- húsamenning hefur rutt sér til rúms í þjóðfélaginu og kaffihús með milljón bragðtegundum frá Ríó til Nígeríu eru á hverju strái. Þangað sækja kaffiþyrstir, panta sér tvöfaldan espresso, blaöa í tímaritum og dagblöðum, lesa und- ir próf, hitta félaga eða bara hanga og horfa á mannfólkið. Manni finnst svo sem að ekki þurfi neinu við þetta að bæta en alltaf má gott gera betur, segir einhvers staðar. Nuddað á píanóbarnum Ákveðið hefur verið að brydda upp á þeirri nýjung á kaffihúsinu Bláu könnunni á Akureyri á upp- stigningardag að bjóða gestum að láta spá fyrir sér í bolla eða spil meðan þeir sötra sopann. Og ekki nóg með það heldur verður í kjall- ara kaffihússins sem gengur undir nafninu Græni hatturinn og mun að öllum líkindum hýsa píanóbar á komandi sumri boðið upp á svæðanudd, nudd á háls og herðar, indverska streitulosun, einhverjir munu hjálpa fólki að ráða í draumana sína og e.t.v. höfuð- beina- og spjaldhryggjarmeðferð m.m. Hugmyndina að þessari nýj- ung fékk Vigdís Steinþórsdóttir nuddari eftir að hafa upplifað svip- aða stemningu á kaffihúsum í Gla- stonberry á Bretlandi fyrir skemmstu. Hún hafði samband við eiganda Bláu könnunar og eftir að hafa viðrað hugmyndina var ákveðiö að slá til. Hluti af menningunni „Það er fullt af fólki sem er að gera svona hluti heima hjá sér og sumir jafnvel í einhverju pukri, en það er markmið okkar sem stönd- um að þessu að fá þetta fólk til að koma og sýna öðrum hvað það er að gera. Þetta er hluti af okkar menningu og við viljum að þetta sé opið og frjálst. Svo viljum við endilega að fólk sem aldrei hefur prófað þetta áður komi og upplifi það sem þarna verður i boði.“ W -ili Spádómslífið á kaffihúsum Það verður spáð í bolla og spil á Bláu könnunni og nuddað á Græna hattinum á uppstigningardag. - Þarf fólk að borga eitthvað fyr- ir þessa þjónustu? „Það ætla allir sem koma að þessu að gefa sína vinnu en við ætlum hins vegar að safna fyrir nuddbekk sem okkur langar að gefa á endurhæfingardeildina í Kristnesi og tökum þess vegna smápening fyrir. Við eigum líka þann draum að svona þjónusta komist inn á heilsustofnanir - að þegar við þurfum að leggjast á sjúkrabeðinn að þá standi okkur til boða að njóta þess að fá nudd eða heilun ef við óskum eftir því. Okkur finnst að það þurfi að opna fyrir þessa hluti hér á landi eins og í öðrum löndum þar sem þetta þykir orðið sjálfsagður þáttur inn- an heilbrigðiskerfisins.“ - Gæti þetta ekki orðið framtið í kaffihúsamenningunni? „Ef vel tekst til þá gæti vel hugs- ast að þetta yrði gert af og til - að það verði hægt að skreppa á kaffi- hús, fá sér kaffi, lesa blöðin og fá kannski smá axlanudd og spádóm og ganga svo glaður út í lífið á eft- ir ...“, segir Vigdís sem spáir í spá- dómslífið á kaffihúsum. -W DV MYND BRINK \reirr@ Framleiðum 50-70 og 100 mm stoðir úr 0,6 og 0,8 mm þykku efni. Getum framleitt sériengdir. TIMBUR & STAL HF. Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 554 5544 • Fax: 554 5607 Nýfæddur hreindýrakálfur Sjálfsagt á þessi kálfur eftir að hafa aðdráttarafl fyrir börnin. F j ölskyldugar öurinn: Hrein- dýra- kalfur Aðfaranótt föstudagsins bar hreinkýrin Snotra og eignaðist hún myndarlegan tarf. í lok vetrar er það svo að kelfdar kýr eru einu hreindýrin sem ekki eru búin að fella hornin en þær fella síðan hom- in á 1.—11. degi fyrir burð. Voru starfsmenn garðsins því komnir í viðbragðsstöðu vegna þess að Snotra var nýbúin að fella bæði hornin og farin að draga sig frá hin- um dýrunum. Burður gekk mjög vel og heilsast þeim báðum eins og best verður á kosið. 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.